Tíminn - 07.06.1995, Blaðsíða 4

Tíminn - 07.06.1995, Blaðsíða 4
4 Mi&vikudagur 7. júní 1995 ffiiim STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 5631600 Símbréf: 5516270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerð/prentun: ísafoldarprentsmi&ja hf. Mánaöaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verö ílausasölu 150 kr. m/vsk. Óheppileg verkfallsboðun Síöan einhvers konar aöalkjarasamningar milli vinnu- veitenda og Alþýöusambandsins voru geröir í febrúar sl. hefur hvert verkfalliö rekiö annaö. Flest enda meö því aö þeir sem hörkunni beita ná fram allmiklu betri samningum en láglaunafólkiö sem var látiö ryöja brautina í nafni stærstu verkalýössamtakanna. Er þaö gömul saga og ný og duglr ekki um aö fást þar sem heföin í stéttabaráttunni innan launþegahreyfinganna er orðin sterkari en svo aö við veröi ráöiö, hvað sem öllu jafnréttistali líður, eöa orðaþjónkun viö tuggna um að bæta beri kjör hinna lægstlaunuöu. Þegar misjafnlega fjölmennar starfsstéttir fá kjör sín bætt meö verkfallsaðgerðum eöa hótunum, er þaö rétt- lætt meö því aö viðkomandi starfsfólk hafi dregist aftur úr einhverjum á einhverju tímabilíT Þeir sem hjara viö febrúarsamningana þegja þunnu hljóöi, enda eru þær starfsstéttir flestu vanar af aðilum vinnumarkaöar. Enn eru nokkur verkföll óútkljáð og önnur hafa enn ekki skolliö á. En þau veröa sjálfsagt leyst meö einhvers konar leiöréttingum til handa þeim sem „dregist hafa aftur úr." Alvarlegasta vinnudeilan sem enn er óútkljáð er hót- un starfsmanna álversins í Straumsvík um aö leggja niöur störf ef samningar nást ekki meö ööru móti. Á sínum tíma samdi ísal um allnokkuð betri kjör til handa sínu starfsfólki en gerist á almennum vinnu- markaði til aö koma í veg fyrir verkföll. Ástæðan er al- kunn, ef álveriö stöövast tekur langan tíma og mikiö fjármagn að koma rekstrinum aftur í samt lag. En þótt álbræðslan stöövist í ótiltekinn tíma er hægt aö bæta þann skaða. En þaö skaöræöi sem verkfallshót- un veldur með því aö gera ísland tortryggilegt í augum erlendra fjárfesta veröur seint bætt og kannski aldrei. Ef starfsmenn í Straumsvík og forysta verkalýðsfélag- anna í umdæminu halda að samningsviðræður um stækkun reki á eftir stjórn ísals og eigenda álversins aö semja er það mikill misskilningur. Þvert á móti er ekk- ert líklegra en aö verkfallshótun bindi enda á frekari viöræöur um stækkun. Svona tiltektir hafa einnig áhrif á aöra fjárfesta sem verið er aö vonast til aö reisi annaö álver suöur meö sjó. Ekki þarf aö orðlengja hvers þjóö- arbúskapurinn meö sín ónýttu orkuver fer á mis ef ekk- ert veröur úr þeim stóriðjuframkvæmdum sem nú er rætt um að hafnar veröi. Þeir sem hætta fé sínu í stórframkvæmdir á erlendri grund gera kröfur um stjórnarfarslegan stöðguleika og aö einhverjir hópar geti ekki gert eigur þeira að engu meö geðþóttaákvörðunum. Kjaradeilur og verkföll er það sem fjárfestar óttast hvaö mest og sneiða hjá ríkj- um þar sem órói ríkir á vinnumarkaði. Aö þessu leyti er verkfallshótunin í Straumsvík afar óheppileg svo ekki sé meira sagt. Hér er ekki verið aö taka afstöðu til hvort starfsfólki ísals ber aö fá hærri laun og þá hver. Sjálfsagt eru kjör þeirra álíka rýr og flestra annarra á láglaunalandinu íslandi, þar sem hver þjóöarsáttin er gerö af annarri til aö létta skuldabyrði af almúganum meö loforöum um aö lækka vexti og for- senda þess er aö launin hækki ekki óhóflega. Ef til vill skiptir ekki miklu úr því sem komiö er hvort álverinu verður lokaö vegna verkfalls. Hótunin gerir sama gagn. Hún vekur tortryggni og getur vel leitt til þess aö Island veröi sett út af landakortinu sem land sem óhætt er aö fjárfesta á. Verkalýðsleiðtogar mættu gjarnan reyna aö öölast meiri yfirsýn yfir sviöiö þegar þeir fara að munda vopn sín. Reyksjúkir pólitíkusar Reyksjúklingar hafa upp á síö- kastiö veriö aö færa sig nokkuö upp á skaftiö í þjóöfélginu. Þetta má m.a. sjá í þeirri hryggilegu staöreynd aö núoröið er það hreint ekki óalgengt að sjá ung- linga reykja á götum úti, nokkuð sem nánast var óþekkt fyrir aö- eins örfáum árum. Aukna kokhreysti reykinga- manna má eflaust rekja til þess aö heldur hefur verið slakað á í áróðrinum gegn reykingum og banni við reykingum hefur ekki verið framfylgt af nægjanlegri hörku. Staðan er í rauninni oröin þannig, að reyksjúkir hafa styrkt svo vígstöðu sína aö þau heil- brigðismarkmiö, sem eðlileg eru hjá heilbrigðisyfirvöldum varð- andi það aö útrýma reykingum, eru í hættu. Fjölmargir viröast ekki átta sig á að reykingafíkn er sjúkt ástand sem bitnar bæði á fjárhagi og heilsufari hinna heil- brigðu og reyklausu. Slíkt er vita- skuld óþolandi, ekki síst þegar veriö er að tala um almennan samdrátt og hvers kyns þjónustu- gjöld í heilbrigöiskerfinu. Reyk- lausir, eða heilbrigðir einstakling- ar eru að taka á sig skerta heil- brigðisþjónustu til viðbótar því að taka þátt í að greiða fyrir sjúkrakostnað þeirra sem eyðilagt hafa hjá sér heilsuna með reyk- ingum. Mebferb fyrir reyksjúka Nýr heilbrigðisráðherra hefur viðrab hugmynd um ab koma á fót einhvers konar meðferðar- stofnun fyrir þá sem eiga erfitt með ab hætta að reykja samfara hertum reglum um reykingar. Slíkar hugmyndir yrðu liður í for- vamarstarfi sem myndi skila sér, þegar fram libu stundir, í lægri sjúkrahúskostnaði sem lækkaði í réttu hlutfalli við fækkun reyk- ingamanna. Einhver herkostnað- ur hlytist eflaust af þessari leið en þó ekki meiri en svo að slíkt væri fullkomlega réttlætanlegt. Hin leiðin væri að taka upp sérstök GARRI „reykingagjöld" á sjúkrahúsum þannig aö sjúklingar sem væru búnir að reykja frá sér heilsuna, vitandi vits um þá áhættu sem þeir tóku, yrðu látnir borga meira fyrir heilbrigðisþjónustuna en þeir sem ekki reykja. Slíkt hins vegar yrði eflaust flóknari og um- deildari leið. Pólitískir „co-alkar" En þab veldur hins vegar mikl- um vonbrigðum að heyra hvernig undirtektir hugmyndir heilbrigð- isráðherra hafa fengið. Sérstak- lega virðast Alþýðuflokksmenn telja það sterkt fyrir stjórnarand- stöðu sína að vera á móti þessari baráttu gegn reykingum og hvert tækifæri er notað til ab gera með- ferð fyrir reyksjúka tortryggilega. Fyrrverandi heilbrigðisráöherra talaði t.d. afar niðrandi um þessa hugmynd núverandi heilbrigðis- ráðherrra í sjónvarpsumræðun- um um stefnuræðu forsætisráð- herra. Hefur þessi sami maður þó talað um nauðsyn hjálpar í þess- um efnum þegar hann baðaði sig í sviðsljósi fjölmiðla við að reyna að hætta að reykja í beinni út- sendingu fyrir nokkrum árum. Nú hafa Alþýðuflokksfélögin á Suðurnesjum býsnast yfir þessum hugmyndum í ályktun, lýst áhyggjum af kostnaöi og reynt að blanda byggingu barnaspítala inn í þetta mál til þess að gera þaö sem tortryggilegast. Nútímalegur jafnaðarmannaflokkur er þaö sem forustumenn krata hafa jafnan kallað flokkinn sinn, en það er hins vegar lítið nútímalegt við reyksjúka stjórnmálamenn sem reyna að skora prik hjá reykinga- mönnum með því að eyða um- ræðunni um þann heilbrigöis- vanda sem þeir í raun eru. Krat- arnir eru eins og meövirku alk- arnir, afneita bara vandanum og láta sem ekkert sé. Það er ekki nú- tíma jafnaðarmennska. Það er gamaldags aulaháttur. Garri Göng liggja til allra átta Eftir ab síðasti krókakvóti var kunngeröur létu útgerðarmenn smábáta ófriölega og töldu marg- ir að verib sé að kippa gundvellin- um undan starfi þeirra. Kvótinn var minnkaður og ef rétt er að ekki sé hægt að gera út á þau býti sem bjóðast stefnir óhjákvæmi- lega í að hætt verður að gera út á línu og minni bátar verða ein- göngu til skemmtunar og útgerð þeirra í atvinnuskyni hverfur. Fram að skútuöld voru ver- stöðvar miðaðar vib opna báta og mynduðust þorp þar sem stutt var á miðin. Þótt síðar hafi bæst nótaskip og úthafstogarar í flot- ann og aflasamsetning breyst hef- ur það í engu breytt smábyggða- stefnunni, sem miðar að því að nýta þau gjöfulu fiskimið sem hægt var að sækja á opnum róðr- arbátum. Var sóknin miðuð við að hefja róður að morgni og draga seilar á land síðdegis. Svona gekk þetta til í aldanna rás og gerir enn. Það er að segja ab skip, veiðarfæri og fiskislóð er önnur, en byggðastefnur pólitík- usana í héraði og á þingi eru allar miðaðar við fráfærur til sveita og tvíæringa og sexæringa sem ýtt er úr vör og róið á fengsæl mið, helst ekki lengra frá heimahöfn en svo sem tvær til fjórar vikur sjávar. Samgöngur og aftur samgöngur Mikiö kapp er lagt á ab vib- halda byggb í gömlu verbúðun- um og þorpunum sem mynduð- ust á dögum þilskipa og Spánar- markabar. Þegar útgerð verk- smiðjuskipa frá gömlum verbúðum gengur ekki lengur upp er lausnarorðið byggbakvóti og megi hann blessast eins og önnur góð bjargráð til eflingar fornra byggðahátta. En ennþá mikivægara en eign- arhald á glæsifleyjum og kvóta eru samgöngur á landi, á sjó, und- ir sjó. yfir sjó, í lofti og í jörðu niðri. Þetta vita allir og þarf ekki að rökstyðja eba um að ræöa. Þegar uppvíst varð að stefnt sé að því að banna smábátaútgerð, eða setja trillukörlum stólinn svo þvert fyrir dyrnar að þeir fari á hausinn ef þeir reyna að nýta heimaslóðina meb því að draga fisk á færi eða línu fóru sumir að hugsa um hvernig á nú að fram- fylgja smábyggðastefnunni. Á víbavangi Trillukarl á Suðureyri við Súg- andafjörð kom í útvarpið um helgina og spurði hvað kvóta- og fiskilaust þorp á ab gera við fjög- urra milljarða jarðgöng til ísa- fjarðar eða yfir í annað þorp sem sem býr við svipað bjargræði. Velgjöröarmenn smábyggöanna Sjómaðurinn tók fram að það stæðist á endum ab í haust þegar göngin verba fullgerð verður hvorki fisk né atvinnu að fá í Súg- andafirbi og tilgangslaust ab búa þar lengur. Svona dæmi kunna hinir miklu samgöngufrömuðir og velgjörðar- menn smábyggðastefnunnar ekki að reikna, enda dæmiö aldrei lagt upp á þann veg aö neitt skynsam- legt vit fáist út úr því eba rökrétt útkoma. En allaf má bjarga byggðarlögum með því að skaffa nokkra úthafsveiöitogara eða því- umlíkt og aka með sjófrystan fisk fram og til baka undir Vestfjarða- fjöllin til að nýta samgöngubæt- urnar til einhvers annars en vatn- sveituframkvæmda. Vestfirskir sjósóknarar eiga annað og betra hlutskipti skilið en að banna þeim fiskveiðar á heimaslóð og fá tilgangslítil göt í gegnum fjöll í staöinn. Er nema von að trillukarlinn spyrði um til- gang búsetu og samgöngumann- virkja. Annars þykir ekki kurteisi að spyrja svona. Göngin munu efla atvinnulíf og byggð, segja þeir sem vitið hafa, en hins vegar reyna þeir aldrei að tengja saman þróun í fiskveiöistjórnun og at- vinnumálum og nytsemi fjár- frekra samgöngubóta. Þótt byggöastefnur og atvinnu- þróun haldi hvort í sína áttina munu þeir sem guð gaf vitið og embættin halda áfram að ráðskast meb fjármuni fjöldans og lífs- mynstur liðinnar aldar. Þegar vestfirski sjómaðurinn spyr á hverju hann eigi að lifa þegar honum er meinaö ab sækja sjó og fleyið er tekiö af honum stendur ekki á svarinu: Þú fékkst altjent göng, góurinn. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.