Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.2006, Blaðsíða 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 11. mars 2006 | 3
T
ilefni þessarar greinar, fyrir
utan tímamótin, er að rifja ör-
stutt upp fyrstu kynni Íslend-
inga af þessum mikla lista-
manni og ekki síður kynni
hans af Íslendingum og tengsl
hans við tónlistarlífið hér.
Erling Blöndal Bengtsson fæddist í
Kaupmannahöfn 8. mars árið 1932, sonur
hjónanna Sigríðar Nielsen frá Ísafirði og
danska fiðluleikarans Valdemars Bengts-
sons. Lesa má í dönskum blöðum frá fjórða
áratug tuttugustu aldar að drengurinn vakti
snemma athygli vegna afburðahæfileika í
tónlist. Faðir hans gaf honum litla fiðlu er
hann var þriggja ára, en
sagði síðar að hann hefði
alltaf leikið á fiðluna sem
hún væri selló. Í framhaldi
af því útbjó faðir hans víólu
sem selló. Rúmlega fjögurra ára gamall
kom Erling Blöndal fyrst fram opinberlega
í Kaupmannahöfn, á jólatónleikum blaðsins
Politiken, og má lesa í því blaði 25. nóv-
ember árið 1936: „Erling, sem er á fimmta
ári, er blátt áfram undrabarn.“ Hann kom
fyrst opinberlega fram með hljómsveit í Tí-
volí 10 ára gamall. Gamall læknir sem
staddur var á tónleikunum hreifst svo af
leik hans að hann færði honum selló.
Alla tíð, frá þessari fyrstu stundu, hefur
Erling Blöndal Bengtsson heillað áheyr-
endur með leik sínum, nú í heila lista-
mannsævi, sem enn er sem blómstrandi
vorgróður.
Árið 1946, seinni hluta aprílmánaðar, kom
farþega- og flutningaskipið Esja til Reykja-
víkur frá Danmörku. Meðal farþega um
borð var fjölskyldan Bengtsson, faðirinn
Valdemar, móðirin Sigríður og sonurinn Er-
ling, sem var að koma til að halda sína
fyrstu tónleika hér á landi. Á fyrstu tónleik-
unum, sem haldnir voru í Gamla bíói 7. maí
árið 1946, lék Erling sellókonsertinn í D-
dúr eftir Haydn, Rokokó-tilbrigðin eftir
Tsjaikovskíj, auk nokkurra minni verka.
Meðleikari hans á þessum tónleikum var dr.
Victor Urbancic sem lék auk þess píanósón-
ötu í A-dúr op. 120 eftir Schubert. Það átti
vel við að dr. Heinz Edelstein, hinn frábæri
sellóleikari sem íslenskt tónlistarlíf fékk að
njóta alltof stutt, skrifaði um tónleikana.
Hann sagð m.a. í gagnrýni sinni sem birtist
í Mbl. 9. maí 1946: „Sannarlega eru hæfi-
leikar hans og kunnátta undrunarefni, meir:
rjettnefnd undur. Hittni vinstri handar sem
aldrei skeikar; leikni bogans, sem leysir
þyngstu þrautirnar; hnitmiðun og ná-
kvæmni allra hreyfinganna; fyrirhafn-
arleysið, sem gerir starf cellistans, er hætt-
ir svo oft til að verða svitakennd erfiðis-
vinna, að ljettum leik.“ Íslendingar tóku
þessum upprennandi snillingi opnum örm-
um. Erling hélt víðar tónleika; í Hafn-
arfirði, á Ísafirði og á Akureyri.
Árið áður, eða í ágúst 1945, hafði hinn
heimsfrægi fiðluleikari Adolph Busch komið
til Íslands til að halda tónleika. Óx úr þeirri
heimsókn náin vinátta hans og Ragnars
Jónssonar sem kenndur var við Smára.
Ragnar var þarna í blóma sem drifkraftur
Tónlistarfélagsins í þríeykinu sem í voru
hann, Björn Jónsson og Ólafur Þorgríms-
son. Hafa þeir án efa rætt þá möguleika
sem íslenskum afburðahljóðfæraleikurum
buðust í Ameríku til tónlistarnáms, en Evr-
ópa var á þessum tíma í rúst út af stríðinu.
