Fréttablaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 16
MARKAÐURINN 4. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
„Bið eftir verðmati á bönkun-
um hefur mjög truflandi áhrif á
rekstur útflutningsfyrirtækja,“
segir Hörður Arnarson, forstjóri
Marel Food Systems.
Hann segir skort á verðmati
bankanna hafa verri áhrif en
gjaldeyrishöftin enda geti þeir
ekki veitt ábyrgð fyrir innflutn-
ingi á íhlutum og öðrum kaupum
að utan líkt og bankar geri við
eðlilegar aðstæður. Mikilvægt sé
að hraða verðmati á bönkunum
svo þeir geti tekið að starfa eðli-
lega á ný. „Þetta er grafalvarlegt
ástand. Við höfum beðið mjög
lengi eftir því
a ð b a n k a r n -
ir verði starf-
h æfi r á ný,“
segir Hörður.
Fjármála-
ráðuneytið
greindi frá því
í síðustu viku
að birting verð-
mats hefði dregist og endurskoð-
unarfyrirtækið Deloitte myndi
skila verðmati á bönkunum í
enda mánaðar og breska fjár-
málafyrirtækið Oliver Wyman
um miðjan næsta mánuð. - jab
HÖRÐUR
ARNARSON
Biðin er skaðleg
Ekki sitja uppi með óþarflega miklar vörubirgðir.
Flugfrakt er hagkvæmur og hraðvirkur flutningsmáti
sem gefur þér möguleika á að miða birgðastöðu
ævinlega við þörfina hverju sinni og draga þannig úr
óvissu og áhættu vegna gengis- og markaðsþróunar.
ENGIN ÓVISSA
MIKIL ÓVISSA
BEINT FRAKTFLUG – 24 ÁFANGASTAÐIR
Í EVRÓPU, BANDARÍKJUNUM OG KANADA.
WWW.ICELANDAIRCARGO.IS
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
53
12
0
2/
0
9
Ísland er gjaldþrota land, krónan
búin að vera, skuldir margföld
landsframleiðsla og fólk hamstrar
mat og peninga samtímis því sem
það sprengir upp Range Rover-
jeppana sína til að ná peningum
út úr tryggingafélögum.
Þetta eru inngangsorð úttekt-
ar á uppsveiflunni hér og hrun-
inu í fyrrahaust, og birtist í apríl-
hefti bandaríska tímaritsins Van-
ity Fair undir heitinu Wall Street í
freðmýrinni (e. Wall Street on the
Tundra).
Höfundurinn Michael Lewis
lýsir hruni íslenska efnahagslífs-
ins á gamansaman en gagnrýninn
hátt og ræðir við fjölda Íslendinga
og erlenda aðila um málið. Þar á
meðal er starfsmaður Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins sem undr-
ast hvernig vel menntuð þjóð gat
ratað í þær þrengingar sem hún
sitji nú í. Hann segir Ísland ekki
lengur land, heldur vogunarsjóð,
sem hafi stundað afar áhættu-
sama fjármálastarfsemi byggða
á aðgengi að ódýru lánsfé. Þjóð-
in hafi síðan lokað á alla þá sem
gagnrýndu uppganginn.
Lewis segir menn ekki hafa
velt vöngum lengi yfir fjárfest-
ingu sinni og bendir á yfirtöku
Kaupþings á Singer & Friedland-
er sem hófst árið 2003. Svip-
uðu máli hafi gegnt um kaup FL
Group á stórum hlut í bandarísku
flugrekstrarsamstæðunni AMR.
Þar hafi menn síðan reynt að
kenna Bandaríkjamönnum hvern-
ig eigi að reka flugfélag.
