Réttur - 01.07.1984, Page 52
dorbúa, sem dauðasveitirnar hafa myrt á
undanförnum árum.
Og þeir eru fleiri í æðstu stöðum.
Varnarmálaráðherrann, Casanova,
stendur jafn blóðugur upp fyrir haus.
Það er vel þekkt staðreynd, að dauða-
sveitirnar eru að hluta til fjármagnaðar af
innanríkisráðuneytinu og skilin milli
þeirra og stjórnarhers og þjóðvarðliða
eru hreint ekki svo augljós.
Það er því sorglega misheppnaður
áróður, þegar Duarte segist munu sækja
alla þá til saka, sem beri ábyrgð á morð-
um meira en 50.000 Salvadorbúa, ella
segja af sér embætti. Sama má segja um
vilja hans til samningaviðræðna við þjóð-
frelsisfylkinguna FMLN/FDR.
En sætsúra lygin hefur löngum verið
síðasta hálmstrá þeirra, sem brestur kjark
til að horfast í augu við raunveruleikann.
lilaðaljósmyndarinn John Hoagland, er vinnur in.a. fyrir Time og Newsweek, tekur niyndir af stjórnarhcrnum
að störfum. Síðar varð hann sjálfur fórnarlamb þessa hers.
vador, sem lauk með sigri Jose Napoleon
Duarte, breyta þar litlu.
Duarte var fyrst og fremst sú andlits-
lyfting, sem Bandaríkjastjórn þurfti
nauðsynlega á að halda til þess að tryggja
sér stuðning þingsins til áframhaldandi og
jafnframt gífurlega aukinnar hernaðarað-
stoðar við böðlana í E1 Salvador. Það
varð ekki lengur falið fyrir umheiminum
að major Roberto D’Aubuisson, mót-
frambjóðandi Duarte, forseti stjórnlaga-
þingsins og jafnframt sterkasti maðurinn
í síðustu stjórn, var og er einn aðalhöfuð-
paurinn að baki hinna illræmdu dauða-
sveita. Hann er sagður bera ábyrgð á
morðinu á Romero erkibiskupi, banda-
rísku nunnunum (sem talið er að hafi haft
undir höndum gögn, sem sönnuðu ábyrgð
D’Aubuisson á morðinu á Romero) svo
ekki sé minnst á þá tugi þúsunda Salva-
164