Tíminn - 18.07.1996, Qupperneq 4

Tíminn - 18.07.1996, Qupperneq 4
4 wmmwi Fimmtudagur 18. júlí 1996 STOFNAÐUR 1 7. MARS 191 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: jón Kristjánsson Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson Fréttastjóri: Birgir Gu&mundsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1,105 Reykjavík Sími: 563 1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Jæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmibja hf. Mánaöaráskrift 1700 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk. Hrakandi lífskjör Góð heilbrigðisþjónusta og langlífi eiga sinn þátt í því að lyfta íslandi upp í áttunda sæti meðal þjóða, miðað við lífskjaravísitölu sem Þróunar- stofnun Sameinuðu þjóðanna gefur út. Hlutfall hins opinbera í kostnaði af heilbrigðisþjónustu er með því hæsta sem gerist í heiminum, samkvæmt skýrslu sem er nýkomin út. Það, sem lyftir íslendingum hvað hæst í lífsgæð- um, er það sem hér á landi er talin hin mesta meinsemd í rekstri þjóðarbúsins. Kröfur eru uppi um að draga sem mest úr kostnaði við að viðhalda heilbrigði og lækka lífsgæðavísitöluna sem allra mest. En afkoma á íslandi er lakari en á síðasta áratug, samkvæmt sömu skýrslu, þrátt fyrir hagvaxtar- aukningu og segir blákalt að hinir ríku verði ríkari, en hinir fái ekki neitt. Þetta er athugandi fyrir þá, sem sífellt eru að telja sjálfum sér og öðrum trú um að hér ríki mikið framfaraskeið með blómstrandi fyrirtækjum. Ör hækkun á hlutabréfum og aukin umsvif fjármagnsmarkaða eru gjarnan tekin til marks um æskilega hagvaxtarþróun. En hún er engin sönnun fyrir því að hagur alls þorra fólks fari batnandi, nema síður sé. í þeim kafla skýrslunnar, sem fjallar um mis- skiptingu auðs, er tekið fram að hagvexti þjóðar fylgi hreint ekki alltaf batnandi lífskjör þegnanna, og er þeim sem marka pólitíska stefnu ráðlagt að einblína ekki á magn, en taka einnig tillit til gæða. Mörg dæmi eru um það að hagvöxtur eykur at- vinnuleysi og víða koma ávextir efnahagsbatans í hlut hinna efnaðri, en fátæklingum fjölgar og þeir búa við stöðugt verri fátækt. Af þessum sökum eiga margar vanþróaðar þjóðir erfitt með að rétta úr kútnum. Bilið milli auðugra þjóða og þeirra fá- tækari fer sívaxandi. Alþjóðavæðingin breytir ekki eins miklu þar um og margir vilja vera láta. Skýrslur eins og sú sem hér er vitnað til eru eng- an veginn algildur mælikvarði á efnahag og lífs- kjör þjóða. En að afgreiða þær með því að segja að þær séu ekki marktækar er fásinna, því þær geta verið góð vísbending um á hvaða braut þjóðir eru í lífsgæðakapphlaupinu. ’j Hvað íslandi viðvíkur, hlýtuir að vekja athygli að skýrsluhöfundar sýna fram á að afkoma almenn- ings sé lakari en fyrir nokkrum árum. Stjórnmála- menn og þeir sem ráðskast |með vinnumarkað ættu að veita þeirri staðhæfingu athygli að þeir ríkú verða ríkari, en þeir efnaminni fá ekki neitt. Þetta skeður á sama tíma og fjármagnsmarkaðir blómstra sem aldrei fyrr og afkoma fyrirtækja er betri en dæmi eru um áður og hlutabréf hækka óð- fluga samtímis því að lífskjörum hrakar. Á meðan þessar fullyrðingar verða ekki hraktar hlýtur almenningur í landinu að krefjast skýringa á þróuninni og gera kröfu um að lífsgæðum verði jafnar skipt. ísland á hvorki að vera bananalýð- veldi né í eigu fárra aðila, sem fara með gögn og gæði fósturjarðarinnar að eigin vild, eins og dæm- in eru um meðal miður þróaðra ríkja. Frystihús og fyrirgreiösla Allt frá unga aldri hefur Garri boriö mikla virö- ingu fyrir mönnum sem leggja það á sig að reka fyrirtæki. Margir hverjir eru hinir mestu elju- menn, dugnaðarforkar, skynsamir og bestu drengir þar á ofan. Mikill meirihluti þeirra sem standa í fyrirtækjarekstri heyrir undir þennan hóp. Síðan eru einhverjir