Tíminn - 19.07.1996, Qupperneq 1
80. árgangur
Biskup íslands vígir ekki
nýja kirkju í Reykholti 28.
júlí nk., heldur vígslu-
biskupinn í Skálholti:
í samræmi
vib lög og
stefnu
„Það er verið að framkvæma
þarna ákveðin lög og ákveðna
stefnu sem lendir á sama tíma og
þessi mál önnur. Ég er ekkert
hissa á því að fólk tengi þessi mál
saman. Svo er ekki nema tilvilj-
un í tíma," segir sr. Geir Waage
sóknarprestur í Reykholti ab-
spurbur hvort einhver tengsl séu
á milli svonefnds biskupsmáls og
þess að hr. Ólafur Skúlason bisk-
up mun ekki vígja nýja Reyk-
holtskirkju 28. júlí nk. heldur sr.
Sigurbur Sigurbsson vígslubiskup
í Skálholti.
Sr. Geir segir að þetta sé í sam-
ræmi við nýtt erindisbréf handa
vígslubiskupum sem byggir á lög-
um nr. 62 frá 1990, 7. kafla, 45.
grein þar sem er að finna verkefni
vígslubiskupa. Hann segir að það
hafi dregist einhverra hluta vegna
ab biskupinn gæfi út erindsbréf
handa vígslubiskupum sem byggja
á fyrrnefndum lögum. Þegar þessi
lög voru samþykkt á sínum tíma
var slegið saman tveimur frum-
vörpum sem kirkjan hafði útbúið,
annarsvegar frumvarpi um skipt-
ingu biskupsdæmisins og hinsveg-
ar frumvarpi um starfsmenn þjób-
kirkjunnar. Sr. Geir segir að Halldór
Ásgrímsson þáverandi kirkjumála-
ráðherra hefði ekki viljað flytja
frumvarp um að skipta biskups-
dæminu og því var skipub nefnd til
ab bræða fmmvörpin saman.
Sóknarpresturinn segir ab með
tilkomu nýju kirkjunnar mun öll
starfsaðstaba hans taka miklum
stakkaskiptum til hins betra og
m.a. verður ekki þörf á því í fram-
tíðinni að „fólk sitji í bílum út um
öll hlöð eða út við skóla við útfarir,
heldur geta allir setið undir sama
þaki." Vinna við byggingu nýju
kirkjunnar hófst árib 1988 en
gamla kirkjan var reist árib 1887.
Sóknarpresturinn segir að það sé
ekkert ákveðiö hvað verður um
gömlu kirkjuna sem ákveðið var að
hætta halda við og safna þess í stað
í sjóð fyrir nýrri kirkju. Hann segir
að leitað hafi verib eftir því að
reyna að finna henni nýjan stað og
nýtt hlutverk sem kirkju, ef hægt er
að endurbyggja hana á nýjum
stab. -grh
STOFNAÐUR 1917
Föstudagur 19. júlí 135. tölublaö 1996
Morgunbladalesturinn
hefst oft í greiöasölunni Svarti svanurinn hjá henni Hjördísi Fjólu Ketilsdóttur, sem vib
hittum ab máli í gærmorgun. Hér situr hún og meltir blab allra landsmanna, ábur en hún hellir sér í Tímann og Alþýbublabib.
Tímamynd CVA
Forseti Alþingis sendist ekki eftir afsagnarbréfum þingmanna, jafnvel ekki þótt nýkjörinn forseti eigi í hlut:
Þingforseti ekki
á leið í póstinn
„Það er mikill misskilningur ab
ég sé ab fara á Barðaströnd til
ab sækja afsagnarbréf og Ólaf-
ur Ragnar veit þab, enda höf-
um við fína póstþjónustu sem
ég þarf ekki ab taka ab mér. Ég
hef hinsvegar ánægju af því ab
fara í eftirmibdagsskaffi til
hans," sagbi Ólafur G. Einars-
son forseti Alþingis í gærmorg-
un.
Ólafur G. segir ab allir hljóti ab
sjá ab þab passar ekki ab forseti
Alþingis heimsæki þingmenn til
ab ná í afsagnarbréf þeirra og
jafnvel þótt um sé ab ræba ný-
kjörinn forseta, enda hefbi þab
aldrei stabib til. Hann segist því
hafa orbib afar undrandi ab
heyra sífellt klifab á því í ljós-
vakamiblum í fyrradag ab hann
væri á leib heim til Ólafs R. til ab
ná í afsagnarbréf hans sem þing-
manns, bréf sem nýkjörinn for-
seti mun hafa skrifab 10. júlí sl. í
framhaldi af þessum fréttaflutn-
ingi hefbi hann rætt þetta vib Ól-
af Ragnar í síma þar sem hann
Ólafur Ragnar Grímsson.
hefbi leibrétt þennan misskiln-
ing sem fjölmiblar höfbu haft
um málib.
Þingforseti segir ab þeir nafnar
hefbu hist fyrir tilviljun á Subur-
nesjum ekki alls fyrir löngu og þá
hefbi hann nefnt þab vib nýkjör-
Ólafur G. Einarsson.
inn forseta að hann þyrfti ab
ræba vib hann og m.a. um þab
hvernig þingmenn Reykjaness-
kjördæmis mundu kvebja Ólaf
Ragnar. En þab mun vera venja
mebal þingmanna kjördæmisins
ab kvebja þann sem er ab hætta í
þab og þab sinnib. Vib þab tæki-
færi sammæltust þeir um ab Ól-
afur Ragnar mundi hafa sam-
band við nafna sinn Einarsson,
sem og hann gerbi og bauð hon-
um heim í kaffi. Ólafur G. segist
hinsvegar ekki hafa haft tök á að
heimsækja Ólaf Ragnar í þab
sinnib og því hefbi þessi dagur
verib ákvebinn, þ.e. gærdagur-
inn, 18. júlí.
„Ég held ab þetta sé ekki nein
hátíbleg athöfn. Þetta kemur
bara til skrifstofunnar," segir Ól-
afur G. abspurbur hvernig þing-
menn hafa borib sig vib ab af-
henda afsagnarbréf sín. En ný-
kjörinn forseti mun vera sá fyrsti
sem lætur af þingmennsku ab
eigin ósk frá því Ólafur G. tók vib
embætti forseta Alþingis á þessu
kjörtímabili. Á kjörtímabilinu
þar á undan sögbu nokkrir af sér
þingmennsku vegna annarra
starfa og m.a. þeir Jón Sigurbs-
son, Eibur Gubnason og Stein-
grímur Hermannsson.
-grh