Tíminn - 07.12.1995, Blaðsíða 12
12
WBmámM.
Fimmtudagur 7. desember 1995
NÝJAR
BÆKUR
Vilhjálmur Hjálmársson.
Tólfta bók
Vilhjálms á
Brekku
Komin er út bókin, Þeir
breyttu íslandssögunni — Tveir
þættir af landi og sjó, eftir Vil-
hjálm Hjálmarsson, fyrrverandi
menntamálaráðherra.
Vilhjálmur hefur tekiö saman
tvo fróðlega þætti um efni sem
of lengi hafa legið í þagnargildi.
Annar þeirra fjallar um örlaga-
atburði um miðja öldina. Þegar
bjargarleysi vofði yfir og botn-
laus ófærð og illviöri lokuðu
leiöum, gripu vaskir menn til
nýrra ráða og beittu skriðbelta-
tækjum sem höfðu verið gjör-
samlega óþekkt á íslandi. Guð-
mundur Jónasson fór til hjálpar
á fyrsta snjóbíl sínum og þús-
undþjalasmiðir eystra smíöuöu
geysistóra sleða sem jarðýtur
cfrógu.
í hinum þættinum segir frá
árabátaútgerð Færeyinga héð-
an, allgildum þætti í atvinnu-
sögu okkar. Að róa til fiskjar frá
íslandi á eigin vegum, á sínum
eigin bátum, það hét að fara til
lands. Sjómennirnir tóku sér far
meö færeysku skútunum, elleg-
ar með póstskipunum dönsku
og norsku. Þeir komu til íslands
sunnan yfir sæinn — eins og
vorið — og höfðu sumardvöl
viö einhvern fjörðinn eða vík-
ina.
Þetta er tólfta bók Vilhjálms
Hjálmarssonar. Flestar bækur
hans hafa komist á metsölu-
lista, enda er honum einkar vel
lagið aö segja frá eins og al-
kunna er.
Þeir breyttu íslandssögunni er
235 blaðsíður. Mikill fjöldi
mynda er í bókinni. Bókarauki
er eftir Aðalbjörn Úlfarsson.
Guðjón Ingi Hauksson sá um
útlit kápu; Offsetþjónustan hf.
um setningu, umbrot og filmu-
vinnu; Prentsmiðjan Oddi hf.
prentun og bókband. Útgefandi
er Æskan.
Undir fjala-
ketti í litlu
leikhúsi
Undir fjalaketti heitir ný
skáldsaga eftir Gunnar Gunn-
arsson, sem kom í bókaverslanir
fyrir síðustu helgi. Víst er að
þeir, sem hafa unun af spenn-
andi lesningu og vangaveltum
um hlutskipti sögupersóna sem
Cunnar Cunnarsson.
dregnar eru skýrum dráttum,
munu njóta þessa verks sem er í
senn frábrugðiö því, sem áður
hefur veriö skrifað hér á landi,
en um leið farnar hefðbundnar
slóðir í frásögn.
Þannig minnir margt í Undir
fjalaketti á sakamálasögur, enda
voru stílbrögð þeirrar bók-
menntagreinar höfundi hug-
Ieikin. Stíllinn á þessari nýju
skáldsögu er iðulega hraður og
atburðarásin spennandi. En hér
er persónusköpunin dýpri og
lesandinn kynnist leikaranum
og hlutskipti hans í eftirminni-
legri sögu þar sem hugleiðingar
söguhetjunnar skiptast á við lif-
andi og gamansama frásögn af
leikhúslífinu.
Þegar til tíðinda dregur, koma
þau lesandanum á óvart. Um-
gjörð sögunnar er litla leikhúsið
við Tjörnina þar sem menn eru
jafnan á tímamótum, en leikar-
inn Guðlaugur Bergmann Lár-
usson — þjóðkunnur fyrir sinn
smitandi hlátur — á sér trúlega
þjáningabræðúr og -systur á
flestum sviðum þjóðfélagsins.
