Tíminn - 23.09.1995, Síða 7

Tíminn - 23.09.1995, Síða 7
Laugardagur 23. september 1995 imwtWM 7 Bókmenntahátíö 95 í Reykjavík: Varb ekki aflokub tildurs- gáfumanna Norrænar bókmenntir í sókn í Evrópu Á lokadegi hátíðarinnar var svo fitjað upp á nýju efni, þegar full- trúar frá dönsku og hollensku bókastofunni, enskur útgefandi og stjórnandi Arts Council í Eng- landi komu til samræðu sem köll- uð var Norrænar bókmenntir á heimsmarkaði. „Þetta var mjög gagnleg umræða og tengdist því að Rithöfundasambandið og fleiri hafa undanfarið verið að berjast fyrir því að hér verði sett upp myndarleg kynningarstofa fyrir íslenskar bókmenntir. Það er ekki alveg vansalaust hvað ís- lendingar styðja slælega við bak- iö á sínum höfundum og miklu lakar heldur en nágrannaþjóöirn- ar. Það má t.d. nefna að bók- menntakynningarsjóður hefur 3 milljónir til ráðstöfunar, en þýð- ingarsjóður sem styrkir íslenskar Abstandendur Bókmenntahátíbar 95. Örnólfur Thorsson situr lengst til hœgri. Tímamynd GS þýðingar á erlendum bókmennt- um, hefur helmingi hærri upp- hæö til ráðstöfunar. Þessar bóka- stofur á Norðurlöndum og í Hol- landi hafa náð miklum árangri og stutt vel við sókn norrænna og hollenskra bókmennta á Evrópu- markaði." Vænlegt ab selja lamb og fisk meb bók- menntakeim „Erlendis telja menn að stuðn- ingur við men’ningarútflutning og menningarkynningu hvers konar styrki útflutning á annarri vöru. Það þarf því ekki að vera óheppilegt „vörumerki" fyrir okkur íslendinga að tengjast bók- menntum, þó viö þurfum ekki að velta bókunum uppúr raspi." Líklega væru það ríkissjóður og útgefendur sem myndu standa að stofnun svona bókastofu, sem færi með kynningarstarfsemi. „Mér fyndist heldur ekki ósenni- legt að þau fyrirtæki, sem standa í útflutningi og eiga mikil sam- skipti við aðrar þjóðir, hefðu áhuga á því að leggja þessu mál- efni lið. Mér finnst að þetta eigi ekki að verða enn eitt skrifborðið í ráðuneyti, heldur lifandi stofn- un sem sækir sér ekki bara fé og styrk til ríkisins heldur hefur sem víötækust tengsl." Aðspurður hvenær næsta bók- menntahátíð yrði, sagði Ömólfur að nú væru þeir að verða svo gamlir og þreyttir að það væri óvíst. „Við höfum unnið þetta í áhugamennsku og það er tölu- vert átak að standa í þessu, þó auðvitað mæði mest á Norræna húsinu." Bókmenntahátíðin hef- ur verið haldin fjórum sinnum á 10 árum og samkvæmt þeirri reglu verður sú næsta eftir 2-3 ár. „Það væri náttúrlega mjög ánægjulegt ef þetta legðist ekki af. Sérstaklega núna þegar hún virðist hafa náð fótfestu, og þar var það þátttaka almennings sem skipti sköpum um að þetta varð ekki aflokuð tildurssamkoma gáfumanna, heldur lukkaðist vonandi að byggja brú á milli þessara höfunda og almennra les- enda." ■ samkoma „Ég held að við séum bara nokkuð ánægð með þessa há- tíð. Bæði kom nokkuð breiö fylking af ólíkum höfundum og svo fjölmennti almenningur á dagskrárlibi bæbi ab deginum og á kvöldin, þó þab hafi aub- vitab verib erfitt fyrir vinnandi fólk," sagbi Örnólfur Thorsson, einn af aðstandendum Bók- menntahátíbar, í samtali vib Tímann í gær. Undirbúningsnefndin reyndi þó að koma til móts við vinnandi fólk meb því að hafa suma dag- skrárliðina í hádeginu. „En þetta var eina leiðin til að koma við svo fjölbreyttri dagskrá." Hann segir að mjög fjölmennt hafi verið á suma dagskrárliði að deginum til. T.d. hafi samræba Páls Skúlason- ar og Josteins Gaarder verib fjöl- sótt og eins samtal þeirra Taslimu Nasrin og'Silju Aðalsteinsdóttur. BÆIARMÁL Akureyri Bæjarráð hefur samþykkt kaup á eigninni Sæból í Sandgerðisbót af Lífeyrissjóöi sjómanna á kr. 619.000, en þab verb er byggt á reglum bæjarstjórnar um kaup á eignum á