Tíminn - 17.07.1996, Blaðsíða 14
14
Miðvikudagur 1 7. júlí 1996
HVAÐ E R Á SEYÐI
Hafnagönguhópurinn:
Gengib úr Gróttu
nib'r á höfn
Hafnagönguhópurinn fer á
miövikudagskvöldið 17. júlí í
gönguferö frá Valhúsahæö út
í Gróttu og þaðan með
ströndinni nið'r á höfn. Mæt-
ing við Hafnarhúsið kl. 20 og
síðan farið með SVR út á Nes.
Einnig er hægt að mæta á Val-
húsahæð kl. 20.45. Á leiðinni
verður litið inn hjá Siglinga-
málastofnun. Þá verður kynnt
fyrirhuguð gönguferð Hafna-
gönguhópsins laugardaginn
20. júlí, hafnardaginn.
Selfoss:
Tónleikar á sumri
Eydís Franzdóttir óbóleikari
og Brynhildur Ásgeirsdóttir
píanóleikari halda tónleika í
Selfosskirkju, fimmtudaginn
18. júlí kl. 20.
Á tónleikunum, sem eru um
klukkustund að lengd, verður
ferðast með hlustendur á
vængjum tónlistar víðs vegar
um Evrópu. Kynnst verður
blóðhita Ungverja, þýskri
rómantík, staldrað við í
franskri sveitasælu, dvalið
meðal Englendinga og svo
auðvitað komið við hjá
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELG ARPAKK AN A
OKKAR
REYKJAVÍK
568-6915
AKUREYRI
461-3000
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Brynhildur Ásgeirsdóttir og Eydís
Franzdóttir, sem leika í Selfoss-
kirkju annaö kvöld.
frændþjóbum okkar til að
kynnast dönskum húmor og
norskri fjallafegurð.
Tónleikarnir verða endur-
teknir í Borgarneskirkju
fimmtudaginn 25. júlí kl.
20.30 og í Stykkishólmskirkju
sunnudaginn 18. ágúst kl. 17.
Sumardagskrá
Norræna hússins
Bókmenntafræðingurinn
Kristján Jóhann Jónsson verð-
ur fyrirlesari kvöldsins í Opnu
húsi í Norræna húsinu
fimmtudagskvöldið 18. júlí kl.
20.
Kristján ætlar ab tala um
þab hvernig íslenskar bók-
menntir frá fyrri tíð tengjast
nútímabókmenntum. Hann
flytur mál sitt á sænsku.
Dagskráin í Opnu húsi er
einkum ætluð ferðamönnum
frá Norðurlöndum, en íslend-
ingar eru að sjálfsögðu líka
velkomnir.
Kaffistofan verður opin til
kl. 22 og býður upp á íslenska
sérrétti á vægu verði.
Á sunnudögum kl. 17.30 er
dagskrá einkum ætluð ferða-
mönnum frá Norðurlöndum.
Borgþór Kjærnested talar um
íslenskt samfélag og það sem
er efst á baugi í þjóðféiaginu.
Flutt á sænsku og finnsku.
Fólki gefst tækifæri til fyrir-
spurna.
KI. 20.15 á sunnudag ætlar
bandaríski ljósmyndarinn Jef-
frey Hunter að sýna litskyggn-
ur frá íslandi, spilar íslenska
tónlist og tala um ísland.
Hann svarar spurningum á
ensku. Kaffistofan býður upp
á eitthvað „gott úr hafinu",
500 kr.
Mánudaginn 22. júlí kl. 19
verður sýnd íslenska kvik-
myndin „Á köldum klaka"
(Cold Fever). Leikstjóri er
Friðrik Þór Friðriksson, 1995.
Enskur texti, 87 mín. Kaffi-
stofan býður upp á fiskipaté,
400 kr.
Á allar þessar dagskrár eru
allir velkomnir og aðgangur
er ókeypis.
Sumartónleikar
á Norburlandi
2. tónleikaröð Sumartón-
leika á Norðurlandi er tvískipt
að þessu sinni. Fyrst leika
Margrét Bóasdóttir sópran og
Kristinn H. Árnason gítarleik-
ari á föstudaginn, 19. júlí, í
Snartarstaðakirkju í Öxarfirði
kl. 21, og laugardaginn 20.
júlí í Reykjahlíðarkirkju kl.
21.
Á efnisskrá þeirra tveggja
verða verk eftir Agustín Barri-
os, Domenico Scarlatti, Franc-
isco Torrega, Johann Sebasti-
an Bach, Isaac Albeniz og ís-
lensk þjóðlög.
