Tíminn - 16.08.1995, Side 6

Tíminn - 16.08.1995, Side 6
6 HKlaMljJmjMjlLi Mi&vikudagur 16. ágúst 1995 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM Austurland NESKAUPSTAÐUR Áfengi fyrir 133,7 milljónir króna selt í aust- firskum vínbúb- um fyrstu sex mánubi ársins Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur sent frá sér sölutölur áfengis og tóbaks fyrstu sex mánuði þessa árs. Í vínbúöunum á Austur- landi, þ.e. á Egilsstöðum, Seyðisfirði, Neskaupstað og Hornafirði, hafði selst áfengi fyrir 133,7 milljónir króna í lok júní. Þetta eru um 3,66% af heildarsölu áfengis á land- inu öllu en samtals hefur selst áfengi fyrir rúmar 3.660 milljónir króna á tímabilinu. Á Austurlandi var salan mest í vínbúðinni á Egils- stöðum 51 milljón króna, eöa 1,54% af heildarvín- kaupum landsmanna. Næst kom vínbúðin á Hornafirði, þar sem selst hafði áfengi fyrir 37,2 milljónir, þá kom Neskaupstaður með 26,6 milljónir og loks Seyðisfjörð- ur með 14,8 milljónir. Þegar skoðuð er sala á tóbaki á sömu útsölustöðum er vín- búðin á Egilsstöðum einnig í fyrsta sæti. Þar seldist tóbak fyrir 42,5 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins. Á Hornafirði seldist tóbak fyrir 26.5 milljónir, í Neskaupstað fyrir 17,9 milljónir og fyrir 10.5 milljónir á Seyðisfirði. Ef dæmið er skoðað á landsvísu kemur í ljós að áfengissala hefur aukist um 12,01% í lítrum en aðeins 5,4% ef skoðuð er aukningin í lítrum af hreinum vínanda. Aukningin virðist því vera í veikari drykkjum, einkum bjór. í tóbakssölunni er hins vegar u.þ.b. 5% samdráttur. FnÉTTnninmn SELFOSSI Mýrdalur: Beinhreinsub silungaflök Fagradalsbleikja við Vík í Mýrdal tók nýlega í notkun nýja beinhreinsivél til þess að beinhreinsa silungaflök sem fara til reykingar. Með tilkomu nýju bein- hreinsivélarinnar hafa opn- ast nokkrir áhugaverðir möguleikar á vinnslu fiskaf- urða og aukinni nýtingu í fiskvinnslu og fiskbúðum. Tækninýjungarnar felast í hraðastlilingu sem bætir grip vélarinnar í beinhreinsun, eykur öryggi og opnar möguleika á að ná út smærri beinum en fyrri útfærslur. Reyktur silungur hefur þótt úrvalsvara en hefur hingað til aðeins staðið kaupendum til boða með beinum. Neytendur eiga því kost á því í framtíðinni að kaupa beinlaus, reykt sil- ungaflök. ■■ Akureyri: Vinnsla rekavibs frá Skoruvík á Langa- nesi ab hefjast Háareki í Ófeigsfirbi sér um sögunina Þórshafnarhreppur hefur í sumar staðið fyrir tilrauna- verkefni í landi ríksjarðarinn- ar Skoruvík á Langanesi en þaðan eru teknir milli 400 og 500 rúmmetrar af timbri, rekaviði, og er timbrið flutt til Akureyrar þar sem fyrir- hugað er að saga það niður. Rekaviður hefur ekki verið nýttur í landi Skoruvíkur vel á annan áratug en Þórshafn- arhreppur hefur tekið jörðina á leigu í þessu augnamiði. Tilraunin felst fyrst og fremst í því að mæla kostnað við öflun og vinnslu á timbr- inu og síðan markaðssetn- ingu á afurðunum. Timbrið verður sagað í húsavið, þ.e. borð, planka, stoðir og hvað- eina annað sem markaðurinn kann að verða fyrir en besti hluti timbursins fer jafnvel til sérvinnslu, eins og í glugga og hurðir. Gerður var samstarfssamningur um verk- efnið en það eru Þórshafnar- hreppur, Sveinn Jónsson í Kálfsskinni í Árskógshreppi, Byggingavörudeild KEA, Gúmmívinnslan hf., flutn- ingafyrirtækið Dreki hf., Elías P. Sigurðsson á Breiðdalsvík og Axel Gunnarsson á Þórs- höfn. Aðdrættir hafa fyrst og fremst verið á vegum Elíasar P. Sigurðssonar og heima- manna á Langanesi. Gerður hefur verið samningur við Háareka hf. í Ófeigsfirði á Ströndum um sögunina og verður timbrið sagað á Akur- eyri. Fyirhugað var að byrja sögunina í byrjun ágústmán- aðar en það hefur dregist vegna mikilla verkefna- fyrir sögina í nyrstu byggðum Strandasýslu. Ýmsir aðilar við Þistilfjörð á Langanesi hafa verið óánægðir með það að komast ekki í þetta verkefni og vildu að verkefnið yrði alfarið unn- ið austur á Þórshöfn. Mat þeirra sem stjórna þessu verk- efni af hálfu Þórshafnar- hrepps var hins vegar það að þeir aðilar sem gengið var til samstarfs við væru líklegri til að ná betri lokaárangri í mál- inu, þ.e. í markaðssetning- unni, og koma timbrinu í verð. Þar er bæði rætt um betri hluta bolsins og ekki síður bökunum, en rætt hef- ur veriö um að smíða úr þeim safnkassa og vörubretti. Einnig er rætt um markaðs- setningu á saginu sem til fell- ur, sem