Tíminn - 15.05.1996, Page 13
Miövikudagur 15. maí 1996
13
Framsóknarflokkurinn
26. þing Sambands ungra
framsóknarmanna, Bifröst
í Borgarfiröi 7.-9. júní 1996
Föstudagur 7. júní:
Kl. 20.00 Setning — Cuðjón Ólafur jónsson, formabur SUF.
Kl. 20.10 Kosning embættismanna:
a) Tveggja þingforseta.
b) Tveggja þingritara.
c) Kjörnefndar.
Kl. 20.15 Skýrsla stjórnar:
a) Cuöjón Ólafur Jónsson, formaöur SUF.
b) Þorlákur Traustason, gjaldkeri SUF.
Kl. 20.45 Tillögur aö ályktunum þingsins.
Kl. 21.30 Avörp gesta — umræður og fyrirspurnir.
Kl. 22.45 Nefndastörf.
Kl. 00.00 Óvæntar uppákomur.
Laugardagur 8. júní:
Kl. 09.30 Morgunverður.
Kl. 10.00 Nefndastörf.
Kl. 12.00 Hádegisverbur.
Kl. 13.00 Umræður og afgreibsla ályktana.
Kl. 15.30 Kaffihlé — uppákomur.
Kl. 17.00 Afgreiðsla stjórnmálaályktunar.
Kl. 17.30 Kosningar.
Kl. 18.00 Önnur mál — þingslit.
Kl. 19.30 Grillveisla — samdrykkja.
Kl. 23.00 Dansleikur.
Sunnudagur 9. júní: ____
KL 09.30 Morgunverður — brottför.
Dagvist barna
í kvöld, miðvikudaginn 15. maí, verðurfundur um „Dagvist barna". Fundurinn er á
vegum ungliðahreyfinga R-lista flokkanna og verbur í húsakynnum Framsóknar-
flokksins í Reykjavík, Hafnarstræti 20, 3. hæb, og hefst kl. 20.30. Árni Þór Sigurbsson,
formaöur stjórnar Dagvistar barna, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum. Einnig
munu fleiri stjórnarmenn mæta eins og kostur er. Fundurinn er öllum opinn.
Vib vonum ab sem flestir láti sjá sig. Stjórn FUF í Reykjavík
Sumartími á
flokksskrifstofunni
Frá og með 15. maí og fram til 15. september verður opið á skrifstofu flokksins ab
Hafnarstræti 20 alla virka daga frá kl. 8.00 til 16.00.
Skrifstofa Framsóknarflokksins
Fundur meö Halldóri
Asgrímssyni um Evrópumálin
Þingmenn Fram<<»knarflokksins í Reykjanes- og Reykjavíkurkjördæmum halda í sam-
starfi vib Framsóknarfélag Seltjarnarness opinn fund um Evrópumálin mánudaginn
20. maí kl. 20.30 í Félagsheimili Seltjarnarness vib Suðurströnd.
Frummælandi verbur Halldór Ásgrímsson, formabur Framsóknarflokksins og utanrík-
isrábherra.
SiV Fribleifsdóttir, Hjálmar Árnason og Óiafur Örn Haroldsson
Halldór
Hjálmar Ólafur
T '
Eiginmaður minn
Þórarinn Þórarinsson
fyrrum ritstjóri
er látinn.
Ragnheibur Þormar
og vandamenn
V_______________________________________________________/
Faðir okkar
Þorvaldur Hjálmarsson
Háafelli, Hvítársíbu
lést á Sjúkrahúsi Akraness þann 9. þessa mánabar.
Útför hans fer fram frá Gilsbakkakirkju laugardag-
inn 18. maí kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hans,
eru bebnir ab láta Sjúkrahús Akraness njóta þess.
Dætur og abrir vandamenn
v______________;________________________________________j
r ’ ’ una ,vjk M, 4
K MájHI r J J
Demi mœtir ásamt
fylgdarliöi til andlegrar veislu ÍJIambay. Meb íför er dr. Choprax
Leitar trúarlegrar hug-
Ijómunar — og sonar
Indverjarnir kunnu því ekki illa ab leggja arminn hlýlega utan um þessa
verbmœtu konu og hér er þab gestgjafinn Fajesh Shah sem grípur gœs-
ina fyrir framan Ijósmyndara.
Gúrúinn hennar Demi, dr. Deepak Chopra.
Demi Moore á allt sem hugur-
inn girnist: 3 heilbrigðar dæt-
ur, vellaunað starf, ánægjuleg-
an eiginmann og hálfan
heimabæinn sinn.
Aldrei fær þó maðurinn
magafylli og sannaðist það á
Demi þegar hún fór til Ind-
lands nýlega og afklæddist sín-
um vestrænu fötum fyrir ind-
verskan sarí til að auðvelda leit
sína að trúarlegri hugljómun
og langlífi.
„Eg vona að lærdómur dr.
Chopra hjálpi mér til að lifa
fram eftir öllum aldri — jafnvel
til 130 ára," segir Demi vinum
sínum, en hún er víst ákaflega
spennt fyrir nýöldinni. Hún
telur sig þannig geta forðast al-
varlega sjúkdóma með því að
kyrja heilsumöntrur og nota
náttúruleg forvarnarlyf, sem
vestræn læknavísindi taka ekki
mark á.
Demi dró dr. Chopra reyndar
ekki upp úr svörtustu afkimum
indverskra ræsa, því maðurinn
býr í Kaliforníu og þénar þar
milljónir dollara á stofu sinni,
bókum og sjónvarpsþáttum og
meðal áhangenda hans er ekki
minna fólk en Michael Jack-
Hún fékk hlýjar móttökur frá öbr-
um bobsgestum og er þarna í
fabmi indverskrar ibnjöfursfrúar.
Á hendur hennar var teiknab
indverskt brúbkaupsmynstur,
sem œtlab er ab styrkja tengslin
vib eiginmanninn Bruce Willis.
son, Oprah Winfrey og Liz Ta-
ylor.
Speki Chopra byggir m.a. á
því að góðar hugsanir skapi
mótefni gegn sjúkdómum í lík-
ama mannsins. Því geti hugur-
inn læknað búkinn og snúið
öldrunarferlinu við.
Því hefur hæst launaða leik-
kona Bandaríkjanna nú tekið
sér bók Chopra, „Seven Spi-
ritual Laws of Success", til Bibl-
íu og segir, að þökk sé Chopra
hafi hún loks fyrirgefið móður
sinni.
„Faðir minn yfirgaf mig þeg-
ar ég var barn. Stjúpfaðir
minn, sem ég elskaði, framdi
sjálfsmorð. Móðir mín smán-
aði mig opinberlega. En ég hef
lært aö fá útrás fyrir illu kennd-
irnar og get nú jafnvel þakkað
þeim fyrir reynsluna sem þær
hafa veitt mér, og það góða
sem þær hafa innleitt í líf
mitt."
Bruce Willis, bóndi Demi, er
víst ekki jafn uppnæmur fyrir
kenningum Chopra, en gæti
átt von á glaðningi úr þeirri
átt, því að Demi vonast til að
ráðleggingar Chopra muni
hjálpa henni til að skapa litla
strákinn sem þau Bruce vilja
svo gjarnan eignast.
í SPECLI
TÍIVIANS