Að loknum fyrstu tónleikum Erlings Blön-
dals í Gamla bíói, þar sem móðir hans sat á
svölunum og horfði niður til sonar síns leika
á sama sviði og hún hafði svo oft áður gert
sem píanóleikari við þöglu myndirnar þegar
Bíó-Petersen var forstjóri þar, var fjöl-
skyldunni boðið til kvöldverðar á Hótel
Borg. Við borðið sátu Erling, foreldrar
hans og þríeykið úr Tónlistarfélaginu. Er-
ling hefur lýst þessum atburði fyrir mér á
eftirfarandi hátt:
„Eftir tónleikana var lítið matarboð á
Hótel Borg. Undir súpunni gengu þeir þrír
fram, Ólafur, Ragnar og Björn. Svo komu
þeir aftur. Svo undir eftirréttinum reis
Ragnar upp og tilkynnti: Við viljum gjarnan
kosta nám Erlings í Ameríku í tvö ár. Ég
held að foreldrar mínir hafi ekki sofið mikið
þá nótt. Það var eins og ævintýri.“
Ári síðar, eða 1947, mátti lesa á forsíðu
Morgunblaðsins 3. júní: „Erling Bl. Bengts-
son celloleikari kominn.“ Þessi boð voru
tónlistarunnendum ekkert síðri en boð um
vorfuglana. Enda var tónlistarveisla fram-
undan. Baksíða sama blaðs sagði frá að
kvartett Adolph Busch væri kominn. Auk
þeirra komu fleiri þekktir erlendir hljóð-
færaleikarar til landsins þessa daga.
Ástæðan var mikil Beethovenhátíð sem
haldin var í tilefni af hundrað og fimmtug-
ustu ártíð tónskáldsins, og 15 ára afmæli
Tónlistarfélagsins, sem þá, eins og oft fyrr
og síðar, stóð fyrir herlegheitunum. Til að
gera sér grein fyrir því hverjir þarna voru
á ferð má nefna auk Busch fiðluleikara
Hugo Gottesmann, víóluleikara frá Vín,
Ernst Drucker, þýskan fiðlusnilling sem 10
árum áður hafði haldið nokkra tónleika á
Íslandi, Hermann Busch, bróður Adolphs,
einn fremstur sellóleikara heims á þeim
tíma, Reginald Kell, einn þekktasta klarín-
ettuleikara samtímans, Gwydion Brooke,
einn fremsta fagottleikara Breta á þeim
tíma, auk fleiri. Erling Blöndal hefur rifjað
þetta upp fyrir mér í viðtali:
„Það var árið 1947. Þá kom Adolph
Busch-kvartettinn hingað. Og í þeim kvart-
ett spilaði jú Hermann Busch, bróðir
Adolphs Busch, á sellóið. Það var Beetho-
ven-hátíð sem Ragnar Jónsson hafði skipu-
lagt. Hún fór þá fram í Austurbæjarbíói
sem enn var ekki fullklárað. Þá voru engir
stólar komnir í húsið, en menn höfðu fengið
lánaða klappstóla einhvers staðar frá og
fylltu Austurbæjarbíó af fólki. Það voru sex
tónleikar með öllum strengjakvartettum
Beethovens leiknir af Adolph Busch-
kvartettinum. Það var alveg stórkostlegt og
fólk trúir því vart þegar ég segi frá því að
þetta hafi gerst á Íslandi 1947. Þetta hafði
mikil áhrif á mig. Svo voru það kamm-
ertónleikar sem Busch kom á með kamm-
erhljómsveit með tónlistarmönnum sem
voru hér til staðar [en þeir voru auk kvart-
etts Busch: Björn Ólafsson, Þorvaldur
Steingrímsson, Indriði Bogason, Einar
Waage, dr. Edelstein, dr. Urbancic og Er-
ling Blöndal]. Við lékum Brandenborg-
arkonserta Bachs, Sinfóníu e. Mozart þar
sem Busch stjórnaði. Ég man eftir selló-
hópnum sem lék í Brandenborgarkonsert-
inum en það voru Herman Busch, Edel-
stein, sem var sellókennarinn hér á landi,
og ég. Það var skemmtilegt. Busch stjórn-
aði svo öllu.“
En heimsókn Erlings var ekki eingöngu
til að taka þátt í Beethovenhátíðinni, hann
hélt einnig sjálfstæða tónleika í Trípólíbíói,
og nú enn aftur með Urbancic. Ljóst er að
tíminn var vel notaður til að undirbúa hinn
unga mann undir námsdvöl í Bandaríkj-
unum. Það má kannski til gamans geta þess
í tengslum við þessa hátíð að líklega er
þetta í eina skiptið í sögunni þar sem þrjú
Stradivarius-hljóðfæri heimsþekktra lista-
manna hafa verið komin saman á Íslandi í
senn. Busch og Drucker léku báðir á Stra-
divarius-fiðlur og Hermann Busch lék á
Stradivarius-selló, sem talið var annað af
tveimur bestu sellóum í heiminum á þeim
tíma. Hitt átti Pablo Casals. Ekki munaði
miklu að það hljóðfæri kæmi einnig hingað
til Íslands, en Ragnar Jónsson hafði verið í
sambandi við Casals um að koma og halda
hér tónleika, en þá var listamaðurinn orð-
inn háaldraður og treysti sér ekki þegar á
reyndi til að ferðast hingað til lands.
