Tíminn - 31.07.1986, Qupperneq 1
— • -
:T:; i S’ If j | 'Si 'm'i L. 'i l**«
FÍKNIEFNASMYGLARI
franskur sem lögreglan handtók á Kefla-
víkurfluqvelli á sunnudaq, var í qær
úrskurðaður í 30 daga gæsluvarðhald, en
hann var tekinn með tæplega hálft kíló af
hassi. Vinkona Frakkans, sem var með
honum í för, er hinsvegar komin aftur til
síns heima. Fíkniefnalögreglan gerði í
fyrrinótt húsrannsóknir í tveim íbúðum í
Reykjavík og yfirheyrði nokkra menn en
sagði í gær að þao hefði ekkert tengst
máli Frakkans.
ÖKUMENN hafa heldur dregið úr
hraðanum á þriðjudaginn ef marka má
niðurstöður úr umferðarátaki Umferðar-
ráðs og lögreglu, því þann dag voru 46
ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og
180 áminntir. Þetta eru mun færri en
kærðir og áminntir voru á mánudaginn oa
virðist því umferðarátakiö vera farið að
bera árangur
VESTMANNAEYJABÆR
hefur framlengt umsóknarfrest um stöðu
bæjarstjóra til 15. ágúst. Þegar umsóknar-
frestur rann út höfðu tveir sótt um starfið,
sem báðir óskuðu nafnleyndar. Annar
umsækjandinn dró síðan um sókn sína til
baka og var því gripið til þess ráðs að
framlengja umsóknarfrestinn.
MARGEIR PÉTURSSON hef-
ur einn forustu á skákmóti sem nú stendur
yfir í Gausdal í Noregi, Margeir hefur 4 V2
vinning eftir 5 umferðir. Karl Þorsteins
hefur 3 vinninga, Hannes Hlífar Stefáns-
son 1 '/2 og Þröstur Árnason 1 vinning og
biðskák sem átti að Ijúka seint í gærkvöldi.
ÞJÓÐARLEIÐTOGAR þeirra
sex þjóða, sem undanfarin tvö ár hafa
unnið að friðarfrumkvæði í afvopnunar-
málum, koma saman til fundar í Mexíko í
fyrstu viku ágúst. Þessir leiðtogar eru
Alfonsin forseti Argentínu, de la Madrid
forseti Mexíko, Gandhi forsætisráðherra
Indlands, Papandreou forsætisráðherra
Grikklands, Nyerere fyrrum forsætisráð-
herra Tanzaníu og Ingvar Carlson for-
sætisráðherra Svípjóðar sem tekur nú
sæti Olof Palme. Þessf leiðtogafundur er
skipulagður af alþjóðlegum þingmanna-
samtökum sem Ólafur Ragnar Grímsson
veitir forstöðu.
SKOTVEIÐIFÉLAGIÐ hefur
fordæmt dráp á gæsum í sárum sem það
segist hafa upplýsingar um að sé stundað
í talsverðum mæli. Til þessa verknaðar
sé notað m.a. hraðskreiðir bátar, barefli,
byssur og háfar og ástæða sé til að vekja
sérstaka athygli á stöðum eins og Breiða-
firði og Axarfirði. Félagiö biður alla þá
sem verða varir við slíkar veiðar að kæra
viðkomandi umsvifalaust til yfirvalda.
ENGLAR eru andlegar verur og
hafa það hiutverk að vera tengiliðir og
sendiboöar milli Guðs og manna, að því
er Jóhannes Páll II sagði í móttöku i
Vatikaninu í gær. Páfi sagði að englar
tækju þátt í stjórn Guðs yfir sköpunarverk-
inu, með því að framfylgja skipunum hans
og englar hefðu það sérstaka hlutverk að
koma bænum mannanna til Guðs. Fyrr í
þessum mánuði sagði páfi að englar
hefðu verið misskildir í aldanna rás.
KRUMMI
Ætli þjóðin verði
komin með skásett
augu um aldamót-
m..
Barnsfæðingum hérlendis fækkar ár frá ári:
Stefna íslendingar í
kínverska munstrið?
- Fæðingatíðnin fór niður í 1,9 börn á hverja konu 1985
Aðeins um 3.800 börn fæddust á
íslandi í fyrra, í stað 8.600 barna
sem litið hefðu dagsins Ijós ef
konur ættu enn jafn mörg börn og
mæður þeirra 25 árum áður.
Barnsfæðingar í fyrra voru 1.116
færri en árið 1960, en konur voru
þá miklu færri en nú.
Um 1960 var fæðingatíðnin um
4 börn á æfi hverrar konu. Það
hlutfall hrapaði niður í um 3 börn
í kringum 1970 og fór í fyrra niður
í 1,9 börn á æfi hverrar konu að
meðaltali, að því er fram kemur í
nýjasta hefti Heilbrigðismála. Það
getur ekki leitt til annars en að
landsmönum taki að fækka á ný
áður en langt um líður.
