Tíminn - 05.09.1995, Blaðsíða 11

Tíminn - 05.09.1995, Blaðsíða 11
 Þri&judagur 5. september 1995 11 UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . Vilja tyrkneska Kúrda út Ankara — Reuter Massoud Barzani, leibtogi íraskra Kúrda, sagöi í gaer ab hersveitir sínar hefbu fullan hug á ab binda enda á skærulibastarfsemi tyrk- neskra Kúrda í írak. „Okkur hefur tekist aö brjóta á bak aftur allar árásir á svæbinu," sagöi Barzani. „Vib ætlum ab halda áfram baráttu okkar þangab til viö höfum stöbv- ab algjörlega alla starfsemi PKK í héraöinu. PKK er ekki norbur-íraskur flokkur," sagbi hann. „Fari þeir og berjist í sínu eigin landi." PKK, eba Kúrdneski veka- mannaflokkurinn, er and- spyrnuhreyfing tyrkneskra Kúrda sem hafa barist vib tyrk- nesku stjórnina um árabil og krefjast abskilnaöar Kúrdistans frá Tyrklandi. Þeir hafa haft Hamas vill viöræður Gaza — Reuter Hamas-hreyfingin, sem er herská hreyfing Palestínu- múslima, sendi frá sér í gær yfirlýsingu þar sem segir ab efna þyrfti til „umfangsmik- illa, alvarlegra" vibræbna milli hreyfingarinnar og pal- estínskra stjórnvalda á Vest- urbakkanum, sem Yasser Arafat er í forsvari fyrir. Enn fremur krafbist Hamas þess ab skæruliöum hreyfingar- innar yrbi sleppt úr fangels- um PLO. „Við í íslömsku andspyrnu- hreyfingunni Hamas sjáum ... að við verðum þegar í stað að hefja yfirgripsmiklar, alvarleg- ar viðræður meðal þjóðarinn- ar sem yrðu bindandi fyrir alla áhrifaríka hópa á Palestínu- svæðinu, þar á meðal stjórn- völdin og stjórnarandstöð- una," segir í yfirlýsingunni. Hamas-hreyfingin er yfir- lýstur andstæðingur PLO og hét því árið 1993 aðgera frið- arsamninginn við Israel að engu. í því skyni hefur hreyf- ingin staðið að röð sprengju- árása, sem orðið hafa fjölda ísraelsmanna að bana. Að sögn starfsmanna PLO hefur Arafat reynt að fá Hamas til viðræðna og báðar hreyf- ingarnar skiptust á drögum að samkomulagi sín á milli, en ekkert samkomulag hefur komið til undirritunar. Palestínska lögreglan hefur gengið fram af fullri hörku gegn Hamas í kjölfar sprengjuárás- anna og fjöldi frammámanna í Hamas-hreyfingunni hefur ver- ib handtekinn, sumir þeirra hafa farið fyrir herrétt og hlotið langa fangelsisdóma. ■ úr írak bækistöðvar í írak og fyrir tæpum tveim vikum réðust þeir á skotmörk á svæði íraskra Kúrda og virtust meb því vera að vara við því að þeir myndú ekki líða að friðarsamningur milli hópa Kúrda í írak yrði undirritaður án þess að PKK yrði aðili að honum. „Við ætlum ekki að leyfa þeim að hindra friðarviðræö- urnar sem við hófum í Dublin, né leyfa þeim að nota land- svæbi okkar undir starfsemi sína," sagði Barzani. Flokkur Barzanis, KDP, og annar hóp- ur íraskra Kúrda, PUK, undir- rituðu vopnahléssamkomulag í Dublin í síðasta mánuði, en u.þ.b. 3.000 manns hafa látist í átökum á svæðinu undanfar- ib ár. „Það, sem við kjósum helst núna, er að stofnað verði sam- bandsríki (í norðurhluta íraks). Við lítum svo á að þetta sam- bandsríki eigi ab vera innan landamæra Iraks og með þátt- töku írösku stjórnarinnar," sagbi Barzani ennfremur. ■ Undirbúningurínn ab ríkja- rábstefnu ESB á ncesta ári: Svíar vilja „at- vinnumálakafla" Brussel — Reuter Svíar hafa sett fram hugmyndir um ab á ríkjarábstefnu Evrópu- sambandsins á næsta árí verbi „atvinnumálakafla" bætt inn í Maastricht-samninginn, meb þab í huga ab minnka atvinnu- leysi í ríkjum ESB. Þessi hugmynd Svía veröur til umræbu á fundi „hugleiðinga- hópsins" svokallaða í þessari viku, en hópurinn var settur á laggirnar til að undirbúa ríkjaráð- stefnuna, sem er ætlað að endur- skoða Maastricht- samninginn og þær stofnanir sem á honum byggja. Ef sérstakur kafli væri í Maast- richt-samningnum um baráttu gegn atvinnuleysi, myndi þrýst- ingur aukast verulega á aöildarrík- in um aö útrýma atvinnuleysinu í ESB, sem nú er um 11 prósent. „Það sem viö viljum er — ef svo má að orði komast — aö setja bar- áttuna gegn atvinnuleysi inn í stjórnarskrá ESB," sagði Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Sví- þjóðar. ■ Heitt