Tíminn - 31.10.1995, Blaðsíða 8
8
Þriöjudagur 31. október 1995
PjETUR SIGURÐSSON
Frjálsíþróttaleikvöngum á höfuöborgarsvceöinu fjölgar:
25-30 milljóna frjáls-
íþróttaa&staða í Kópavogi
Framkvæmdir eru nú hafnar viö
uppbyggingu frjálsíþróttaab-
sfööu í Kópavogi, nánar tiltekib
á Kópavogsvelli. Ætlunin er ab
þar verbi hlaupabraut meb sex
brautum meb gerviefni og er
kostnaburinn áætlabur á bilinu
25-30 milljónir króna.
Jón Júlíusson, íþróttafulltrúi í
Kópavogi, segir að nú sé verið aö
skipta um jarðveg í brautunum og
síöan verður malbikað. Hann segir
þó ekki ljóst hvort það verbur gert
nú eða í vor, en þó er miðað við
að það verði gert í haust. í júní er
síðan gert ráð fyrir að gerviefni
veröi lagt á brautirnar, en ekki
hefur verið tekin ákvöröun um frá
hvaða framleiðánda þaö verður.
Tvær innstu brautirnar verða upp-
hitaðar og því verður hægt að not-
ast við völlinn nær allan veturinn.
Jón segir að vonir séu uppi um
að verkið veröi klárað í júlí og að
mannvirkið verði tekiö í notkun
við hátíölegt tækifæri í byrjun ág-
ústmánaöar.
Jón segir að til tals hafi komið
að leita samstarfs við önnur bæjar-
félög við uppbyggingu frjáls-
íþróttaaðstöðu, en það hafi þó
ávallt strandað. „Við megum ekki
gleyma því að þessi aöstaða er ekki
einungis fyrir keppnisfólk, heldur
ekki síður fyrir almenning og með
því að tvær brautir verða upphit-
aðar getur fólk skokkað þarna á
veturna."
Varðandi aöra uppbyggingu
íþróttamannvirkja, segir Jón að
haldið verði áfram uppbyggingu á
félagssvæðum íþróttafélaganna
HK og Breiðabliks. í sumar var tek-
iö í notkun nýtt grasi lagt æfinga-
svæði Breiðabliks við hlið Kópa-
vogsvallar, og þá var unnið við
gerð æfingasvæðis fyrir HK í Foss-
vogsdal. Kópavogsvöllur veröur
hins vegar áfram keppnisvöllur
fyrir meistaraflokka beggja félaga.
Ceorge Craham, fyrrum framkvœmdastjóri Arsenal,
játar sig sekan í félagsskiptamálinu:
Graham fékk
44 milljónir
George Graham, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Arsenal í ensku úr-
valsdeildinni, hefur játab ab hafa
fengib ab gjöf sem svarar um 14
milljónum íslenskra króna, sam-
fara kaupum á leikmönnum, en
greibslum þessum var ætlab ab
libka fyrir samningum.
Graham játar í viðtali við ensk
blöð að hafa fengið upphæðirnar
afhentar frá norska umboðsmann-
inum Rune Hauge í 50 punda seðl-
um, en þá voru þeir staddir á bar á
hóteli í London. „Já, ég var
heimskur. Já, ég var gráðugur. En
ef hann byði mér þetta aftur,
myndi ég segja nei." George Gra-
ham segist ekki hafa gert sér grein
fyrir hversu há upphæb þetta var
fyrr en hann talaði við starfsfólk
banka síns, sem hafði talið pening-
ana. Síbar fékk hann aðra greiðslu,
sem nemur um 30 milljónum ís-
lenskra króna frá Norðmanninum,
og í framhaldi af því komust ensk
skattayfirvöld í málib, sem skýrðu
Arsenal frá því og í framhaldinu
var Graham rekinn. ■
Frá framkvœmdum á Kópavogsvelli.
