Réttur - 01.04.1980, Síða 55
Fastara skipulagi var komið á Samtök
herttöðvaandstæðinga á landsfundi í
Stapa haustið 1976.
Straumsvíkurganga var farinn vorið
1977 og landsfundur haldinn í Festi í
Grindavík um haustið.
Keflavíkurganga var larin vorið 1978
og landsfundur haldinn í Reykiavík
haustið eftir.
I september 1978 var mynduð ný ríkis-
stjórn, sem taldi sig til vinstri við Sjálf-
stæðisflokkinn. Hún hafði þó engar
breytingar á herstöðvamálinu í sam-
starfsyfirlýsingu sinni. Einungis var skip-
uð ný öryggismálanefnd til að kanna,
hversu öryggi landsins verði best tryggt.
Herstöðvaandstæðingum þótti að sjálf-
sögðu súrt í broti, að Alþýðubandalagið
skyldi eiga hlut að þvílíkum málefna-
samningi, eini þingflokkurinn, sem hafði
brottför hersins og skilnað við NATO á
stefnuskrá sinni. Hitt fór heldur ekki
milli mála, að verkalýðssamtökin höfðu
knúið mjög á um þessa stjórnarmyndun
og forystu þeirra þótti herstöðvamálið
ekki næg ástæða til að hindra hana.
Helsta aðgerð stjórnarinnar í þessum
málum var annars sú, að utanríkisráð-
herra Benedikt Gröndal bað Bandaríkin
að fækka Islendingum fyrir engan mun í
herstöðvarvinnunni, jafnvel jrótt jran
hyggðust minnka starfslið í herstöðvum
sínum hvarvetna í heiminum vegna auk-
innar sjálfvirkni. Seinna gaf Jressi sami
ráðherra út tilkynningu jress efnis, að
öllum hömlum skyldi létt af ferðafrelsi
hermanna utan Vallarins, en jrær höfðu
]rá gilt í aldarfjórðung. Hann varð þó að
renna á afturendann nreð |)á ráðstöfun
eftir nokkra daga, jiví að jafnvel Sjálf-
stæðismenn snerust á móti. Þeir eru djúp-
særri og sáu í hendi sér, að slíkt og því-
Á Austurvelli 30. mars 1969
119