Helsta niðurstaða Lewis er sú að
karlar hafi stýrt landinu í þrot og
slegið á hendur kvenna sem vildu
draga úr áhættunni. Nú sé þeirra
tími runninn upp. jonab@markadurinn.is
Ísland ekki lengur land heldur sjóður
Michael Lewis er meðal þekktustu
viðskiptablaðamanna Bandaríkjanna
en á meðal verka hans er bókin
Liar’s Poker, sem segir sögu skulda-
bréfamiðlara á Wall Street á níunda
áratugnum og fjallar um Salomon
Brothers, sem var á meðal fremstu
fjárfestingabanka heims. Hann er í
dag deild innan bandaríska bankans
Citigroup.
M I C H A E L L E W S
Vika Frá ára mót um
Alfesca -13,8% -11,9%
Bakkavör 1,1% -25,3%
Eimskipafélagið -16,7% -40,0%
Icelandair -4,8% -8,3%
Marel 2,3% -34,3%
SPRON 0,0% 0,0%
Straumur 10,3% -13,4%
Össur -6,5% -11,8%
*Miðað við lokagengi í Kauphöll í gær.
Úrvalsvísitalan OMXI15 269
Úrvalsvísitalan OMXI6 820
Gunnar Thoroddsen, fyrrum for-
stjóri Landsbankans í Lúxem-
borg, hefur verið ráðinn forstjóri
endurreisnarsjóðs sem Straumur-
Burðarás tilkynnti um stofnun á í
nóvemberlok í fyrra.
Sjóðurinn, sem hafði vinnuheitið
Phoenix en er nú nefndur ICM –
Iceland Capital Management,
er sjálfstæð eining með eigið
starfsfólk, þótt hvatinn að stofn-
un hans hafi komið frá Straumi.
Á uppgjörsfundi bankans í nóv-
ember upplýsti William Fall, for-
stjóri bankans, að stefnt væri að
skráningu hans á markað. Leggja
átti sjóðnum til 40 milljónir evra
í fyrstu skrefum, en að aðrir
fjárfestar legðu til allt að 500
milljónir evra.
„Íslensk fyrirtæki eru almennt
vel rekin. Eftir hremmingar sem
eru að ganga yfir vantar þau að-
gang að hlutafé,“ sagði William
Fall og kvað sjóðinn koma þar til
sögu. - óká
Úr Landsbankanum
í endurreisnina
MÓTMÆLI VIÐ AUSTURVÖLL Einn
af þekktustu viðskiptarithöfundum
Bandaríkjanna segir íslenska karla hafa
stýrt uppbyggingu fjármálageirans af fífl-
dirfsku og vankunnáttu. MARKAÐURINN/VALLIÍ LÚXEMBORG Myndin er tekin við höfuð-
stöðvar Landsbankans í Lúxemborg, en
bankinn þar fór í greiðslustöðvun í október
og óskaði svo í byrjun desember eftir
gjaldþrotaskiptum.
„Þetta eru vonbrigði enda fínar
eignir sem við misstum vegna
aðstæðna og vantrausts á mark-
aði,“ segir Guðmundur Ólason,
forstjóri Milestone.
Í gær var skrifað upp á samn-
ing um sölu á skaðatryggingafé-
laginu Moderna Forsäkringar og
sjóðstýringarfyrirtækinu Aktie-
Ansvar auk þess sem
stefnt er að því að selja
líftryggingafélagið
Moderna Liv og bank-
ann Banque Invik.
Félögin heyrðu öll
undir sænska fjár-
málafyrirtækið
Moderna, dótturfélag Milestone.
Á móti kaupir Milestone íslensk-
ar eignir sínar aftur, Sjóvá, Askar
Capital og Avant, sem sænska fjár-
málaeftirlitið hafði tekið yfir.
Salan er gerð í samráði við skila-
nefnd Glitnis sem er stærsti lánar-
drottinn Milestone.
Guðmundur segir vonbrigðin
ekki síst felast í því að með söl-
unni sé horfið frá áformum um
fjárhagslega endurskipulagningu
Moderna, sem unnið hafi verið að
sleitulaust frá í október auk þess
sem nær ekkert hafi fengist
fyrir þær vegna arfaslakra
markaðsaðstæðna. - jab
Eignir Milestone heim
GUÐMUNDUR
ÓLASON