Tlmamynd GS
Enska knattspyrnan:
Keegan æfur út af sjónvarpsskjá
Newcastle situr enn á toppi úrvals-
deildarinnar ensku í knattspyrnu
eftir jafntefli gegn Tottenham á
sunnudag í einum skemmtilegasta
leik leiktíðarinnar. Leiknum lyktaði
með jafntefli 1-1, Newcastle hefði
hæglega getað tryggt sér sigurinn á
lokamínútum leiksins, þegar Les
Ferdinand, sem tókst ekki ab skora
í leiknum, fékk dauðafæri einn
gegn markverði Tottenham, en
hrasaöi á örlagastundu. Ruel Fox,
sem Tottenham keypti nýlega frá
Newcastle, átti stórleik gegn sínum
gömlu félögum. Sama má segja um
Ginola hjá Newcastle.
Kevin Keegan, framkvæmdastjóri
Newcastle, var ekki ánægður með
stóran sjónvarpsskjá, sem komið
hefur verið fyrir á White Hart
Lane. „Ég hef margt fyrir mér í því
og ég mun skrifa knattspyrnusam-
bandinu og kvarta. Tökum sem
dæmi ef dómari tekur ranga ak-
vörðun. Hann þarf ekki aðeins aö
taka afleiðingum gerða sinna á
vellinum, heldur þarf hann líka að
horfa á það í endursýningu á sjón-
varpsskjá," sagði Keegan.
Manchester United fylgir Newc-
astle eins og skugginn með sigri á
Juninho-lausu Middlesbro-liði. Roy
Keane var rekinn útaf í fyrri hálf-
leik, en það kom ekki í veg fyrir 2-0
sigur. Keane á yfir höfði sér harða
refsingu vegna málsins. Man. City
er í vondum málum, tapaði 6-0
gegn Liverpool og hefur aðeins
fengib tvö stig i úrvalsdeildinni.
Þetta var líklega einn versti dagur í
lífi Alans Ball, framkvæmdastjóri
liðsins, en hann bar sig þó vel. „Þó
það virðist fáránlegt, þá hafði ég
gaman af leiknum. Liverpool lék
vel." ■
Veittur er 10% afsl. gegn afhendingu þessarar auglýsingar
Erum flutt af
Kr. 17.900
Hlawistv/öruiir«ar
Istreyma inn
1
fjölbreyttu
úrvalifrá
Mörktrtmtf '• " liðina ó Teppalandi), sími 588 5518.
AiwíiíeOt .. -.409100 / i/erslunarmáti nutimans
Molar...
... Sýn hefur fengib sýningarrétt
á Mei.staradeildinni’í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu, en þar
er um ab ræba deildarkeppni 16
bestu félagsliba í Evrópu í fjórum
riblum, sem lýkur úrslitakeppni
meb útsláttarfyrirkomulagi.
Heyrst hefur ab Sýn hafi fengib
útsendingarréttinn nánast frítt
og þurfi abeins ab greiba send-
ingarkostnabinn hingab til
lands. Ennfremur hefur heyrst ab
Ríkissjónvarpinu hafi verib bob-
inn þessi samningur, en hafi
hafnab honum, þar sem útsend-
ingar skarast á vib fréttatíma
sjónvarps. Leikib er á mibviku-
dögum, ab jafnabi annan hvern.
... Leiftursmenn komu sterkir út
úr síbastlibnu sumri í knattspyrn-
unni og hyggja þeir nú á enn
frekari landvinninga. Þeir hafa
fengib Daba Dervic og Aubun
Helgason til libsins og sam-
kvæmt heimildum Tímans líta
þeir hýru auga til Birkis Kristins-
sonar markvarbar. Ef svo færi ab
þab tækist, myndi Birkir koma í
stab síbasta Ólafsfirbingsins í lib-
inu, Þorvald jónsson markvörb.