getur verið allmikið þar sem notuð er hjólsög við verkið með allbreiðu blaði. Reinhard Reynisson, sveit- arstjóri Þórhafnarhrepps, seg- ist vona að niðurstaðan verði sú að um raunverulega at- vinnugrein sé að ræða en ekki aðeins óraunveruleg við- bót sem skili mjög lágu tíma- kaupi til þeirra sem að þessu standi. Ef það gengur eftir mun það styrkja mjög allan atvinnurekstur á Þórshöfn. íslensk fjallagrös sem heilsuvörur íslensk fjallagrös hafa um nokkurt skeið verið útflutn- ingsvara því síðustu sex árin hafa verið flutt út á bilinu þrjú til fimm tonn af þeim á hverju ári. Fram til þessa hafa fjallagrösin verið flutt út sem hráefni en nú hefur fyrirtæk- ið íslensk fjallagrös hf. hafið framleiðslu á heilsuvörum til útflutnings á fjallagrösum. Vöruþróun úr fjallagrösum hér á landi má rekja til afleið- inga Chernobyl-slyssins í Úkraínu vorið 1986 en við það urðu fjallagrös á megin- landi Evrópu og á Norður- löndum geislavirk og því óhæf til manneldis. Haustið 1991 hófst á vegum Ibn- tæknistofnunar og Kaupfé- lags Húnvetninga verkefni til að auka verðmætasköpun fjallagrasanna í stað þess aö flytja þau út sem hráefni. Tveimur árum síðar var fyrir- tækið íslensk fjallagrös stofn- að en auk Iðntæknistofnunar og Iðnþróunarfélags Norður- lands vestra eru Blönduósbær og Hvatnig hf. aðaleigendur þess. Þessi vöruþróun hefur nú leitt til þess að komnar eru á markað fjórar tegundir af heilsuvörum framleiddum úr fjallagrösum. Er þar um að ræða fjallagrasahylki, háls- töflur, áburð og snafs. Heilsu- vörurnar eru seldar í apótek- um og í íslenskum markabi í Leifsstöð á Keflavíkurflug- velli. Fjallagrasasnafsinn verður þó að minnsta kosti fyrst um sinn aðeins seldur sem minjagripur og fáanleg- ur í Leifsstöð. Óháö listahátíö í Reykjavík aö hefjast: Ingibjörg Sól- rún opnar Ibnó Fyrsta verk Óháðrar listahá- tíðar þetta árib er. opnun á Iðnó. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri mun opna húsið til afnota fyrir lista- menn borgarinnar og Tjarna- runnendur á öllum aldri á morgun, fimmtudag. Við opnunina á Iðnó munu þau Einar Melax, Kristrún Gunnarsdóttir, Laura Valentino og Paul Lydon leika á íslenska Steinaspilið, - en Jón Sæmund- ur nokkur mun sýna listina að synda, - ef veður leyfir. Á föstudag, á afmælisdegi Reykjavíkurborgar, er Óháð listahátíð opnuð á formlegan hátt af borgarstjóra. Þann dag kl. 14 hefst götuleikhús frá Skólavörðuholti og Hlemmi og endar á Ingólfstorgi. Þema göngunnar tengist álfum, vætt- um, þursum og örðum goð- sagnaverum úr íslenskri þjóð- trú. Laugavegi verður lokað, kaupmönnum væntanlega til hrellingar. Á hátíðinni verður fjöldi at- riba af ýmsu tagi út þessa viku og alla þá næstu. Nánar í dag- bók Tímans á hverjum degi. ■ Kaffileikhúsiö: Kaffistund með Hallgrími Helga Annað kvöld, fimmtudag, verður dagskrá í Kaffileikhús- inu meb Hallgrími Helgasyni rithöfundi og myndlistar- manni. Mun hann lesa upp úr eigin verkum, meðal ann- ars úr skáldsögunni „Þetta er allt að koma". Mun hann spjalla við áheyrendur um verk sín, fara með vísur og gamanmál. Hallgrímur tjáði Tímanum að engar fyrirspurnir yrðu leyfðar! Gestir Hallgríms verða þeir Hrafn Jökulsson, skáld og rit- stjóri Alþýðublaðsins, sem Hall- grímur ritar reyndar pistla í, eins og Steinn Steinárr forðum, - og Guðmundur Thorsson sem les úr óbirtri skáldsögu sinni. Hallgrímur Helgason er orð- inn Parísarbúi, en hefur heiðr- að hólmann með nærveru sinni undanfarnar vikur, „mér til skemmtunar", sagði hann í gær. Kaffileikhúsið er í Hlaðvarp- anum á Vesturgötu 3. Hús og bar opna kl. 20, dagskráin hefst kl. 21 og miðar kosta fimm- hundruð kall. ■ Tvœr bœndaferöir og líkur á þeirri þriöju: Vín- og ferðaþjónustu- bændur verða heimsóttir Bændaferðir eru með ferðir til Lúxembúrgar og Bretlands í október og nóvember, og vinna við að skipuleggja þriðju ferbina til írlands. Flogið verður til Lúxembúrg- ar 27. október. Þar verbur gist hjá vínbændum og þeim bænd- um sem vinna við móttöku ferðafólks. Vínbændur í Lei- wen, litlu og notalegu þorpi, munu halda íslenskum starfs- bræðrum grillveislu og landið skoðað. Þá verður farið 6. nóvember til London og gist í Salisbury. Farnar verða skoðunarferðir um England og Wales. Báðar þessar ferðir standa í rúma viku. Nánari upplýsingar hjá Agnari og Halldóru í síma 563-0300. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.