Tíminn - 31.07.1986, Síða 16
t5RAT
'Sími
24838
Férðist
meðVISA
ÍSLENSKA KVENNALANDSLIÐIÐ
varö aö sætta sig við annaö tap fyrir
V-Þjóöverjum í landsleik í knattspyrnu
á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Þjóö-
verjarnir unnu 5-0 í gær. íslenska liöiö
átti þokkalegan fyrri hálfleik en spilaöi
ekki vel í þeim seinni. Virtust nokkuö
þreyttar. Þær þýsku voru bæöi fljótari
og betri meö boltann.
■iK.'í
Bandarískir embættismenn „slegnir og reiöir:“
Bandarískir embættismenn sem
ekki vilja láta nafns síns getið segjast
vera „slegnir“ og „reiðir" yfir því að
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra hafi birt skjöl þau um
málið sem sýndu að viðskiptaráð-
herra Bandaríkjanna hafi verið bú-
inn að ákveða að leggja fram kæru
varðandi hvalveiðar (slendinga.
Steingrímur sá sig tilneyddan að
leggja gögnin fram cftir að banda-
rískir embættismenn höfðu rengt
orð hans um málið.
Hinir reiðu og slegnu embættis-
menn segja að Steingrímur hefði
engan rétt til að birta skjölin þar sem
þau hefðu verið send íslensku ríkis-
stjórninni í algerum trúnaði. Þess
má geta að skjölin sem birt voru
blaðamönnum bera þess engin merki
um að trúnaðarskjöl sé að ræða.
Það vekur athygli í þessu máli, að
hinir bandarísku embættismenn vilja
ekki láta nöfn sín uppi en hafa þó
stór orð um málið.
Hvalveiðar liggja nú niðri vegna
sumarleyfa hvalveiðimanna, en
munu hefjast á ný þann 20. ágúst að
öðru óbreyttu. Því er nokkur bið-
staða í málinu.
Nú er beðið eftir svari Bandaríkja-
stjórnar við tilmælum tslensku ríkis-
stjórnarinnar um að Malcom Bald-
ridge, viðskiptaráðherra Bandaríkj-
anna ræði við Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra um hvalveiði-
málið. Talið er að viðræður þeirra
geti hafist í næstu viku.
Halldór Ásgrímsson sagði í sam-
tali við Tímann að hann vonaðist til
að menn gæfu sér ráðrúm til að ræða
saman í góðu andrúmslofti. Það væri
mikilvægt að mcnn stöldruðu við,
hættu að tala um hver sagði hvað, en
reyni þess í stað að lægja öldurnar á
meðan viðræður eigi sér stað. Að
öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um
málið, enda væri það ekki rétt áður
en viðræður hæfust.
ríminii
SegjaSteingrímhafa
birt trúnaðarskjöl
- Viðræður við Bandaríkjamenn hugsanlega í næstu viku
Reykjavík
í 5. sæti
Reykjavíkurborg var sjálf í
sæti 5. gjaldahæsta lögaðila í
borginni með 51.317.451 króna
heildargjöld. Ein örlítil prentvilla
í yfirliti frá Skattstofu Reykja-
víkur varð til þess að lækka gjöld
„afmælisbarnsins" um sléttar 40
milijónir og draga borgina'
niður í 18. sæti, en það leiðréttist
hér með. Borgin er 5. skatthæsti
greiðandinn í Reykjavík, næst á
eftir: Landsbanka, SÍS, IBM og
Búnaðarbankanum.
Frí 18.
ágúst!
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra hefur ákveðið að starfsfólk
stjórnarráðsins fái frí úr vinnu á
afmælisdegi Reykjavíkur 18. ágúst
næstkomandi. Starfsfólk Reykjavík-
urborgar mun einnig fá frí frá störf-
um að því er Davíð Oddsson borgar-
stjóri skýrði frá á blaðamannafundi
í gær.
Borgarstjóri lét þess einnig getið
að það væri von sín að atvinnurek-
endur almennt gæfu frí þennan dag
og gæfu þannig starfsfólki sínu kost
á að taka fullan þátt í hátíðahöldum
dagsins.
Vatnssæknar
golfkúluri
Sigurður Pétursson golfleikari er
ekki að skoða spegilnivnd sína í
vatninu, heldur er hann að leita
að kúluskömm sem sótti i vatnið.
Það má húast við að fleiri kúlur
fari í þetta vatn áður en vikan er
liðin því invndin var tckin á
Hólmsvelli í Leiru þar seni
Landsmótið i golfi stendur nú
sem hæst. í gær hófst keppni í
meistaraflokkum karla og
kvenna. Tímamynd Pétur.
Hafbeitarstööin Blælax:
Seiðaslepping á sextugu dýpi
Nýr háttur var á hafður við slepp-
ingu sjógönguseiða í hafbeitarstöð-
inni Blælaxi við Isafjarðardjúp nú
nýlega. Með 2 þús. seiði var siglt á
bát út í mynni ísafjarðardjúps og
þeim sleppt þar á 66 faðma dýpi.
Mun þetta í fyrsta sinn sem þessi
háttur er á hafður við seiðasleppingu
hér við land. En að sögn Gylfa
Guðjónssonar, forsvarsmanns Blæ-
lax hcfur þetta verið prófað á vestur-
strönd Bandaríkjanna og þar gefist
mjög vel, þ.e. að endurheimtuhlut-
fallið hefur reynst gott.
Blælax - sem er ný hafbeitarstöð
við Blævadalsá í ísafjarðardjúpi -
sleppti alls 6 þús. seiðum í sjó á
þessu fyrsta starfsári. Hinum 4 þús.
var sleppt á hefðbundinn hátt í
fjöruna niður undan stöðinni. Öll
seiðin sem sleppt var voru merkt.
þannig að góður samanburður á að
fást á því hvor hópurinn skilar sér
bctur - sá sem sleppt var í
fjörunni eða sá sem siglt var með
á haf út.
Að sögn Gylfa slendur einnig til
að ganga á nýjan hátt frá móttöku-
búnáði, sem setja á upp neðan við
stöðina nú í haust til að taka á móti
laxinum úr hafbeitinni. En einn
vandi hafbeitarstöðva hefur einmitt
verið sá að fá laxinn til að ganga inn
í stað þess að safnast úti fyrir
stöðvunum. Takist vel til með þenn-
an búnað sagði Gylfi það geta skipt
sköpum fyrir hafbeitarstöðvar.
Seiðin sem Blælax sleppti að þessu
Blælax fær vatn úr Blævadalsá í tjarnirnar sem gerðar hafa verið skammt frá
árósnum. í tjörnunum eru seiðin búin undir hafbeitina.
sinni voru keypt frá tveim seiðaeldis-
stöðvum. Hins vegar sagði Gylfi
seiðaverð nú það hátt - 75 kr.
stykkið - að hafbeitarstöðvar - þar
sem mikill minnihluti seiðanna skilar
sér til baka - gætu ekki staðið undir
því. Gylfi kvaðst hins vegar líta
björtum augum til að hafa samstarf
við seiðaeldisstöðina íslax við Djúp
um ræktun seiða af þeirra eigin
stofni (Blælaxstofni) þannig að Blæ-
lax þurfi ekki einnig að fara út í
seiðaeldi.
Blælax er 3. fiskeldisstöðin við
ísafjarðardjúp. Fyrir voru seiðaeld-
isstöðin Islax og kvíaeldisstöðin í
Reykjanesi. Hugmyndir þeirra Blæ-
laxmanna eru að stækka stöðina
verulega á næstu árum ef þær tilraun-
ir sem þeir standa nú í koma til með
að gefast vel.
-HEI