Tíminn - 04.06.1996, Page 11
Þribjudagur 4. júní 1996
11
Cenbreytt dýr þýöa allt ab 30- faldan vaxtarhraba og gagnast vel í rannsóknum. Norrœnt málþing fjallabi um
hin sibfrœbilegu atribi og telur genbreytingar réttlœtanlegar:
Rætt um aö græöa genbreytt
svínshjörtu í hjartasjúklinga
Neytendablaöib birti á dögunum þessa mynd af kynbœttu belgísku nauti, sem sýnir vel á hvaöa leiö kynbcetur eru. Vöövarnir eru gríöarmiklir,
en fœturnir eins og á venjulegu nauti.
Sérfræöingar í líftækni vinna
víöa um heim aö því aö gen-
breyta dýrum. Meö genbreyttu
dýri er átt viö dýr sem hefur
fengiö „nýjan" erföavísi, þ.e.a.s.
aö utanaökomandi erföavísir
hefur veriö settur inn í kyn-
frumur dýrsins meö erföatækni,
þannig aö hann veröur arfgeng-
ur. Hvernig líst fólki til dæmis á
genbreytta fiska, sem auka má
vaxtarhraöann á allt aö þrjátíu-
falt? Genbreyttar mýs og rann-
sóknir á þeim benda til aö litlar
líkur séu á aö riöuveikir naut-
grfþir orsaki Creutzfeld-Jakob
veiki í mönnum. Og kannski
stærsta fréttin úr líftækninni:
Hjörtu úr genbættum svínum
kunna aö veröa grædd í menn í
nánustu framtíö.
Mál sem hefur margar
hliöar
Genbreytingar á dýrum
þýða aö sjálfsögöu fleiri krón-
ur í kassann fyrir þá sem slíka
fiska veiöa eöa slík dýr ala. En
máliö hefur á sér margar hliö-
ar, lagalegar, hagfræöilegar —
og siöferöilegar hliðar.
Norræn nefnd um lífsið-
fræði, sem starfað hefur í 8 ár,
hélt árlegt málþing um þetta
efni í Hanaholmen, skammt
fyrir utan Helsinki í Finnlandi,
í apríl síðastliðnum. Nefndin
starfar á vegum norrænu ráö-
herranefndarinnar og er skip-
uö tveim fulltrúum frá hverju
Norðurlandanna. í henni eiga
sæti fyrir íslands hönd, þau Er-
lendur Jónsson heimspeking-
ur og dr. Jórunn Erla Eyfjörð
erfðafræöingur. Erlendur og
dr. Skúli Skúlason líffræðingur
sóttu málþingið. Til þingsins
mættu menn með ýmsar gráð-
ur, lögmenn, blaðamenn, vís-
indamenn, rithöfundar,
stjórnmálamenn, guðfræðing-
ar og heimspekingar.
Fjallað var um hin margvís-
legu markmið með genbreyt-
ingum dýra og fjallað um gen-
breytta fiska, mýs, nautgripi
og svín. Þá var rætt um hinar
ýmsu hliðar á slíkum tilraun-
um.
Mikilvægiö fyrir
rannsóknir
í máli Peters Aleström, pró-
fessors við dýralæknaháskól-
ann í Ósló, kom fram að gen-
breyttir fiskar geti haft efna-
hagslega þýðingu í framtíð-
inni með stórauknum vaxtar-
hraða sumra tegunda — eins
og fyrr sagði, allt að 30-falt.
Genbreyting á fiskum er ekki
talin breyta neinu varðandi
næringargildi eða bragð fisks-
ins. Notkun genbreyttra fiska
sem fæðugjafa er hins vegar
skammt á veg komin, víðast
eru slíkir fiskar aðeins notaðir
í rannsóknarskyni.
Mikilvægasta notkun gen-
breyttra dýra hefur reyndar
fram til þessa verið í rann-
sóknum og reynst mjög nyt-
samleg við greiningu sjúk-
dóma, hefur veitt innsýn í
þróun fósturs, svo og í það
hvernig ónæmiskerfi og æða-
kerfi virkar. Þá hafa þessar
rannsóknir reynst mikilvægar
gagnvart krabbameinum og
öðrum sjúkdómum, sem ekki
hefur verið unnt að ákvarða
með öðrum aðferðum.
