Tíminn - 07.08.1996, Qupperneq 8
8
Miövikudagur 7. ágúst 1996
Eitursalar stunda vib-
skipti sín í Kaup-
mannahöfn nánast
fyrir opnum tjöldum
og lögreglan segist
hafa mikilvœgari
verkefnum aö sinna
en aö eltast viö þá
Eitursalan hefur breibst
út," segir Tonni Overm-
ans, sem rekur kaffihús
viö Vesterbro Torv í Kaup-
mannahöfn og er í stjóm
samtaka kaupmanna á Vest-
erbro-svæöinu. „Áöur var
þetta aöallega kringum Ho-
vedbanegárden [aöaljárn-
brautarstööina í Kaupmanna-
höfnj, en nú hefur þetta
breiöst út til Istedgade, Vest-
erbro Torv og alveg aö vötn-
unum. Ég heföi ekki á móti
því aö þaö breiddist út alveg
til Hellerup, því aö þeim mun
fleirum, sem eitursalamir
veröa til ama, þeim mun
meiri veröur þrýstingurinn á
stjómmálamenn aö gera eitt-
hvaö í málinu."
Overmans beitir sér fyrir að-
geröum gegn eitursalaplágunni
og stofnar þar meö sjálfum sér
og sínum nánustu í hættu.
Nóttina eftir fund kaupmanna-
samtakanna á Vesterbro og
dómsmálaráöherrans um mál
þessi var kveikt í veitingastaö
Overmans. Þar aö auki hafa
honum og fjölskyldu hans
þrisvar borist moröhótanir.
Gambíumenn sagb-
ir athafnasamir
Á umfjöllun danskra blaða
um vanda þennan í Kaup-
mannahöfn er helst svo aö sjá
að eitursalarnir fari þar sínu
fram án þess aö veröa fyrir
miklu ónæöi af hálfu lögregl-
unnar. Hún svarar afsakandi aö
hún hafi hvorki mannafla né
útbúnað til aö sinna þessum
málum svo viðhlítandi sé.
Dreifing og sala eitursins í
Kaupmannahöfn viröist vera í
höndum bæöi nýbúa, einkum
frá þriöja heiminum, og Dana,
og fólk úr báðum þessum hóp-
um eyðileggst og deyr af völd-
um eitursins. í dreifingu og sölu
virðast þeir fyrrnefndu vera um-
svifameiri en samkvæmt vissum
heimildum eru það einkum
Danir, sem fara forgöröum af
völdum eitursins.
Gambíumaöur sem nefnist
John og hefur veriö í Danmörku
í fjögur ár, sagði viö fréttamann
frá Berlingske Tidende: „Eitur-
vandinn er miklu meiri meðal
Dana en innflytjenda. Aöeins
einn innflytjandi hefur látist af
þessum ástæðum á síðustu
þremur árunum, en þaö líður
ekki svo vika aö ekki deyi
danskur eiturfíkill."
Gambíumenn, sem e.t.v. eru
tiltölulega fjölmennir meöal
Afríkusvertingja í Evrópu (sem
stendur líklega aö einhverju
leyti í sambandi við mikinn tú-
risma frá Evrópu til Gambíu),
hafa í Danmörku sem víöar þaö
orö á sér aö margir þeirra séu at-
hafnasamir sem eitursalar.
Framfaraflokkurinn danski, sem
Glistrup stofnaöi á sínum tíma
og hefur jafnan verið íhalds-
samari en aðrir danskir stjórn-
málaflokkar í innflytjendamál-
um, hefur lagt til aö sett verði
ný lög sem auðveldi yfirvöldum
aö reka úr landi útlendinga, er
geri sig seka um eitursölu. Nú
hefur maöur aö nafni Hamid el
Mousti, Marokkómaður búsett-
ur í Danmörku, í flokki jafnaö-
armanna þar og virkur í borgar-
málum í Kaupmannahöfn, tek-
Vesterbro Torv: óbreyttir borgarar þar, sem beita sér gegn eitursölu, sœta morbhótunum.
Rotnun í ríki Dana
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
iö undir þessa tillögu Framfara-
flokksins.
„Pakistanar og ar-
abar gróöamenn"
Mousti beinir spjótum sínum
í þessum efnum einkum að
gambískum eitursölum og segir
að þeir komi meö athæfi sínu
óoröi á nýbúa í Danmörku yfir-
leitt. En þótt ljóst sé aö margir
Gambíumenn séu athafnasamir
á þessum vettvangi eru þeir ekki
einu útlendingarnir sem hér er
við um að sakast. Þar kveður
einnig mikiö aö eitursölum úr
hópum araba, Pakistana, Ta-
míla, írana, Tyrkja o.fl.
„Ég held að Hamid el Mousti
sé bara aö reyna aö vekja á sér
athygli," sagöi Gambíumaður
sem nefndist Peter við áður-
nefndan mann frá Berlingske
Tidende. Gambíumaður þessi
stóö þá í fjölþjóölegum flokki
eitursala á horninu þar sem
mætast Istedgade og Gasværks-
vej, og reyndu þeir ekki aö
leyna því hverjir þeir væru og
hvaö þeir höföust aö. „Og svo er
augljóst aö hann þolir ekki
svarta Afríkumenn. Við erum
ekki annaö en smáfiskar og
vinnum aðeins fyrir því sem
notum sjálfir ... Það eru Pakist-
anarnir og arabarríir, sem eru
gróðamennirnir í bransanum."
Danskir eiturfíklar og -salar,
sem safnast gjarnan saman á
torginu fyrir framan Maria
Kirke við Istedgade, segja sem
svo: Munurinn á okkur og inn-
flytjendunum er að viö erum
fíklar, en þeir ekki. Þeir þéna
firn af peningum og eru alltaf
segir áöurnefndur Overmans.
„Séu þeir teknir, sitja þeir ekki
inni í nema svo sem tvær vik-
ur." Stundum eru þeir komnir
út á götuna aftur fáeinum tím-
um eftir handtöku. Lögin eins
og þau eru nú heimila að vísu
útvísun útlendinga, sem gripnir
eru með mikið magn eiturefna á
sér, en eitursalarnir fara í kring-
um þau með því að gæta þess að
hafa aldrei nema lítið magn eit-
urs á sér í einu. Kerfi þeirra er
vel skipulagt og sendimenn
stöðugt í ferðum á milli hærri
aðila í því, milliliða og götusala.
Með því móti er fyrirbyggt að
nokkur sé tekinn með mikið
magn á sér. Þar aö auki hefur
lögreglan dregið úr eftirliti á
þessum slóðum, á þeim for-
sendum aö hennar sé meiri þörf
annars staðar.
Mörgum Dönum virðist að
hér hafi stjórnmálamenn og yf-
irvöld brugðist og úr hófi má
segja að keyri er óbreyttir, lög-
hlýðnir borgarar, sem rísa gegn
ósómanum, sæta morðhótun-
um og skemmdarverkum af
hálfu glæpalýðsins án þess að
yfirvöld gefi því teljandi gaum.
Hætt er við að þetta verði ekki
til þess að auka hlýleika dansks
almennings til útlendinga, en
margir eitursalanna munu hafa
fengið landvist á þeim forsend-
um að þeir séu flóttamenn.
Væntanlega hefur ekki verið
gert ráð fyrir því aö þeir laun-
uðu góðvild danska þjóðfélags-
ins á þennan hátt. Þetta bendir
og til þess, að glæpalýöur sé að
eflast að áhrifum innan jafnvel
þeirra þjóöfélaga, sem hingað til
hafa haft orð á sér fyrir aö veita
borgurum sínum vernd með
besta móti.
Eiturfíkill í lœknismebferb: „í hverri viku deyr danskur eiturfíkill."
að reyna að plata fólk. Við höf-
um gert samning við þá um að
þeir megi selja þetta og viö hitt,
og við gefum þeim á kjammann
ef þeir halda sig ekki hinum
megin við Gasværksvej.
En fréttamaður bætir við að
um nætur séu dönsku fíklarnir
ekki þar á torginu, og þá verði
ekki þverfótað í Istedgade fyrir
erlendum eitursölum, einkum
Gambíumönnum. Sumir þeirra
sitji þar í tröppunum, reyki her-
óín í silfurpappír og falbjóði
varning sinn: „Dope, speed,
hashish, freebase, coke - what
do you want, man."
„Þeim er hjartanlega
sama um lögreglunay/
„Það eru yfirhöfuð engar
hömlur á þeim og þeim er hjart-
anlega sama um lögregluna,"