Tíminn - 06.06.1996, Blaðsíða 8
8
T
Fimmtudagur 6. júní 1996
Arnþrúöur Karlsdóttir spyr á Alþingi:
Verður embætti lögreglustjóra ríkisins
of valdamikiö?
Amþrúöur Karlsdóttir, Fram-
sóknarflokki, geröi stofnun
embættis ríkislögreglustjóra aö
umtalsefni í umræöum um
fmmvarp til lögreglulaga á
mánudagskvöld. Hún sagöi aö
sambærileg embætti væm til í
sumum nágrannalandanna og
nefndi Svíþjóö og Finnland í
því sambandi, en þar væri um
miklu fjölmennari þjóöir aö
ræöa og allt aörar aöstæöur aö
því leyti. í Noregi væri sam-
bærilegt embætti og þaö sem
gert væri ráö fyrir aö stofna hér
á landi ekki til.
Arnþrúður velti því síöan fyrir
sér hvort ekki væri um stofnun of
valdamikils embættis aö ræða,
þar sem öll starfsemi Rannsóknar-
lögreglu ríkisins myndi færast
undir þaö. Hún sagði aö ríkislög-
reglustjóri ætti að hafa vald til að
grípa inn í rannsóknir á öllum
stigum og taldi að slíkt gæti skað-
að rannsóknarstörf í erfiðum og
viðkvæmum málum. Þá gagn-
rýndi hún þá hugmynd í frum-
varpinu ab koma ætti á fót sér-
stakri aðstobardeild til rannsókna
í erfiðum málum og sagði að slík
deild, sem ekki ætti stöðugt að
vera að störfum, yrði aldrei eins
vel í stakk búin til þess ab takast á
við slík viðfangsefni og þeir lög-
reglumenn sem stöðugt ynnu við
þessi verkefni. Þannig skapaðist
sú þjálfun og reynsla sem þeim
væri nauðsynleg, en menn sem
aðeins kæmu að slíkum verkefn-
um myndu staðna í starfi.
Arnþrúður fjallaði einnig um
starfsaldur lögreglumanna, en
frumvarpib gerir ráð fyrir að
hann verði styttri en hjá öðrum
opinberum starfsmönnum vegna
sérstöðu lögreglustarfa. Hún taldi
þetta ákvæði mjög mikilvægt og
Arnþrúbur Karlsdóttir.
nauösynlegt að takmarkaður
starfsaldur lögreglumanna yrði
tryggður í nýjum lögum.
Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra sagði að kannað yrði
rækilega á hvern hátt unnt yrði
að koma starfslokum lögreglu-
manna í framkvæmd. Þetta væri
nokkuð vibkvæmt mál, þar sem
slíkt gæti haft fordæmisgildi og
hugsanlega komib fram óskir frá
öðrum hópum opinberra starfs-
manna um sambærilega starfs-
lokasamninga. Hann sagbi að ein
þeirra leiða, sem hugað hafi verið
að, væri sú að lögreglumenn
myndu eiga kost á öðrum störf-
um hjá ríkinu þegar ákveðnum
starfsaldri væri náb við lögreglu-
störf.
-ÞI
Málefni fatlaöra til umrœöu á Alþingi:
Flöt útgjalda-
lækkun ekki
fyrirhuguö
Nýstúdentar frá Flensborg 1996.
Skólaslit Flensborgarskólans
Fatlaðir einstaklingar mættu
ásamt aðstandendum og
gæslumönnum á áheyrenda-
palla Alþingis í fyrradag, þeg-
ar málefni fatlaðra voru til
umræðu utan dagskrár. Rann-
veig Guðmundsdóttir, Al-
þýðuflokki, hóf umræðuna og
sagði mikla óvissu ríkja um
framtíð þessa málaflokks.
Hún sagði engin ný stöðugildi
hafa verið sett á stofn og nýtt
heimili fyrir fatlaða við Val-
lengi í Grafarvogi biði nú til-
búið að öðru leyti en því að
ekki fengist heimild til þess að
ráða þangað starfsfólk. Hún
sagði að 317 fatlaðir einstak-
lingar bíöi nú eftir plássi á
sambýlum: 214 í Reykjavík og
103 á Reykjanesi, auk þess
sem aðeins 13 einstaklingar
hafi verið útskrifaðir af Kópa-
vogshæli á sambýli í stað 35.
