Tíminn - 18.07.1996, Blaðsíða 7

Tíminn - 18.07.1996, Blaðsíða 7
Fimrtitudagur 18. júlí 1996 7 UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND Ástand jar&ar er enn að versna, aö því er fram kemur í nýrri 170 blaðsíðna skýrslu frá Worldwatch Institute sem staðsett er í Wash- ington. „Lífsmerki 1996" er heiti skýrslunnar („Vital Signs 1996"), og er þar ab finna umfangsmikla samantekt á helstu upplýsingum um ástand plánetunnar. Þar kemuT meðal annars fram að útstreymi koltvísýrings í andrúms- loftið hafi náb áður óþekktu há- marki, en útstreymið nemur nú 6,1 milljarði tonna, og stafar einkum af notkun jarðefnaeldsneytis, þ.e. ol- íu, kola og gass. Þá er meðaltalshita- stig jarðar hærra en nokkru sinni áður, en kornbirgðir heimsins aftur á móti minni en áður hefur þekkst. Skemmdir af völdum óveburs eru að aukast, en skaðinn var metinn á um 16 milljarða dollara að meðal- tali á níunda áratugnum en er nú kominn upp í 48 milljarða dollara, og er talið að það stafi af þeim al- mennu veðurfarsbreytingum sem nú eiga sér stað um alla jörð. Skóg- lendi er hins vegar stöðugt að minnka, á milli áranna 1980 og 1990 minnkaði það um tæplega 10 milljónir hektara á ári. Allt er þetta til vitnis um heldur neikvæða þróun, en á hinn bóginn er líka að finna nokkur jákvæð tíð- indi í skýrslunni frá Worldwatch stofnuninni. Þannig hefur afkasta- geta sólar- og vindorkuvera aukist um 17% (sólarorkan) og 33% (vind- orkan). Og framleiðsla á reibhjólum hefur aukist gífurlega á undanförn- um áratugum. Árið 1969 voru fram- leidd um 25 milljón ný reiðhjól í heiminum, sem var álíka mikið og framleitt var af bifreiðum það árið, en 1995 var hjólaframleiðslan kom- in upp í 114 milljónir sem er um þrisvar sinnum meira en bilafram- leiðslan (33 milljónir). Worldwatch Institute gefur út skýrslu um ástand jaröar: Flest á niðurleiö Gróðrarstía smitsjúkdóma Þá hefur Alþjóbaheilbrigðismála- stofnunin (WHO) gefiö út niður- stöður af rannsóknum þar sem fram kemur að veðurfarsbreytingarnar í heiminum, upphitun jarðarinnar, geti valdib því að ýmiskonar sjúk- dómar muni eiga auðveldara upp- dráttar. Þegar allt í einu kemur úrhelli á landsvæðum sem yfirleitt hefur ver- ið þurrt í veðri, eða þurrkar koma á hefðbundnum votviðrasvæðum, þá má búast við aukinni útbreiðslu smitsjúkdóma á borð við gulu, heilahimnubólgu og kóleru. Óvenjulegt veöurfarið -skapar góð skilyrði fyrir fjölgun smitbera á borð við rottur og skordýr, auk þess sem sýklar og veirur dafna. Vísindamenn telja að búast megi við því að útbreiðsla malaríu muni aukast einna mest. Ef hiti á jörðinni eykst um 2,2 grábur geti það þýtt að útbreiöslusvæði köldumýs stækki frá því að vera 42% af yfirborði jarð- arinnar eins og nú er yfir í það að vera 60%., en köldumý er smitberi malaríu. -gb/Der Spiegel Nektarskobun í tollinum? Á vegum breskra stjórnvalda er verib að gera tilraunir meb nýja röntgenmyndavél, framleidda í Bandaríkjunum, sem sérstaklega er hugsuð tii ab koma upp um eit- urlyfjasmyglara og hryðjuverka- menn. Ekki er óhugsandi að hún verði innan tíðar notub í ein- hverjum mæli á flugvöllum og annars staðar þar sem sérstaks ör- yggiseftirlits er talin þörf. Þó er næsta víst að notkun henn- ar muni verða all umdeild, því hún afhjúpar miskunnarlaust nekt þeirra sem henni er beint að. „Myndin er ekkert í líkingu við það sem sést í Playboy-blaði. En það er engin spurning að hægt er að greina karl frá konu," segir Hamer Boynton, ráðgjafi hjá bandarísku alríkislögreglunni, FBI, sem hefur lagt mat á þetta nýja tæki. Vélinni er ætlað að finna mjúka hluti sem fara framhjá venjulegum öryggis- leitartækjum, svo sem pakka meb eiturlyfjum. En ekki þarf að líta nema einu sinni á myndirnar sem birtast i henni til þess að sjá að auð- velt væri að misnota hana í nokkuö vafasömum tilgangi. Röntgengeislarnir, sem notaðir eru í lágskömmtum, fara viöstöðu- lítið í gegnum fötin en endurkastast að hluta til af húöinni. Sérstakt móttökutæki nemur endurgeislana og kemur þá i ljós mynd af „nökt- um" líkamanum. Sömuleiðis sjást auðveldlega allir harðir hiutir, svo sem byssur og hnífar, og þá sjást einnig í tækinu mýkri hlutir á borð við kókaínpakka eða beltispokar sem fylltir eru af plastsprengiefn- um, sem undanfarið hafa verið not- uð töluvert af hryðjuverkamönnum í sjálfsmorðsárásum. Breska tollgæslan hefur tekið til athugunar að nota vélina í staðinn fyrir líkamsleit, sem einungis er framkvæmd þegar sérstök ástæða þykir til og er þá jafnan læknir við- staddur. Eini gallinn er þó sá ab með vélinni er ekki hægt að finna litla eiturlyfjaskammta sem faldir hafa verið í endaþarmi eða leggöng- um. Mestar líkur eru taldar á því að fangelsi og tollþjónustan muni ríða fyrst á vaðiö með notkun vélarinn- ar, einkum vegna þeirra annmarka sem em á þeim málmleitartækjum sem til em. Þá hafa öryggisstarfs- menn í Westminsterhöll skoðað tækið, en hafa enn sem komið er ekki viljað prófa það á þeim sem leið eiga í þinghúsið, hvað þá þing- mönnunum sjálfum. „Ég reikna varla meb því að þingmenn myndu vilja að leitað verði á kjósendum úr kjördæmi þeirra með nektarskoð- un, " sagði Matthew Heaton, sem er framkvæmdastjóri framleiðanda tækisins í Evrópu. -gb/The Sunday Times Eins og sjá má er aubvelt ab koma auga á falin vopn meb nýju röntgen- myndavélinni, auk þess sem helstu lík- amsdrœttir eru nokkub augljósir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.