Fréttablaðið - 04.03.2009, Page 32

Fréttablaðið - 04.03.2009, Page 32
MARKAÐURINN 4. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR6 S K O Ð U N Sögurnar... tölurnar... fólkið... ÚT GÁFU FÉ LAG: 365 miðlar ehf. RIT STJÓRI: Óli Kr. Ármannsson, olikr@markadurinn.is RITSTJÓRN: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, jonab@markadurinn.is AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal RIT STJÓRN OG AUGLÝSING AR: Skaftahlíð 24, 105 Reykja vík AÐ AL SÍMI: 512 5000 SÍMBRÉF: 512 5301 NETFÖNG: rit stjorn@markadurinn.is og aug lys ing ar@markadur- inn.is VEFFANG: visir.is UM BROT: 365 miðlar ehf. PRENT VINNSLA: Ísa fold arprent smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeyp is með Fréttablaðinu Markaðurinn áskil ur sér rétt til að birta allt efni blaðs ins í staf rænu formi og í gagna bönk um án end ur gjalds. Til að búa til harða og endingar- góða steypu þarf að blanda saman vatni, sementi og sandi með við- eigandi hætti. Sé samsetning efn- anna röng eða gæði þeirra léleg uppfyllir steypan ekki þær kröf- ur sem til hennar eru gerðar. Sömu lögmál eiga við um lands- framleiðsluna – gæði og magn fer eftir aðföngum og samsetningu þeirra. Efnahagsumhverfið og ramminn um atvinnulífið skipt- ir einnig sköpum. Efnahagslíf okkar hefur orðið fyrir miklu áfalli. Mikilvægi þess að fjalla um undirstöður vaxtar og verðmætasköpunar er ótvírætt. Þekking og skilningur á gangi efnahagslífsins hefur vaxið jafnt og þétt allt frá því að hagfræðin varð til sem nútímafræðigrein á 18. öld. Líklega hefur ekkert svið hagfræðinnar verið jafn ítarlega rannsakað og hagvöxtur, upp- spretta hans og forsendur. Hrá- efnin í landsframleiðsluna eru vel þekkt – mannafl, fjármagn og náttúruauðlindir. Efnahags- umhverfið sem framleiðslan fer fram í ræður miklu sem og leik- reglur samfélagsins og hvatar til tækniþróunar og hagræðingar. En rétt eins og með steypuna þarf að blanda hráefnunum í landsfram- leiðsluna saman á sem bestan hátt. Í því felst mikil áskorun og möguleikar til að ná árangri eru endalausir. UNDIRSTAÐA LÍFSKJARA Samanlagt virði vöru og þjónustu sem framleidd eru í landinu á einu ári kallast landsframleiðsla og hagvöxtur er hlutfallsleg breyt- ing hennar milli ára að teknu til- liti til verðlagsbreytinga. Hag- vöxtur byggir á aukinni notkun framleiðsluþátta á borð við vinnu- afl, fjármagn og náttúruauðlind- ir eða betri nýtingu á þeim – öðru nafni framleiðni. Efnahagsleg vel- megun byggist á framleiðslu og þar með neyslustiginu. Landsframleiðsla og fjármuna- eign er takmarkaður mælikvarði á lífsgæði sem verða ekki metin út frá veraldlegum gæðum einum saman. Hins vegar er landsfram- leiðslan mælikvarði á getu samfé- lagsins til að framleiða lífsgæði á borð við heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu og öryggi. Í löndum þar sem landsframleiðsla á mann er hæst eru lífsgæði líka há. Framleiðni gegnir lykilhlut- verki í framþróun atvinnulífsins. Framleiðni er yfirleitt mæld sem hlutfallið milli verðmætis fram- leiðslunnar og verðmæta aðfanga til framleiðslunnar. Þannig mælir framleiðni hversu skilvirk fram- leiðslan er og hvernig vinnuafl og fjármagn nýtist til verðmæta- sköpunar. Framleiðniaukning er grunnforsenda hagvaxtar. Fram- leiðni fer síðan eftir mannauði samfélagsins, fjármagnsstofni, tækniþekkingu, náttúruauðlind- um og stofnanaumgjörð hagkerfis- ins. Nóbelsverðlaunahafinn í hag- fræði 2008, Paul Krugman, orðaði þetta skemmtilega: „Framleiðni er ekki allt, en til langs tíma litið er framleiðni næstum allt. Geta samfélagsins til auka lífsgæði yfir lengri tímabil eru að langmestu leyti byggð á getu þess að auka framleiðni hvers starfsmanns.