Rannveig kvað óvissuna óþol-
andi og dæmin frá liðnum vetri
sýndu að hugmyndirnar um
lokanir væru skammt undan.
Rannveig gagnrýndi harðlega
að Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra skyldi ekki vera viðstadd-
ur umræðuna, en hann er
staddur erlendis. Hún kvaðst
hafa beðið um þessa umræðu
fyrir tveimur vikum, en félags-
málaráðherra hafi þá talið sig
þurfa tíma til að skoða málið.
Nú væri hann farinn til útlanda
og engu líkara en hann hafi tal-
ið sig þurfa að komast frá
óþægilegu máli.
Guðmundur Bjarnason, starf-
andi félagsmálaráðherra, sagði
Pál Pétursson þekktan að öðru
en að hlaupast frá vandamál-
um. Hann sagði sparnaö í
rekstri hins opinbera koma nið-
ur á flestum sviðum, en flöt út-
gjaldalækkun væri ekki fyrir-
huguð í málefnum fatlaðra. Á
þessu ári væri varið 50 milljón-
um til framkvæmda umfram
fjárlög síðasta árs og væri sú
hækkun mun meiri en á milli
áranna 1994 og 1995, sem
Rannveig Guðmundsdóttir bæri
ábyrgð á sem þáverandi félags-
málaráðherra.
Jóhanna Siguröardóttir, Þjób-
vaka, sagði að pólitísk samstaða
hafi verið á Alþingi um að
standa vörö um málefni fatl-
aðra, en hún hafi verið rofin í
desember á síðasta ári meb því
að skerða tekjur Framkvæmda-
sjóðs fatlaðra. Hún sagði einnig
að fimm ára bið væri eftir íbúð-
um fyrir fatlaða á vegum Ör-
yrkjabandalagsins.
Ásta B. Þorsteinsdóttir, Al-
þýbuflokki, sagði að málefni
tengt fötlun snerti að meðaltali
fjórða hvern einstakling, annað
hvort í formi eigin fötlunar eba
ættingja, sem þýddi um 60 þús-
und manns hér á landi, eða um
helming af íbúafjölda Reykja-
víkur.
Jón Kristjánsson, Framsóknar-
flokki, formaður fjárlaganefnd-
ar, sagði að stofnunum hafi bor-
ist almenn tilmæli um 5% sam-
drátt, en þar með sé ekki víst að
unnt verði að ná því markmiði í
öllum tilfellum og ekki sé ætlast
til að stofnunum fyrir fatlaða
verði lokab.
Guðmundur Bjarnason sagði
aö unnið væri ab því að opna
heimili fyrir fatlaða vib Vallengi
í Grafarvogi og verið að undir-
búa að ráða í stöður starfsfólks
þar.
-ÞI
Frá áramótum hefur verð á
sjávarafurðum lækkað um
4,6% í SDR- mynt. Þær afurð-
ir sem hafa lækkað mest eru
t.d. lýsi, sem hefur lækkað í
verði um 18%, pilluð rækja
um 10% og saltaöar botnfisk-
afurðir um 11,5%. Aftur á
móti hefur verð á sjófrystum
botnfiskafurðum hækkað
um 5,2% á sama tímabili.
Þetta kemur fram í Hagvís-
um Þjóðhagsstofnunar. Þar
kemur einnig fram að þessar
Flensborgarskólanum var slit-
ið í Víðistaðakirkju í Hafnar-
firði laugardaginn 25. maí og
voru þá brautskráðir 45 nem-
endur frá skólanum, 2 meö
verslunarpróf, 1 meö próf af
uppeldisbraut og 42 stúdent-
ar.
Flestir stúdentanna eða 18
brautskráðust af félagsfræði-
braut, 9 af málabraut, 9 af nátt-
úrufræöibraut, 4 af hagfræbi-
braut, 2 af eblisfræðibraut og 1
af íþróttabraut. Einn braut-
skrábist af tveimur brautum,
eðlisfræðibraut og náttúru-
fræðibraut. 22 af stúdentunum
eru konur, en 20 karlar.
Hæsta einkunnameðaltali
náði Ævar Þórólfsson, sem
brautskráðist af félagsfræði-
braut, en fast á hæla honum
kom Arnbjörg Jóna Jóhanns-
dóttir, sem brautskráðist bæbi af
verðbreytingar á sjávarafurð-
um eru að hluta til vegna árs-
tíðabundinna sveiflna og þá
aðallega í saltfiski og sjófryst-
um afurðum. Ennfremur er
bent á þá staðreynd að verð á
sjávaraflirðum hefur einatt til-
hneigingu til að lækka í upp-
hafi hvers árs, en hækkar síðan
er líða tekur á árið og er oft í
hámarki í árslok.
Þá er viðbúið að aukinn
kvóti á næsta fiskveiðiári,
einkum í þorski og loðnu,
eðlisfræðibraut og náttúru-
fræðibraut og vantaði lítið á til
ab geta einnig útskrifast af
þriðju brautinni, tónlistarbraut.
Hún var alls meb 207 námsein-
ingar, sem er það mesta sem
stúdent frá skólanum hefur haft
frá upphafi.
Kristján Bersi Ólafsson skóla-
meistari flutti skólaslitaræðu,
afhenti einkunnir og bókaverð-
laun fyrir góban árangur í námi.
Meðal þeirra sem hlutu viður-
kenningu voru þrír nemendur,
sem hafa á önninni náð góðum
árangri í samkeppni milli fram-
haldsskólanemenda, þeir Hann-
es Helgason og Stefán Freyr
Guðmundsson, sem hafa verið
valdir í ólympíulið íslands í
stærðfræbi, og Finnbogi Óskars-
son sem sigraði í þýskuþraut
ársins.
Elísabet Andrésdóttir talaði
muni hafa einhver áhrif til
hins betra fyrir afkomu fisk-
vinnslu og útgerðar, en talib er
að 20% aukning þorskafla
samkvæmt tillögu Hafró muni
auka þjóðartekjur um 2 mil-
jarða króna. Á móti kemur að
Hafró leggur til fjórbungs-
minnkun í ýsu-, ufsa- og grá-
lúðuafla og 9% minni síldar-
afla.
Samfara væntanlegum tekju-
auka vegna aukins afla, bendir
margt til þess að útgjöld sjávar-
fyrir hönd 20 ára stúdenta og af-
henti skólanum fé til bóka-
kaupa. Þá talaði Björn G. Karls-
son og færði skólanum bókagjöf
og silfurskjöld til minningar um
Birgi Grétarsson. Birgir lauk
stúdentsprófi frá Flensborgar-
skólanum fyrir réttum 10 árum,
en fórst af slysförum á árinu
1987, og var gjöfin frá hópi
gamalla skólafélaga hans.
Síðast tók svo til máls fulltrúi
nýstúdenta, Gunnar Guð-
mundsson, en að því loknu
flutti skólameistari lokaorð.
Við útskriftina söng Kór
Flensborgarskólans undir stjórn
Helga Þ. Svavarssonar. Helgi
hefur stjórnað kórnum í 2 ár, en
lætur nú af störfum og í tilefni
þess var honum afhent heiðurs-
skjal frá kórnum, sem Eyjólfur
Eyjólfsson afhenti.
útvegs vegna olíukostnaðar
muni ekki vaxa frá því sem
verið hefur. í Hagvísum Þjób-
hagsstofnunar kemur m.a.
fram að verð á olíutunnu á
markaði í London hefur lækk-
að úr 21 dollar hver tunna í 19
dollara um miðjan maímánuð.
Þessi verðlækkun er talin eðli-
leg miðað við markaðsaðstæð-
ur á þessum árstíma, og er ekki
búist við frekari hækkunum á
næstunni.
-grh
Árstíöabundnar sveiflur á verbi einstakra sjávarafurba:
4,6% lækkun frá áramótum