Tíminn - 25.08.1995, Qupperneq 3
Föstudagur 25. ágúst 1995
3
Konurnar einungis hálfdrœttingar á viö karla í tekjum:
Tekjur kvenna
hækkað 6%
meira en karla
Þótt atvinnutekjur kvenna
hafi nú fjögur ár í röö hækkaö
meira en tekjur karla, samtals
um rúmlega 6%, þá eru kon-
urnar samt ennþá einungis
hálfdrættingar á viö karla í
.tekjum. Samkvæmt skatt-
framtöium voru meöalat-
vinnutekjur á mann sem svar-
ar 100.700 á mánuöi á síöasta
ári, sem var 2,2% hækkun frá
árinu á undan.
Þetta meðaltal segir þó tak-
markaða sögu eins og önnur,
þar sem meðaltekjur kvenna
voru t.d. aðeins 52% af tekjum
karla, sem Þjóðhagsstofnun seg-
ir að hluta til skýrast af meira
vinnuframlagi karlanna. Kon-
urnar hafa samt heldur verið að
mjókka bilið síðustu árin. Þann-
ig hækkuðu tekjur þeirra um
3,1% í fyrra borið saman við
1,8% hækkun hjá körlum. Sam-
tals hafa þá tekjur kvenna
hækkað rúmlega 6% meira en
karla frá 1990. Þessarar þróunar
gætir í öllum aldurshópum.
Meðalatvinnutekjur hjóna
voru sem svarar 227.000 kr. á
mánuði í fyrra, sem er 5.000 kr.
hækkun frá árinu á undan.
Einnig í þessum hópi hækkuðu
tekjur kvennanna meira, eða
3,6% milli ára, borið saman við
2% tekjuhækkun eiginmanna
þeirra.
Nefnd aö störfum viö aö endurskoöa lög um meö-
lagsgreiöslur:
Innheimtuþátturinn
hefur batnað strax
„Viö höfum skipt starfinu upp
í tvennt. Annars vegar höfum
viö litiö á innheimtuþáttinn,
þ.e.a.s. hvernig bæta megi
innheimtuna og skoöaö hvers
vegna menn hafa ekki greitt
og hvers vegna þeir geta ekki
greitt og þar fram eftir götun-
um. Hinn þátturinn er sá aö
viö höfum veriö aö skoöa hag
meölagsgreiöendanna sjálfra,
hvernig sé hægt aö bæta
hann," segir Ólafur Örn Har-
aldsson alþingismaöur, en
hann veitir forstööu nefnd
sem hefur þaö hlutverk aö
endurskoöa lög um meölags-
greiöslur.
Hann segir að starfi nefndar-
innar hafi einnig verið skipt í
tvennt hvað varðar tímamörk.
Strax í haust komi nefndin með
breytingartillögur varðandi
þessa tvo þætti; innheimtuna
annars vegar og stöðu meðlags-
greiðenda hins vegar. í vetur
verði síðan unnið áfram að
grundvallarbreytingum á með-
lagsgreiðslukerfinu, en sú vinna
tekur iengri tíma.
Ólafur Örn segir of snemmt
að segja frá niðurstöðum. „En
það er alveg ljóst að innheimtu-
þátturinn hefur batnað núna
strax með því að ríkið er farið að
skuldajafna, sem það gerði ekki
áður. Það er að segja, núna eru
barnabætur og vaxtabætur
teknar af mönnum og það hefur
strax bætt innheimtuna veru-
Iega. Við erum líka að skoða
aðra möguleika á skuldajöfnun
við ríkið, en þetta er bara inn-
Ólafur Örn Haraldsson.
heimtuþátturinn," segir hann.
„Við emm síðan að skoða kjör
meðlagsgreiðendanna sjálfra og
ýmiskonar samninga og mögu-
leika á að koma mönnum á flot
aftur, sem eru í sjálfu sér lokaðir
inni vegna þess að tekjur þeirra
hrökkva ekki fyrir meðlags-
greiðslunum og skuldir þeirra
eru orönar svo háar að þeir
komast raunverulega ekki af
stað, því það er bókstaflega allt
tekíð af þeim.
Þetta erum við að skoða núna
og of snemmt að segja frá niður-
stöðum. En tillögur munu liggja
fyrir núna fyrir þingbyrjun og
verða þá gerðar kunnar," segir
Ólafur Örn Haraldsson alþingis-
maður.
-TÞ
Tíu vilja verba
yfirlögregluþjónar
Tíu manns vilja verða yfirlög-
regluþjónar á Akureyri en um-
sóknarfrestur um stöðuna rann
út um miðjan síðasta mánuð.
