Réttur


Réttur - 01.07.1984, Qupperneq 16

Réttur - 01.07.1984, Qupperneq 16
Markmið íslenskra stjórnvalda var að gera ísland að því sem maður kallaði nú- tímaþjóðfélag, en í því hugtaki fólst tæknivætt, kapítalískt stórneysluþjóðfé- lag. Sjálfstæðisflokkurinn hafði forustu- hlutverkið í þessari stefnu og það var al- gjör sannfæring flokksleiðtoganna að hið íslenska nútímaþjóðfélag ætti að byggjast upp í nánum tengslum við Bandaríkin. Áður en tímabil þessarar vesturfærslu hefst hafði íslensk þjóðfélagsþróun að mestu byggst á aðlögun að íslenskum að- stæðum og þeim erlendu áhrifum sem sambandið við Danmörku hafði í för með sér. Hið nýja tímabil einkenndist af stór- auknum áhrifum frá Bandaríkjunum á ýmsum sviðum. Kjarninn í þessum tengsl- um er hin hernaðarlega uppbygging á ís- landi. Ég ætla hér aðeins að minnast á hvern- ig hin hernaðarlega innlimun íslands teng- ist efnahagslegum, menningarlegum og pólitískum málum. Bandarísk íhlutun ísland hafði á stríðsárunum safnað miklum gróða. Þrátt fyrir það var íslandi veitt efnahagsaðstoð innan Marshalláætl- unarinnar. Énginn þarf að halda að land- ið hefði fengið þessa aðstoð ef íslensk stjórnvöld hefðu neitað að taka þátt í þeirri hernaðaruppbyggingu sem var að hefjast á þessum tíma. Samtímis var lok- að fyrir þau verslunarsambönd við lönd í Austurevrópu sem nýsköpunarstjórnin svo kallaða hafði byggt upp á fyrstu árun- um eftir stríð. Önnur hlið á þessum efna- hagslegu tengslum er sá verulegi hagnað- ur sem vissir hópar í íslenska þjóðfé- laginu hafa haft af starfsemi í kringum herinn. íslenskir verktakar hafa herstöðv- arnar að féþúfu. Bandarísk stjórnvöld gerðu sér það ljóst frá fyrstu byrjun hve mikilvægt það var að hafa áhrif á íslenskt menningarlíf. í skýrslu bandaríska sendiráðsins til utan- ríkisráðuneytisins í Washington 1947, gerði sendiráðið grein fyrir starfi sínu á lslandi. Þarna var megin áhersla Iögð á það að það yrði að fara að íslendingum með lagni, að láta ætíð í Ijós virðingu fyr- ir menningu þeirra og gjarna benda á sjálfstæðisást þeirra að fornu og nýju. Þarna var þess líka getið að íslendingar væru sólgnir í bandarískar vörur, kvik- myndir og músík og að þetta væri nauð- synlegt að notfæra sér til að skapa al- mennan vináttuhug hjá íslendingum í garð Bandaríkjanna. Á þessum árum hafði bandaríska sendiráðið líka bein af- skipti af því hverjir voru ráðnir í stöður hjá Ríkisútvarpinu og í ýmsar aðrar opin- berar stöður. Þessi stetna Bandaríkjanna að reyna að hafa áhrif á íslenskt menningarlíf hefur haldist síðan. Það reyndist t.d. mjög erfitt fyrir íslensk stjórnvöld að fá því fram- gengt að lokað yrði fyrir bandarísku sjón- varpsstöðina í Keflavík. Á seinni árum má kannski segja að aðferðirnar til áhrifa á þessum sviðum hafi breyst. í stað hinn- ar beinu íhlutunar hafa óbeinar og „já- kvæðar“ aðferðir meira verið notaðar. í því sambandi hefur Menningarstofnun Bandaríkjanna á íslandi verið sérstaklega mikilvæg. Enginn skyldi halda að það hafi ein- göngu verið áhugamál bandarískra stjórnvalda að umróta íslenskri menn- ingu og breyta hugsunarhætti íslendinga. Það var ríkt meðal þeirrar kynslóðar ís- lenskra stjórnmálamanna sem fór með völd á árunum eftir stríð að það væri nauðsynlegt stjórnmálalegt verkefni að breyta hugsunarhætti íslensku þjóðarinn- 128
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.