Réttur - 01.07.1984, Síða 61
Víetnam og öðrum svikum „nýju manda-
rínanna“ í Peking. En það er önnur saga.
Ekki hefur róttækni námsmanna í
Gautaborg brotist út aftur með svo mikil-
fenglegum hætti. Pó hefur hópur íslend-
inga ávallt starfað með sænska kommún-
istaflokknum KPML(r) — áður KFML(r)
— og tugir manns hafa gengið árlega í ís-
lenskri deild í 1. maí-göngu hans Röd
Front.
Af FÍNGON
Félag íslenskra námsmanna í Gauta-
borg og nágrenni, FÍNGON, var ekki
stofnað fyrr en haustið 1976. Var tilefnið
sú atlaga, sem þá var perð að kjörum
námsmanna, og stóð FINGON framar-
lega í námsmannabaráttunni á þeim tíma.
Félagið hefur einnig látið til sín taka í
andheimsvaldabaráttunni og sjálfstæðis-
málum þjóðarinnar. Þannig hefur það, —
auk aðgerðanna í vor, sem greint er frá
hér á öðrum stað í heftinu, — tvisvar
staðið að meiriháttar aðgerðum gegn
hernum og NATO.
30. mars 1979 var efnt til aðgerða í til-
efni 30 ára aðildar íslands að NATO. Var
mótmælastaða daglangt við aðalræðis-
mannsskrifstofuna og tóku í allt um 60
manns þátt í henni. Daginn eftir var svo
haldinn baráttufundur í Folkets Hus og
mættu þar hátt í 100 manns. Aðgerðun-
um lauk með styrktarsamkomu um
kvöldið. í ítarlegu dreifiriti frá aðgerðun-
um sagði m.a., að herstöðin og NATO-
aðildin væri ekki landinu til varnar og í
því sambandi bent á yfirgang NATO-ríkj-
anna Bretlands og Vestur-Pýskalands,
þegar landhelgin var færð út, en þá varð
ekki mikið úr landvörnum af hálfu
hersins. Pá segir enn fremur að ísland sé
hiuti af alþjóðlegu ofbeldiskerfi vestur-
veldanna, varðhundur þeirra í Norður-
Atlantshafi, og að herstöðin og NATO-
aðildin sé bakvörður auðskipulagsins á
íslandi, trygging peningavaldsins gegn
valdatöku verkalýðsins, borgararnir
treysti sér ekki til að verja arðránsað-
stöðu sína sjálfir. Þessu til stuðnings er
vitnað í Leyniskýrslurnar alræmdu, frá
viðræðum íslenskra og bandarískra
stjórnvalda, en þar eru höfð eftir Bjarna
Benediktssyni eftirfarandi kyndugheit:
„í Reykjavík eru 150 lögreglumenn, að
mestu leyti óvopnaðir. Pað þarf að efla
lögregluna, en til þess skortir fé. Petta er
vandamál, sem verður að leysa. Komm-
únistar geta tekið völdin í landinu hvenær
sem er. ísland verður að finna lausn á
þessu vandamáli.“
Þann 7. maí 1981 var aftur blásið til
baráttu, en þá voru 30 ár liðin frá því að
herinn kom til landsins öðru sinni. Voru
aðgerðirnar undirbúnar með syrpu um-
Mótmælaaðgerðir
30. mars 1979