Tíminn - 06.06.1996, Síða 2
2
Mibvikudagur 6. júní 1996
Tíminn
spyr...
Er eölilegt ab láta fjárhagslega
afkomu Listahátíbar nú hafa
áhrif á fjárhag næstu hátíbar?
Hrafn Gunnlaugsson,
kvikmyndagerbarmabur:
Ég hef nú bæöi verið formaður
og framkvæmdastjóri þessarar há-
tíðar og hingað til hefur hver hátíð
verið rekin sem sjálfstæð rekstrar-
eining. Þannig hefur formaður
hverrar framkvæmdastjórnar borið
ábyrgö á sinni hátíð, það er mjög
sjaldfgæft að sami formaður sé
tvisvar. Það er gerður sérstakur
hallasamningur við ríki og borg eða
þannig var það í minni tíð um að ef
tap yrði á hátíðinni myndi ríkiö
hlaupa undir bagga. Á þetta reyndi
reyndar ekki í minni tíð þar sem
hátíðin kom það vel út fjárhagslega
en það hefur reynt á þetta og þá
hefur hver hátíð verið gerð algjör-
lega upp fyrir sig og ný fram-
kvæmdastjórn byrjað með hreint
borð. Það þætti mér ákjósanlegast.
Annars væri rangur aðili látinn
súpa seyðið af því sem aörir hefðu
gert. Ég skil þá ekki að nokkur mað-
ur vildi taka við hátíðinni.
Kristín Halldórsdóttir alþingis-
mabur, á sæti í fjárlaganefnd:
Nei. Mér finnst sjálfsagt og eðli-
legt að hver hátíð um sig sé rekin
sem sjálfstæð rekstrareining. Verk-
efni sem styrkt eru af hinu opin-
bera ættu að lúta þeim lögmálum.
Hjálmar Jónsson alþingismabur,
á sæti í fjárlaganefnd:
Ég hef þá skoðun að sérhver
Listahátíð eigi að hafa ákveðinn
fjárhag og sé gert að bera sig með
sjálfstæðum hætti. Það er ekki
skynsamlegt að skuldbinda fram í
tímann. Mér finnst óskynsamlegt
að hafa svo mikið við núna að það
fari langt umfram áætlanir. Það
hljóta að vera gerðar áætlanir um
fjárhag sem miða að því að endar
nái saman. En auðvitað getur alltaf
orðið einhver smávegis halli eba
hagnaður. Ábyrgöin verður þó að
vera aðstandenda hverju sinni.
Borgarráö samþykkir aö greiöa allt aö helmingi stofnkostnaöar viö
breytingar á nýju leiguhúsnœöi Miöskólans. Formaöur skólanefndar:
Óleyst vandamál hvernig vib
fjármögnum helminginn
Formaöur skólanefndar Mib-
skólans segist þokkalega
bjartsýnn á aö Miöskólinn
taki til starfa í nýju húsnæöi
næsta haust. Borgarráb hef-
ur samþykkt ab leggja fram
allt aö helmingi kostnabar
vegna nauösynlegra breyt-
inga á húsnæöinu á móti
Miðskólanum. Fulltrúar
Sjálfstæöisflokksins vildu aö
borgarráö ábyrgöist allan
stofnkostnaö.
Borgarráö samþykkti á fundi
sínum í fyrradag tillögu borg-
arstjóra um aö veita Miöskól-
anum vilyröi um eftirtalda
styrki til rekstrar og stofn-
kostnaðar: Styrk til greiðslu
húsaleigu, kr. 187.500 á mán-
uði tímabilið 1. júlí 1996 til
30. ágúst 1997. Styrk til stofn-
kostnaðar vegna breytinga á
því húsnæði sem Miðskólinn
hyggst taka á leigu (Skógarhlíð
10, efri hæð). Áætlað er að
stofnkostnaður nemi kr.
8.157.000 og leggur borgar-
sjóður fram allt að helmingi
þess kostnaðar á móti Mið-
skólanum. Jafnframt var sam-
þykkt að ákvörðun um rekstr-
arstyrk veröi tekin í júlí 1997.
Borgarráðsfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins lögðu fram
breytingartillögu þess efnis að
Reykjavíkurborg samþykkti að
ábyrgjast stofnkostnað vegna
nýs húsnæðis Miðskólans. Til-
laga þeirra var felld með at-
kvæðum fulltrúa Reykjavíkurl-
istans sem samþykktu síðan
tillögu borgarstjóra.