... Þeir Roy Hodgson, þjálfari
Inter Milan og Paul Ince, fá mik-
ib hrós eftir leik libsins gegn AC
Milan, en libin gerbu jafntefli á
sunnudagskvöld í ítölsku deild-
inni. Ince fékk hæstu einkunn
hjá einhverjum ítölsku blabanna
eftir leikinn, en yfirleitt hafa þau
hundelt hann og gefib honum
lægstu einkunn. Hodgson þykir
hafa stjórnab libinu vel og náb
ab rífa þab upp úr þeirri lægb
sem þab var í ábur en hann kom
til libsins.
... Juninho hefur unnib hug og
hjörtu knattspyrnuáhugamanna
í Middlesbro. Vib komuna til fé-
lagsins þótti hann meb afbrigb-
um hógvær og talabi ekki eins
og margir af bestu knattspyrnu-
mönnum heims. Hann gerbi
fremur lítib úr sér sem einstak-
lingi og talabi ávallt um ab þab
yrbi ekki Juninho sem ynni leik-
ina, heldur væri þab libib. Hann
gæti jú hjálpab libinu, en libib
gæti hjálpab honum líka. „Þab
er ekki abeins Juninho, þetta er
heilt lib. Middlesbro er nú þegar
meb gott lib og ég vona ab ég
geti hjálpab til ab gera þab enn
betra," sagbi kappinn hógværi.
Sameiginleg uppbygging
frjálsípróttaaostöÓu Hafn-
arfjarbar og Kópavogs
ekki komib til tals:
Eitt af næstu
verkefnum
Ingvar Jónsson, íþróttafull-
trúi Hafnarfjarbarbæjar,
segir gerb frjálsíþróttaab-
stöbu í bænum hafa komib
til tals, en þab mál sé ekk-
ert komib lengra. Hann
segir óskir um gerb slíkrar
abstöbu hafa komib frá
frjálsíþróttadeild FH, en
þetta mál sé þó í raun enn
á borbi þeirra, þar sem ekki
hafi enn nábst full sam-
staba í félaginu um málib.
„Þetta er náttúrlega eitt
af næstu verkefnum varð-
andi uppbyggingu íþrótta-
aðstöðu í Hafnarfirði,
ásamt byggingu íþróttahúss
á Ásvöllum og endurbótum
á aðstöðu fyrir Siglinga-
klúbbinn," segir Ingvar.
Hann segir það ekki hafa
komiö til tals að Hafnar-
fjörður og Kópavogur byggi
upp sameiginlega frjáls-
íþróttaaðstöðu. Þeir eigi
þann leikvang sem þeir séu
að byggja upp nú, en Hafn-
arfjörður eigi engan sam-
bærilegan Ieikvang.
Forráðamenn knatt-
spyrnudeildar FH hafa bent
á þann möguleika að
byggja hús, sem gæti hýst
bæði knattspyrnuvöll og
frjálsíþróttaaðstöðu, sem
reyndar Tíminn sagði frá
fyrir nokkrum árum. Ingvar
segir þetta hafa dottið upp-
fyrir, þar sem kostnaður sé
of mikill og ekki hafi reynst
grundvöllur fyrir fyrirhug-
uðu samstarfi með Garðbæ-
ingum. ■
Haustmót Fimleikasam-
bands Islands:
Ruslan vann
allar greinar
Ruslan Ovtsinnikov, Gerplu,
vann allar sex greinarnar í
piltaflokki á Haustmóti Fim-
leikasambandsins, sem fram
fór í Laugardalshöll um helg-
ina. Alls tóku 60 keppendur
þátt í mótinu, 10 piltar og 60
stúlkur.
í kvennaflokki sigraði Nína
B. Magnúsdóttir, Björk, bæði í
gólfæfingum og í stökki, en á
tvíslá sigraði Jóhanna Sig-
mundsdóttir og Elva Rut Jóns-
dóttir, Björk, sigrabi á slá. ■
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 al 5 0 7.702.015
2. ílús’Q 152.110
3. 4 af 5 129 8.130
4. 3af 5 4.162 580
Heildarvinningsupphæð: 11.773.185
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR