Tíminn - 31.07.1986, Blaðsíða 12

Tíminn - 31.07.1986, Blaðsíða 12
12 Tíminn l lultknnljíl Nýr lífsstíll Breytt þjóðfélag Ráðstefna í Glóðinni í Keflavík laugardaginn 13. septembernk. Allirvelkomnir. Nánarauglýstsíðar. Landssamband framsóknarkvenna SUF þing Þing Sambands ungra framsóknarmanna veröur haldið í Hrafnagils- skóla viö Eyjafjörö dagana 29. til 30. ágúst n.k. SUF Vestfirðir Kjördæmaþing framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldiö á Reykhólum 5,-6.september n.k. Nánar auglýst siðar. Stjórnin AUGLÝSING um að álagningu opinberra gjalda á árinu 1986 sé lokið: Samkvæmt 1. mgr. 98 gr. laga nr. 75 14. september 1981 um tekjuskatt og eignarskatt er hér með auglýst, að álagningu opinberra gjalda á árinu 1986 sé lokið á þá menn sem skattskyldir eru hér á landi samkvæmt 1. gr. greindra laga, á börn sem skattlögð eru samkvæmt 6. gr. þeirra, svo og á lögaðila og aðra aðila sem skattskyldir eru skv. 2. og 3. gr. þeirra. Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að leggja á á árinu 1986 á þessa skattaðila hafa verið póstlagðar. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda, að kirkju- garðsgjöldum undanskildum, sem þessum skattaðilum hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 1986, þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðsmanni hans innan 30 daga frá og með dagsetningu þessarar auglýsingar eða eigi síðar en 28. ágúst nk. Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 98. gr. áður tilvitnaðra laga munu álagningarskrár fyrir hvert sveitarfélag liggja frammi á skattstofu hvers umdæmis og til sýnis í viðkomandi sveitarfélagi hjá umboðsmanni skattstjóra dagana 30. júlí - 13. ágúst 1986, að báðum dögum meðtöldum. 30. júlí 1986 Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson. Skattstjórinn í Vestfjaröaumdæmi, Ólafur Helgi Kjartansson. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Jón Dalman. Ármannsson settur Skattstjórinn i Austurlandsumdæmi, Bjarni G. Björgvinsson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson. Skattstjórinn i Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stéfansson. Bútækni hf. Sími 686655/686680 DAGBÓK Sumarbúðir fyrir böm í Skálholti Tilraun vjrður gerð með sumarbúðir Skálholti fyrir börn, þar sem áhersla verður lögð á tónlist og myndlist ásamt útiveru og náttúruskoðun. Búðirnar verða starfræktar frá 11. til 17. ágúst. Tilgangurinn er að koma til móts við þau börn sem gaman hafa af iðkun tónlistar og myndmenntar og gefa þeim tækifæri til að vera saman í leik og starfi. Enn geta nokkur börn bæst í hópinn. Æskilegur aldur er 8 til 10 ára. Leiðbeinendur verða Áslaug B. Ólafs- dóttir, Halldór Vilhelmsson og Hjördís Ólafsdóttir. Upplýsingar í síma 656122. Tilkynning frá Austurleið um Þórsmerkurvökur „Aö gefnu tilefni skal það tekiö fram aö Húsadalur í Þórsmörk er öllum opinn. Næg tjaldstæði og skálapláss fyrir hendi. Verið velkomin. Austurleiö Þórsmerkurvökur.u Börn í beltum fá viðurkenningu. Fyrir og um verslunarmannahelgi mun Umferðarráð og lögreglan um allt land veita þeim börnum er sitja í bílbeltum eða barnabílstól viðurkenningu. Um er að ræða lítinn glaðning, kort með ferðaleikjum og hollráðum, riss- blokk og síðast en ekki síst Tópaspakka frá Nóa hf. Fyrirtækið gaf þrjú þúsund Tópaspakka í þessu skyni, en á loki þeirra er