Fréttablaðið - 04.03.2009, Page 29

Fréttablaðið - 04.03.2009, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 4. mars 2009 íslenska fl okkakerfi ð Gunnar Karlsson ritaði athygl-isverða grein um lýðræðið í Eldhúsdag fyrir viku og tók þar til varna fyrir margt í okkar kerfi. Þó að ég sé sammála ýmsu sem Gunnar segir um ágæti full- trúalýðræðisins langar mig að gera athugasemd við hugmynd- ir hans um flokksræðið sem er tvímælalaust mikill áhrifavald- ur um ógöngur okkar Íslendinga í dag. Innan gömlu flokkanna er því á tyllidögum haldið fram að flokkarnir sjálfir séu lýðræðis- legar stofnanir enda geti hver sem er tekið þátt í starfi þeirra. Staðreyndin er aftur á móti sú aðeins prósentubrot kjósenda tekur raunverulegan þátt í starfi stjórnmálaflokka og þeir sem reynt hafa vita að ótrúleg hend- ing, baktjaldamakk og hrossa- kaup ráða niðurstöðum stofnana flokkanna. Þetta á jafnt við um þá alla. Stjórnmálaflokkanna er í engu getið í stjórnskipan Íslands og þar er gert ráð fyrir að alþingis- menn séu engu háðir nema sam- visku sinni og standi kjósendum einum reikniskil gerða sinna. Staðreyndin er allt önnur. Stjórn- málamenn eru með fáeinum und- antekningum í starfi hjá sínum flokkum og þurfa raunar ekki að hafa áhyggjur af því að þeir séu að gera eitthvað rangt, þeir geta stutt sig við flokkinn. Þeir eru að spila í liði, hluti af heild og beygja sig undir „lýðræðislega“ ákvörð- un flokksins. Um leið er hið raunverulega lýðræði fótumtroðið þar sem fólk kýs sér fulltrúa til þingsetu sem það treystir. Þegar svo sömu full- trúar eru frjálsir frá eigin sam- visku og eigin sannfæringu er sú kosning til lítils. Gott dæmi um þetta flokksræði er umræða vetrarins um að bæði Framsókn- arflokkur og Sjálfstæðisflokkur breyti ESB afstöðu þingmanna sinna með flokksþingum. Þar með breyta flokkarnir í raun og veru niðurstöðu kosninganna þar sem tiltekinn fjöldi ESB andstæð- inga var kosinn til þings en flokk- arnir geta fækkað þeim svo um munar! Annað dæmi um flokksræðið er þegar tveir menn, Jón Bald- vin Hannibalsson og Davíð Odds- son, sömdu um það á fundi úti í Viðey að Ísland tæki þátt í EES. Ákvörðun sem hefur orðið þjóð- arbúinu dýrkeypt. Eftir Viðeyj- arfundinn var aðkoma Alþingis að EES ákvörðuninni meira sku- espil heldur en raunveruleg mál- stofa valdastofnunar. Flokksræðið er einnig stór þáttur í óförum okkar þjóðarbús í dag þegar kemur að gagnrýn- inni hugsun á Alþingi Íslendinga. Í stað þess að alþingismenn starfi eftir samvisku sinni og beiti sér til að komast að niðurstöðum um flókin mál er þeirra hlutverk að rugga ekki viðkvæmum bát vin- sælda og tískustrauma. Þess- vegna var það illa séð að nokk- ur þingmaður væri að agnúast út í útrásarvíkingana sem voru, eins og Gunnar Karlsson bend- ir á, vinsælir meðal þjóðarinnar. Þingmenn sem vinna hjá stjórn- málaflokkum verða að læra að haga sér. En þjóðin hefur í raun og veru ekkert við þannig þing- menn að gera. Lýðræði og flokksræði BJARNI HARÐARSON bóksali Þessa dagana keppast ýmsir við að kenna Sjálfstæðisflokkn- um um allt það sem miður hefur farið í efnahagsmálum þjóðar- innar. Hvað sem tautar og raular þá fullyrða andstæðingar flokks- ins að fall íslenska bankakerfis- ins sé bein afleiðing nærri 18 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins og hinnar óskilgreindu, svokölluðu „nýfrjálshyggju“. Vissulega var ýmislegt sem betur hefði mátt fara hjá stjórn- völdum, í stjórnkerfinu, hjá bönk- unum og í útrásinni. Það er ekki hægt að þræta um niðurstöð- una, hún liggur fyrir. Hins vegar breytir það engu um að það var alþjóðleg fjármálakreppa sem átti hér stærstan hlut að máli. Þar af leiðandi hefur rúmlega tíu ára valdaseta jafnaðarmanna í Bretlandi kallað yfir Breta slíkar hörmungar og tjón að þessi vold- uga þjóð rambar nú á barmi gjald- þrots eftir að hafa þjóðnýtt stóran hluta þarlends bankakerfis. En lítum okkur nær. Í Hafnar- firði, eina fjölmenna bæjarfélagi landsins þar sem Samfylkingin er í meirihluta, hefur fjármála- stjórnin hreint ekki verið til fyrir- myndar. Raunar er fjárhagsstaða Hafnarfjarðar áberandi verst af öllum sveitarfélögum á höfuð- borgarsvæðinu. Núverandi meirihluti olli atvinnuástandi í bænum óbæt- anlegu tjóni þegar hann, eftir að hafa samið við Alcan um stækk- un álversins í Hafnarfirði, þorði ekki að mæla með samningnum við kjósendur. Sama afstöðuleysi varð til þess að bærinn klúðraði sölu á eignarhluta sínum í Hita- veitu Suðurnesja, þegar Orkuveita Reykjavíkur kom með sannkallað ofurtilboð á hápunkti alþjóðlegu efnahagsbólunnar sumarið 2007. Lausafjárvandræði og lántaka bæjarsjóðs á okurvöxtum með veði í húsnæði bæjarins segir meira en mörg orð um stöðuna. Eftir sex ár í meirihluta og mikla og illa ígrundaða framkvæmda- gleði hefur Samfylkingin líklega náð að setja heimsmet í skulda- aukningu. Því trúði ég vart mínum eigin eyrum þegar Lúðvík Geirs- son bæjarstjóri útskýrði á bæj- arstjórnarfundi nýlega að slæm fjárhagsstaða og skuldasöfnun Hafnarfjarðarbæjar væri frjáls- hyggjustefnu Sjálfstæðisflokksins í landsmálum að kenna. Eyðilagði frjálshyggjan Bretland og Hafnarfjörð? Efnahagshrunið RÓSA GUÐBJARTSDÓTTIR bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í Hafnarfirði og vara- þingmaður Stjórnmálamenn eru með fáeinum undantekningum í starfi hjá sínum flokkum og þurfa raunar ekki að hafa áhyggjur af því að þeir séu að gera eitthvað rangt, þeir geta stutt sig við flokkinn. EINN AF RAFTÆKJUM SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF! 30% afsláttur af öllum Nettoline innréttingum í 3 vikur OPIÐ www.friform.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.