Tíminn - 13.02.1996, Síða 9
Þri&judagur 13. febrúar 1996
9
PJETUR SIGURÐSSON
Molar...
... Mick McCarthy, hinn nýi
þjálfari írska landsliðsins í knatt-
spyrnu, var á meðal áhorfenda á
leik QPR og Manchester Utd í
ensku úrvalsdeildinni á sunnu-
dag. Nokkrum dögum áður var
hann staddur á Möltu til að
fylgjast með mótherjum íra í
undankeppni HM, þ.e.a.s. ís-
lendingum. íslenska liðið steinlá
í þeim leik, eins og kunnugt er,
og hefur McCarthy líklega taliö
sig vera búinn að sjá nóg af ís-
lenska liðinu. Gárungarnir segja
hins vegar ab þetta hafi allt ver-
ið gert til ab plata McCarthy og
nú verði írska liöið aubveld bráð
fyrir þab íslenska og McCarthy
hafi verið plataður upp úr skón-
um.
... Gylfi Þór Orrason, FIFA-
dómari í knattspyrnu, sótti um
helgina ráðstefnu hjá bestu
knattspyrnudómurum í Dan-
mörku, en hún fór fram í Vejle.
... Alexander Revine hefur haft
sigur í máli sínu gegn hand-
knattleiksdeild Víkings vegna
skuldar sem Revine taldi sig eiga
inni hjá félaginu. Víkingar voru í
Hérabsdómi Reykjavíkur dæmdir
til ab greiba um 760 þúsund kr.,
þar af um 430 þúsund til Revine
sjálfs.
... Þab eru margir undrandi á
því í Englandi af hverju þeir
Hottiger og Dumitrescu fá ekki
atvinnuleyfi á meöan Faustino
Asprilla fær atvinnuleyfi um hæl.
Þeir Hottiger, sem seldur var frá
Newcastle til Everton, og Dum-
itrescu, sem fór frá Tottenham
til West Ham, léku ekki 75 leiki
með aðallibi félaganna og fá því
ekki atvinnuleyfi að nýju. Um-
ræddum félögum finnst þab þó
hins vegar léttvægt, þegar tekið
er tillit til þess ab Asprilla er meb
dóm fyrir að fara ólöglega meb
skotvopn og nota þab á al-
mannafæri.
.. Phil Neal, fyrrum leikmaður
Liverpool, hefur veriö ráðinn
framkvæmdastjóri Cardiff og
tekur vib starfi af Kenny Hibbitt,
sem hefur tekib vib öbrum æbri
störfum hjá félaginu. Phil Neal
hefur áður verib vib störf hjá
Bolton og Coventry.
Bikarúrslit karla í
handknattleik:
Vont fyrir
leikinn
Þab fór ekki framhjá neinum
að um helgina fór fram bik-
arúrslitaleikur í handknatt-
leik á milli KA og Víkings,
sem KA vann 21-18 og eru
því bikarmeistarar annab ár-
ib í röð. Þab varpabi nokkr-
um skugga á þennan leik, ab
mati undirritabs, hvernig
Ieikurinn spilabist og hvern-
ig KA- menn léku upp á þab
að fá aukaköst, sem Duran-
ona skorabi úr nokkub fyrir-
hafnarlítið.
Þab er í sjálfu sér skiljanlegt
ab Alfreb Gíslason og læri-
sveinar hans í KA reyni ab not-
færa sér þessa yfirburði sína,
sérstaklega þegar mótspyrna
Víkinga var með þeim hætti
sem raunin varb. A hinn bóg-
inn er þetta vont fyrir leikinn
sem slíkan og gerbi hann á
köflum heldur leiðinlegri á ab
horfa. Það er í sjálfu sér ekki
við neinn að sakast í þessu
máli, en engu að síbur vont
fyrir leikinn.
Til hamingju, KA-menn.
George Weah heldur uppteknum hœtti meö liöi sínu AC Mitan á Ítalíu og tryggöi hann liöi sínu
sigur á Atalanta í ítölsku 1. deildinni um helgina og á meöfylgjandi mynd má sjá hann í baráttu viö tvo leikmenn Atalanta.
AC Milan hefur nú fimm stiga forskot á næsta liö, sem er Fiorentina. Þeir unnu hins vegar Parma 1 -0. Símamynd Reuter
Manchester United og Umbro:
Fjögurra milljaröa styrktar-
og búningasamningur
Manchester United og Umbro
undirritubu á föstudag aug-
lýsinga- og búningasamning,
sem talinn er sá stærsti sem
gerbur hefur verið á Bret-
landseyjum, en talið er ab um
sé að ræba 4 milljarba króna
samning.
Forráðamenn United neitubu
reyndar að gefa upp nákvæmar
tölur, en viburkenndu að um
væri að ræba háar tölur. Þeir við-
urkenndu hins vegar aö félagið
hefði hugleitt að fara sjálft út í
búningaframleiðslu, en vegna
samningsins viö Umbro var hætt
við það í bili. Samningurinn er til
sex ára. ■
Stjörnuleikur NBA-deildarinnar í körfuknattleik:
Austriö sigraöi
Lib Austurstrandarinnar sigr-
abi liö Vesturstrandar í
stjörnuleik NBA- deildarinnar
í fyrrinótt, 129-118. Michael
Jordan, sem lék sinn fyrsta
stjörnuleik í þrjú ár, var val-
inn besti leikmaburinn, en
hann gerbi 20 stig. Valiö
vakti hörb viðbrögb áhorf-
enda, sem vildu ab Shaquille
O'Neal, sem leikur með aust-
urstrandarliðinu, yrði valinn,
en hann gerði 25 stig og tók
10 fráköst.