Þessi þróun hefur orðið til þess
að allar mannfjöldaspár og út-
reikningar hafa orðið marklitlir
nánast um leið og þeim er lokið.
Þannig spáðu t.d. reiknimeist-
arar Framkvæmdastofnunar árið
1976 að íslcndingar yrðu orðnir
um 261 þús. talsins í árslok 1985,
en nú er komið í Ijós að nær 20
þúsund manns vantaði upp á þá
tölu.
Barneignum hefur stórlcga fækk-
að í öllum aldurshópum kvenna -
þó hlutfallslcga mest, eða um
helming meðal þeirra yngstu og
elstu, en minnst meðal 30-34 ára
kvcnna.
Af hvcrjum 100 konum sem
voru á aldrinum 20-24 ára árið
1972 eignuðust 19 börn það ár, en
aðeins 12 af hverjum 100 konum á
þeim aldri árið 1984. Aðeins ein af
hverjum 100 konum yfir 40 ára
aldri eignaðist barn árið 1984.
Rúmlega fertug ÐC3 llugvél í eigu kanadíska félagsins Odyssey 86
lenti á Reykjavíkurflugvelli í gær, en þessi flugvéi er nú á leiðinni
kringum hnöttinn til að kvnna heimssýninguna sem nú stendur yfir í
Vancouver í Kanada. Þessi vélartegund var einnig valin til að minnast
þess að 50 ár eru síöan Douglas DC3 flugvélarnar voru teknar í notkun.
ísland er eitt 28 landa sem vélin hefur viðkomu í áður en
hnattferðinni lýkur 10. ágúst, og Rcykjavík cr ein 47 horga sem vélin
og áhöfn hennar heimsækir. í áhöfn vélarinnar eru 10 manns.
Meðfylgjandi niynd var tekin þegar DC3 vélin lenti á Reykjavíkur-
flugvelli í gær, en cins og glöggir lcsendur sjá er vélin sömu gerðar og
Landgræösluflugvélin Fáll Sveinsson. Tímamynd: Sverrir
Heyskapur langt kominn á Austurlandi:
MUNADIMESTU
UM KN0SARANN
- segir Júlfus Þóröarson á Skorrastað
Frá Svanfríöi Hagnaag. fréttarítara Tímans á
Norðfirði:
„Ég tel það hafi munað mestu hjá
mér hvað tækin varðar að ég var
með knosara á sláttuvélinni og
baggatínu til að taka upp baggana,"
sagði Júlíus Þórðarson bóndi á
Skorrastað er hann var spurður að
því hvernig heyskapur hefði gengið
hjá þeim.
Sláttur í Norðfirði er langt kom-
inn og eru flestir bændur annað
hvort langt komnir eða búnir. Að
sögn Júlíusar byrjaði hann að slá
nokkuð á undan öðrum vegna þess
að hann var hræddur um að fá úr
sér vaxið gras.
„Heyskapurinn byggist náttúr- j
lega fyrst og fremst á tækjum nú ;
orðið og ég tel þess vegna nauðsyn-
legt að hafa góð tæki. Mörg undan- i
farin ár hefur heyskapartíminn hér
verið skemmtilegur tími, því það j
hefur komið fjöldi fólks til að taka !
þátt í þessari skemmtun með okkur
og það hefur auðvitað ráðið úrslit-
um,“ sagði Júlíus Þórðarson á
lokum.
Vík í Mýrdal:
Ný saumastofa
sett á fót
Fyrir sköntmu var sett á fót ný
saumastofa í Vfk í Mýrdal. Ber
hún nafnið Saumastofan Gæði
hf. og kemur í stað Prjónastof-
unnar Kötlu sem varð gjaldþrota
nú í vetur.
Stofnun þessarar saumastofu
kemur sér mjög vel fyrir íbúa
Víkur, því ófremdarástand
skapaðist í atvinnumálum staðar-
ins eftir að prjónastofan Katla
hætti starfsemi sinni. Raddir voru
á lofti um að fólksflótti yrði frá
Vík ef ekkert yrði að gert í
atvinnumálum staðarins. Til-
koma þessa nýja fyrirtækis ætti
því að koma í veg fyrir fólksflótt-
ann, enda eru bundnar við það
miklar vonir.
Saumastofunni Gæði hf. erætl-
að að halda uppi iðnrekstri og
skyldum atvinnurekstri. Stjórn-
arformaður saumastofunnar er
Ágúst Þór Eiríksson, cn fram-
kvæmdastjóri Auður Axelsdótt-
ir.
HM