Tíminn - 23.07.1996, Side 16
Veforib (Byggt á spá Ve&urstofu kl. 16.30 í gær)
• Su&urland til Suöausturlands: Hæg breytileg átt e&a hafgola og
víða léttskýjað. Hiti 10 til 18 stig a& deginum, hlýjast inn til lanasins.
Miöhálendið: Hæg breytileg átt og léttskýjað. Hiti 10 til 16 stig.
Byggingarvísitala hœkkar um 3,3% vegna lœkkunar á endurgreiöslu viröisaukaskatts í júní:
Byggingarkostnaður hækkar
um 200-300 þús.kr. á íbúð
Vísitala byggingarkostnaðar,
reiknuð eftir verðlagi um miðjan
júlí, reyndist 216,9 stig og hefur
því hækkað um 3,3% frá næsta
mánuði á undan, samkvæmt út-
reikningum Hagstofunnar. Þessi
hækkun byggingarkostnaðar þýð-
ir t.d. kringum 200-300 þúsund
króna hækkun á veröi íbúða sem
hafa kostað á milli 6 milljónir og 9
milljónir króna. Ástæða þessarar
miklu hækkunar er lækkun á end-
urgreiðsluhlutfalli virðisauka-
skatts vegna vinnu á byggingar-
stað niður í 60% frá 1. júlí sl. sam-
kvæmt lögum fyrr á árinu.
Við þessa lækkun hækkuðu
vinnuliðir vísitölunnar um 9,8%,
sem aftur veldur 3,3% hækkun á
byggingarkostnaði (byggingar-
vísitölunni) í heild. Vegna þessa
hefur byggingarvísitalan hækkað
um 6% síðustu 12 mánuði, eða
nær þrisvar sinnum meira en vísi-
tala neysluverðs. Rifja má upp í
þessu sambandi, að hefði bygg-
ingarvísitalan ennþá verið inni í
grundvelli lánskjaravísitölunnar
hefði þessi breyting valdið 1,1%
hækkun á lánskjaravísitölunni,
sem þar með hefði hækkað verð-
tryggðar skuldir landsmanna um
hátt í 3 milljarða króna, eða verð-
mæti um 400 nýrra íbúða, ellegar
kringum 50.000 kr. á hverja fjöl-
skyldu í landinu. Spurning er
hvort stjórnmálamenn hefðu þá
kannski hikað við þessa lagasetn-
ingu?
Nýkjörinn forseti Olafur Ragnar bryddar uppá nýjung í embœttinu:
Forsetahjóniri á útihátíð
í Galtalækjarskógi
„Tilfinningin er dálítið blendin
því þetta hefur aldrei gerst áður
og ég er varla farinn að trúa þessu
enn," segir Jón K. Guðbergsson
mótstjóri bindindismótsins í
Galtalækjarskógi um það frum-
kvæði Ólafs Ragnars Grímssonar
verðandi forseta að heimsækja
þessa árvissu útihátíð bindindis-
manna um verslunarmannahelg-
ina. Þetta verður án efa eitt af af
því fyrsta sem Ólafur Ragnar tek-
ur sér fyrir hendur eftir ab hann
hefur tekið formlega vib forseta-
embættinu vib sérstaka athöfn í
Alþingishúsinu í næstu viku,
fimmtudaginn 1. ágúst nk. Meb
Ólafi í Galtalækjarskógi verbur
Gubrún K. Þorbergsdóttir eigin-
kona hans.
Jón K. segir ab það hefbi aldrei
hvarflað að sér eða öðrum í um-
dæmisstúku númer 1 á Suðurlandi
sem stendur fyrir bindindis- og fjöl-
skyldumótinu í Galtalækjarskógi,
að fara þess á leit við nýkjörinn for-
seta að heiðra útihátíðina með nær-
veru sinni. Jón segir að frumkvæðið
hafi komið frá Ölafi sjálfum sem
Eitt allra fyrsta verk nýrra forseta-
hjóna veröur heimsókn á bindindis-
samkomuna í Galtalœkjarskógi um
verslunarmannahelgina.
hefði lýst yfir áhuga aö heimsækja
mótiö og vera við setningu þess
laugardaginn 3. ágúst nk. En eins
og kunnugt er þá er Ólafur Ragnar
bindindismaður, en hann mun
einnig hafa verið virkur í stúkustarfi
Góðtemplarareglunnar áður en
hann haslaði sér völl á vettvangi
stjórnmálanna.
„Það á eftir að koma í ljós," segir
Jón K. aðspurður hvort Ólafur
Ragnar muni ekki ávarpa gesti á
bindindismótinu. Hann telur þessa
ferð Ólafs Ragnars í Galtalækjarskóg
ekki teljast beint til embættisverka
forsetans, en heimildir herma að
þessi ákvörðun Ólafs Ragnars hafi
mælst misvel fyrir meðal starfs-
manna forsetasluifstofunnar, enda
ekki hefð fyrir því að starfandi for-
seti sýni sig á útihátíðum á verslun-
armannahelgi.
Jón K. Guðbergsson mótstjóri
segir mikla ánægju ríkja meðal
þeirra fjölmörgu sem standa að úti-
hátíðinni í Galtalækjaskógi með
þetta frumkvæði Ólafs Ragnars.
Hann telur einsýnt að þetta muni
auka vægi bindindsmótsins að fá
forsetahjónin í heimsókn, en þar er
hægt að taka á móti 10 þúsund
manns með góðu móti. Þá hefur
Tíminn heimildir fyrir því að þessi
ákvörðun Ólafs Ragnars hefði einn-
ig vakið mikla lukku meöal stuðn-
ingsmanna hans þegar hann til-
kynnti um hana í hófi sem þeim var
haldið í sl. viku í Félagsheimili Sel-
tjarnarnes fyrir vel unninn störf í
kosningabaráttunni. -grh
Húsnœöi innheimtufyrirtœkisins Lögþings ehf.
Rökstuddur grunur um
fjárdrátt og fjársvik
Rannsóknir á meintum fjár-
drætti og fjársvikum forsvars-
manns innheimtufyrirtækis-
ins Lögþings ehf. standa nú
yfir.
Forsvarsmaðurinn er grunað-
ur um hafa dregiö sér og ráðstaf-
að milljónum króna sem hann
hefur innheimt fyrir einstak-
linga og fleiri aðila. Hann er lög-
fræðingur að mennt en hefur
sem stendur ekki málflutnings-
leyfi þar sem hann var nýlega
úrskurðaður gjaldþrota. Rann-
sóknarlögregla ríkisins hefur yf-
irheyrt starfsfólk Lögþings og
innsiglað hluta af húsnæði fyr-
irtækisins. ■
Frábært verð fyrir
myndir Gunnars Dal
Gunnar Dal skáld og heim-
spekingur brá sér í betri bux-
Sér fyrir endann á vegaendurbótum á Fjaröarheiöi:
Lifandi skelfing búin að bíða lengi
„Þetta þýðir þab að þegar þessu
verður lokib 1997 þá er Fjarðar-
heibin öll meb bundnu slitlagi.
Hvort þab þykja nú tíðindi útaf
fyrir sig skal ég nú ekki um segja
en mikib lifandi skelfing erum við
búin ab bíba lengi eftir því," sagbi
Þorvaldur Jóhannsson bæjarstjóri
á Seybisfirbi í samtali við Tímann í
gær.
Nú sér fyrir endann á endurbót-
um á vegasambandi milli Héraðs og
Seyðisfjarðar á Fjarðarheiði. Um er
að ræða 5,3 km vegaframkvæmd í
um 450-550 metra hæð yfir sjó.
Lagður verður nýr vegur um Mjó-
sund þar sem Fjarðará verður veitt úr
farvegi sínum suður fyrir væntanleg-
an veg. Núverandi vegur sem liggur
með Heiðarvatni og um Efri-Staf
verður endurbyggður og á Vatns-
hæðará og Fjarðará verða sett stór
stálræsi í stað einbreiðra brúa. Nýi
vegurinn um Mjósund mun liggja
15-30 metrum lægra í landi en nú-
verandi vegur og telur Vegagerðin að
veðurhæð og snjódýpt verði minni
fyrir vikið. Framkvæmdir munu
hefjast í sumar og er áætlaö að verk-
inu ljúki með lagningu bundins slit-
lags sumarið 1998. „Það má þá segja
að við séum búin að fá samgöngur
inn til þéttbýlis svipað og er alls
staðar annars staðar á landinu því
við höfum bara keyrt þetta á malar-
vegi mikið til, sem hefur náttúrulega
veriö til stórskammar," segir Þor-
valdur og bendir á að Seyðfirðingar
taki á móti 5 og 6% af ferðafólki sem
komi inn í landið. „Þetta er nú samt
búið að bjóða þeim. Þannig að þó
það sé nú ekki bara veriö að tala um
okkur Seyðfirðinga þá mætti ímynda
sér að það hefði verið búið að gera
þetta áður þó það væri ekki nema
bara fyrir þessa erlendu ferðamenn
sem fara hérna um."
Umtalsverð breyting verður á
vetrarsamgöngum fyrir Seyðfirðinga
með tilkomu nýja vegarins. Það hef-
ur verið samþykkt að honum verði
haldið opnum sjö daga vikunnar frá
því hann veröur tekinn í notkun.
„Það eru ekki nema fjögur ár síðan
við höfðum ekki klárað nema
tveggja daga þjónustu á Fjarðar-
heiði. Þannig að þetta er náttúrulega
gjörbreyting og ber auðvitað að
fagna," segir Þorvaldur bæjarstjóri
og er ánægður að vonum. -ohr
urnar fyrir nokkru og bætti
viö einni listgrein á lífspró-
grammiö og fór aö mála.
Hann heldur sýningu á verk-
um sínum í Eden í Hverageröi
þessa dagana og veröleggur
myndir sínar aö hætti meist-
ara eins og vera ber.
Meöalverð myndanna er 300
þúsund krónur, enda eru þær
allar málaðar með olíu á striga
sem strengdur er á vandaða
blindramma.
Mörgum líst vel á myndir
meistarans og maður sem kom
þar um helgina dró upp tékk-
heftiö og keypti tvær og þóttist
hafa gert gób kaup.
Meistari Gunnar hefur gefið
út yfirlýsingu þess efnis að þessi
fyrsta listsýning hans veröi jafn-
framt hin síðasta. Verður fólk
því að grípa tækifærið ef takast á
ab klófesta mynd eftir þennan
ágæta og alhliða listamann. ■