Tíminn - 25.08.1995, Blaðsíða 7

Tíminn - 25.08.1995, Blaðsíða 7
Föstudagur 25. ágúst 1995 7 Páll Pétursson félagsmálarábherra œtlar ekki ab vinna ab sameiningarmálum meb sama hcetti og forverinn í embcetti: Þvingun leiöir ekki til góðs „Ég hygg a& síðasti félags- málará&herra hafi fari& mjög slysalega a& vi& sameining- una, þ.e.a.s. ákafi hennar a& sameina og barátta hennar var& mjög mislukkuö. Hún náöi ekki verulegum árangri. Ég mun ekki vinna aö samein- ingarmálum meö sama hætti og hún," segir Páll Pétursson félagsmálaráöherra a&spur&ur um stefnu sína var&andi sam- einingu sveitarfélaga. Sameining sveitarfélaga var mjög áberandi á starfstíma síð- ustu ríkisstjórnar og var stærsta verkefniö sem Jóhanna Sigurb- ardóttir ré&st í sem félagsmála- ráöherra. Undirtektir sveitarfé- laga við sameiningarhugmynd- um ráðherra uröu hins vegar sáralitlar, ekki síst sé miðað við þá fyrirhöfn sem lagt var í. Páll segir a& Félagsmálaráðu- neytið muni verba þeim innan handar sem vilji sameinast en tekur fram a& ekki verði um þvingunaraðgeröir eða eftir- rekstur að ræða, né fyrirheit sem ekki verði staðið við. „Ég legg áherslu á það að ég tel rétt að þau sveitarfélög sam- einist sem vilja sameinast og sameining verði frjáls en ekki þvinguð. Það leiðir ekki til góðs að ætla að fara að þvinga ein- hverja til sameiningar ef þeir ekki vilja," segir Páll Pétursson félagsmálaráðherra. -TÞ Ritsíminn í Reykjavík, - þaöan eru skeyti borin út. Uti á landi er þaö ekki taliö svara kostnaöi. Tímamynd cs Landsbyggbarmenn fá heillaóskaskeytin meb seinni skipunum: Ritsíminn í fríi um helgar úti á landi Heillaóskaskeyti og önnur skeyti sem senda á til fólks víðs vegar um landið um helgar, eru ekki borin út fyrr en á mánudag, þar sem starfsfólk símstöðvanna er í fríi um helgar. Mörgum þykir það skjóta skökku við að skeytin skuli ekki vera borin út á þessum tíma, þar sem um háannatíma er að ræða, enda bera brúðkaup, skírn- ir, fermingar og jarðarfarir oftast upp á helgar. Guðbjörg Gunnarsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Pósts og síma, segir skeytin vera borin út um helgar bæði í Reykjavík og á Akureyri, auk þess sem það er gert þar sem strand- stöðvar eru, þ.e.a.s. á ísafirði, Siglu- firði, Höfn í Hornafirði og í Vest- mannaeyjum. Guðbjörg segir hins vegar það undir stöðvastjórum komið á hverj- um stað, hvort símstöðin er opin og skeytin því borin út og segist hún vita til þess að það sé víða gert ef um jarðarför, fermingar eða brúð- kaup er að ræða, en það er ekki al- gilt. „Umdæmisstjórinn á Austur- landi hefur einmitt beint því til stöðvarstjóranna að hafa opið ef eitthvað sérstakt er að gerast." Ástæðuna fyrir þessari minnk- andi þjónustu segir Guðbjörg að á þessum stöðum úti á iandi sé ekki það mikið að gera í þessu aö það svari kostnaði allar helgar, þess vegna séu þær hins vegar opnaðar um helgar þegar mikið er að gerast. Á blaðamannafundi á miðviku- dag kynnti Póst- og símamálastjóri árskýrslu stofnunarinnar og kom þar fram að hagnaður af