Tíminn - 07.12.1995, Qupperneq 1
79. árgangur
Fimmtudagur 7. desember 1995
231. tölublað 1995
Bókabirgöir koma í veg fyrir afgreiöslubann:
Biðstaða í bókastríði
Ekki var ljóst þegar Tíminn fór í
prentun í gær hvaóa ákvöröun
Félag íslenskra bóka- og ritfanga-
verslana myndi taka á fundi sín-
um í gærkvöldi. Taka átti fyrir
hvort og hvaöa aögeröir yrbu
samþykktar gegn seljendum bóka
sem hafa boðið bækur með meiri
afslætti en 15%, eins og sam-
komulag frá því í nóvember
kveður á um. Talað hefur verið
um að svipta Jóhannes í Bónus og
KÁ, Selfossi, bóksöluleyfi vegna
málsins.
í svarbréfi frá formanni Félags ís-
lenskra bókaútgefenda, Ólafi Ragn-
arssyni, til Teits Gústafssonar, for-
manns Félags bóka- og ritfanga-
verslana, segir að ekki hafi náðst
samstaða um nýjar aðgeröir af hálfu
útgefenda og þau sjónarmið hafi
komið fram að afgreiðslubann yrði
aldrei annað en „táknræn aögerð
sem ekki gæti stöðvaö þá óheilla-
vænlegu þróun sem órðiö hefði í
bóksölumálum. Málin væru í raun
ekki lengur í höndum bókaútgef-
enda, meöal annars vegna þess að
miklum bókabirgðum hefði verið
safnað í verslunum og stórmörkuð-
um og myndu þeir aðiiar fara sínu
fram hvort sem sett yrði á það af-
greiðslubann af hálfu útgefenda eða
ekki." -BÞ
Ekki nóg aö gefa út blaö til aö ná málefnalegri samstööu á milli
stjórnarandstööuflokkanna, segir Císli S. Einarsson þingmaöur:
Mikill ágreiningur
um þungavigtarmálin
„Ég held að þetta mál sé komið
mun skemmra á veg en sumir
menn hafa gefið í skyn. Samráð
innan stjórnarandstööu er eðli-
legt en sameiginlegir þing-
flokksfundir hafa ekki verib
kynntir formlega fyrir mér,"
sagbi Gísli S. Einarsson, þing-
mabur Alþýbuflokksins í sam-
tali vib Tímann í gær.
Svo virðist sem hugmyndir
Svavars Gestssonar um sameigin-
Iega þingflokksfundi stjórnarand-
stöðunnar séu ótímabærar ef miö-
aö er við viðbrögð Kvennalista-
kvenna og alþýðuflokksmanna.
Tíminn spuröi Gísla S. Einarsson
hvort markmið sameiginlegra
funda yrði að mynda svokölluð
„skuggaráöuneyti" ef hugmynd
Svavars yrði að veruleika. „Ef
menn geta myndað skuggaráðu-
neyti í skjóli samstöðunnar þá er
ekki mjög langt í aö þessi öfl geti
sameinast. Ég tel hins vegar ab
það sé það mikill skoðanaágrein-
Císli 5. Einarsson.
ingur um ýmis mál — þungavigt-
armál — að það gangi ekki upp að
svo komnu máli. Þó aö einhverj-
um aðilum hafi tekist að gefa út
blað held ég að ýmsir þingmenn
hafi ekki vitað um að slíkt væri í
farveginum."
-BÞ
VMSI stendur frammi fyrir þremur kostum. Cera ekki neitt, reyna oð yfirtaka ASÍ á nœsta
þingi eba segja skiliö viö Grensásveginn:
Hriktir í stoöum ASÍ
„Verkamannasambandib á
þrjá kosti í stöðunni. í fyrsta
lagi ab gera ekki neitt og láta
þetta yfir sig ganga sem er
frekar ólíklegt vegna upp-
safnabrar gremju. í öbru lagi
ab reyna ab yfirtaka ASÍ á
þingi þess í Kópavogi á
næsta ári, eba ab segja skilib
vib þab," segir áhrifamabur
innan verkalýbshreyfingar-
innar.
