Réttur - 01.07.1984, Side 51
HL SALVADOR-NEFNDIN Á ÍSLANDI:
Tökum þátt í
stuðningsstarfi við alþýðu
Mið-Ameríku
Nú eru liðin um tvö og hálft ár frá því,
að E1 Salvador-nefndin á íslandi var
stofnuð, og hefur starf hennar verið fólg-
ið í fræðslu um þjóðfrelsisbaráttu alþýð-
unnar í Mið-Ameríku og pólitískum og
fjárhagslegum stuðningi við þá baráttu.
Til þess að kynna ástandið, hefur
nefndin m.a. haldið fræðslufundi, gefið út
bæklinga og blaðið E1 Salvador, sem
komið hefur úr þrisvar á ári.
Ásamt flokkum, verkalýðsfélögum og
félagasamtökum hefur verið boðið hing-
að fulltrúum þjóðfrelsisaflanna, FMLN/
FDR í E1 Salvador og fulltrúa Sandinista-
stjórnarinnar í Nicaragúa. Einnig hefur
nefndin stuðlað að því, að málefni Mið-
Ameríku væru tekin upp í starfi verka-
lýðshreyfingarinnar og á Alþingi.
Verkalýðsfélögin hafa samþykkt álykt-
anir, þar sem fordæmd er hernaðaríhlut-
un Bandaríkjastjórnar, morðið á Maria-
nellu Garcia Viílas og lýst er yfir sam-
stöðu með alþýðu E1 Salvador og annarra
landa Mið-Ameríku, jafnframt því sem
íslenska ríkisstjórnin er hvött til þess að
viðurkenna FMLN/FDR, sem réttmæta
fulltrúa salvadorsku þjóðarinnar.
Einnig hafa þau veitt fjárhagsstuðning
til FMLN/FDR og verkefnis á vegum
AMES, samtaka kvenna í E1 Salvador,
en þetta verkefni var fólgið í því að
styrkja rekstur saumastofu í Nicaragúa
þar sem flóttakonur frá E1 Salvador geta
skapað sér lífsviðurværi.
Um síðustu jól fjármögnuðu Kennara-
sambandið og Hið íslenska kennarafélag
söfnun til skólabarna á frelsuðu svæðun-
um í E1 Salvador.
Pannig hefur árangurinn orðið mun
meiri, en stærð nefndarinnar gefur tilefni
til og þrátt fyrir að enn vanti húsnæði og
fé til starfseminnar.
Þennan mikla árangur má fyrst og
fremst þakka góðum málstað og mjög já-
kvæðum undirtektum og samstarfi við
verkalýðsfélög, stjórnmálaflokka og fé-
lagasamtök.
Þó svo lítið fari fyrir fréttaflutningi af
þessum stríðshrjáða heimshluta, er langt
í frá að einhverjar meiriháttar breytingar
í þágu alþýðu manna hafi átt sér þar stað,
ef frá er talin uppbygging í Nicaragúa og
á frelsuðu svæðunum í E1 Salvador.
Nýafstaðnar forsetakosningar í E1 Sal-
163