Jordan gerði átta af sínum
stigum í þriðja leikhluta, en lék
ekkert í þeim fjórða. Þessir tveir
leikmenn léku best fyrir austr-
ið, ásamt Anfernee Hardaway,
sem geröi 18 stig auk sjö stoð-
sendinga.
Fyrir Vesturströndina léku
best þeir Gary Payton sem gerði
19 stig, David Robinson sem
gerði 18 stig, og Shawn Kemp
sem gerði 12 stig.
Phil Jackson, þjálfari Chicago
Bulls og austurstrandarliðsins,
var hissa eftir leikinn að Jordan
skyldi vera valinn maður leiks-
ins. „Ég var hissa að Jordan
fengi titilinn. Hann lék að vísu
vel í þriðja leikhluta, en Shaqu-
ille O'Neal var frábær í lokin." ■
Húmorslaus dómari?
Þessi mynd var tekin í leik Glasgow
Rangers og Falkirk nýlega. Dómari
leiksins missti gula spjaldiö, en Paul
Gascoigne tók þaö upp og eins og sést
á myndinni „gaf hann dómaranum
gula spjaldiö" á ný. Dómarinn haföi
hins vegar ekki húmor fyrir þessu og
spjaldiö varö Gazza fyrir uppátœkiö.
ÍJOCKEY
TH
MAL
Jockey THERMAL nærfötin eru úr
tvöföldu efni. Innri hluti efnisins er til
helminga úr polyester og viscose en
ytri hlutinn er úr hreinni bómull. Þetta
tryggir THERMAL nærfötunum einstaka
einangrun og öndun.
IfflMHiHÉIBlBI
Söluaðilar:
Andrés Skólavörðustíg
Ellingsen Ánanaustum
Maxhúsíð Skcifunni
Fjarðarkaup Hafnarfirði
Kaupf. Suðurncsja Miðvangi Hafnarfirði
Vöruland Akranesi
Kaupfálag Borgfirðinga Borgarnesi
Apótek Ólafsvíkur
Kaupf. Vestur-Hónvetninga Hvammstanga
Versl. Haraldar Júlíussonar Sauðárkróki
Kaupfélag Þingeyinga Húsavík
Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum
Viðar Sigurbjörnsson Fáskrúðsfirði
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga Höfn
Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli
Grund Fléðum
Vöruhús K Á Selfnssi
Palóma Grindavík
Heildsölubirgðir:
Davíð S. Jðnsson 3 Co. hf. sími 552 4333
Molar...
... Þá hefur heyrst ab Hud-
dersfield hafi áhuga á því að
kaupa Brian McClair frá Man.
Utd, en hann hefur átt erfitt
uppdráttar hjá félaginu sínu
undanfarib.
... Sheffield Wednesday er
fornfrægt félag í Sheffield-borg.
Þekktasti stubningsmabur libsins
er líklega Verkamannaflokksleib-
toginn og rithöfundurinn Roy
Hattersley.
... í tengslum vib stjörnuleik
NBA- deildarinnar í körfuknatt-
leik fer fram trobslu- og þriggja
stiga keppni. í þriggja stiga
keppninni sigrabi Tim Leagler,
sem leikur meb Washington
Bullets, en hann hafbi betur
gegn Dennis Scott sem leikur
meb Orlando Magic í úrslitum. I
trobslukeppninni var þab hins
vegar leikmabur meb LA Clip-
pers sem fór á kostum, en hann
heitir Brant Berry. Bábir þessir
leikmenn eru nýlibar í NBA-
deildinni.
... Rangers er enn í þeim hug-
leibingum ab kaupa leikmenn.
Þeir hafa haft áhuga á Alan She-
arer, sem gæti kostab þá um 12
milljónir punda. Nú eru þeir á
eftir Hollendingnum Dennis de
Nooijer frá Sparta Rotterdam,
sem reyndar keppinautar þeirra í
Glasgow Celtic hafa einnig
áhuga á og hyggjast Rangers-
menn reyna ab stela honum fyr-
ir framan nefib á Celtic.
Málshöfbun gegn Terry Venables:
Frestað fram yfir EM'96
Terry Venables, fram-
kvæmdastjóri enska lands-
liðsins í knattspyrnu, náði
að knýja fram frestun á máli
viðskiptaráðuneytisins
breska gegn honum, sem
taka átti fyrir hjá hæstarétti
fljótlega. Frestunin er til 15.
júlí næstkomandi, en úr-
slitakeppni Evrópukeppn-
innar lýkur 30. júní og nær
Venables því ab skila af sér
starfinu sem framkvæmda-
stjóri ábur en málið verbur
tekib fyrir ab nýju.
Þrátt fyrir að Venables hafi
náð fram frestun í þessu máli,
eru tvö önnur í gangi gegn
honum, annars vegar mál
sem Alan Sugar sækir og hins
vegar mál sem fyrrum lög-
fræðingur Venables sækir
vegna ógreiddrar þóknunar
fyrir lögfræðistörf. ■