Tíminn - 08.05.1996, Qupperneq 13
Miðvikudagur 8. maf 1996
13
Framsóknarflokkurinn
26. þing SUF
26. þing Sambands ungra framsóknarmanna verður haldiö á Bifröst í Borgarfirbi
dagana 7.-9. júní nk. Nánar auglýst sí&ar.
Stjórn SUF
Sumarhappdrætti
Framsóknarfiokksins 1996
Dregib verður í Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 6. júní 1996. Velunnarar
flokksins eru hvattir til að greiba heimsenda gíróseðla fyrir þann tíma.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu flokksins í síma 562-4480.
Framsóknarflokkurinn
Opinn fundur
meö Halldóri
Ásgrímssyni
Framsóknarfélag Reykjavíkur og Samband ungra framsóknarmanna standa fyrir
opnum fundi meb Halldóri Ásgrímssyni miðvikudaginn 8. maí kl. 20.B0 á Grand
Hótel vib Sigtún.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Samband ungra framsóknarmanna
Aðsendar greinar
sem birtast eiga í blabinu þurfa aö vera tölvusettar og
vistabar á diskíing sem texti, hvort sem er í DOS eöa
Macintosh umhverfi. Vélrit-
abar eöa skrifaöar greinar
geta þurft aö bíöa birtingar
vegna anna viö innslátt.
|á EFTIR BOLTA á f KEMUR BARN... ™ ’ BORGIN OKKAR OG BÖRNIN f UMFERDINNI” JC VÍK rm m
LAN DBÚ NAÐARRÁÐU NEYTIÐ
Framkvæmda-
nefnd búvöru-
samninga
í samræmi viö samning um framleiðslu sauöfjárafuröa
frá 1. október 1995, auglýsir Framkvæmdanefnd bú-
vörusamninga styrki til hagræöingar- og vöruþróunar-
verkefna í slátrun og vinnslu sauöfjárafuröa. Skilafrestur
umsókna er annars vegar 20. maí og hins vegar 1. júlí.
Nánari upplýsingar og reglur um úthlutun er hægt að
fá í landbúnaðarráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, sími
5609750 og hjá Bændasamtökum íslands, Bændahöll-
inni v/Hagatorg, sími 5630300.
Óska eftir umboðsmanni á
Akureyri
Upplýsingar gefur Baldur Hauksson í síma 462-
7494 og afgreiösla Tímans í síma 563-1600.
Útför
Valgerðar Magnúsdóttur
Reykjum í Lundarreykjadal
sem lést 5. maí, fer fram aö Lundi laugardaginn 11. maí, kl. 2 eftir há-
degi.
Sigur&ur Ásgeirsson,
börn, tengdabörn og barnabörn
V__________________________________________________________>
Abdáunin hefur ekki minnkab vib skilnabinn, eins og hér má sjá, þar sem þau rába sér vart fyrir kœti þegar
þau takast íhendur.
Astin svo heit
að þau skildu
Víst er það mótsögn að hertog-
inn og hertogaynjan af York,
Andrew og Fergie, skildu vegna
þess hve heitt Andrew elskar fyrr-
um konu sína.
Stutt er síðan Andrew tók þessa
sársaukafullu ákvörðun og gekk
skilnaðurinn í gegn fyrir tæpum
tveimur vikum. Um leið setti
hann fjárhagsöryggi Fergie fram
yfir sína eigin hamingju og þykir
hann mesti heiðursmaður fyrir
vikið.
Andrew gerði sér grein fyrir því
að eina leiðin fyrir hertogaynj-
una til að komast yfir sæmilega
summu, svo hún mætti grynnka
á skuldum sínum, var í gegnum
skilnaðarsamkomulag. En skuldir
hennar eru nálægt hundrað
milljónum íslenskra króna, en
ekki 300 eins og áður hefur verið
haldið fram. Andrew hafði því
samband við lögfræðinga og fór
fram á skilnað, en útfærslu sam-
komulagsins unnu þau Fergie
saman á fyrrum heimili þeirra
við Sunninghill Park skammt frá
Windsor.
Eins og málum er nú háttað,
munu orðin „yðar hágöfgi" því
ekki lengur hljóma í eyrum
Fergie, en hún heldur enn titlin-
um hertogaynjan af York. Meiri-
hluti skilnaðarfjárins verður sett-
ur í sjóð handa dætrum þeirra,
en Fergie fær í sinn hlut um 50
milljónir (sem að vísu hrökkva
ekki til að greiða skuldirnar, en
nægja til að róa lánastofnanir).
Þrátt fyrir það, samkvæmt fregn-
um úr Bretaveldi, þrýsti þessi
hógværa og glaðlynda stúlka ekki
á um meiri peninga, þar sem hún
Beatrice og Eug-
enie bera mikla
virbingu fyrir
föbur sínum.
Söruh var ekki hlátur íhug daginn sem skilnaburinn komst ígegn og
hún var aldrei þessu vant fámál vib Beatrice dóttur sína, þegar hún
sótti hana í skólann.
Lýbum hefur lengi verib Ijóst hve
vœnt þeim þykir hvort um annab,
Andrew og Fergie, og oft hefur
Ijósmyndurum tekist ab festa á
filmu abdáun Andrews á ástkonu
sinni. Hún var reyndar enn eigin-
kona hans þegar þessari mynd
var smellt af.
gerir sér grein fyrir því að Andrew
hefur ekki úr miklu að moða.
Hann gerir þó sitt besta, borgar
hluta af skólagjöldum dætra
þeirra og húsaleigukostnaði
mæðgnanna, en Fergie leigir
íbúð í Kingsbourne fyrir um
150.000 kr. íslenskar á viku.
Líklega mun leigukostnaður-
inn lækka allverulega, ef mæðg-
urnar þekkjast boð hirðarinnar
um að búa í hesthúsaröð við
Sunninghill Park, sem fyrirhugað
er að gera upp. Reyndar stöðvuð-
ust framkvæmdir við breyting-
arnar þegar Bretadrottning frétti
að kostnaðaráætlun væri komin
upp í 75 milljónir króna. Breska
konungsfjölskyldan sá sér eðli-
lega ekki fært að eyða þvílíkri
summu í að breyta hesthúsum í
mannabústað, enda sjálfsvirðing
þeirrar fjölskyldu ekkert í líkingu
við sjálfsvirðingu þeirra íslensku
eðalteiknikúnstnera, sem leggja
sóma sinn ekki að veði fyrir
smáaura þegar kemur að endur-
bótum á húsnæði þjóðhöfðingja.
Hinum bresku arkitektum
tókst hins vegar að helminga
kostnaðinn og því lítur út fyrir að
Sarah, Beatrice og Eugenie verðir
nágrannar Andrews á næstunni.
Líklega verða þá leynidyr milli
hallar og hesthúss, þannig að allt
fellur í ljúfa löð: Andrew og
Fergie fá að njótast, Fergie heldur
frelsi sínu, laus vib konunglegar
skyldur og 50 milljónum ríkari.
■
í SPEGLI
TÍIVIANS