Tíminn - 07.12.1995, Qupperneq 6
6
UR HERAPSFRETTABLÖÐUM
Nýr vegur á Fjöllum:
Grímsstabir
úr alfaraleib
Skipulagsstjóri ríkisins hefur
lagt blessum sína yfir nýjan
vegspotta um þrettán kílómetra
að lengd sem lagður verður á
milli Biskupsháls og Jökulsár á
Fjöllum. Við tilkomu vegarins
sem liggur frá brúnni á Jökulsá
að Biskupshálsi styttist leiðin
um 4 kílómetra, en sá böggull
fylgir skammrifi að Grímsstaðir
á Fjöllum verða ekki lengur í al-
faraleiö. Nýi vegurinn mun
liggja fjóra kílómetra frá Gríms-
stöðum. Um aldir hefur þjóð-
leiðin austur og norður í land
legið þar við túngarð og hafa
margir hraktir ferðalangar þegið
þar beina. Á Grímsstöðum hef-
ur verið rekin ferðaþjónusta um
árabil sem illa má við því að
lenda utan alfaraleiðar. Þar er
tjaldstæði, bensín- og olíusala
og bændagisting sem Kristín
Axelsdóttir hefur rekið um 5 ára
skeið. Kristín hefur opib fjóra
mánuði yfir sumartímann, en
dvelur á Egilsstöðum á vetrum.
Hún segist vera ákvebin í að
halda áfram rekstrinum og
reynslan verði að skera úr um
framhaldiö. Kristín vildi koma á
framfæri ab það væri ekki rétt
sem komið hefði fram í fjöl-
miðlum að hjá bændagisting-
unni væri mikið bókaö fyrir-
fram, þannig að breyting á
vegastæði skipti hana litlu máli
og sagði að minni hluti gesta
pantaði meb löngum fyrirvara.
Kristín hefur búið á Grímsstöb-
um síban árið 1948. Hún segir
að aðstoð við ferðafólk hafi allt-
af verið hluti af daglega lífinu
og- telur það draga úr öryggi
vegfarenda að vegurinn veröi
færbur svo langt frá bænum.
Samkvæmt tillögum að skipu-
lagi mun Möðrudalur einnig
lenda úr alfaraleið viö áfram-
haldandi uppbyggingu vegarins
og verður bærinn um átta kíló-
metra frá þjóövegi. í Möðrudal
hafa þau Ásta Sigurðardóttir og
Vilhjálmur Snædal rekið veit-
ingasölu í nokkur sumur og
sagði Ásta ab hún sæi ekki
grundvöll fyrir þeim rekstri eftir
að nýr vegur verður tekinn í
notkun.
I
VESTMANNAEYJUM
Athyglisverður fyrirlestur um
náttúruvá í Háskólanum:
Sveitarfélög veröa
aö ætla
fjármuni til rann-
sókna
Fyrir skömmu var haldið opib
erindi í Rannsóknasetri Háskóla
íslands- og Vestmannaeyjabæjar
undir yfirskriftinni Náttúruvá á
íslandi. Erindið vakti mikla at-
hygli og voru fjörugar umræður
ab því loknu þar sem ýmislegt
bar á góma, bæöi varaðandi
náttúruvá almennt og eins
varðandi náttúruvá í Vest-
mannaeyjum sérstaklega. Páll
Imsland frá Raunvísindastofn-
un Háskólans var fyrirlesari.
Vibleitni jarðvísindamanna
til þess að sjá þá þróun í náttúr-
unni fyrir sem leiðir til tjóns og
slysa og hindrar æskileg land-
Fjallakaffi í Möörudal á flestir sem um Fjöllin fara.
not. Nokkur atriði varðandi
náttúruvá, rannsóknir á váleg-
um ferlum náttúrunnar og af-
stöðu þjóðfélagsins til þessara
váa.