Adolph Busch var þess mjög hvetjandi að
Erling Blöndal færi til Bandaríkjanna.
Björn Ólafsson var jú á leið til hans í nám
veturinn 1947–48 og átti eftir að verða leið-
andi maður í fiðluleik og kennslu. Minnst er
á þessa hvatningu til Erlings Blöndals í
ævisögu Adolph Busch sem væntanlega
kemur út síðar á þessu ári eftir breska tón-
listarfræðinginn Tully Potter. En í kafla
um samskipti Busch við Erling Blöndal á
Íslandi segir Erling m.a. með góðfúslegu
leyfi höfundar: „Hann [Busch] gaf sér tíma
til að hlusta á ungan dreng: hann var mjög
vinsamlegur, hann hlýddi á tónleika sem ég
hélt í Reykjavík á þessum tíma og hann
ráðlagði mér að fara til Ameríku. Ég skyldi
læra hjá Piatagorsky, og hann kom mér í
samband við Curtis Institute.“
Hér skal haft í huga að þetta var ári eftir
að Ragnar Jónsson hafði tilkynnt Erling
Blöndal að Tónlistarfélagið [lesist Ragnar]
vildi styrkja hann til náms í Bandaríkj-
unum. Er viðbúið að náið samstarf hafi ver-
ið milli Ragnars og Busch um þetta mál.
Á þessum tíma voru tvær helstu tónlist-
arstofnanirnar í Bandaríkjunum, Juilliard í
New York og Curtis í Philadelphia. Þetta
voru hin gullnu ár Curtis-stofnunarinnar en
meðal kennaranna voru einmitt Rudolf
Serkin á píanó og Gregor Piatagorsky á
selló.
„Ég var jú í Ameríku í fimm ár, frá
1948–1953. Fyrstu tvö árin sem nemandi og
síðar sem aðstoðarmaður Piatagorskys. Og
svo tók ég við starfi hans sem kennari frá
1950–1953. En ég var nú oftast í Danmörku
á sumrin. Og þá fór maður alltaf í gegnum
Ísland, og þá hélt ég tónleika annaðhvort
þegar ég var að koma til eða fara frá Dan-
mörku. Á Íslandi var á þeim árum alltaf
millilent, frá Danmörku til Ameríku,“ segir
Erling í viðtali.
Að loknu námi og störfum í Ameríku
gerðist Erling Blöndal prófessor í sellóleik
við Músíkkonservatoríið í Kaupmannahöfn
og varð einn af virtustu sellóleikurum hins
vestræna heims auk þess að verða kennari
fjölda nemenda sem flutt hafa heiminum
nýjar og gamlar sellóbókmenntir í manns-
aldur. Meðal nemenda hans þar fyrstu árin
var Pétur Þorvaldsson. Líklega má finna
sterkustu áhrif Erlings hér á landi, fyrir
utan að flytja okkur ný og gömul sellóverk,
í gegnum nemendur hans. Telja má þar
fremstan í flokki Gunnar Kvaran. Gunnar
var nemandi Erlings í árafjöld og í gegnum
langt, metnaðarfullt og einstakt starf sitt
sem kennari sellónemenda horfir Erling
Blöndal Bengtsson á hið íslenska tónlist-
arsvið og brosir til hins stóra hóps „mús-
íkalskra barnabarna“ eins og hann birtist
sem nemendur Gunnars og annarra fyrrum
nemenda hans af fyrstu kynslóð. Þegar Er-
ling Blöndal kom fyrst til Íslands var hér
aðeins einn sellóleikari sem eitthvað kvað
að, Heinz Edelstein. Nú má mynda með
þeim heila hljómsveit.