rekstri Pósts og síma var um 1,4 milljarðar króna. Af því greiddi stofnunin rúmlega 800 milljónir króna í ríkis- sjóð. ■ Guörún Hanna Óskarsdóttir viö haröfiskpressuna. Tímamyndir sigurbur Bogi Harbfiskvinnslan Cullfiskur er í Fremri-Breibadal vib Öndunarfjörb. Gubrún Hanna Óskarsdóttir: Kýr og haröfiskur Á bænum Fremri-Breiðadal við Öndunarfjörð búa hjónin Guðrún Hanna Óskarsdóttir og Halldór Mikkaelsson ásamt fjórum börnum sínum. Fram- færi sitt hafa þau að mestu leysti af hefðbundnum sveita- búskap, en í haust hyggjast þau hætta meb kúabú og snúa sér þess í stað alfariö a& harbfisk- verkun. Þess háttar verkun hafa þau stundað um alllangt skeið og hún farið vaxandi, að sögn Guðrúnar er blaðamaður Tímans við hana á ræddi á dög- unum. „Síðasti vetur var afskaplega erfiður hér vestra. Mjólk frá okk- ur þurfti að flytja með snjósleða út á Flateyri og síðan þaðan með Fagranesinu á ísafjörð í mjólkur- samlagið þar. Þrisvar sinnum þurftum við að flýja héðan úr húsi vegna snjóflóöahættu og hafast vib í skólanum í Holti, hér hinu megin við fjörðinn. Halldór maðurinn minn fór síðan einatt á vélsleða yfir Breiðadalsheiði til fiskkaupa á markaðnum á ísa- firði, en heiðin var lokuð allri bí- laumferð í þrjá mánubi. Þá var hér rafmagnslaust í nokkra daga en það vandist vel og var mjög heimilislegt. Það er afskaplega mikil reynsla ab búa á stöðum einsog hér og þetta gerir mann ab mun sjálfstæöari manneskju að öllu leyti," sagði Guðrún. í Fremri-Breiðadal eru unnar aballega tvær harðfisktegundir, ýsa og steinbítur. Og raunar eru fáar aðrar tegundir nýttar í harð- fisk hér á landi. Steinbít er aðeins hægt að verka á vorin en ýsuna frá hausti og fram á útmánuði. Úr hverju tonni af ýsu sem verk- uð er í harðfisk fæst 9% nýting en 7% nýting af steinbítnum. I heildsölu frá Gubrúnu Hönnu og Halldóri er hvert kíló af haröfiski selt á 2.000 kr. Sumum þykir það verð vera allhátt en Guðrún Hanna segir það ekki vera hærra en svo að rétt eðlilegar fram- færslutekjur fáist fyrir þetta verð. Við Öndundarfjörð og í Breiðadal fæst fólk við harðfisk- verkun á þremur bæjum. Er fisk- urinn hengdur upp í hjöllum og þurrkaður þar og venjulega tekur það um sex vikur. Fer þessi starf- semi vaxandi á öllum bæjum. „Ég vonast til að við getum einbeitt okkur að harðfiskverk- uninni í ríkari mæli þegar kýrnar eru farnar. Og þá jafnframt að við getum eflt söluna. Við eigum okkar tryggu viðskiptavini út um allt land, bæöi einstaklinga og verslanir. Þá koma ferðamenn sem hér eiga leið um mikið við og kaupa harðfisk. Einnig höfum við farið suður til Reykjavíkur og selt harbfisk í Kolaportinu og í vor seldum við á útimarkaði á Selfossi." -sbs. Bœjarhúsin í Fremri-Breiöadal viö Önundarfjörö. Þaö er mikil reynsla aö búa á miklum snjóasvceöum einsog fyrir vestan. Þessir mynd er frá liönum vetri og sýnir þegar mjólk frá Fremri-Breiöadal var flutt frá á þjóöveg á vélsleöa, í veg fyrir mjólkurbílinn. Ljósmynd: Gukrún Hanna Óskarsdóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.