Réttur


Réttur - 01.07.1984, Síða 12

Réttur - 01.07.1984, Síða 12
Kórinn kom nú aftur með nokkur bar- áttulög og eftir honum flutti Hermann Þórisson samanþjappað yfiriit yfir ódæðis- verk Bandaríkjanna gagnvart frelsisþyrst- andi þjóðum þriðja heimsins. Pá kom Böðvar aftur með lítilsháttar illkvittni og síðan lauk fundinum með því að samþykkt var áskorun til íslensku ríkisstjórnarinnar um að hafinn skuli undirbúningur að brottför hernámsliðsins og úrsögn Islands úr NATO. Að morgni mánudagsins 7. maí, réttum 33 árum eftir að herinn kom til landsins öðru sinni, var þessi áskorun afhent íslenska ræðismann- inum í Gautaborg. Einnig var sent afrit til forseta íslands, frú Vigdísar Finnboga- dóttur, með ábendingum um nærtækar friðaraðgerðir af hennar hálfu. Etirmáli Fréttabréf frá aðgerðunum var sent til íslenskra og sænskra fjölmiðla. Birtust frásagnir í minnst 4 sænskum blöðum og einhverjum íslenskum. í Proletáren (málgagni sænska kommúnistaflokksins KPML (r)) kom meira að segja heil opna með frásögn frá aðgerðunum, texta dreifi- ritsins og ítarlegum úrdrætti úr ræðu Brynjólfs. Sami úrdráttur var sendur á Þjóðviljann, sem ekki sá ástæðu til að birta hann. Það er athygljsvert, að frá- sagnir í íslensku blöðunum voru mun rýr- ari en í þeim sænsku. Jafnvel sænskt kratablað kom innihaldi aðgerðanna bet- ur frá sér en Þjóðviljinn. Á fundi undirbúningsnefndarinnar að loknum aðgerðum kom þar tali nefnd- armanna að hart væri að hafa ekki tæki- færi til að dreifa svipuðu dreifiriti á ís- landi þann 17. júní. Var ákveðið að koma þessari hugmynd ásamt tillögu að dreifi- riti á framfæri við Samtök herstöðvaand- stæðinga. Brugðust þau vel við, unnu úr tillögunni og var 10.000 dreifiritum dreift í hús í kring um 17. júní (sjá mynd af því dreifiriti hjá kynningarklausu um Samtök herstöðvaandstæðinga aftar í þessu hefti). 124

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.