“ MIKILVÆGUSTU HAGSMUNIRNIR Íslenskur iðnaður skapar um fjórðung allra verðmæta sem framleidd eru í landinu á hverju ári. Um fimmtungur vinnuaflsins starfar í ólíkum greinum iðnað- arins og útflutningur á iðnvarn- ingi skapar næstum helming af útflutningstekjum þjóðarinnar. Í þeim umbrotum sem framund- an eru í efnahagslífi þjóðarinnar mun framlag iðnaðarins skipta miklu máli. Iðnaðurinn sam- anstendur af fjölbreyttri flóru fyrirtækja í ólíkum atvinnu- greinum. Þrátt fyrir að vera inn- byrðis ólík er þó fleira sem teng- ir þau saman en greinir þau að. Hagsmunir í mikilvægustu mála- flokkum er snúa að starfsskilyrð- um iðnaðarins eru í öllum megin- atriðum þau hin sömu. Íslenskur iðnaður hefur alla burði til vaxtar og framfara og í honum er mikill aflvaki aukinn- ar velmegunar í landinu. Við þær aðstæður sem nú eru uppi er hins vegar mikilvægt að horfa hvar stærstu hagsmunirnir liggja. Ef eingöngu er horft til fjölda fyrir- tækja og starfsmanna þeirra er ekki síður mikilvægt að standa vörð um mannaflsfrekustu iðn- greinarnar. Þegar mest var störf- uðu um 16.000 manns í mann- virkjagerð. Tölur um atvinnuleysi í greininni, frosthörkur á fast- eignamarkaði og deyfð í opinber- um framkvæmdum vekja ugg. Í ljósi stærðar greinarinnar og hins mikla fjölda manna sem í henni starfar verða aðgerðir til stuðn- ings atvinnulífinu sérstaklega að mannaflsfrekum iðngreinum. At- vinnuleysi er líka afar kostnaðar- samt. Frá samfélagslegum sjónar- hóli er afar óhagkvæmt að borga fólki fyrir að gera ekki neitt í gegnum atvinnuleysisbætur. Ein afleiðing aðgerðaleysis getur orðið stóraukin ásókn í svarta atvinnustarfsemi með tekjutapi fyrir ríkissjóð og öðrum alvarleg- um afleiðingum. HVATAR ERU NAUÐSYNLEGIR Ein af lykilforsendum vaxtar og verðmætasköpunar í framtíð- inni er fjárfesting í nýrri tækni og nýjum atvinnutækifærum. Í nánustu framtíð mun draga úr erlendum lántökum þjóðarinnar og því mun innlendur sparnaður í auknum mæli þurfa að standa undir fjárfestingum. Fall bank- anna og hrun á verðbréfamörkuð- um hefur dregið úr tiltrú fólks á gildi þess að taka áhættu og fjár- festa í atvinnulífinu. Ein af for- sendum þess að hægt sé byggja upp sterkt atvinnulíf er að skapa hvata fyrir fjárfestingu í at- vinnulífinu. Ekki er síður mikil- vægt að laða til landsins erlenda aðila sem komið geta að fjárfest- ingum í atvinnulífinu. Leiða má að því líkur að óstöðugur efna- hagur, gengissveiflur og verð- bólga hafi dregið úr áhuga á fjár- festingum hér á landi. Stöðugt efnahagsumhverfi er því ein af forsendum vaxtar og verðmæta- sköpunar sem er viðfangsefni Iðnþings 2009 sem fram fer á morgun. Þannig má tryggja við- unandi styrk og endingu steyp- unnar sem hagkerfið þarf að byggjast á í framtíðinni. BYGGINGARVINNA Greinarhöfundur fjallar um forsendur vaxtar og verðmætasköpunar í framtíðinni og bendir á að í þeim efnum skipti sköpum aðföng, efnahagsumhverfi og ramminn um atvinnulífið. MARKAÐURINN/VILHELM Aukin framleiðni er forsendan RV UN IQ UE 0 10 90 3 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Lengri opnun artími í verslu n RV Opið m án. til f ös. frá 8.00 ti l 19.00 Lauga rdaga frá 10. 00 til 1 7.00 Rekstrarvörur - fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili, sem vilja spara og hagræða! S&P 500 stendur fyrir Standard & Poor´s vísitöluna amerísku. Hún er hlutabréfavísitala sem reiknuð er út frá grunni 500 félaga sem eru skráð í kauphöllun- um í New York og á Nasdaq National Market. Vísi- talan er reiknuð þannig að hvert fyrirtæki í grunni hennar fær vægi í hlutfalli við markaðsvirði. Vísitalan náði um áramót svipuðum lægðum og í kreppunni miklu á þriðja og fjórða áratug síð- ustu aldar. Í Standard og Poor‘s vísitölunni er að vinna óslit- in markaðsgögn allt frá árinu 1825. Því er ekki að undra að gripið sé til vísitölunnar í sögulegum sam- anburði. Í áramótablaði Markaðarins var fjallað um S&P vísitöluna, en þar kom fram að af þeim 183 árum sem mælingin nær til hafi árssveiflan í flestum tilvikum verið hækkun upp á núll til 10 prósent, eða í 45 ár. Þar á eftir kemur hækkun á bilinu tíu til tuttugu prósent, en sú hafi verið raun- in 36 ár tímabilsins. Lækkun frá núlli og í tíu pró- sent hafi svo orðið 29 ár af tímanum. Frá 1825 hafa markaðir hækkað oftar en þeir