einmitt ábending til fólks í bílum: „Spennum beltin - sjálfra okkar vegna“. Nói hf. er einn þeirra aðila er ljáð hefur umferðarmálum lið með því að hafa þessi hvatningarorð á töflupökkum sínum endurgjaldslaust árum saman. Umferðarráð væntir þess að sem flestir foreldrar setji öryggisbúnað fyrir börn í bíla sína, og sjái til þess að þau noti hann. Ekki aðeins til þess að þau fái viðurkenn- ingu, heldur miklu heldur til að auka öryggi þeirra í bílnum. „Börn í bílum þurfa vörn“. Og vert er að minna á að þörf fyrir notkun öryggisbúnaðar, fyrir börn og fullorðna í bílum, er ætíð fyrir hendi - óháð árstímum. Fjölskylduhátíð í Bjarkarlundi um verslunarmannahelgina Forráðamenn Hótels Bjarkarlundar (ná- lægt Króksfjarðarnesi í Barðastrandar- sýslu) hafa ákveðið að halda Fjölskyldu- hátíð í Bjarkarlundi um verslunarmanna- helgina. Þar verður boðið upp á hesta- og bátaleigu, gönguferðir með leiðsögn, grillveislu og varðeld. Einnig verða íþróttir og útileikamót fyrir börn. Dansað verður á útipalli föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. og um tónlistina sjá Grétar Örvarsson og André Backmann. Þeir sjá einnig um að leika „dinner-músík” fyrir matargesti laugar- dags- og sunnudagskvöld. Stutt er fyrir gesti að skreppa í sundlaug á Reykhólum. Góð aðstaða er fyrir tjaldgesti, hreinlætis- aðstaða og salerni á staðnum. Þetta er fyrst og fremst hugsað sem fjölskylduhátíð og starfsmenn Hótels Bjarkarlundar sjá um framkvæmdir. Tónlistarfélag Kristkirkju: Berkofsky heldur Liszt-tónleika Hinn snjalli píanóleikari, Martin Berkof- sky, mun leika á vegum Tónlistarfélags Kristskirkju í Safnaðarheimilinu að Há- Martin Berkofsky pianóleikarí. ! vallagötu 16 í kvöld. fimmtudagskvöldið 31. júlí. Á þessum tónleikum flytur , Berkofsky eingöngu verk eftir Franz I Liszt, t.d. h-moll Sónötuna, „Viðræður I heilags Frans við fuglana", og fleiri fræg : verk eftir meistarann. Tilefni tónleikanna ! cr. að þennan dag er hundraðasta ártíð tónskáldsins. Tónlistarfélag Kristskirkju hóf reyndar Lisztkynningu sína fyrr í vor með orgel- tónleikum Ragnars Björnssonar i Krists- kirkju, og seinna á árinu eru fyrirhugaðir Ljóðatónleikar, þar sem flutt verða söng- lög Liszts. Anna Áslaug Ragnarsdóttir flytur nýja íslenska píanótónlist á ísafirði í kvöld, 31. júlí, mun Anna Áslaug Ragnarsdóttir pianóleikarí halda tónleika á ísaTirði. Tónleikarnir verða i sal Frímúr- ara í Hafnarhúsinu og hefjast kl. 20.30. Að tónleikunum loknum verður tónleika- gestum boðið að fá sér kaffibolla og kleinur, og þess má geta að í salnum eru til sýnis andlitsmyndir eftir Jón Hróbjarts- son á vegum Listasafns ísafjarðar. Á efnisskránni eru eingöngu íslensk verk, sem flest tengjast tsafirði á einn eða annan hátt. Verkin eru eftir Porkel Sigur- björnsson, Atla Heimi Sveinsson, Hjálm- ar H. Ragnarsson og Jónas Tómasson. Anna Áslaug Ragnarsdóttir stundaði fyrstpianónám hjá föðursínum, Ragnari H. Ragnar, á ísafirði, og síðar hjá Árna Kristjánssyni í Reykjavík. Að loknu einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík stundaði hún píanónám við tónlistarháskóla í London, Róm og Þýskalandi. Hún lauk einleikaraprófi frá Tonlistarháskólanum í Múnchen 1976 ög hefur hún starfað þar síðan við kennslu og píanóleik. Anna Áslaug hefur haldið fjölda tón- leika, bæði innanlands og utan, og hefur hún