Erlingur Pálmason er verið hef-
ur yfirlögregluþjónn á Akureyri
varð sjötugur fyrr í þessum
mánuði og hefur nú látið af
störfum. Ekki hefur enn verið
ákveðið hver verður eftirmaður
hans en dómsmálaráðherra
veitir stöðuna. Ákvörðunar
hans er þó að vænta fljótlega,
því nýr yfirlögregluþjónn á að
hefja störf þann fyrsta næsta
mánaðar. ■
Lágfóta hefur lítiö látib á sér kræla í sumar miöaö viö fyrri ár.
7.400 kr. greiddar fyrir refsskottiö samkvœmt gjaldskrá þessa árs. Biskupstungur:
Færri refir veiddir
en oft
„Mér virbist aö heldur minna sér af
ref nú í sumar, en stundum ábur. i
hittebfyrra var þetta miklu meira
og þab mesta sem ég hafbi séb,"
sagbi Kristinn Ingvarsson refa-
skytta í Austurhlíb í Biskupstung-
um í samtali vib Tímann í gær.
Umhverfisrábuneytið hefur birt
gjaldskrá ársins um verblaun fyrir
skott refa og minka. Fyrir refi sem
veibast utan grenja, svonefnd
áður
hlaupadýr, greibast 1.400 kr, fyrir
fullorbna refi í grenjum greibast
1.000 kr, yrblingar leggja sig á 450
kr. og fyrir minkinn eru 1.100 kr.
greiddar. Refaskyttur í hverri sveit
fá síban ákvebna upphæb greidda
sem trygggingu frá sveitarsjóbi.
Kristinn og sonur hans lágu á og
unnu fimm greni í sumar, flest á
Biskupstungaafrétti og í Úthlíbar-
hrauni. Alls veiddust 32 refir, bæbi
fullorbin dýr og yrblingar. Minni
áhersla er lögb á ab veiba minkana,
enda gera þeir síbur usla en refir.
Þab var sumarib 1993 sem mest
veiddist af ref í Biskupstungum og á
afrétti sveitarinnar. Alls veiddust
refir þá á tíu grenjum og þab segir
Kristinn Ingvarsson vera þab mesta
sem hann lent í, en hann hefur
veitt refi og legib á grenjum í 30 ár.
Raunvextir eru ofháir á íslandi segir viöskiptaráöherra:
Lífeyrissjóbirnir
rába markabnum
Skyttumar vom
fleiri en gæsimar
Finnur Ingólfsson, iönaöar-
og viöskiptaráöherra, telur
raunvexti í landinu of háa,
miöaö viö þaö sem gengur
og gerist í nágrannalöndum
okkar. Lífeyrissjóöir ráöa
mjög stórum hluta peninga-
markabarins þannig aö
ástæöa hárra raunvaxta gæti
legiö í fákeppni á íslenskum
peningamarkaöi.
„Lífeyrissjóðirnir eru ntjög
markaðsráðandi um vaxta-
ákvörbun á þessum peninga-
markaði, það er ekki nokkur
Finnur Ingólfsson.
spurning," segir Finnur Ing-
ólfsson, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra.
Hann hefur óskað eftír því
að Seðlabankinn geri úttekt á
peningamarkaðnum og kanni
hvernig vaxtamyndum á
markaðinum eigi sér stað.
„Ef svo er að þaö er ekki nóg
samkeppni á markaðinum til
þess að tryggja aö vextir lækki,
þá er spurning hvaða aðstæð-
ur þarf að skapa til þess að
tryggja samkeppnina til þess
að vextir geti lækkað," segir
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra. -TÞ
Frá Stefáni Bö&varssyni, fréttaritarara
Tímans, Biskupstungum:
Fyrsti dagur gæsaveiöitíma-
bilsins var 20. ágúst síbast-
liöinn, en þann dag hitti
fréttaritari Tímans nokkra
gæsaveiðimenn viö Kjalveg,
sem höfbu verið viö veiöar
um morguninn.
„Þaö er minna af gæs núna
en í fyrra, og þar sem við vor-
um, voru fleiri skyttur en gæs-
ir," sagði einn veiðimannanna,
en hann og félagar hans voru
með 7 gæsir með sér.
Af átta öðrum hópum sem í
voru 2-4 veiðimenn voru afla-
tölur lægri, eða frá engri og upp
í þrjár gæsir. Einn veiðimaður
náði í ref austanvert við Bláfell.
Heildarafli þessara veiði-
manna á Biskupstungnaafrétti
nam 18 gæsum og einum ref
þennan fyrsta morgun gæsa-
veiöitímabilsins. Voru menn
að vonum óhressir meb feng-
inn. ■