Tíminn - 16.06.1995, Blaðsíða 24
Veörib (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær)
Föstudagur 16. júní 1995
• Veburhorfur á landinu í dag: Sunnan og su&austanátt, ví&ast aö-
eins gola í fyrstu en þegar lí&ur á morguninn fer vindur vaxandi, eink-
um su&austan og austanlands. Skúrir veröa sunnan og suövestan-
lands, en rigning á suöaustur og austurlandi, annars sta&ar úrkomulít-
iö. Hiti 9 til 12 stig sunnan og vestanlands, en 10 til 16 stig í öörum
landshlutum.
• Horfur á laugardag: Breytileg átt, gola eöa kaldi og skúrir um allt
land. Hiti 4 til 11 stig, hlýjast sunnan til á landinu.
• Horfur á sunnudag og mánudag: Norölæg átt, nokkuö hvöss á
sunnu'daginn en hægari á mánudag. Slydda e&a rigning og hiti 1 til 5
stig um landiö noröanvert, en skýjað meö köflum og um 10 stiga hiti
sybra.
• Horfur á þriöjudag og miövikudag: Hæg breytileg eða austlæg
átt og víbast léttskýjaö. Hiti 5 til 7 stig, hlýjast sunnan til á landinu en
kaldast viö norðurströndina.
Línurnar aö skýrast varöandi Reykholt:
Skólinn sameinaður FVA
Ni&ursta&a er komin í úttekt
sem Hagsýsla ríkisins ger&i á
Reykholtsskóla. í framhaldi af
því er menntamálará&herra,
Björn Bjarnason, a& kanna
möguleikana á því a& leggja
Reykholtsskóla ni&ur sem sjálf-
stæ&a stofnun, en reka þar úti-
bú frá Fjölbrautarskóla Vestur-
lands á Akranesi (FVA), þannig
a& Þórir Ólafsson, skólameist-
ari fjölbrautarskólans, ver&i
þar me& jafnframt skólameist-
ari í Reykholti. Sí&an ver&i
deildarstjóri yfir útibúinu í
Reykholti, þannig a& hvorugur
vir&ist ætla a& vinna slaginn
um skólastjórastö&una í Reyk-
holti, Oddur e&a Ólafur. Sta&an
hættir einfaidlega a& vera til.
„Fjölbrautarskólinn á Akranesi
heitir Fjölbrautarskóli Vestur-
lands og hefur verib með útibú
t.d. í Stykkishólmi og Ólafsvík.
Og þab er ein hugmyndin sem
menn hafa verið að ræða að FVA
sé ein stofnun undir einni yfir-
stjórn, þá er þab Þórir Ólafsson á
Akranesi sem verður skólameist-
ari. Þá yrbu einhvers konar deild-
arstjórar eða útibússtjórar sem
önnuðust Reykholt. Ég skil þaö
þannig, ef ætlunin er að fella
Reykholt undir FVA," sagði
Hjálmar Árnason, alþingisma&ur
og fyrrverandi formaöur Skóla-
meistarafélags íslands, í samtali
vib Tímann í gær. Hjálmar segir
að þar með væri verið að leggja
Reykholt formlega niöur sem
•sjálfstæða stofnun. En þarna
kæmi líka fram viðurkenning á
því starfi sem unniö hefur verib í
skólanum undanfarin ár. „Það er
ekki óeðlilegt að það fari fram
formleg úttekt og ákvarðanir séu
teknar í framhaldi af því," sagði
Hjálmar aðspurður um hvort
hann teldi þetta ásættanlega
lausn.
Niburstaða úttektarinnar var á
þá leið að hvorki sé þörf á að
starfrækja gmnnskóla né fram-
haldsskóla í Reykholti til að upp-
fylla fræðsluþarfir eða skyldur. Ef
stjórnvöld vilji á hinn bóginn
halda úti starfsemi af því tagi
sem verið hefur í Reykholti und-
anfarið geti Reykholt hentab fyr-
ir slíka starfsemi. Hún þurfi þó að
byggja á traustum lagagrunni og
markvissri stefnumótun, en á
það hafi skort.