bráðabirgðastöðuleyfi. • Félagsmálaráðuneytið hefur ákvebib ab styrkja Menntasmibju kvenna um 1,5 milljónir á ári í tvö ár. • Bæjarráð hefur synjað erindi Náttúrulækningafélags Akureyrar um styrk til þess ab mæta hækk- un á fasteignagjöldum af hús- eigninni Kjarnalundi. • Bæjarráb hefur veitt íþróttafélag- inu Þór vebheimild til vebsetn- ingar á fasteign félagsins, Hamri vib Skarðshlíb á Akureyri, til tryggingar láni hjá íslandsbanka að fjárhæð þrjár milljónir króna. Lánib er tekib vegna körfuknatt- leiksdeildar félagsins. • Bæjarráb hefur synjað erindi frá handknattleiksdeild KA um styrk vegna þátttöku meistaraflokksliðs félagsins f Evrópukeppni bikar- hafa, en libið mætir Viking frá Stavanger í Noregi þann 7. októ- ber næstkomandi. Forstöðumaður Strætisvagna Ak- ureyrar hefur farið fram á það við framkvæmdanefnd Akureyrar- bæjar að hækka fargjöld með vögnum fyrirtækisins. Frajri- kvæmdanefnd tók sér frest til að skoða málið. • íþrótta- og tómstundaráð hefur samþykkt þriggja ára fram- kvæmdaáætlun. Þar kemur fram ab hraba þurfi framkvæmdum við uppbyggingu Sundlaugar Ak- ureyrar. Þar segir einnig ab stofna eigi hlutafélag um byggingu yfir- byggðs knattspyrnuvallar og ab byggja eigi íþróttahús á félags- svæði Þórs. Þá verði að byggja upp abstöbu fyrir skíða- og skautamenn. Öldungurinn Arna Dís ber langan aldur sinn og lífs- dómaranum Ole Staunskjœr. Bœbi virbast þau jafn hrifin af litlum Ekki ólíklega þykir þeim þessum vináttan öllum verb- reynslu af virbuleik. Tíbet spaniel, sem ekki virbist síbur rogginn yfir bikar og titli. launum betri. Samdóma álit erlendra hundadómara aö íslenskar hundasýningar vœru meö þeim bestu í heiminum: Um 290 hundar kepptu um alþjóðleg meistarastig Alls 287 hundar af 40 tegundum tóku þátt í árlegri sýningu Hundaræktarfélags Islands fyrr í þessum mánuði, en þetta var langstærsta hundasýning sem haldin hefur verib til þessa hér á landi. Þetta var alþjóbleg sýning, sú fjórba sem haldin hefur verib, en þab þýbir ab hundar geta öbl- ast alþjóbleg meistarastig. Dóm- arar komu frá Danmörku og Bret- landi. „Var þab samdóma álit þeirra ab íslenskar hundasýning- ar væru meb þeim bestu í heimin- um," segir í frétt frá Hundarækt- arfélaginu. Þar segir sömuleibis ab áhugi á hreinræktubum hund- um hafa farib vaxandi í seinni tíb, sem best sýni sig í gífurlegum fjölda innfluttra hunda. Samkvæmt upplýsingum hjá Ein- angrunarstöðinni í Hrísey tekur hún á móti um 60 hundum á ári. Eftirspurnin er svo mikil, ab þar er nú hálfs árs biðlisti, eða fram í febrúar. En einungis 8 til 10 hundar geta verið í stöbinni hverju sinni. Keppt var í fimm flokkum: flokki 6- 9 mánaða hvolpa, opnum flokki ungliba og unghunda, meistara- flokki og öldungaflokki (7 ára hundar og eldri). Hjá Hundaræktar- félaginu þykir mönnum það mibur ab öldungar sjáist allt of sjaldan í keppni, en þeir voru aðeins fjórir ab þessu sinni. Margir öldungar séu enn við góða heilsu og glæsilegir fulltrúar sinna tegunda, þótt komn- ir séu af léttasta skeiði. Keppni í fimmta flokknum er öbruvísi ab því leyti, ab þar eru þaö ekki hundarnir sjálfir sem dæmdir eru, heldur er tekið mib af því hvernig 10-16 ára sýnendur hund- anna fá þá til að njóta sín sem best í gæðadómi. Besti hvolpur sýningarinnar var Gríma, íslenskur fjárhundur í eigu Þóru Guðbjartsdóttur. Besti hundur: Ýrar-Alexander mikli, papillion í eigu Sævars Stef- ánssonar. Besti öldungur: Arna Dís, enskur springer spaniel í eigu Rúnars Hall- dórssonar. Auöur Sif Sigurgeirsdóttir, með Tíbet spaniel, var útnefnd besti ungi sýnandinn á sýningunni. Auk þess fengu 28 hundar alþjób- leg meistarastig. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.