Undir fjalaketti er 246 blað-
síður. Kápu- og útlitshönnun
annaðist Soffía Arnadóttir. Um-
brot og filmugerð var í höndum
Prenthönnunar hf. Bókin er
prentuð í Prentsmiðjunni Odda
hf. Útgefandi er Ormstunga.
Kvæöaflokk-
ur um árstíö-
irnar
Kvæbaflokkurinn um „Árstíb-
irnar" eftir Bjarna Th. Rögn-
valdsson er sá fyrsti er birtist eft-
ir viökomandi höfund. Þar er
kveðið um margt er tengist líf-
inu, lífsbaráttunni og þakkar-
gjörð til gjafara allra góðra
hluta. Einnig um þann tilfinn-
ingahita sem mætir lands-
mönnum í framrás daganna á
hverri árstíð á okkar kæra fóst-
urlandi.
Samkvæmt ósk höfundar er
tileinkunarljóðið tengiljóð meb
kvæðaflokknum sem hefst með
„Lofgjörð" til lífsins.
Næst er kveðiö um „Vorið"
sem kemur til okkar með björt-
um og hlýnandi dögum. Á árs-
tíð gróðursprotanna þarf að fara
að öllu með gát, því slóðin getur
veriö varasöm. En þrátt fyrir
umhleypinga fagna menn vor-
blíðunni.
Þriöji kafli bókarinnar fjallar
um hinn fyrsta sumardag sem
er fagnaöardagur hins komandi
sumars.
Sumarkveðjunni fylgja vonir
um góða og hlýja sumardaga í
bæ og sveit. Friðsælar stundir á
gróðursælum stöðum, kvöld-
kyrrðina og bjartar nætur.
í fimmta kaflanum er kveðið
um „Haustið". Gjafir lífsins
kalla eftir hinum góbu andsvör-
um. Þegar dagarnir styttast
skarta laufin og grösin hinum
fjölbreytilegustu litum og
heiðarætur fella vöxt í dróma.
Lokakaflinn fjallar um „Vet-
urinn". Hann kemur með frost-
kaldar nætur og snjó. Þá fara
menn að nýta góða daga eftir
föngum, svo að þeir verði til-
búnir til ab takast á við ókomna
daga.
Vetrareldur
Vaka-Helgafell hefur gefið út
skáldsöguna Vetrareldur eftir
Friðrik Erlingsson. Þetta er
fyrsta skáldsaga Friðriks ætluð
fullorðnum, en kunnastur er
hann fyrir söguna um Benjam-
ín dúfu. Hann hefur á liðnum
árum hlotiö verðlaun og viður-
kenningar fyrir ritstörf sín
heima og erlendis.
í kynningu frá útgefanda seg-
ir: „í skáldsögu sinni, Vetrareld-
ur, skrifar Fribrik Erlingsson um
mannlega reynslu af miklu list-
fengi og er langt síðan íslenskur
skáldsagnahöfundur hefur fjall-
ab um tilfinningar fólks af slíku
innsæi. Persónur bókarinnar,
ekki síst aðalpersónurnar tvær,
Lilja og Hákon, standa ljóslif-
andi fyrir hugskotssjónum les-
andans. Við kynnumst vonum
þeirra og vonbrigðum, ham-
ingju og nístandi sársauka. Höf-
undur fléttar örlög þeirra saman
af einstöku næmi í marg-
slungna sögu. Hér er á ferð
áhrifamikil skáldsaga sem lætur
engan ósnortinn, eftir höfund
sem fylgst verður með í framtíð-
inni."
Vetrareldur er 327 blaðsíður
að lengd. Bókin var brotin um
hjá Vöku-Helgafelli, en filmu-
vinnsla fór fram hjá Prent-
myndastofunni. Kápa bókar-
innar var hönnub hjá Vöku-
Helgafelli af Valgerði G. Hall-
dórsdóttur. Bókin er prentuð og
bundin í Prentsmiðjunni Odda
hf. Vetrareldur kostar 3.290
krónur.
Sigurbjörn Einarsson.
Valin ljób
Bókaútgáfan Setberg hefur
gefib út bókina Ljóð dagsins —
Sigurbjörn Einarsson valdi efn-
ib.