Nautakjötiö ekki söku-
dólgurinn
Á málþinginu ræddi Jan
Ottesen dýralæknir um notk-
un músa og annarra nagdýra í
rannsóknum. í máli hans kom
fram að genbættar mýs skipta
miklu máli við rannsóknir á
próteininu príon, sem orsakar
bæði riðuveiki í nautgripum
og Creutzfeld-Jakob veiki í
mönnum. Rannsóknir þessar
benda til þess að litlar líkur séu
á því að neysla riðusmitaðs
nautakjöts orsaki þessa veiki í
mönnum. Hins vegar undir-
strikaði Ottesen að margir aðr-
ir þættir geti haft áhrif á það
hversu næmir menn eru fyrir
riðusmiti úr nautakjöti.
Svínshjörtu grædd í
menn?
Af fjöldamörgu, sem athygli
vakti á málþinginu í Hanahol-
men, var erindi sænska læknis-
ins Carls Gustavs Groth, sem er
prófessor við líffæraígræðslu-
deild Karolinska sjúkrahússins í
Huddinge.
Prófessorinn sagði að erfitt og
dýrt hefði reynst að fá manns-
hjörtu til að græða í hjartasjúk-
linga. Hann benti á að hættulegt
getur verið aö græða apahjörtu í
menn vegna skyldleika apa við
menn. Það getur haft í för með
sér að veirur sem ekki eru
skeinuhættar öpum, eins og
eyðniveiran, berist úr öpunum í
menn og verði þeim mjög skæð-
ar.
Því er það að nú binda menn
mestar vonir við vélræn hjörtu
og hjörtu úr svínum. Vandinn
við ígræðslu svínshjarta í mann
er að hjarta úr venjulegu svíni
kallar fram ofnæmisviðbrögð,
sem valda því að svínshjartað
verður ónýtt nokkrum klukku-
stundum eftir ígræðslu. Með því
hins vegar að skeyta einum
erfðaþætti inn í svín má koma í
veg fyrir slík viðbrögð og gera
svínshjörtu hæf til notkunar í
mönnum. Með þessu móti kann
að takast að lengja líf milljóna
hjartasjúklinga, sagði prófessor-
inn.
Ýmis siðfræðileg álitamál voru
uppi á málþinginu, eins og eðli-
legt er. Erlendur Jónsson dósent
segir að umræður um siðfræði-
legt réttmæti þess að breyta gen-
um dýra hefðu verið talsverðar.
En flestir hafi þó verið sammála
um að slíkar genbreytingar á
dýmm væru réttlætanlegar þeg-
ar þær leiða til framfara af því
tagi sem áður hefur verið
minnst á.
-JBP
Bílabúð Benna opnar
nýtt dekkjaverkstæbi
Bílabúð Benna hefur opnaö nýtt
dekkjaverkstæði og smurstöð
með Shell-vömr að Suðurströnd 4
á Seltjarnamesi. Fyrirtækið nefn-
ist Nesdekk og er staðsett á milli
Bónusverslunarinnar og Sund-
laugar Seltjarnarness.
Fyrirtækið býður upp á nýjung í
dekkjaþjónustu, sem felst í að verk-
stæðið tekur sumar- og vetrardekk-
in endurgjaldslaust til geymslu á
meðan pláss leyfir. Bifreiöaeigendur
þurfa því ekki að standa í dekkja-
burði í geymslur og bílskúra, heldur
aðeins að vitja dekkja sinna þegar
veður kallar og breytingar að hausti
eða vori.
Fyrirtækið mun hafa á boðstólum
frá Bílabúö Benna hin frábæru Kle-
ber- dekk frá Frakklandi og einnig
verða boðin Monarch-dekk á afar
hagstæðu verði. Einnig verða til
sölu ýmsir smáhlutir auk frekari
þjónustu til almennra viðgerða.
Fljótlega mun hefjast þjónusta, sem
felst í smáviðgerðum og ýmsum
lagfæringum, og eftir að dekkjaver-
tíð vorsins lýkur verða bílar einnig
teknir til þrifa og bónunar.
í fyrstu munu þrír starfsmenn
annast þjónustu fyrirtækisins. Þeir
hafa allir mikla reynslu af slíkri
þjónustu og áhersla verður lögð á
hraða og góða þjónustu við alla við-
skiptavini.
-ÞI