glúrnir, en þó fyrst og fremst heppnir, sem hafa orðið stórríkir á fyrir- tækjarekstri og flestir þeirra heyra líka undir þennan fyrrnefnda hóp. Garri hefur í mörg ár heyrt mildð talað á neikvæðum nótum um fyrir- tæki og atvinnurekendur, þeir séu illir og auð- valdið slæmt. Gjarnan er dæminu stillt upp sem atvinnurekendur gegn launþegum. Þaö vill nú svo merkilega til að Garri þekkir býsna marga sem eru í fyrirtækjarekstri og hann getur engan þeirra talið illan og flestir þeirra eru í mesta basli við að láta enda ná saman. En þaö er svo merkilegt með þessa illsku atvinnurekenda að hún virðist leynast ansi víða, ef marka má þessa launþegar vs. at- vinnurekendur umræöu. Aðstöðumunur atvinnugreina En það eru nú ekki öll fyrirtæki sett undir sama hatt í þessum efnum. Lengi hefur verið hávaði út af aðstöðumuni fyrirtækja í hinu ýmsu atvinnu- greinum, eða öllu heldur aðstöðumuni atvinnu- greinanna. Þar hefur landbúnaðurinn löngum verið ofarlega á lista yfir atvinnugreinar sem njóti óeðlilega kjara af hálfu hins opinbera og má margt til sanns vegar færa í þeirri umræðu allri saman. En við lausn vandans í þeirri atvinnugrein hefur verið farin hin séríslensksovéska leið að STÝRA greininni út úr vandanum. Sem sagt, með öðrum orðum, hið alvitra opinbera yfirvald tók þá ákvörðun að miðstýra atvinnugreininni land- búnaður út úr vandamálunum. En, eins og ávallt áður þegar þeirri aðferð er beitt, hefur vandinn gert lítið annað en aukast og aukast og aukast. Nú er svo komið að bændur era sjálfir farnir að brjót- ast út úr þessu kerfi miðstýringar og ofstýringar til þess að eygja þó einhverja von um glætu í fram- tíðinni, enda kerfið farið aö þrengja svo að þeim að þeir komast ekki lengur fyrir inni í því. En það era aðrar atvinnugreinar sem aldeilis ekki hafa notið styrkja og sérstakrar fyrirgreiðslu hins opinbera í gegn um tíöina og þar má nefna sjávarútveginn sem dæmi. Enda hafa menn í þeirri atvinnugrein ekki legið á því þegjandi að þeir hafi náð þeim árangri sem náöst hefúr af eig- in rammleik og algerlega án opinberrar aðstoðar. Hinar merkilegu, og að sumum finnst furðulegu, úreldingarbætur fiskiskipa era ekki styrkur til at- vinnugreinarinnar, ónei. Það er heldur ekki styrk- ur til sjávarútvegsins að sjómenn skuli fá sérstak- an sjómannaafslátt sem jafnar sig upp í að vera sambærileg upphæð og persónuafsláttur hins venjulega launaþræls. Samtals nemur sjómanna- afslátturinn í kring um einn milljarð árlega — þetta er ekki styrkur til sjávarútvegsins. Og það er sannarlega enginn styrkur af hálfu hins opinbera þegar fiskvinnslan í landinu get- ur skellt fiskvinnslufólkinu á at- vinnuleysisbætur með þriggja daga fyrirvara samkvæmt samn- ingum við ríkið sem Rannveig krataráðherra skrif- aði uppá á sínum tíma. Þ.e.a.s. ef menn sjá fram á að togarinn fiski illa, þá er hægt að senda staffið heim á kostnað annarra. Nú er fiskvinnslan í landinu á hraðleiö í þrot að sögn þeirra sem þar ráða ríkjum — og hefst þá hinn hefðbundni grátur. Ástandið er svo slæmt að fyrirtækin neyðast til að loka um tíma, svona rétt eftir að starfsfólkið er komið úr sumarfríi og þá fer starfsfólkið að sjálfsögðu á atvinnuleysisbætur og skattgreiðandinn borgar. Garri hefur nú fylgst með þessum eilífu vand- ræðum sumra fiskvinnslufyrirtækja í áratugi og getur hreinlega ekki orða bundist. Hvenær ætla mennirnir eiginlega að hætta að rembast við að gera eitthvað sem þeir ráða engan veginn við og fara að gera eitthvað annað sem þeir þó geta, t.d. grafa skurði? Garri sem skattgreiðandi mundi alla- vega þiggja að svolítið meira yrði eftir í pyngjunni og það mundi sannarlega þyngjast í henni ef stjórnendur sjávarútvegsfyrirtækja í landinu byggju við þær aðstæður að þurfa að reka fyrir- tækin