hafa lækkað, í 129 skipti á móti 55 lækkunarárum. O R Ð S K Ý R I N G I N S&P 500 Í KAUPHÖLLINNI Í NEW YORK Í BANDARÍKJUNUM Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. O R Ð Í B E L G Finnar gengu í gegnum djúpa efnahagskreppu í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar og lentu líka í hruni fjármálakerfis síns. Landið stendur um margt sterkara á eftir, en leiðin í batann var þyrnum stráð. Þar var ekki gripið nógu fljótt til aðgerða til stuðnings heimilum og fyrirtækjum, Finnar fóru í stjórnarskipti eftir hrunið og lentu í miklu og langvinnu atvinnuleysi sem enn er að baka þeim vandræði nærri tuttugu árum síðar. Hér virðumst við ófær um að læra af reynslu þeirra og virðumst ætla að stíga í sömu pollana á leiðinni til endur- reisnarinnar. Með breyttum áherslum í atvinnumálum og framlögum til rannsókna og þróunar og með inngöngu í Evrópska efnahagssvæð- ið er landið nú um margt í öfundsverðri stöðu. Svipaða sögu er að segja af Svíum sem lentu í bankakreppu á tíunda áratugnum en stigu kannski í heldur færri polla en Finnar. Í báðum löndum þurfti að reisa við hrunið bankakerfi. Því þarf ekki að undra þótt við gerum okkur vonir um að geta nýtt reynsluna sem til varð á þessum árum. Í febrúarbyrjun var kynnt skýrsla sænska bankasérfræðingsins Mats Jos efsson þar sem lögð var til „sænska leiðin“ í að endurskipuleggja bankana, þar með að setja „erfiðar“ eignir nýju bankanna yfir í sérstakt eignaumsýslu- félag þar sem hægt væri að lágmarka afföll á lengri tíma, meðan nýju bank- arnir fengju ráðrúm til að einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni og stuðningi við lífvænlegri fyrirtæki og almenning í landinu. Mánuði fyrr var Göran Persson, fyrr- verandi forsætisráðherra Svíþjóðar, hér á ferð og sagði að við myndum komast í gegnum kreppuna þótt það yrði erf- itt. Hann sagði mikilvægt að grípa strax til viðeigandi aðgerða, jafnvel þótt þær kynnu að verða óvinsælar. Því skýtur skökku við að þegar í nóv- ember skuli hafa legið fyrir mörg af þeim málum sem þegar þurfti að taka afstöðu til á vettvangi stjórn- málanna, svo sem um stofnun eignastýringarfyrirtækis og hluthafa- og eignarhaldsstefnu ríkisins. Þetta upplýsir Jónas Fr. Jónsson, fyrr- um forstjóri Fjármálaeftirlitsins, í viðtali við Markaðinn í dag, en hann lítur yfir farinn veg í tilefni af starfslokum hans hjá FME núna um mánaðamótin. Merkilegt er að heyra lýsingu Jónasar á því hvernig dró úr samstöðu þeirri og eindrægni sem einkennt hafi fyrsta áfanga björgunarstarfs- ins þegar kom fram í nóvembermánuð. Hann lýsir því hvernig stjórn- málamenn hafi leitað sökudólga til að beina athygli og óánægju frá sjálfum sér. „Umræðan varð mjög neikvæð, sem svo aftur hafði lam- andi áhrif út í stjórnsýsluna og nýju bankana,“ segir hann og bend- ir réttilega á að ekki megi bíða lengur með aðgerðir. Blessunarlega eru vísbendingar um að verið sé að ýta úr vör einhverjum þeim verk- efnum sem nauðsynleg eru, en blóðugt að hugsa til þess að þrír mán- uðir kunni að hafa farið til spillis. Fólk og fyrirtæki sem í örvænt- ingu reynir að halda sér á floti í efnahagskreppunni hefur ekki efni á þriggja mánaða bið. Tími er kominn til að horfast í augu við að kreppan er ekki séríslenskt fyrirbæri með séríslenskum sökudólgum. Við vorum veik fyrir í lok þenslutíma með ónýtan gjaldmiðil og ójafnvægi í stærð fjármálakerfis í hlutfalli við aðrar þjóðhagsstærðir þegar á brast með efnahagslegu fárviðri í heiminum sem á sér fáa sína líka. Nú þarf að byggja upp. Ef til vill þurfum við að stíga í alla sömu polla og Finnar gerðu í efnahagskreppunni þar. Er hægt að læra af mistökum annarra? Óli Kristján Ármannsson Mánuði fyrr var Göran Persson, fyrr- verandi forsætisráð- herra Svíþjóðar, hér á ferð og sagði að við myndum komast í gegnum kreppuna þótt það yrði erfitt. Hann sagði mik- ilvægt að grípa strax til viðeigandi aðgerða, jafnvel þótt þær kynnu að verða óvinsælar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.