í erindi Páls var fjallað um
náttúruvá í almennu samhengi,
helstu flokka váa með hliðsjón
af þeim ferlum í þróun náttúr-
unnar sem valda hættunni og
mismunandi hraða og skyndi-
leika válegra atburða.
Greint var frá sambandi
menntunarstigs samfélaga og
áhrifanna af náttúruhamförum
í formi eigna- og manntjóna.
Varpað var fram spurningunni
um það, hvort eðlilegra sé að
líta fremur á einstök stórslys
sem náttúruleg slys en eðlilega
náttúrfarslega atburöi sem
valda tjóni vegna vanmats
mannsins á aðstæðum. Lýst var
markmiðum og aðferðum for-
sagna um náttúruviöburöi af
válegum toga og þeim hug-
myndum sem slíkar forsagnir
grundvallast á, dreginn fram
munurinn á hættu og áhættu í
þessu sambandi og gerð grein
fyrir gagnsemi mats á báðum
þessum þáttum. Einnig var vik-
ib að afstöðu ríkisvaldsins til
náttúruváa, rannsókna á þeim
og viðbrögðum gegn þeim, sem
einkennist .ööru fremur af
tregðu og seinlæti. Vegna
tregðu ríkisins til þess að láta fé
í almennar náttúrufarsrann-
sóknir er ljóst að sveitarfélög
verba að fara ao taka á svona
málum heima fyrir upp á sitt
einsdæmi og ætla til þess ein-
hverja fjármuni.
Eystra-í
hornl
Fíkniefni á Horna-
firbi — bláköld
stabreynd
Samráðsfundur um áfengis-
varnarmál og fíkniefnavarnir
var haldinn á Hótel Höfn fyrir
skemmstu. Framsögumenn
voru Hallur Magnússon, félags-
málastjóri, og Jón Garðar
Bjarnason, aðstoðarvarðstjóri.
Ýmis sjónarmið komu fram á
fundinum varðandi stöbu þess-
ara mála. Töldu sumir að
drykkja unglinga væri að aukast
en aðrir töldu ástandið hafa
verið verra fyrir 15-20 árum síð-
an, bæði hvað varðar áfengis-
neyslu og neyslu annarra vímu-
efna. Skoðanakönnun sem gerð
var á vegum félagsmálráðs á
drykkju nemenda í skólum í
Hornafirði bendir þó til að
drykkja yngri nemenda sé al-
mennari nú en áður.
í máli Halls Magnússonar
kom fram að hann telur sig
hafa fyrir því óyggjandi heim-
ildir að neysla svokallaðra
„harðra" vímuefna sé stu'nduö í
þröngum hópi fólks hér í
Hornafirbi. Hjá fundarmönnum
kom fram skýr vilji fyrir því að
sporna þurfi hraustlega við
þessari óheillaþróun, mebal
annars með því að efla eftirlit
með hugsanlegri sölu og dreif-
ingu þessara efna hér á staðn-
um. Töldu menn nauðsynlegt
að lögreglan á Höfn kæmi sér
upp góðum hasshundi.
Tvær ályktanir voru sam-
þykktar á fundinum. í þeirri
fyrri er því beint til foreldraráða
grunnskólanna á svæðinu að
þau gangist fyrir því að koma á
fót svokölluðu foreldrarölti um
helgar en það hefur gefið góða
raun annars staðar á landinu. í
þeirri síðari lýsir fundurinn
áhyggjum sínum með þróun
fíkniefnamála á íslandi og skor-
ar á Alþingi og ríkisstjórn að
tryggja aukna löggæslu og að
samhliða verði lögð áhersla á
forvarnarstarf. Einnig skorar
fundurinn á sýslumann Austur-
Skaftafellssýslu og lögregluna á
Höfn að leggja sérstaka áherslu
á baráttuna gegn fíkniefnum
svo koma megi í veg fyrir að
þau skjóti rótum á Hornafirði.