í kolunum á Pekingráöstefnunni: Asakanir ekki allar á rökum reistar í gær hófst í Peking 4. ráb- stefna Sameinubu þjóbanna um málefni kvenna. Mikil spenna hefur ríkt á ráð- stefnu frjálsra félagasamtaka sem haldin er í tengslum við opinberu ráðstefnuna og hafa ásakanir og hótanir gengið á víxl milli kínverskra stjórn- valda og framkvæmdanefndar ráðstefnu félagasamtakanna. Fjórtán íslenskar konur og einn karl taka þátt í ráðstefnu fé- lagasamtakanna á vegum Kvenréttindafélags íslands. Mikill hiti hefur verið í Pek- ing undanfarna daga í fleirum en einum skilningi og fögnuðu Norðurlandabúar því vænni rigningarskúr fyrir helgi sem kældi loftið og hreinsaði. Sú saga gengur fjöllunum hærra að Kínverjarnir óttist mest ab vesturlenskar konur kasti klæb- um í hitanum hérna og að leigubílstjórar séu allir vopnað- ir vænum teppum til ab kasta yfir hinar siölausu ef svo kynni að fara. Erfitt er að átta sig á því hvað hæft er í ásökunum um fruntaskap kínverskra yfirvalda við ráðstefnugesti en íslensku þátttakendurnir hafa ekki orð- ið varir við þann yfirgang og ofríki Kínverjanna sem heims- pressan hefur greint frá. Framkvæmdanefnd ráð- stefnu félagasamtakanna, und- ir forystu Irene Santiago, hefur brugðist ákveðið vib ásökun- um um átroðning og ónæði af hendi yfirvalda og tilkynnt að farið verbi ofan í saumana á öllum ábendingum um óvið- unandi framkomu Kínverja. Þegar Santiago ræddi við blaðamenn um helgina sagði hún að kínverskum stjórnvöld- um hefði verið gefinn frestur til hádegis á sunnudegi til að gera hreint fyrir sínum dyrum, ella mætti búast við því að gestir ráðstefnunnar gripu til róttækra aðgerða. Kínverjarnir hafa aftur á móti ekkert viljab kannast við að þurfa að sæta slíku. Helstu umkvörtunaratribin Frá setningu kvennaráöstefnu Sameiriuöu þjóöanna í gcer. Fremst á myndinni eru Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, jiang Zemin, forseti Kína og Is- mat Kittani, aöstoöarmaöur aöalritara SÞ. Þau stilltu sér upp til myndatöku ásamt fleiri þátttakendum ráöstefnunnar. neuter sem heyrst hafa eru að kín- verskir áreiti ráðstefnugesti að ástæðulausu, takmarki ferða7 frelsi sumra og fylgst sé með ferðum einstakra gesta eins og þeir séu hættulegir njósnarar. Santiago var spurð um hvab væri hæft í því að kínversk stjórnvöld hefðu truflað ráb- stefnu lesbía með myndatök- um af ráðstefngestum og hvort rétt væri að prentun dagblaðs ráðstefnunnar hefði verið stöðvuð vegna greinar um mannréttindabaráttumanninn Harry Hu. Framkvæmdastjór- inn svaraði þessu fáu en sagði að kannað yrði hvab væri hæft Frá Margréti R. Sigurbardóttur og Sjöfn Vilhelms- dóttur í Peking í þessu. Sjálf hefur Santiago sætt töluverðri gagnrýni fyrir skipulag eða réttara sagt skipu- lagsleysi rábstefnu félagasam- takanna. Sem dæmi má nefna þá flutti framkvæmdastjórinn mikinn fyrirlestur SÞ kvenna úr kvikmyndahúsi í fyrirlestra- sal þar sem fyrir voru Múslima konur að ræða mannréttindi. Þetta seinkaði báðum fundun- um og varð til þess að lítið varb úr þriðju uppákomunni sem átti að fylgja í kjölfar mann- réttindaumræöunnar í fyrir- lestrasalnum. Það sem af er ráðstefnunnar hefur verið boðið upp á 4.500 •atriði á dag og varla við öðru að búast en eitthvað fari öbru- vísi en til var stofnað. Kín- verjarnir hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir að hafa ekki búib félagasamtökunum þá aö- stöbu sem lofab var þegar þeir tóku ab sér halda heimsþingib. Þeir virbast líka leggja meira upp úr löggæslu en öbrum þáttum skipulagsins og segja hana eiga ab tryggja öryggi gestanna. Nefndu þeir sem dæmi ab lítil stúlka hefði týnt móður sinni og kona frá Kamerún hefði týnt veskinu sínu. Talsmaður Kínverjanna sagði að ráðstefnan væri 99% í lagi og auðvelt ætti aö vera að leysa þau vandræði sem hlyt- ust af því eina prósenti sem eft- ir væri. Komið hefur fram ab 5.000 kínverskar konur (valdur hópur) séu á rábstefnu frjálsra félagasamtaka og ekki verði fleirum leyft ab heimsækja hana. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.