eins og menn. Garri GARRI Drengilegir sterafíklar Lyfjaframleiðendur um heim allan munu auglýsa vöra sína sem aldrei fyrr á heimsins mestu stera- og lyfjahátíð sem um getur. Á morgun hefst í Atl- anta í Bandaríkjunum keppni um hverjir ná bestu tökum á lyfjaneyslu án þess að upp komist. Á völlunum vestur þar mætast heilbrigðar sálir í lyfjafylltum og hraustum líkömum og þar verður hlaupið, kastað og hoppað og mikil afrek unnin fyrir íþrótta- fréttafólk Ríkissjónvarpsins að dást að. Haft er fyrir satt að á nokkrum Ólympíuleikunum næstu á und- an þessum hafi það verið þjálfar- ar og sérfræðingar í hvernig fela á lyfjanotkun íþróttafólks sem með réttu hefðu átt að standa á verðlaunapöllum og taka við peningum og hyllingum. En þar standa sterafríkin og gráta undir þjóðsöngvum þegar verðlaun era veitt. Sérfræðingarnir í lyfja- gjöfum íþróttagarpa taka við öðravísi peningum fyrir sín af- rek. ! Viöurkennt í raun og ómerkilegir svardagar um að peningar kæmu hvergi nærri afrekum þeirra varð að láta í minni pokann fyrir því sem allir vissu, að öll stórveldi íþróttanna borguðu vel fyrir unnin afrek. Nú er atvinnumennska sjálfsögð meðal íþróttamanna og er mikið lagt undir. Stera- og lyfjaneysla íþróttagarpa er líka sjálf- sögð nú á dögum. Hún er bara ekki viðurkennd ennþá, en verð- ur vonandi sjálfstæð keppnis- grein þegar fram líða stundir. Allir græba Á víbavangi Læknar og íþróttaþjálfarai hafa vitnað um hve algeng lyfjanotkun er til aö pína meira út úr kroppum íþróttamanna í keppni en þeir hafa raunverulega orku til. Er skammt að minnast að breskur læknir fullyrti í sjónvarpsviðtali að það væru ekki nema asnar og heimskingjar sem létu komast upp um lyfjanotkun í keppni. Þaö er nefnilega miklu auðveldara að fela stera og orkuaukandi lyf í líkamanum en klóku og ríku karlarnir í alþjóðlegum ólympíunefndum vilja viðurkenna. Óg þeir sem ekki bæta árangurinn með ólöglegum meðölum, eiga þess lítinn kost aö komast á verðlaunapalla stórhátíðarinnar í Atl- anta. Enda væri réttast að leyfa görpunum að éta eins og þeir geta af sterum og orkuaukandi lyfjum fyr- ir framan áhorfendur, því banniö við slíku er ekk- ert annað en hégómlegt yfirvarp. Það er rétt eins og með atvinnumennskuna áður fyrr. Þá var keppendum óheimilt að taka peninga fyrir íþróttaiðkun, ef þeir áttu að vera liðtækir á pöllum ólympíuleika. Öll lygin um hreinleika hetjanna Ólympíuleikar eru mikil fé- þúfa þeirra sem kunna aö græða. Allt er sjónarspilið háð undir formerkjum drengskapar og vin- áttu og löngu framliðins draugs úr fortíöinni sem kallaður er ólympíuhugsjón. Leikarnir eru vettvangur þjóö- ernisrembings af mismunandi geöþekkri gerð og eru kempur keyptar á milli þjóðríkja til að safna stigum fyrir nýjar og arð- gefandi fósturjarðir. Fréttamenn setja upp stigatöflur sem sýna hvar tiltekin ríki standa á hverjum tíma og er mik- il keppni milli stórvelda að vera sem efst í saman- lögðum stigum þegna sinna, sem komast á verð- launapall á leikum. En allt hverfur þetta undir þeim fagurgala og falsi sem ólympíuleikar eru umvafðir. Iþróttaauð- valdið kann vel til verka og fjölmiðlar græða á tá og fingri á öllum steraætunum, sem þeir gera að miðpunkti athyglinnar á meðan aurarnir streyma inn. Margt má gott um ólympíuleikana segja, eins og tæpt er á í framansögðu. Það besta er hve marg- ir hafa lag á að græða á þeim, allt frá alþjóða ólympíunefndinni, görpunum á leikvelli og upp í melludólgana í Atlanta, sem ætla að gera það gott næstu vikurnar. Og guð gefi að nú sé enginn þátttakandi í drengilegu keppninni svo nautheimskur að láta nappa sig, þótt þjálfari auki honum afl með stera- og lyfjagjöfum. Þetta er nú ekki annað en leikur eftir allt saman. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.