Réttur - 01.07.1984, Blaðsíða 2
Það lítur út fyrir að því meiri svíðingur sem hin nýja, forríka yfirstétt íslands
er gagnvart vinnandi fólki og sérstaklega þeim, sem bágast eiga, — því lítil-
sigldari og auðmjúkari ætli hún að gerast gagnvart þeim vellauðugu hringum
erlendum, sem hún er að ofurselja auðlindir landsins. Þar virðist hugsun
hennar vera sú ein að kaupa sér herra, fá hin auðugustu og harðdrægustu
erlendu einokunarfélög inn í landið, — auðdrottna, sem ráða meira fjármagni
en öll braskarastétt íslands. Braskararnir hyggjast þar fá voldugan banda-
mann gegn íslenskri alþýðu. Um ísland, sjálfstæði þess og framtíð, varðar
þá ekkert, — ef þeir aðeins fá að gerast feitir þjónar voldugra erlendra herra.
En ískyggilegast og örlagaríkast er þó, hvernig þeir óhappamenn, er utan-
ríkismálum stýra, eru að Ijá land og þjóð bandarísku hervaldi að leiksoppi í
hildarleik þeim, er það illa vald undirbýr. Bandaríska þjóðin sefur enn álaga-
svefni auðvaldsáróðursins og vaknar ekki þrátt fyrir aðvaranir mætustu for-
ustumanna hennar.
Eisenhower forseti varaði þjóð sína við þeirri hættu, sem henni stafaði af
„hernaðar- og stóriðju-samsteypunni“ („the military-industrial complex").
Edward Kennedy,öldungadeildarþingmaður, sagði nýlega: „Ég álít Ron-
ald Reagan vera hættulegasta forseta kjarnorkualdarinnar“.
Og nú verður þessi erindreki stríðsgróðamannanna vafalítið endurkjörinn
forseti Bandaríkjanna með ca. 25% atkvæða sem seinast. Er hann þá viss
með í heimsku sinni, galgopahætti og stórmennskuæði að meðhöndla þau
atómvopn, er hann þá ræður og nægja til að myrða allt mannkyn, sem vitlaus
kúreki á óðum hesti.
Kumpánar hans í ríkisstjórn eru samskonar ábyrgðarleysingjar. Og af því
ýmsir NATO-leiðtogar Vestur-Evrópu eru nokkuð óþægir þessum ofstækis-
mönnum, er þeir undir niðri fyrirlíta og óttast vegna framferðis þeirra, — þá
líta nú þessir glæframenn með vaxandi áhuga til íslands sem ákjósan-
legasta árásarpalls fyrir eldflaugar, sem hæfa ættu skotmörk í Murmansk-
og Kola-héruðum Sovétríkjanna. Eru nú þegar staðsettar Awacs-flugvélar
á Keflavíkurflugvelli, er stjórnað geta eldflaugaskotum úr kafbátum Banda-
ríkjanna á Norður-Atlantshafi ( — einu Awacs-flugvélarnar, sem evrópsk
NATO-lönd hafa fengist til að taka við). Virðast bandarísku herforingjarnir
reikna með því að formenn íslensku stjórnarflokkanna séu glámskyggnastir
allra NATO-sveina í Evrópu á utanríkispólitík og því sem nytsamir sakleys-
ingjar nothæfir til þess hermdarverks, er hæfi kjarnorkustyrjöld og gerði
ísland að óhjákvæmilegum skotspæni með þeirri gereyðingu, er því fylgdi.
Þessar hernaðaráætlanir eru þegar gerðar, reiknað með stríðsbyrjun
1993 og verða nánar ræddar bráðlega í Rétti.
En það er vissulega mál að íslenska þjóðin vakni öll og geri sér hætt-
una Ijósa.