í þessari veglegu bók eru
mörg hundruö ljóð eftir 93 ís-
lensk skáld — eitt ljóð fyrir
hvern dag ársins — og auk þess
á hverri síbu „Orö til íhugunar".
í formála skrifar Sigurbjörn
biskup m.a. á þessa leiö: „Þessi
bók er saman tekin með það í
huga, aö þeir sem staldra viö hjá
henni stundarkorn á degi hverj-
um, hafi af því ofurlitla upplyft-
ingu, sem geri þeim léttara ab
semja þann part af ljóði lífs síns,
sem hver dagur krefst skila á.
Allir, sem unna ljóðum, eiga
þaö víst að hitta marga vildar-
vini sína á þessum blöbum, en
enginn finnur þá alla hér. Tala
daganna í árinu takmarkar rým-
ið. Þab hefði verið sýnu minni
vandi ab gera þessa bók úr garöi
ef dagar ársins væru helmingi
fleiri. En hér var ekki tilgangur-
inn sá að skammta neinum
nægju sína. Þeir, sem neyta þess
sem hér er í boði, munu von-
andi finna það flestir, að þeir
þurfa meiri skerf af svo góbu."
Hugljúf lesning árið um kring
— ljóð fyrir hvern dag ársins —
og orð til íhugunar. Bók sem
gripið er til aftur og aftur.
Sannarlega eiguleg bók — og
vegleg tækifærisgjöf.
Bókin er 397 bls. og kostar
3.420 krónur.
Glæpasaga,
iroskasaga,
ijóðlífslysing
Bókaútgáfan Ibunn hefur gef-
ið út nýja skáldsögu eftir Egil
Egilsson rithöfund og nefnist
hún Sendiboð úr djúpunum.
Þetta er fimmta skáldsaga höf-
undar. Síðasta bók hans var
Spillvirkjar, sem út kom 1991,
hlaut góba dóma og var m.a. til-
nefnd til menningarverðlauna
DV.
Egill er eðlisfræöingur að
mennt og nýtir hér þekkingu
sína á því sviði í óvenjulegri
spennusögu, sem á sér djúpar
rætur í þjóðlífi undanfarinna
áratuga. Úm leið er bókin
mergjuð og spennandi glæpa-
saga þar sem ógnir nútímans
vofa yfir og óhugnanlegir at-
burðir steöja að.
Rithöfundi er gert ab skrifa
viötalsbók, þvert gegn vilja sín-
um. Viðmælandinn er athafna-
maður austan af fjörbum með
litríkan feril að baki. Hann læt-
ur þó fátt uppi um fortíö sína og
leitin ab sannleikanum ber skrá-
setjarann allt suður til Spánar.
Þar henda hann atburöir sem
engan hefði órað fyrir og hann
flækist í net óþekktra risa, sem
víla ekkert fyrir sér ef hagsmun-
ir eru í hættu. Þetta er í senn
glæpasaga, þroskasaga og þjóð-
lífslýsing, mögnuð saga um vá
og grandaleysi, forherta menn
og bernska þjóð.
Sendiboð úr djúpunum er 200
blaðsíður, prentuð í Prentbæ hf.
Kápumynd gerbi Brian Pilking-
ton. Verö bókarinnar er kr.
3.480.
Milli vonar
og ótta
Vaka-Helgafell hefur gefið út
bókina Milli vonar og ótta eftir
Þór Whitehead. Þar greinir Þór
frá aðdragandanum ab því ab
Bretar hernámu ísland í maí
1940. í bók sinni upplýsir höf-
undurinn fjölmargt sem ekki
hefur verib vikib aö áður í sagn-
fræðiritum. Milli vonar og ótta
er þriðja bók Þórs um ísland í
síðari heimsstyrjöld, en fyrri
bækur hans um þetta efni nefn-
ast Ófriður í aösigi og Stríö fyrir
ströndum. í kynningu frá útgef-
anda á bókarkápu segir:
„Aðdragandinn að hernámi
íslands í maí 1940 hefur þótt
liggja nokkuð ljós fyrir, en Þór
Whitehead, prófessor í sagn-
fræði, varpar hér nýju ljósi á
þab hvernig þessi örlagaríka at-
burðarás var í raun og veru.