Erling Blöndal Bengtsson átti náið sam-
starf við ýmsa tónlistarmenn hér á landi.
Til að byrja með var það Urbancic sem lék
með honum á flestum tónleikum. Náið sam-
starf var með þeim Árna Kristjánssyni, en
með þeim myndaðist ævilöng vinátta og
virðing. Um Árna hefur Erling sagt að
hann hafi verið í hópi helstu tónlistarmanna
sem hann starfaði með bæði austan hafs og
vestan – og skarað fram úr, ekki síst á hinu
andlega sviði. Ásgeir Beinteinsson lék einn-
ig með Erling á tónleikum hér og þá eru til
margar hljóðritanir með Erling og Fritz
Weisshappel hjá útvarpinu. Með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands hefur Erling einnig átt
farsælt samstarf allt frá árinu 1952 er hann
lék með henni sellókonsert Antons Dvoráks
í Þjóðleikhúsinu undir stjórn Róberts Abra-
hams Ottóssonar. Það var svo fyrst árið
1958 sem íslenskir hlustendur fengu að
heyra hann leika einleik í Sellókonsert Ha-
ydns í D-dúr og Rókókó-tilbrigðin op. 33
eftir Tsjaikovskíj með hljómsveit, og að
þessu sinni undir stjórn Páls Ísólfssonar í
Austurbæjarbíói. En þessi verk lék hann
einmitt á fyrstu tónleikum sínum hér á
landi árið 1946 þar sem Urbancic lék með
honum á píanó, því engin var þá hljóm-
sveitin.
Erling Blöndal hefur auk þess að leika
með hljómsveitinni haldið reglulega tón-
leika á Íslandi nú í 60 ár. Hann hefur sann-
arlega endurgoldið þjóðinni vinarbragð
Tónlistarfélagsmanna frá árinu 1946, og
hann hefur einnig sett sín spor í íslenskt
tónlistarlíf með tónleikahaldi sínu, með
kennslu sinni og einnig hafa íslensk tón-
skáld eins og Jón Nordal og Atli Heimir
Sveinsson samið fyrir hann bæði konserta
og kammerverk.
Erling Blöndal hefur síðastliðin 13 ár
verið prófessor við Háskólann í Michigan í
Ann Arbor. Til hans sækir þangað hópur
úrvalsnemenda úr öllum heiminum og einn-
ig frá Íslandi. Sííðasti íslenski nemandi
hans þar var Stefán Örn Arnarson, en auk
þeirra nemenda sem nefndir hafa verið hafa
fleiri íslenskir nemendur notið tilsagnar
Erlings. Erling hefur sagt mér að líklega
hafi mesta hrósið sem hann hefur fengið
fyrir leik sinn komið á Ísafirði, en það hrós
skilja aðeins Íslendingar komnir yfir miðjan
aldur. Að loknum tónleikunum hafði gamall
maður það á orði að það hefði verið svo
gaman á tónleikunum að hann hefði næst-
um því gleymt að taka í nefið í tvo tíma.
Erling skilur þetta vel; Ólafur Þorgrímsson
gaf honum silfurdósir að loknum tónleik-
unum hér á landi þegar hann var 16 ára.
Erling Blöndal Bengtsson varð 73 ára á
miðvikudaginn var. Það er því tvöföld
ástæða til að senda honum hamingjuóskir í
tilefni af tímamótunum.
Sannur Musicus
Morgunblaðið/Kristinn
Sellósnillingur: Alla tíð, frá þessari fyrstu stundu,
hefur Erling Blöndal Bengtsson heillað áheyr-
endur með leik sínum.
Í dag kl. 16 heldur dansk-íslenski sellóleik-
arinn Erling Blöndal Bengtsson hljómleika í
Salnum í Kópavogi. Tilefni tónleikanna er að
á þessu ári eru liðin 60 ár frá því hann hélt
fyrstu tónleika sína hér á landi.
Höfundur er tónlistarfræðingur.
Eftir Bjarka
Sveinbjörnsson
bjarki@ruv.is