Tíminn - 07.06.1995, Blaðsíða 3

Tíminn - 07.06.1995, Blaðsíða 3
Miövikudagur 7. júní 1995 (ÍarílfclíltllífBltft 3 Almenn fjársöfnun fyrir stœkkun dýraspítalans á Rás 2 þann 8. júní: Landssöfnun fyrir allt aö 800 m2 dýraspítala Hótel Reynihlíb. Snjóaöi á feröamenn í Mývatnssveit um hvítasunnuna. Pétur Snœ- björnsson hótelstjóri: Bændur skælandi, en feröamenn brosandi Norpab í nepjunni. Þessir Þjóbverjar, sem Tíminn hitti í Mývatnssveit á laugardag fyrir hvítasunnu, voru heldur kaldir og hraktir, enda hiti rétt yfir frostmarki og slydda og hríb til skiptis. Þeir létu þó vel afdvölinni og sögbu vebur sem þetta „mikib œvintýri". Tímamynd Bjöm Þoriáksson Almenn fjársöfnun til a& fjár- magna byggingu stærri dýra- spítala í Víðidal er fyrirhuguð á Rás 2 fimmtudaginn 8. júní. Lauslegar áætlanir um væntan- lega húsnæðisþörf dýraspítal- ans eru 600 til 800 fermetrar með stækkunarmöguleikum, sem er allt að sexföld stækkun frá því 130 fermetra húsi, sem hýst hefur Dýraspítalann í Víði- dal til þessa. En þrengsli eru nú farin að standa starfseminni fyrir þrifum, samkvæmt frétt frá Dýraspítalan- um í Víöidal. Borgarráð Reykja- víkur samþykkti í febrúar nýja lóð fyrir stærri dýraspítala í Víðidal, á svæði hestamanna við gatnamót Breiðholtsbrautar og Vatnsenda- vegar. Fyrirhugað er að byggja þar á einum stað góðan hesta- og smádýraspítala og ráðgert að fjár- magna bygginguna með fjársöfn- un á landsvísu. Rúmir tveir áratugir eru liðnir síðan Mark Watson gaf lands- mönnum núverandi Dýraspítala: um 130 m2 verksmiðjuframleitt Laxinn er farinn að skila sér hjá Silfurlaxi hf. í Hraunsfirði á Snæfellsnesi norðanverðu. Laxabændur búa við meiri spennu um afkomu sína en aðrir bændur landsins. Út- koman hjá þeim er tvísýnni en gerist í öðrum greinum. Menn bíða og vona það besta, sagði Óskar Hallgrímsson hjá Silfurlaxi hf. í gær, en það fyr- irtæki er stærsta hafbeitarbú landsins. Vinnuheimtuspá hjá Silfur- laxi er upp á 5% og það er því mikið magn sem gæti skilað sér, ef þetta allt kemur, og mikið í húfi að skilin verði góð. Framundan eru seiðaslepp- ingar í stöðinni, endanlegar töl- ur eru ekki tiltækar en seiðin verða á bilinu 2,5 til 3 milljónir. „baö er virkilega gaman að lifa á sumrin hérna hjá okkur og mikil aksjón eins og maður seg- ir. Sleppingarnar eru að byrja í næstu viku, og heimtur eða slátranir koma til með aö hefj- ast eftir 19. júní. Laxarnir eru komnir í fjörbinn en við erum ekki farnir ab taka hann enn," sagði Óskar Hallgrímsson hjá Silfurlaxi hf. Þessir fyrstu lofa góðu fyrir Silfurlax, fiskar sem hafa verið tvö ár í sjó og meðalþyngdin þetta 12 til 13 pund. Óskar segir að hafbeitarlaxinn njóti þess á markaði að seljast á mun hærra verði en eldislax. Eftirspurnin er meiri en Silfur- lax getur skaffað. Næstum öll hús meb öllum tilheyrandi lækn- isáhöldum, sem hann sendi hing- ab 1974. Erfiölega gekk að fá dýra- lækna að spítalanum fyrstu árin, en 1983 tóku þrír dýralæknar hann á leigu og hafa rekið hann síðan. Fjórir dýralæknar starfa nú við Dýraspítalann auk tveggja lækna á bakvakt, dýrahjúkrunar- konu og þriggja aðstoðarstúlkna. í núverandi húsnæði er komið með smádýr til lækninga, en legupláss er þar m.a. fyrir sex hunda og 15 ketti, auk fleiri gælu- dýra og fugla. Nýja dýraspítalanum er ætlað að hýsa hesta- og smádýraspítal- ann, rannsóknarstofu, skrifstofu og geymslur. Auk þess er stefnt að því að hægt verði aö nýta hluta húsnæðisins sem fyrirlestrasal og bókasafn, í því skyni að koma hvers konar fræðslu um dýra- lækningar og dýravernd á fram- færi. Vonast er til að Dýraspítal- inn geti tekið við dýrum af öllu landinu í ríkara mæli en nú er gert. framleiðslan fer á Evrópumark- aö og verðið þar er gott. Evr- ópska efnahagssvæðið hefur ekkert að segja fyrir útflutning á laxi héðan, konungur fiskanna gleymdist í þeim samningi. Flafbeitin er áhættusöm bú- grein, lottóvinningur eða rúss- nesk rúlletta. Stórvinningur eða dauði. Silfurlax hf. hefur kostað mikiö fé, talað um hundruð milljóna, en nýtur engu að síð- ur trausts. Um síðustu áramót samþykkti Alþingi ríkisábyrgð vegna láns til Silfurlax upp á 50 milljónir króna. í hópi stærstu hluthafanna eru Svíar. „Þetta lán er að sjálfsögðu tryggt á eðlilegan hátt," sagði Óskar Hallgrímsson að