Réttur - 01.04.1980, Side 41
Ton Duc Thang, varaforseti, flytur ávarp, er byltingarstjórn SuSur-Víetnam er stofnuð. Vinstra megin við
hann á myndinni er Ho Chi Minh, forseti, og hægra megin Pham Van Dong forsætisráðherra.
úar, en í október var nafninu breytt í
Kommúnistaflokk Indókína. (Þetta var
sama árið og Kommúnistaflokkur íslands
var stofnaður, fyrir réttri hálfri öld.)
Strax á því ári varð flokkurinn frægur
fyrir að skipuleggja baráttu hinna blá-
fátæku bænda, m.a. 6000 bænda hungur-
göngu j)ann 12. se])tember. En franska
nýlendustjórnin svaraði með miskunnar-
lausri kúgun. Henni tókst að vísu ekki
að ná Ho Chi Minh, en margir bestu for-
ingjarnir í baráttunni voru sendir til
fangaeyjarinnar alræmdu Poulo-Condore,
]r. á m. Ton Duc Thong og Phan Van
Dong, núverandi forsætisráðherra, og að-
alritari flokksins, Tran Phu, sem var
kvalinn j^ar til bana. Og í ]:>essari fanga-
dýflissu Frakka varð Ton Duc Tong að
kveljast í 15 ár. En ekki megnaði það að
brjóta kjark hans og baráttuvilja.
Ton Duc Tang liáði allt sitt líf þessa
baráttu áfram. 1955, þegar Föðurlands-
fylking Víetnams var stofnuð, til þess að
skapa sem víðfeðmasta samstöðu eftir sig-
urinn yfir franska nýlenduveldinu 1954,
]>á var Ton kosinn formaður hennar.
Þegar Ho Chi Minh forseti dó 3. sept.
1969, þá var Ton Duc Thang kosinn for-
seti Víetnam-lýðveldisins eftir hann á 3.
þjóðþinginu 23. sept. 1969.
Þessi gamla bardagahetja og giftusami
leiðtogi fékk að lifa Iivort tveggja: að
Suður-Víetnam yrði frjálst undan blóð-
stjórn bandaríska hervaldsins og mynd-
aði fyrst sína eigin stjórn, — og svo hitt
að báðir landshlutarnir sameinuðust
frjálsir í eitt Víetnam, — eftir allar þær
fórnir sem sú hetjuþjóð hefur fært fyrir
frelsi sitt.
105