Tvær tillögur vom settar fram í
framhaldi af niðurstöðum út-
tektarinnar. Önnur var á þá leið
að skólastarfi í Reykholti verbi
hætt, héraðsskólinn sem starfar
samkvæmt grunnskólalögum
verbi formlega lagður nibur og
kennsla á framhaldsskólastigi af-
lögð. Hin er þannig ab rekiö
verbi í Reykholti skólastarf fyrir
nemendur meb námserfiðleika
eða ónógan undirbúning, sem
eiga erfitt uppdráttar í hefð-
bundnum skólum eða búa við
slæmar félagslegar aðstæður.
Skilgreina þurfi það starf sem til-
raun til ákveðins tíma, markmið
yrðu skilgreind fyrirfram og ár-
angur starfseminnar metinn á
kerfisbundinn hátt. Eðlilegt sé að
veitt verði sérstök fjárveiting til
slíkrar tilraunar þótt FVA beri á
henni ábyrgð.
Menntamálaráðherra mun á
næstunni ræða vib stjórnendur
Fjölbrautarskóla Vesturlands og
heimamenn um útfærslu á þess-
ari leið, með þab ab markmiði að
efna næstu tvo vetur til skóla-
starfs í Reykholti sem sé hluti af
skólastarfi FVA, en skilgreint sem
sérstakt tilraunaverkefni með af-
mörkuð fjárframlög. Að þeim
tíma liðnum verði árangur til-
raunarinnar metinn og ákvörð-
un tekin um framhaldið.
TÞ, Borgamesi.
87,5%
Eldur viö Landsbankann í Mjódd
Slæmur arkítektúr
skapar eldhættu
Krakkar kveiktu í einum plast-
kúplanna sem standa vestan-
vert við Landsbankann í
Mjódd á þribjudagskvöldið.
Þarna eru plastkúplar sem eiga
að hleypa birtu ni&ur í bíla-
geymslu neöanjar&ar milli
bankans og gamla Broadway.
Kúplarnir eru úr eldnæmu efni
og standa nánast undir
skyggni bankabyggingarinnar.
Eldstrókur logabi nánast upp í
skyggni sem skagar út úr banka-
byggingunni án þess þó ab
eldur kæmist í húsiö. Slökkvi-
liðið í Árbæ var kvatt á
staðinn, en þá hafbi tekist
að ráða niðulögum eldsins.
Árni Jónsson, útibússtjóri í
Mjódd, sagði ab þetta væri ekki í
fyrsta sinn sem kveikt væri í
þessum kúplum, sem eru ekki á
vegum bankans. Árni sagði ab
kúplarnir væru lítið annað en
skreyting á vegum arkitekta,
gerðu lítiö gagn sem birtugjafi,
en ættu ab vera eitthvað fyrir
augaö. Hann sagbi að bygginga-
menn bankans fengju þetta
vandamál til meðferðar, af kúpl-
unum stafaði viss hætta fyrir
byggingu Landsbankans því
krakkar sæktu í ab skemma þá og
kveikja í með kveikjarabensíni. ■
„Kanínucevintýrib" sem hófst fyrir áratug hefur
reynst endasleppt:
Aðeins 128 kanínur
nú eftir af 5.900
Aðeins 128 angorakanínur
reyndust eftir við búfjártalningu
síðasta haust. Kanínur komust
fyrst í búfjárskýrslur Hagstof-
unnar árið 1985, um 4.000
stykki. Flestar urðu þær 5.900 ár-
ið eftir, en síðan fór strax að
halla undan fæti. Árið 1988
hafði kanínum fækkab í 3.300
og næstu þrjú árin fækkaði þeim
niður í 1.600 árið 1991. Árib þar
á eftir hrundi stofninn síðan
nibur í aðeins 430 dýr. Og í
fyrra, tíunda árið, komust ab-
eins rúmlega hundrað dýr á
skýrslur sem áður sagði. ■
MÁL DAGSINS
Nú er Spurt: Var réttlætanlegt af Mývetningum aö reka fé á
______________afrétt á meöan Landgrœöslan mœlti gegn því?
Hringið og látið skoðun ykkar í Ijós. Mínútan kostar kr. 25.-
SÍMI: 903 5613
„Opnun" Ellibaánna
fór fram með hefðbundnum
hætti í gær, en þá renndi borg-
arstjórinn í Reykjavík fyrir lax í
bobi Stangveiðifélags Reykjavík-
ur ásamt fríðu föruneyti. Þetta
er annað árið sem Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir hefur þetta hlut-
verk, en í fyrra fékk hún maríu-
laxinn eins og frægt varð. Eng-
an fékk hún fiskinn ab þessu
sinni, en í morgunkaffinu í húsi
Stangveiðifélagsins rifjaði hún
upp veiðisögu af sjálfri sér sem
höfð er eftir bræðrum hennar.
Þau systkinin höfðu gert sér
ferð upp á Auðkúluheiði til að
veiða silung og var þetta fyrsta
veibiferð Ingibjargar Sólrúnar.
Bræbur hennar höfðu gaman af
ab sjá hvernig systir þeirra
hryllti sig þegar hún var að
byrja að beita með ánamöðk-
um, enda fannst henni þeir
heldur ógeðslegir. Það fór þó
fljótt af og þegar leið á daginn
var hún orðin svo hörð í sókn-
inni, að sögn bræðranna, að
hún var farin að bíta ánamaök-
ana í sundur til að verba ekki
uppiskroppa með beitu. Borgar-
stjóri tók fram að ef bræðurnir
væru áminntir um sannsögli
væri ekki víst að þeir vildu taka
ábyrgð á sanrileiksgildi sögunn-
ar. ■
Tíminn kemur ekki út á morg-
un, laugardaginn 17. júní, og
næsta blað kemur því út þriðju-
daginn 20. júní. ■
Alit
lesenda
Síðast var spurt:
Á Jóhann G. Bergþórsson
aö geta veriö bœöi
bæjarverkfræöingur og
bœjarfulltrúi í Hafnarfiröi?
Hornstrandir:
Ferðafólk
sækir í
óspillta
nattúru
Á undanförnum árum hefur
straumur ferðamanna á Horn-
strandir farið vaxandi og
koma sumir ár eftir ár til að
njóta kyrrðar og fegurðar í
óspilltri náttúru svæðisins.
Djúpbáturinn m.s. Fagranes
hefur þegar hafið áætlunar-
siglingar á Hornstrandir og að
sögn Reynis Ingasonar á skrif-
stofu útgerðarinnar hefur
töluvert verið um hópbókanir
á vegum ýmissa félagasam-
taka, auk einstaklinga.
í sumar fer skipið á mánudög-
um og fimmtudögum í Aðalvík,
Fljótavík, Hlöðuvík og Hornvík
fram til 17. ágúst nk. Langt er af
stað kl. átta að morgni og kom-
ið til ísafjarðar um níuleytið á
kvöldin. Á föstudögum verða
einnig ferðir í Aðalvík og er þá
farið kl. 14. Einstaka sinnum
verður komið við á Hesteyri í
Jökulfjörðum. Þann 6. júlí og
aftur 20. júlí fer Fagranesið í 14
-16 tíma ferb í Furðufjörð og
Reykjafjörð á Ströndum. Auk
þess eru áætlunarferðir alla
þriðjudaga og föstudaga um ísa-
fjarðardjúp, en skipið getur tek-
ib allt ab 20 bíla í ferö.
Fyrir utan fastar áætlunarsigl-
ingar verður í sumar farið í
nokkrar aukaferðir og m.a.
verður bobið uppá svokallaða
Draumaferð á Jónsmessu, þann
24. júní nk. í þeirri ferð verður
boöiö uppá smárétti og harm-
onikkuleik og siglt út Djúpið og
fyrir Jökulfirði og horft á kvöld-
sólina. ■
12,5%