Á fundinum óskaði Heimir
Gíslason formaður áfengisvarn-
arnefndar eftir sjálfboðaliðum í
starfshóp til að fylgja eftir
mörgu því sem fram kom á
fundinum og fékk hann þegar
til liðs við sig nokkra einstak-
linga sem lýstu sig tilbúna til ab
vinna þessum málum lið.
Framsögumenn fundarins, Hqllur Magnússon og jón Caröar Bjarnason.
Heimir Þór Císlason ípontu.
Fimmtudagur 7. desember 1995
Framsóknarflokkurinn
Jólafundur Félags framsókn-
arkvenna í Reykjavík
ver&ur haldinn a& Hallveigarstö&um fimmtudaginn 7. desember kl. 20.30.
Fjölbreytt dagskrá:
jól í Kína: Hjörleifur Sveinbjörnsson.
Einleikur á píanó: Ólafur Elfasson.
Upplestur.
Söngur.
Hátí&akaffi.
Allt framsóknarfólk og þeirra gestir velkomnir.
Muniö litlu jólapakkana. Stjórn ffK
jólaalmanak SUF
Eftirtalin númer hafa hlotiö vinning í jólaalmanaki SUF:
1. desember 4541 3602
2. desember 881 1950
3. desember 7326 3844
4. desember 4989 6408
5. desember 3105 6455
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 562 4480.
Somband ungro framsóknarmanna
Kjördæmisþing
framsóknarmanna í
Vestfjarðakjördæmi
haldiö á ísafir&i dagana 9. og 10. desember.
Dagskrá:
Laugardagurinn 9. desember
Kl. 14.00 Þingsetning. Skipan starfsmanna þingsins.
Kl. 14.05 Skipan þingnefnda.
Kl. 14.15 Skýrsla stjórnar,-
Kl. 14.45 Ávarp þingmanns.
Kl. 15.15 Ávarp formanns flokksins.
Kl. 15.45 Kaffi.
Kl. 16.00 Málefni þingsins: „Vestfir&ir — okkar framtí&?"
Framsaga. Almennar umræ&ur.
Kl. 18.30 Ávörpgesta.
Kl. 19.00 Þingmál kynnt og vísa& til nefnda.
Kl. 20.00 Kvöldver&ur.
Sunnudagurinn 10. desember
Kl. 09.00 Nefndarstörf.
Kl. 12.00 Hádegisver&ur.
Kl. 13.15 Afgrei&sla mála og umræöur.
Kl. 15.00 Kosningar.
Kl. 16.00 Önnur mál.
Kl. 17.00 Þingslit.
Kópavogur
Bæjarmálafundur ver&ur haldinn a& Digranesvegi 12 mánudaginn 11. desember
kl. 20.30.
Á dagskrá verba byggingar- og skipulagsmál. Stjórn bœjarmálaróbs
Framsóknarvist
Framsóknarvist verbur haldin sunnudaginn 10. desember kl. 14.00 í Hótel Lind.
Veitt verba þrenn verblaun karla og kvenna. Ólafur Örn Haraldsson, alþingis-
ma&ur, flytur stutt ávarp í kaffihléi. A&gangseyrir er kr. 500 (kaffiveitingar inni-
faldar). framsóknarfélog Reykjavíkur
DAGSBRUNJ Verkamannafélagið
Dagsbrún
Dagsbrúnarmenn!
Félagsfundur verbur haldinn fimmtudaginn 7. desem-
ber kl. 13 í Bíóborginni vib Snorrabraut.
Fundarefni: Kjaramál, kynnt verbur samkomulag VSÍ og
launanefndar ASÍ.
Félagar, fjölmennib og sýnib skírteini vib innganginn.
Stjórn Dagsbrúnar
Bændur!
Veibifélag óskar eftir veibiá til leigu. Lax, silungur, sjóbirtingur.
Þeir sem hafa áhuga hafi samband við Þórarin í síma 554-5896
eba Elías í síma 565-6884 eða 893-3959. Fax: 565-7477.
Allt kemur til greina.