Karel Paukert, orgelleikari
frá Bandaríkjunum, leikur svo
á sunnudaginn, 21. júlí, í Ak-
ureyrarkirkju kl. 17. Hann
flytur verk eftir Bernardo
Pasquini, J.S. Bach, Vincenzo
Bellini, Louis Vierne, Franz
Liszt, César Franck, Jehan Ala-
in, Petr Eben og Charles Ives.
Inga Sólveig sýnir
í Gallerí Horninu
Laugardaginn 20. júlí kl. 17
opnar Inga Sólveig Friðjóns-
dóttir sýningu á handmáluð-
um ljósmyndum í Gallerí
Horninu að Hafnarstræti 15.
Sýningin ber yfirskriftina
„Steinar í sterkum litum",
sem vísar til viðfangsefnisins,
steina í náttúru íslands.
Inga Sólveig stundaði nám
við San Francisco Art Institute
og útskrifaðist þaðan 1987.
Síðan hefur hún haldið fjór-
tán einkasýningar, bæði á ís-
landi og erlendis, auk þátt-
töku í samsýningum.
Sýning Ingu Sólveigar
stendur til miðvikudagsins 7.
ágúst og verður opin alla daga
milli kl. 11 og 23.30. Á milli
kl. 14 og 18 er gengið inn um
sérinngang í galleríið, en ann-
ars í gegnum veitingastaðinn
Hornið.
Háskóli íslands:
Námskeib í
krabbameinshjúkrun
í haust verður kennt nám-
skeiðið Krabbameinshjúkrun
I. Er þetta fyrsta námskeiðið í
röð námskeiða á þessu sviði
sem í boði verða fyrir hjúkr-
unarfræðinga á næstu árum.
Fjallað verður almennt um
myndun krabbameina, helstu
meðferbir við þeim, algeng
viðbrögð við sjúkdómi og
meðferð og grundvallaratriði í
hjúkrun krabbameinssjúk-
linga. Námskeiðið mun nýtast
öllum hjúkrunarfræðingum
sem hjúkra einstaklingum
með krabbamein.
Krabbameinshjúkrun I er 3
einingar og mögulegt er að
taka það sem viðbótarnám
eftir grunnnám í hjúkrunar-
fræði eða á meistarastigi.
Mælt er með að allir nemend-
urnir hafi bakgrunn í fræði-
legum vinnubrögðum og líf-
eðlisfræbi. Einnig er sterklega
mælt með að þeir sem sækja
námskeiöið hafi a.m.k.
tveggja ára reynslu af almenn-
um hjúkrunarstörfum. Þeir
hjúkrunarfræbingar, sem hug
hafa á að taka námskeiðið á
meistarastigi, en hafa ekki
lokið BS-prófi, þurfa að hafa
hafið nám í sérskipulögðu
námi til BS-prófs í hjúkrunar-
fræði. Haldið verður próf úr
hluta námsefnisins, en jafn-
framt skila nemendur verk-
efnum og flytja framsögu.
Kennslan fer fram á þriðju-
dögum, kl. 13-16. Þriðjudag-
inn 3. september mun fara
fram kynning á námskeiðinu,
lesefni, æskilegum undirbún-
ingi og námskröfum. Kennsla
hefst síðan 10. september.
Nánar verður tilkynnt um
kennslustofu síðar. Umsjónar-
kennari námskeiðsins er
Nanna Friðriksdóttir lektor.
Innritun fer fram í nem-
endaskrá Háskólans í Aðal-
byggingunni 12.-16. ágúst.
Frekari upplýsingar verða
veittar á skrifstofu námsbraut-
ar í hjúkrunarfræði í síma
525-4960.
Margrét Bóasdóttir.
Kristinn H. Árnason.
Dagskrá útvarps og sjónvarps
Miðvikudagur
17. júlí
6.45 Ve&urfregnir
6.50 Bæn: Séra Axel Árnason
flytur.