m.a. nokkrum sinnum komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit fslands. Þá hefur hún margsinnis leikið í hljóðvarp og sjónvarp. Á undanförnum árurn hefur hún í auknum mæli leikið tónlist yngri tónskálda og hafa íslensk tónskáld samið píanóverk sérstaklega fyrir hana. Á síðastliðnu ári gaf íslensk tónverkamiðstöð úr hljómplötu, þar sem Anna Áslaug lék nýja íslenska píanótón- list og hefur þessi hljómplata þegar hlotið alþjóðlega viðurkenningu. Frá Bolvíkingafélaginu í Reykjavík í tilefni 40 ára afmælis félagsins, er ákveðið að efna til hópferðar vestur um verslunarmannahelgina. Lagt verður af stað frá Hópferðamið- stöðinni Bíldshöfða 2, föstudaginn 1. ágúst kl. 2 e.h. Ekin verður Steingrímsfjarðarheiði og út Djúp. Dvalið í Bolungarvík laugardag og sunnudag og vesturleiðin ekin til baka á mánudag. Þátttakendur sem ekki hafa látið skrá sig, hafi samband við eitthvert undirrit- aðra hið allra fyrsta. Jón Ólafur sími 52343, Hólmfríður sími 75434, Brvnhildur sími 12203, Helga sími 40689, Óskar sími 33174. Borgarfjarðargleði ’86 Borgarfjaröurgleöi '86 veröur haldin í Logalandi. Revkholtsdal um verslunar- mannahelgina. Dansleikir veröa föstu- dag, laugardag og sunnudag og hefjast kL 23.00. Hjömsveitin Tíbrá leikur fyrir dansi. Sæmundur Sigurðsson verður meö sætaferöir frá tjaldsstæöunum á Geirsár- bökkum og Húsafelli og frá Akranesi og Borgarnesi. UMSB Ungmennasamband Borgarfjaröar. Páfagaukur týndist Lítill, blár páfagaukur týndist í Laug- arneshverfi aö kvöldi 29. júlí. Þeir sem kynnu aö hafa orðið varir við hann, eöa vita hvar hann er, vinsamlegast hringið í síma 688266 eöa 37404. íslensk þjóðlög í „Opnu húsi“ Fimmtudaginn 31. júlí kl. 20.30 heldur Helga Jóhannsdóttir þjóðlagasafnari fyrirlestur um íslensk þjóölög í „Opnu húsi“, sumardagskrá Norræna hússins fyrir erlenda feröamenn. Helga hefur feröast um landiö undanfarin ár og safnað þjóölögum og mun hún ræöa þau, ásamt því aö leika tóndæmi. Að loknu erindinu. sem veröur flutt á sænsku, veröur gert kaffihlé, en síðan sýnd kvikmynd þeirra. Ósvalds og Vilhjálms Knudsens „Eldur í Heimaey'* meö norsku tali. Kaffistofa og bókasafn hússins veröa opin fram eftir kvöldi, en í bókasafninu liggja frammi bækurum íslandog íslensk- ar hljómplötur. Aögangur er ókeypis og allir eru vel- komnir í Norræna húsiö. Kornmarkaðurinn 10 ára afmælishátíð fimmtudaginn 31. júlí Kornmarkaöurinn Skólavörustíg 21a. verður 10 ára gamall 31. júlí n.k. þannig aö segja má aö hann hafi slitið barnsskón- um ef segja má slíkt um verslun. í tilefni afmælisins vill Kornmarkaöur- inn gera viöskiptavinum sínum og starfs- fólki ofurlítinn dagamun. Þar er helst að nefna: ★ 10% afsláttur er veittur af öllum vörum verslunarinnar á afmælisdaginn. ★ Vöruhappdrætti þar sem allir viö- skiptavinir Kornmarkaðsins 3 daga fyrir afmælisdaginn eru sjálfkrafa þáttrakend- ur. ★ Afmælishátíð verður haldin á stéttinni fyrir framan verslunina frá kl. 15.00 til 16.00 á afmælisdaginn. (Viöskiptavinir athugi aö verslunin veröur lokuð á meöan). Helstu dagskrárliöir eru: - Afmælisávarp - Magnús Þór Sigmundsson flytur eigin lög - barnaglaöningur - dregiö veröur í vöruhappdrættinu - jurtafæöikynning, kynntir réttir úr baunum og grænmeti - heilsukökur og kornkaffi Allir viöskiptavinir og velunnarar Kommarkaðsins em velkomnir á afmælis- hátíðina. Fimmtudagur 31. júlí 1986 Ferðir F.