Svo virbist sem verulegur
klofningur sé kominn upp meb-
al verkalýðshreyfingarinnar
vegna afstöbu meirihluta full-
trúa þeirra í launanefnd til upp-
sagnar á kjarasamningum og til-
lögu um desemberuppbót. Þá
virbist sem töluverbur áherslu-
munur sé mebal aðildarfélaga
VMSÍ til tillagna launanefndar
sem félögin hafa verið aö greiða
atkvaeði um. Eining í Eyjafirði
hefur þegar hafnab tillögu
launanefndar og heldur fast vib
sína uppsögn eins og Baldur á
ísafirði og viðbúið ab hið sama
gerist hjá öbrum stórum abild-
arfélögum VMSÍ eins og t.d.
Dagsbrún. En allsherjarat-
kvæbagreiðsla verður hjá félag-
inu í lok vikunnar. Hinsvegar
reynir fyrst á þrek þessara félaga
þegar niðurstaba fæst í Félags-
dómi í máli VSÍ á hendur Baldri.
Aftur á móti virðist sem þanþol-
ið sé minna hjá smærri abildar-
félögum VMSÍ eins og t.d. í
Grindavík, Grundarfiröi og
Stykkishólmi, en félagsfundir í
þessum félögum hafa samþykkt
tillögu launanefndar og dregið
tilkynntar uppsagnir á samn-
ingum til baka.
Þab virðist því fátt benda til
annars en ab uppgjör sé fram-
undan á þingi ASI sem haldiö
veröur í Kópavogi á næsta ári.
Þá verður væntanlega kosinn
nýr forseti þar sem ekki er talið
líklegt að Benedikt Davíðsson
gefi kost á sér til endurkjörs.
Innan hreyfingarinnar er tölu-
vert rætt um að Grétar Þor-
steinsson formaður Samiðnar
muni gefa kost á sér, en núver-
andi forseti ASÍ var fulltrúi
þeirra í launanefndinni. Fleiri
hafa verið nefndir til sögunnar
og m.a. Björn Grétar Sveinsson
formaður VMSÍ og Kári A. Kára-
son framkvæmdastjóri Lífeyris-
sjóbs Norðurlands og fyrrver-
andi formaður Verkalýðsfélags
Húsavíkur.
Hingað til hafa fulltrúar VMSÍ
á ASÍ-þingum ekki beitt sam-
takamætti sínum að ráði heldur
fyrst og síðast litið á sig sem full-
trúa eigin félaga. Ef þeir snúa
bökum saman með stubningi
t.d. iðnverkafólks ætti VMSÍ aö
reynast auðvelt að bera sigurorð
af fulltrúum iðnaðarmanna og
verslunarmanna, auk þess sem
félagsmenn aðildarfélaga VMSÍ
eru um helmingur allra félags-
manna innan ASÍ. -grh
Sjá einnig á bls. 3
Margrét Císiadóttir textílforvörbur
viö gamait jólatré frá 1927 úr búi
Björns Bjarnasonar, sem lengi var
formabur Ibju, og konu hans,
Brynhildar Magnúsdóttur.
Tímamynd: BG
Jólaljós
Rafljósaseríur frá kreppuárun-
um, lýsiskolur, olíulampar, gas-
luktir og týrur eru mebal þess
sem er ab sjá á jólasýningu Þjób-
minjasafnsins sem nú stendur yf-
ir. Þar má sjá ýmislegt tengt jól-
um á íslandi um langan aldur, en
einkanlega jólaljósin, enda er
þab abalatribi sýningarinnar.
Sjá má inn í vel búna jólastofu
frá því um 1930. Innan um eru
ljósmyndir sýna ýmsar jólaskreyt-
ingar, jafnt inni í húsum sem á göt-
um úti, frá árabilinu 1915 til 1963.
í gær kveikti Björn Bjarnason,
menntamálarábherra, á jólatré
Þjóðminjasafnsins sem er í anddyri
á annarri hæð.
Á þriðjudaginn mun fyrsti þjób-
legi jólasveinninn mæta á staðinn
og skemmta börnunum. -JBP