7.00 Fréttir
7.30 Fréttayfirlit
7.31 Fréttir á ensku
8.00 Fréttir
8.10 Hér og nú
8.30 Fréttayfirlit
8.50 Ljó& dagsins
9.00 Fréttir
9.03 Laufskálinn
9.38 Seg&u mér sögu, Músa-Darjan
9.50 Morgunleikfimi
10.00 Fréttir
10.03 Veöurfregnir
10.15 Árdegistónar
11.00 Fréttir
11.03 Samfélagiö í nærmynd
12.00 Fréttayfirlit á hádegi
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir
12.50 Au&lindin
12.57 Dánarfregnir og auglýsingar
13.05 Hádegisleikrit Utvarpsleikhússins
13.20 Heimur harmóníkunnar
14.00 Fréttir
14.03 Útvarpssagan, Hi& Ijósa man
14.30 Til allra átta
15.00 Fréttir
15.03 Kenya - Safaríparadís heimsins
og vagga mannkyns
15.53 Dagbók
16.00 Fréttir
16.05 Tónstiginn
17.00 Fréttir
17.03 Þjó&arþel: Úr safni handritadeildar
17.30 Allrahanda
17.52 Umfer&arráö
18.00 Fréttir
18.03 Ví&sjá
18.45 Ljó& dagsins
18.48 Dánarfregnir og auglýsingar
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Auglýsingar og ve&urfregnir
19.40 Morgunsaga barnanna endurflutt
20.00 Tónlist náttúrunnar
21.00 Leyndardómur vínartertunnar
22.00 Fréttir
22.10 Ve&urfregnir
22.15 Orð kvöldsins
22.30 Kvöldsagan, Á vegum úti
23.00 „Meöan brjóst mitt ást og
æska fylltu" Af Grími Thomsen og
Magdalenu Thoresen.
24.00 Fréttir
00.10 Tónstiginn
01.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns. Ve&urspá
Mibvikudagur
17. júlí
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Fréttir
18.02 Lei&arljós (434)
18.45 Auglýsingatími -
Sjónvarpskringlan
19.00 Myndasafnið
19.25 Úr ríki náttúrunnar
20.00 Fréttir
20.30 Ve&ur
20.35 Víkingalottó
20.40 Hvíta tjaldiö
Kvikmyndaþáttur í umsjón Valger&ar
Matthíasdóttur
21.05 Höfu&syndirnar sjö (6:7)
Öfund (Seven Deadly Sins)
Ástralskur myndaflokkur þar sem
fjallað er um höfu&syndirnar sjö í
jafnmörgum sjálfstæ&um myndum. í
myndunum sameina krafta sína
nokkrir efnilegustu leikstjórar Ástrala
og úrvalsleikarar. Leikstjóri þessarar
myndar er Stephen Wallace og
aöalhlutverk leika Belinda McClory,
Richard Sútherland, Lech
Mackiewicz, Ola Chang, Cenevieve
Lemon og Jacqy Phillips. Þý&andi:
Veturli&i Gu&nason.
22.05 Ólympíustjörnur (3:3)
(Olympic Clory) Bandarísk þáttaröö
um sögu Ólympíuleikanna á þessari
öld, íþróttamennina og reynslu
þeirra. Þý&andi er Gu&ni
Kolbeinsson og þulur Ingólfur
Hannesson.
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok
Mibvikudagur
17. júlí
12.00 Hádegisfréttir
12.10 Sjónvarpsmarka&ur-
13.00 Ævintýri Mumma
13.10 Skot og mark
13.35 Heiibrigö sál í hraustum líkama
14.00 Sonur Bleika pardusins
15.35 Handlaginn heimilisfa&ir (e)
16.00 Fréttir
16.05 Sumarsport (e)
16.35 Clæstar vonir
17.00 í Vinaskógi
17.25 Mási makalausi
17.50 Doddi
18.00 Fréttir
18.05 Nágrannar
18.30 Sjónvarpsmarka&urinn
19.00 19 >20
20.00 Beverly Hiils 90210 (4:31)
20.55 Núll 3
21.30 Sporöaköst (e)
Vatnsá
22.00 Brestir (e)
(Cracker 2) (2:9)
22.55 Sonur Bleika pardusins
(Son of The Pink Panther)
Lokasýning
00.30 Dagskrárlok
Miðvikudagur
17. júlí
17.00 Spítalalíf
r i cún (mash)
17.30 Gillette
sportpakkinn
18.00 Taumlaus tónlist
20.00 í dulargervi
21.00 Búriö 2
22.30 Star Trek
23.15 Leyndarmál Emmanuelle
00.45 Dagskrárlok
Miðvikudagur
17. júlí
18.15 Barnastund
19.00 Skuggi
19.30 Alf
19.55 Ástir og átök
20.20 Eldibrandar (8:13)
21.05 Madson (3:6)
22.00 Næturgagnið
22.45 Tíska
23.15 David Letterman
00.00 Framtíðarsýn (E)
00.45 Dagskrárlok Stö&var 3