í. um verslunar- mannahelgi 1.4. ágúst: Brottfór kl. 20.00 föstudag 1) Fjöllin upp af Kálfafellsdal. Gist í tjöldum. 2) Skaftafell - þjóögaröurinn. Gist í tjöldum. Gönguferöir um þjóögarðinn. 3) Þórsmörk - Fimmvörðuháls (dagsferð). Gist í Skagfjörðsskála. 4) Þórsmörk og nágrenni. Gönguferöir viö allra hæfi um Mörkina. Gist í Skag- fjörðsskála. 5) Landmannalaugar - Langisjór - Sveins- tindur - Eldgjá. Ekið í átt að Sveinstindi og gengið á hann, komiö viö í Eldgjá. Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum. 6) Álftavatn - Strútslaug - Hólmsárlón. Ekiö inn Mælifellssand og gengiö frá Rauðubotnum meöfram Hólmsárlóni í Strútslaug. Gist í sæluhúsi Feröafélagsins viö Álftavatn. 7) Sprengisandur - Skagafjöröur - Kjölur. Gist í Nýjadal, Steinstaðaskóla og Hvera- völlum. 8) 2.-4. ágúst kl. 13 Þórsmörk - gist í Skagfjörðsskála Upplýsingar og farmiðasala á skrifstof- unni, Öldugötu 3. Tryggið ykkur sæti tímanlega. Ferðafélag íslands. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins: 1) 31. júlí - 8. ágúst (8 dagar): Kvíar - Aðalvík. Gengið með viöleguútbúnaö frá Kvíum í Lónafiröi um Veiöleysufjörö, Hesteyrar- fjörö og frá Hesteyri yfir til Aðalvíkur. 2) 1.-6. ágúst (6 dagar): Landmannalaug- ar - Þórsmörk Gengið milli gönguhúsa F.í. Fararstjóri: Ásgeir Pálsson 3) 6.-10. ágúst (5 dagar): Landmanna- laugar - Þórsmörk Fararstjóri: Jón Hjaltalín Ólafsson. 4) 6.-15. ágúst (10 dagar): Hálendishring- ur. Ekið noröur Sprengisand um Gæsa- vatnaleiö, Öskju, Drekagil, Heröubreiö- arlindir, Mývatn, Hvannalindir, Kverk- fjöll og víöar. Fararstjóri: Hjalti Krist- geirsson. 5) 14.-19. ágúst (6 dagar): Fjörður - Hvalvatnsfjörður - Þorgeirsfjörður. Flog- iö til Akureyrar. Gist á Grenivík og farnar dagsferöir þaöan í Fjöröu. 6) 15.-19. ágúst (5 dagar): Fjallabaksleiðir og Lakagígar. Gist í Landmannalaugum, Kirkjubæjarklaustri og Álftavatni. 7) 9.-13. ágúst (5 dagar): Eyjafjaröardalir og víðar. Ekið um sprengisand og Bárö- ardal til Akureyrar. Skoöunarferðir um Eyjafjörö og Skagafjörð. Kynnið ykkur ódýrt sumarleyfi meö Feröafélagi íslands. Upplýsingar og far- miðasala á skrifstofunni, Óldugötu 3. Útivistarferðir um verslunarmannahelgina 1.-4. ágúst: Brottför föstud. kl. 20.00 1. Þórsmörk-Goðaland. Gist í skálum Útivistar Básum og tjöldum. Gönguferöir viö allra hæfi. Kvöldvökur. Friösælt um- hverfi. 2. Núpsstaðarskógar. Stórkostlegt svæöi innaf Lómagnúp. Gönguferöir m.a. aö Tvílitahyl meö Núpsárfossi og á Súlu- tinda. Veiöimöguleikar. Tjaldaö. 3. Eldgjá-Landmannalaugar-Fjallabaks- leiðir. Gist í góöu húsi við Eldgjá og fariö í dagsferðir þaðan m.a. að Langasjó og Sveinstindi, Strútslaug og í Laugar. 4. SnæfelIsnes-BreiðaQarðareyjar- Flatey. Skoöunarferðir og léttar göngur. 2.-4. ágúst: Brott för laugard. kl. 8.00. 5. Þórsmörk-Goðaland. Athugið aö ferö- ir eru tilbaka úr Básum bæöi sunnud. og mánudag. Dagsferðir úr Reykjavík kl. 8 í Þórsmörk. Stansað 3-4 klst. 6. Fimmvörðuháls. Gengiö frá Skógum í Bása, ca 8 klst. Gist í Básum. 7. Homstrandir-Homvík 31. júlí - 5. ágúst. Góö fararstjórn í ferðunum. Gönguferðir f\rir alla og hressandi úti- vist. Uppl. og farm. á skrifst. Grófínni 1 símar: 14606 og 23732. Vertu í takt við Tímann AUGLÝSINGAR 1 83 00

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.