Tíminn - 16.06.1995, Blaðsíða 2

Tíminn - 16.06.1995, Blaðsíða 2
2 Whmwn Föstudagur 16. júní 1995 Samtök iönaöarins: Hálaunastörf veröa ekki til í Karphúsinu „Viö erum búnir aö bíöa í 25 ár eftir síldinni og þegar hún kemur þá förum viö í verkfall. Viö erum búnir aö bíöa í 20 ár eftir nýrri stóriöju og þegar sér fyrir endann á þeirri biö þá fara menn fram meö kröfu- gerö sem viröist vera aö eyöi- leggja þaö mál," segir Sveinn Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iönaöarins. Hann segir aö hálaunastörf veröi ekki til viö samninga- boröiö í Karphúsinu heldur viö nýtingu auölinda lands- ins. Átök á vinnumarkaöi og meint óbilgirni í samningum einstakra sérhópa valda félagsmönnum í Samtökum iðnaðarins verulegum áhyggjum. Framkvæmdastjóri samtakanna segir ab það kunni ab veröa erfitt ab útskýra það fyrir launafólki í ibnaði við gerð næstu kjarasamninga og jafnvel við end- urskoðun þeirra um næstu ára- mót, ef atvinnurekendur láta undan kröfum fámennra sérhópa og brjóta þannig á bak aftur þá stefnu sem mörkuð var í launa- málum sl. febrúar. í ályktun félagsfundar frá sl. þriðjudegi kemur m.a. fram að kröfur um kauphækkanir, langt umfram það sem samdist um á alm. vinnumarkabinum, stefni í voða þeim árangri sem sem náðst hefur í að styrkja samkeppnis- stöðuna. Skorað á þá sem betur mega sín og eiga eftir að semja að láta af kröfugerð sem ekki sam- rýmist því sem samið var um í al- mennum kjarasamningum í vet- ur. Framkvæmdastjóri SI fer heldur ekkert í launakofa með þab að þar er m.a. átt viö starfs- menn álversins. Hann fullyrðir jafnframt að það tíðkist hvergi í „siðuðum löndum" að boða verkföll í áliðnaði vegna þeirra miklu hagsmuna sem þar eru í húfi." Þab er eins og bjóða uppá einvígi þar sem annar hefur byssu en hinn hefur sverð," segir Sveinn. Hann telur einnig ab bobab verkfall yfirmanna á kaupskipum sé ekkert sérmál skipafélaga heldur miklu fremur mál útflutningsatvinnugreina. í þeim efnum skiptir ekki aðeins máli að vera samkeppnisfær í verði heldur einnig trúverðug- leiki og öryggi í því að koma framleiðslunni á markab. ■ Sýslumaöurinn í Borgarnesi segir mikiö um sauöfé á vegum og óttast aö menn átti sig ekki nœgilega á nýjum reglum þar um: Búfé á vegum alfarið á ábyrgb eigenda sinna „Þaö má segja ab einhver óhöpp hafi veriö í viku hverri aö und- anförnu vegna búfjár á vegum. Og ég er hræddur um að ab menn átti sig ekki nægilega vel á því, hvorki bændur né öku- menn, ab það eru komnar nýjar og strangari reglur um ábyrgb búfjáreigenda," sagöi Stefán Skarphébinsson, sýslumabur í Borgarnesi. Hann vill eindregið benda mönnum á ný lög þar sem lausaganga búfjar er bönn- ub á svæbi stofnvega og tengi- vega þar sem girt er báöum megin vegar. Búfé á vegum sé því alfarib á ábyrgb eigenda sinna. Sýslumaður segir nú mikið um saubfé við vegi í umdæminu og bendir eigendum á að fjarlægja það. Vegageröinni sé einnig heimilt að fjarlægja búfé af veg- um á kostnaö eigendanna. Hann tók fram að þetta ætti við um allt búfé. Töluvert sé líka um hross á vegunum. í óhöppunum aö und- anförnu sagöi Stefán oftar hafa verið um sauðfé að ræða. En mál- in séu hins vegar yfirleitt alvar- legri þegar ekiö er á hross, bæði meiri skemmdir á bílum og slys á fólki. Aðspurður segir hann girð- ingar ekki niðurslitnar eftir vetur- inn á þessu svæöi. Þannig ab slíka afsökun hafa menn ekki fyrir fén- aði á vegunum. Sérstakt umferðarátak lögreglu hefur staöið yfir í umdæminu að undanförnu. Borgarneslögreglan tók 42 ökumenn fyrir of hraðan akstur um síöustu helgi. Jafn- framt hafi 3 ökumenn verði tekn- ir gegna gruns um ölvun við akst- ur, 8 með vanbúnar kerrur eða aftanívagna og 10 vegna vanbú- inna bifreiða. Átaki þessu veröur haldið áfram næstu helgar. Sýslu- mabur brýnir fyrir ökumönnum að gæta að hraða og búnaði bíla sinna. Sambíóin boöa fjölmiölabyltingu á Ijósleiöaranum: Bíó inn í stofu 7 7. júní, þjóöhátíöardagur íslendinga, haldinn há- tíölegur á morgun: Dagskrá meö hefö- bundnu sniöi Þjóðhátíðardagur íslendinga verður haldinn hátíölegur um land allt á morgun, en þá eru libin 51-ár frá því íslenska þjóbin öblabist sjálfstæbi. I Reykjavík verður dagsskráin með heföbundnu snibi og hefst hún með því að forseti borg- stjórnar, Guðrún Ágústsdóttir, leggur blómsveig frá Reykvíking- um að leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum vib Suðurgötu og hefst athöfnin klukkan 10.00. Hátíbardagskrá við Austurvöll hefst kl. 10.40 meö ávarpi for- manns þjóðhátíbarnefndar, Steinunnar V. Óskarsdóttur. Því næst leggur forseti íslands, Vig- dís Finnbogadóttir, blómsveig frá íslensku þjóbinni að minnis- varða Jóns Sigurbssonar og Davíö Oddsson forsætisrábherra flytur ávarp. Klukkan 11.15 verbur guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Eftir hádegi hefjast hátíðar- höld meb skrúbgöngum frá Hlemmi og Hagatorgi og leggja þær af stað kl. 13.30 og 13.45 og verbur gengið niður í miðbæ, þar sem skemmtidagskrá * hefst kl. 14.00. Dagskráin fer fram á þremur stöbum, á Ingólfstorgi, í Lækjargötu og í Hljömskálagarbi. Á sama tíma veröur opnub sýn- ing á Kjarvalsstöbum, undir heit- inu „íslensk myndlist" og þá gera eldri borgarar sér glaban dag á Hótel íslandi kl. 14.00-18.00. Um kvöldib veröur skemmtun á tveimur sviðum í miðbænum. Á Ingólfstorgi verða gömlu dans- arnir í hávegum hafbir, en rokkið verður við lýði í Lækjargötu. Dagskránni lýkur kl. 2.00 á báð- um stööum. í Garðabæ sér skátafélagið Víf- ill um hátíðarhöldin sem fara fram að stærstum hluta við Flata- skóla og Garðaskóla og hefjast hefðbundin hátíbarhöld kl. 14.00. ■ Sambíóin hyggjast efna til fjöl- miölabyltingar á næstunni. Kvik- myndir bíóanna verba bobnar heim í stofu þeirra sem þéss óska. Með ljósleibaranum, sem Póstur og sími vinnur nú að í Hólahverfi í Reykjavík og víðar, skapast nýir möguleikar í fjölmiblun sem áður voru lokaðir. Þannig sér Árni Samúelsson, for- stjóri Sambíóanna, möguleika á ab taka á móti pöntunum fólks sem óskar eftir ab sjá tiltekna bíómynd heima hjá sér. Árni Samúelsson staðfesti í gær að þessi hugmynd væri í vinnslu hjá bíóunum. Hann gæti ekki sagt margt að sinni, en mundi boba blaðamenn á sinn fund í næsta mánubi og kynna þetta nýja fyrir- komulag. Árni sagbist ekki hafa trú á ab þetta nýja framboð á bíómyndum myndi spilla fyrir absókn að kvik- myndahúsum. Fólk mundi koma eftir sem áður og njóta þess sem bíóib hefur umfram sjónvarps- skerminn. ■ f30661 -J^rí^ÁTVRu99^di framtít) fyrirtœkisins: Starfsmenn aivk íiórba atla§arabhe;ra til einkavæWgar ATVR 1 ______ (rumvaip Þ>u sero nu a() hann «>t. m Sagt var... Fóbrarinn „Laxinn kroppar bara í mabkinn, hann heldur bara ab ég eigi ab fóbra sig." Ingibjörg Sólrún Gisladóttir í DV, en hún opnabi EIHbaárnar í gaer, meb mjög litlum árangri. Eins og köttur „Ég hugsa ab ég hafi níu líf eins og kötturinn." Jóhannes Magnússon, sjötugur trillukarl í DV, en hann bjargabist úr sjávarháska í annab sinn á dögunum. Cúmmífætur Einars Odds „Þab hefur komib í Ijós ab fætur Einars Odds eru úr gúmmíi. Hann hefur enn einu sinni tekib tillitsemi vib sjávarút- vegsrábherra framyfir hollustu sína vib kjósendur. Hann hefur guggnab." Össur Skarphébinsson í Alþýbublabinu. Margklofnir Hafnfirbingar „Meirihlutinn þríklofinn. Verbur nýr meirihluti myndabur á vinarbæjarmóti í Noregi?" Fyrirsögn í Alþýbblabinu um hafnarfjarb- arbrandarann í bæjarmálum í Hafnarfirbi. Þab þarf ekki mikib „Þau koma mér virkilega til," tilkynnti Tabatha glabhlakkaleg og átti þá vib brjóst sín eftir fegrunarstækkun." Tabatha Cash, frönsk klámdrottning í Alþýbublabinu. Þaggab nibur í „Ungur mabur sem hafbi þungar áhyggjur af því ab samfarastunur unn- ustu sinnar myndu vekja nágrannana fékk til dæmis ráblegginguna: Settu bara koddann yfir andlitib á henni." Úr sömu grein Sölumennska „Ég var vændiskona, segir hún hrein- skilnislega, og ég seldi á mér rassinn." Franska klámdrottningin enn á ný. Umbreytingin í þjóbhetju „Umbreyting Taböthu frá klámmynda- drottningu til fjölmiblastjörnu hófst á síbasta ári þegar hún vann Klámpálm- ann, jafngildi klámmyndaibnabarins vib Gullpálmann. Af óskiljanlegum ástæbum þá notubu frönsku fjölmibl- arnir tækifærib og gerbu úr henni þjóbhetju." Úr sömu grein í heita pottinum... Alltaf magnast vangavelturnar um for- mannsstöbuna í Landsvirkjun, en sem kunnugt er eru horfur á ab Jóhannes Nordal láti af starfinu. Tveir höfub- kandídatar eru í starfib, þeir Valdimar K. Jónsson prófessor og Gubmundur G. Þórarinsson, verkfræbingur. Bábir eru frá Framsókn. Síbustu fréttir herma ab staba Valdimars hafi heldur veikst, en Gubmundur sé ab sækja í sig vebr- ib. • Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarrábsins, hefur ekki fengib kon- unglegar móttökur hjá flokksfélögum sínum í rábherrastólum þegar hann ber upp vib þá erindi í nafni Verslunarrábs- ins. Um 70 erindi frá Vilhjálmi hafa ekki fengib afgreibslu í Stjórnarrábinu og gætu allt eins hafa lent í ruslafötun- um á rábherraskrifstofunum. Rábherr- arnir meb Davíb í fararbroddi eru alltaf eitthvab ab rábskast meb Vilhjálm. T.a.m. bönnubu þeir honum ab mæta á stofnfund Evrópusamtakanna, sem frægt er orbib. Nú virba þeir hann varla viblits. Vilhjálmur getur í sjálfu sér lítib gert vib þessu, en þó er hann nú búinn ab skrifa um virbingarleysi rábherranna í fréttabréf Verslunarrábsins og klaga rábherrana fyrir öllum vibskiptajöfrun- um, sem væntanlega vilja ekki láta hunsa félagib sitt. • Vaxandi þrýstingur er nú á formann knattspyrnudeildar Þórs ab láta þjálfara meistaraflokkslibs Þórs, Nóa Björns- son, víkja úr sæti, enda árangur libsins mjög slakur: þrjú stig eftir fjóra leiki. Menn hins vegar sjá þab ekki alveg fyr- ir sér hvernig þab ætti ab fara fram svo vel fari, því þjálfarinn og formaburinn, Kristján Kristjánsson, léku saman til margra ára meb Þór og eru hinir bestu félagar og vinir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.