í bókun sem borgarráðsfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins létu
gera segir að miðað við fyrri
loforð Reykjavíkurlistans um
aö finna Miðskólanum annað
húsnæöi eftir að hafa sagt
honum upp húsnæbi í Mið-
bæjarskólanum ætti borgin að
vera reiðubúin að greiða þann
Formaöur stjórnskipunarnefndar kirkjunnar:
Kirkjukerfið gallab
Stjórnskipunarnefnd kirkj-
unnar kom saman nýlega og
ræddi tillögur aö stjórnsýslu-
breytingum. Fyrsta fundi er
lokiö og er umræöa nefndar-
innar einkum í þá átt aö
auka vald Kirkjuþings og
stækka þátt leikmanna.
Gunnar Kristjánsson, sókn-
arprestur á Reynivöllum í
Kjós, er formaður nefndarinn-
ar. Hann sagbi aðspurður í
samtali við Tímann að einstök
mál sem verið hafa í umræð-
unni aö undanförnu, sbr. svo-
kallað biskupsmál, hafi leitt í
ljós að ýmsir gallar séu á því
stjórnkerfi sem nú er fyrir
hendi. „Það er þörf á að skerpa
stjórnsýslulínurnar og var
reyndar orðið augljóst áður en
þessi vandi kom upp. Menn
sjá það núna að kirkjukerfið er
að mörgu leyti orðið óhæft til
að gegna sínu hlutverki."
Miðað er við að tillögurnar
verði komnar í heilsteypta
mynd fyrir Prestastefnu. -BÞ
kostnað sem sannarlega verð-
ur af flutningunum. Séu borg-
aryfirvöld ekki tilbúin til þess
sé nánast verið að eyðileggja
starfsemi Miðskólans sem geti
engan veginn tekið á sig slíkan
kostnað.
Borgarráðsfulltrúar Reykja-
víkurlistans létu bóka á móti
að með samþykkt sinni hafi
borgarráð samþykkt aö veita
Miðskólanum umtalsverðan
styrk bæði til rekstrar og fram-
kvæmda í nýju húsnæði. Hvað
varði upphæð stofnstyrksins
sé rétt ab taka fram aö einka-
reknir leikskólar njóti nú
stofnstyrkja sem nemi um
20% af stofnkostnaði þeirra.
Því verði tæplega haldið fram
með rökum ab ekki sé vel í lagt
hvað Miðskólann varði.
Bragi Jósepsson, formabur
skólanefndar Miðskólans,
sagði eftir fund borgarráðs að
sér sýndist sem hlutirnir væru
að komast á rétt ról. Hann
vildi þó ekki segja hvort af-
greiðsla borgarráðs væri eðli-
leg að hans mati, þar sem
hann hafði ekki fengið fundar-
gerðina í hendur. „Skóla-
nefndin þarf að reyna að finna
lausn á því hvernig skólinn
getur fjármagnab sinn hluta
stofnkostnaðarins.
Það er óleyst vandamál enda
er skólinn ekki fyrirtæki sem
býr yfir gildum sjóðum. Ég er
þó í sjálfu sér bjartsýnn á að
það takist, miðað við allar þær
hremmingar sem við erum bú-
in að ganga í gegnum. Undir
öllum venjulegum kringum-
stæðum ætti þessi skóli að vera
dauður og grafinn fyrir löngu.
Það er eingöngu vegna þess að
hér er kraftmikið fólk og
áhugasamir foreldrar að við
störfum enn og haldi allir bar-
áttunni áfram á sama hátt er
ég bjartsýnn á framhaldið."
Bragi segist mjög ánægöur
meö húsnæðið í Skógarhlíð
10. „Ef allt fer sem horfir er ég
bjartsýnn á að okkur takist að
skapa þar mjög vistlegt skóla-
umhverfi."
-GBK
BóAá er Vf
'BCÓGI
/7f £/?ra /70
G£/7f/7 £5/ /W/'/VA/ ?
A7/7A7A7/7 ö/900/
Sagt var...
Höfum ekkert vit á stríbi
„Hér á landi þekkja menn ekki styrj-
aldir nema ef vera skyldi úr banda-
rískum bíómyndum. Samt eru margir
hverjir þegar farnir ab spóka sig um
sem heimsins mestu hernabarspekúl-
antar. Ekki láta frændur okkar f Fær-
eyjum svona né nágrannar okkar á
Grænlandi."
Ritar Einar S. Gubmundsson í DV og
gerir sérstaklega herferb Ástþórs
Magnússonar ab umræbuefni.
Vandræbi æskunnar meb munn-
vatnib
„Mikib finnst mér sorglegt og leibin-
legt ab sjá hvernig — aballega ungt
fólk — lendir sífellt í vandræbum
meb eigib munnvatn og hráka. Þetta
finnst mér hafa færst mjög í vöxt á
undanförnum árum."
Ingibjörg í DV ritar sérkennilegt bréf,
en hún vill taka upp gömlu hrákadall-
ana.
Sólkerfismeistarinn
„Þetta hlýtur ab vera sólkerfismeistari
í trassaskap. Ég skil ekki hvernig
þetta er hægt."
Hilmar Arnbjörnsson sjómabur sparar
ekki líkingamálib í DV. Um ræbir trassa-
skap bifvélavirkja nokkurs.
Konur óhæfar í skák
„Ég hef t.d. hugleitt þab mikib og
komist ab þeirri niburstöbu ab skákin
sé of erfib fyrir konur. Þetta er spurn-
ing um karlmennsku sem konur hafa
ekki... Konur eru bara ekki eins og
karlar. Þab er talsverbur munur þar á.
Ég er ekkert ab segja þeim þetta til
hnjóbs. Þetta er bara svona. Menn
vilja ekkert vera ab flíka þessu nú á
tímum, þegar allir vilja vera svo
„líbó"." '
Helgi Ólafsson stórmeistari kemur út úr
skápnum í Alþýbublabinu í gær og
heggur hátt til kvenna, hverra hann
segir ekkert erindi eiga í skák.
Svefngenglar á þingi
„Hvernig er ástandib nibri í þing-
húsi? Einhvern veginn svona,
kannski: Svefngenglar ráfa um raub-
þrútnir milli augnanna, delerandi af
ofþreytu. Og setja þjóbinni lög. Og
fleiri lög. Þeir settu okkur ellefu ný
lög í fyrrinótt. Meban þjóbin svaf
settu þingmenn í svefnrofunum
lög."
Hrafn Jökulsson hefur áhyggjur af því
ab þingmenn séu ekki í stakk búnir til
ab sinna löggjafarstörfum síbustu dag-
ana fyrir þinglok, vegna svefnleysis. Al-
þýbublabib.
Úr kosningamiðstöb Péturs Hafstein
er þab helst ab frétta ab þangab er
kominn til starfa enginn annar en
hinn „ástsæli og sibprúbi" Ámundi
Ámundason toppkrati. Eftir ab jón
Baldvin hætti vib ab fara á flot í for-
setaframbob var Ámundi verkefna-
laus. En ekki lengur. Greinilegt er ab
hann mun hafa samband vib „sína
menn" og benda þeim á Pétur sem
gott forsetaefni. Ljóst er talib ab
slagurinn standi einmitt um krata-
og framsóknaratkvæbin í baráttu
Péturs og Ólafs Ragnars. „Þab er
svart á hvítu ab ég er enginn Þor-
móbur rammi, en ég mun þó af
veikum mætti reyna hvab ég get í
þessari baráttu. Vib eigum eftir ab sjá
Pétur á Bessastöbum, en ekki úlf-
inn," var haft eftir Ámunda í heita
pottinum í gærmorgun. Orbavalib
gæti verib Ámunda...
•
Sagt er í pottinum ab popphljóm-
sveitin sem sé „IN" í dag sé RÚV-
Tops, sem kom fram á vorfagnabi
Ríkisútvarpsins nýlega. Mebal hljóm-
sveitarfélaga eru Ingólfur Margeirs-
son bítlasérfræbingur, Georg Magn-
ússon og Magnús Einarsson tónlist-
arstjóri Rásar 2 — allir þrír meb gít-
ara — Ásgeir Stubmabur á
trommum, Lana Eddudóttir á
bassa, og söngkonan Ingveldur.
RÚV-Tops voru pöntub í brúbkaups-
veislu á stabnum...