lokum. Lagt hefur veriö fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á eldri Iögum, sem heimilar eft- irlitsmönnum Eftirlitsstofnunar EFTA, í samvinnu vib Fiskistofu, að gera vettvangskönnun hjá ís- lenskum fiskvinnslufyrirtækjum til aö ganga úr skugga um að ástand fyrirtækjanna sé í sam- ræmi vib löggjöf um mebferð og hreirrtæti viö framleiðslu sjávar- afurða. Frumvarpið er lagt fram fyrir Al- þingi til að uppfylla samningjr Þab var hryssingslegt um aö lit- ast í ferbamannaparadísinni Mývatnssveit, þegar blaðamað- ur Tímans átti þar leið um, laugardaginn fyrir hvítasunnu. Hiti var rétt yfir frostmarki og snjókoma. Virtist þeim fáu er- lendu ferðamönnum, sem urbu á vegi blaðamanns, heldur kalt, en báru sig þó vel og fannst ljós- lega nokkuð til veðursins koma, þremur vikum fyrir lengstan sólargang. Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri Hótel Reynihlíöar, segir veðrið í ár ekki hafa haft neikvæð áhrif á ferðamenn, enda eigi útlendingar sem heimsæki Mývatnssveit á vorin von á ýmsu og finnist það beinlínis krydda ferðalagið að fá rysjótta tíð. „Þaö þýðir ekki ab skoða svona veðurfar sem íslendingur, heldur fremur hvaða upplifun ferðamað- urinn fær út úr þessu. Maður hitt- ir hér bændur skælandi til sveita út af veburfarinu, en næsti maður er kannski túristi, brosandi út að eyrum yfir því hve þetta er flott." Nýting í maímánuði er svipuð og undanfarin ár og Pétur segir ab þannig muni það verða þangaö til menn átti sig á að ekki sé hægt að gera út á ferðamennsku á jaðar- tímum á sömu forsendum og yfir háannatímann. Þá á hann við að fundnir verði hópar, sem hafi sér- stakan áhuga á gönguferöum vítt og breitt um landiö, enda sé ófært til ýmissa frægra ferðamanna- staða. í nágrenni Mývatns nefnir hann Dettifoss, Kröflusvæöið, Dimmuborgir og Grjótagjá. „Það hefur helst staðið á skipuleggj- endum ferða að skilja að það er hægt að fara á þessa staði, en það verður að gerast á öðrum nótum en yfir sumartímann." skyldur íslands samkvæmt EES- samningnum og koma þannig í veg fyrir frekari aðgerðir af hálfu Eftirlitsstofnunar EFTA, sem m.a. gætu falist í formlegri kæru til EFTA-dómstólsins. En frá því að ís- lendingar geröust aðilar að EES- samningnum hefur Eftirlitsstofn- un EFTA tvívegis gert athugasemd- ir vegna vanefnda ísl. stjórnvalda á EES-samningnum, 21. desember 1994 og aftur 6. apríl sl. í athugasemdum með fmmvarp- inu kemur m.a. fram að meö EES- Pétur segir jafnframt að við- skiptavinir sínir séu aldrei ánægð- ari en einmitt á vorin og haustin, enda sé hægt að sinna þeim mun persónulegar og betur en yfir há- annatímann. „Þótt fáir gisti hér í Hótel Reynihlíð í maímánuöi, mibað við sumarið, skilar það sér samningnum heföu íslensk stjórn- völd skuldbundiö sig til ab fella inn í löggjöf sína meginmál samn- ingsins og fjölmörg atriði úr lög- gjöf Evrópusambandsins. Á sviði sjávarútvegsins var m.a. samið um að fella inní löggjöf íslendinga flest efnisatriði tilskipunar ráb- herraráðsins um hollustuhætti viö framleiðslu og markaðssetningu fisks og fiskafurða, ásamt tilskip- unum og ákvörðunum fram- kvæmdastjórnar ESB henni tengd- um. ■ mjög vel til lengri tíma litið. Gest- irnir eru svo ánægöir." Feröamenn hafa dvalið í Mý- vatnssveit allan maímánuð, ýmist í tjöldum eða gistingu. Þjónustu- leysið skapar þeim ákvebin vandamál fremur en veðurfarið. Pétur segir að gera verði þeim hópi ljóst, sem hyggur á jaðar- ferðir, að tímaáætlanir geti farið úr skorðum vegna veburs. „Ég hef ekki upplifað enn aö feröamenn á þessum árstíma hafi verib óánægðir með að tefjast einhvers staðar út af veðri. Þeir eru einfald- lega að upplifa eitthvað sem þeir hafa ekki upplifað áður." Til að skilja umfang ferðaþjón- ustu í Hótel Reynihlíð má nefna að gistinætur yfir sumartímann eru á sjöunda þúsundið, 25 þús. seldar máltíðir og þar fyrir utan eru stórir hópar, s.s. farþegar á skemmtiferðaskipum. Pétur telur ab með öllu séu þetta allt að 40 þús. hausar á sumri. Að hans mati er það nálægt þriöjungi ferða- manna í Mývatnssveit ár hvert. Hafbeitin— lottóvinningur eöa... Silfurlax, stcersta hafbeitarstööin: Sleppa 2,5 millj- ónum seiða í þessum mánuði Eftirlitsstofnun EFTA: Inná gafl hjá fiskvinnslunni

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.