Þór byggir á margra ára rann-
sóknum sínum í skjalasöfnum í
Þýskalandi og Englandi. Þá hef-
ur hann kannað rækilega ís-
lenskar heimildir, sem sumar
hverjar hafa aldrei verið rann-
sakaðar áður. Auk þess hefur
hann rætt við fjölmarga íslend-
inga, Þjóðverja og Breta, sem
veittu mikilvægar upplýsingar
um það sem gerðist bak við
tjöldin er stórveldin seildust til
yfirráða yfir eyjunni í norbri. í
bókinni er fjöldi ljósmynda og
hafa margar þeirra aldrei komið
fyrir almenningssjónir.
Óhætt er ab segja að Þór dragi
upp algjörlega nýja mynd af
þessum óvissutímum Islands-
sögunnar þegar þjóðin beið
milli vonar og ótta.
Bækur Þórs um ísland í síðari
heimsstyrjöld, Ófriður í aðsigi
og Stríð fyrir ströndum, hafa
vakið mikla athygli, fengið ein-
róma lof fræðimanna og al-
mennings og verið meðal sölu-
hæstu bóka. Milli vonar og ótta
sver sig í ætt við fyrri bækur
Þórs. Frásögnin er afar lifandi og
á köflum mjög spennandi, án
þess þó ab slegið sé af sagn-
fræðilegum kröfum."
Milli vonar og ótta er 440
blaðsíður að lengd, þar af 16
myndasíður. Umbrot og filmu-
vinnsla fór fram hjá Prenthönn-
un hf., en kápa bókarinnar var
hönnuð hjá Vöku-Helgafelli af
Valgerði G. Halldórsdóttur.
Prentsmiðjan Oddi hf. annaðist
prentun og bókband. Milli von-
ar og ótta kostar 3.890 krónur.
Pétur Sigurbsson.
Á sjó og þingi
Bókaútgáfan Setberg hefur gef-
ið út bókina „Pétur sjómaður"
eftir Ásgeir Jakobsson.
Þessi bók er ævisaga Péturs Sig-
urðssonar alþingismanns, sem
um þriggja áratuga skeið setti
mikinn svip á stjórnmála- og
verkalýðssögu landsins og var al-
þjób kunnur sem „Pétur sjómað-
ur".
Bókin segir frá uppvexti Péturs í
kreppunni miklu, nær tuttugu ára
sjómannsferli hans á bátum, tog-
urum og farskipum, afskiptum
hans af verkalýðsmálum innan
Sjómannafélags Reykjavíkur og á
ASÍ-þingum, þegar pólitíkin var
hvað hörðust, langri stjórnmála-
baráttu, en Pétur sat 28 ár á þingi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og var
m.a. formaður bankaráðs Lands-
banka íslands, og hinu mikla
uppbyggingarstarfi Péturs í öldr-
unarþjónustu, en hann var í 30 ár
formaður Sjómannadagsrábs í
Reykjavík og Hafnarfirði og vann
þar ab stækkun Hrafnistu í
Reykjavík, hafbi forystu um bygg-
ingu Hrafnistu í Hafnarfirbi, sem
köllub hefur verið „kraftaverkið
hans Péturs", og stjórnaði upp-
byggingu sumardvalarabstöðu
sjómanna að Hraunborgum í
Grímsnesi.
Saga Péturs Sigurðssonar er
þannig sjómannasaga, fram-
kvæmdasaga og verkalýðs- og
stjórnmálasaga — og þá er eftir
maðurinn skrautlegur, en Pétur
háði um tíma harða baráttu við
Bakkus.
„Pétur sjómaöur" er 21. bók Ás-
geirs Jakobssonar, en meðal ævi-
sagna hans má nefna metsölubók
síðasta árs, „Óskars sögu Hall-
dórssonar".
í bókinni eru 120 myndir.
Bókin er 304 blaðsíður og kost-
ar 3.420 krónur. ■