Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.2006, Blaðsíða 1
Laugardagur 11.3. | 2006
[ ]Tvítyngi | Helstu kenningar um tvítyngi og blendingsmál | 6Stúdentspróf | Enn er tekist á um hvort stytta eigi nám til stúdentsprófs | 8Woody Allen | Heillum horfinn í nýjustu mynd sinni | 12
Lesbók Morgunblaðsins
V
ið virðumst sífellt eiga í
vandræðum með að svara
stóru spurningunum, ef-
inn fylgir okkur eins og
skuggi. Til hvers lifum við
og til hvers yrkjum við:
látum það kannski vera
núna, en til hvers lesum
við? Til að láta tímann líða, vissulega, en það er
annað og svo miklu meira, og liggur dýpra.
Skáldskapur er merkileg blanda af fegurð og
feigð, grimmd og kvíða, visku og barnaskap,
en hann er líka órökvís, og það er einmitt þess
vegna sem hann getur orkað undarlega sterkt
á okkur, sér í lagi ljóðið, and-
blær þess smýgur inn og
andar á það sem sefur í djúp-
inu. Og ljóðið getur hjálpað
okkur, til dæmis þegar möguleikum lífsins
virðist fækka, birtan hefur dofnað, við fálmum
kannski inn í runnaþykkni eftir ljóskúlu sem
hefur verið falin annars staðar; þá getur ljóðið
komið til hjálpar, með órökvísri, djúpri og
stundum barnalegri visku sinni; hjálpað okkur
til að sjá eða gruna að kuldinn er hugsanlega
bara yfirborðið:
Kuldinn er bara yfirborð
Sölnað mýrgresið í frostinu
stökkt einsog kartöflusnakk
og molnar sundur undir fæti
þar sem ég geng meðfram
tærum og kliðandi læknum
sem er mjór á við silfurband
milli skara, sítrónugul túnin
handan við vírgirðinguna,
steinbrúin gamla og hvíta
húsið með dimmum gluggum
Allt verður þetta að einhverju
sem ég vissi varla að væri til
á veturna, þegar möguleikum
lífsins fækkar
Gyrðir Elíasson verður 45 ára á þessu ári,
hann hefur sent frá sér tólf ljóðabækur, ellefu
prósabækur, eitt greinasafn og þýtt fjórtán
bækur, hárið hans er líka tekið að grána og
hann notar gleraugu við lestur. Ég sá hann
fyrst í Ríkinu við Lindargötu fyrir tæpum
tuttugu árum, hann studdi sig þar við vegg og
hló innilega að einhverju sem sagt var við Morgunblaðið/Einar Falur
Á svörtum
vængjum inn í ljósið
Um vasabiljard,
kvíða og ljóð
Gyrðis Elíassonar
Gyrðir Elíasson verður 45 ára á þessu ári,
hann hefur sent frá sér tólf ljóðabækur, ell-
efu prósabækur, eitt greinasafn og þýtt fjór-
tán bækur. Hér skoðar skáld farveg annars
skálds af virðingu og væntumþykju.
Eftir Jón Kalman
Stefánsson
3