Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.2006, Blaðsíða 10
10 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 11. mars 2006
M
eð fyrri heimsstyrj-
öld, sem segja má að
væri fyrsta stórslys
síðustu aldar, liðu
fjögur heimsveldi
undir lok. Mann-
fallið er talið hafa
verið hálf níunda
milljón hermanna að viðbættum einhverjum
milljónum óbreyttra borgara. Efnahagslegar
afleiðingar urðu þær að botninn datt úr hag-
kerfi heimsins. Samtíðis hafði styrjöldin í för
með sér fullkomið hrun hefðbundinna vest-
rænna gilda. Sjaldan hafði heimsbyggðin orðið
vitni að verra andlegu gjaldþroti.
Afleiðingarnar urðu meðal annars þær, að
listamenn fengu óslökkvandi löngun til að gefa
borgarastéttinni rækilega á kjaftinn. Uppúr
siðgæðislegum sorphaugum og rústum styrj-
aldarinnar óx framúrstefnuhreyfing sem kallaði
sig súrrealisma. Hún lifir enn góðu lífi. Alla síð-
ustu öld hélt hún áfram að skjóta öngum á gríð-
armiklum baðmi bókmennta, heimspeki, kvik-
myndagerðar og myndlistar.
Með eigin stefnuyfirlýsingu
Stofnandi, hugmyndafræðingur og ákaflega
umdeildur leiðtogi súrrealismans var André
Breton (1896–1966). Hann hóf að þróa hug-
myndir sínar í fyrstu súrrealísku stefnuyfirlýs-
ingunni sem birt var í París 1924. Hún fjallar
nálega eingöngu um ljóðlist og hugmyndaríkar
bókmenntir. Árið 1928 kom
síðan mikilvægt verk hans,
Súrrealisminn og myndlistin.
Tveimur árum síðar birtist önnur súrrealíska
stefnuyfirlýsingin sem einnig fjallar að mestu
um bókmenntir. Sjálft heitið súrrealismi, „ofur-
raunsæi“, er reyndar fengið að láni úr leikriti
eftir Guillaume Apollinaire, Brjóstin á Tíresíasi
– súrrealískt drama (1917). Fjórði áratugur síð-
ustu aldar var mesti blómatími hreyfingar-
innar.
Ef gera ætti skrá yfir þá rithöfunda og mynd-
listarmenn sem tengja má súrrealismanum,
yrði hann yfrið langur. Meðal þekktra mynd-
listarmanna má nefna Max Ernest, Salvador
Dali, René Magritte, Joán Miró, Alberto Giaco-
metti, Marcel Duchamp, Hans Arp, Yves
Tanguy og Alexander Calder.
Meðal þekktra rithöfunda eru Paul Éluard,
Louis Aragon, Robert Desnos og Philippe Sou-
pault. Meðal kvikmyndagerðarmanna þeir
René Clair, Man Ray (sem líka var ljósmyndari
og málari), Hans Richter, Jean Cocteau og Lou-
is Buñuel. Fyrstu kvikmyndir þess síðast-
nefnda, Un Chien andalou (1929) og L’Age d’or
(1930), báðar gerðar í samvinnu við Dali, eru
fyrstu og frægustu kvikmyndaverk súrreal-
ismans.
Hvað var það sem súrrealistar voru á hött-
unum eftir? Með hvaða móti væri hægt að leysa
úr læðingi sköpunarmátt listarinnar þannig að
hugmyndaflugið fengi frítt spil? Hafa ekki lista-
menn á öllum öldum fengist við tilraunir til að
ríða andagiftinni berbakt? Hefur hugarflugið
nokkurntíma verið bundið? Lítum bara á tvo
mikla undanfara súrrealismans, Hieronymus
Bosch og Giuseppe Arcimboldo á 15. og 16. öld.
Málverk eftir Bosch gegndu hlutverki mynda-
bóka fyrir miðaldamanninn. Og hvílíkar mynd-
ir! Þar getur maður til dæmis á Fíflaskipinu séð
vitfirringa og afskræmislegar verur sem stíga
uppúr allra myrkustu fylgsnum sálarinnar –
tákn sjálfselskunnar. Allar tilvísanir og tákn
sem dreift er um málverkin voru samtíðar-
mönnum hans auðskilin.
Þegar þessi hefð var týnd og tröllum gefin,
hófu menn tuttugustu aldar að túlka og útskýra
umrædd verk með hjálp draumgreiningar. Þau
endurspegla að sjálfsögðu dulvitundina, sögðu
menn. Skringilegir og táknrænir hausar Arcim-
boldos, sem hann setti saman úr velþekktum
hlutum – ávöxtum, blómum, fuglum, grænmeti,
bókum, fiskum, vopnum – áttu eftir að veita
súrrealistum mikinn innblástur. En með þessa
tvo herra, og reyndar fleiri, í bakspeglinum
gátu súrrealistarnir trauðla fullyrt – einsog þeir
þó gerðu – að þeir væru að skapa listaverk sem
engan hefði órað fyrir að mundu líta dagsins
ljós!
Draumnum gefinn laus taumur
André Breton var læknir að mennt. Hann hafði
um skeið unnið sem geðlæknir í hernum á
stríðsárunum; síðan heimsótt Sigmund Freud í
Vínarborg. Í sálgreiningarkenningum og lækn-
ingaraðferðum Freuds, sem Breton hafði kynnt
sér, átti súrrealisminn hugmyndalegan upp-
runa sinn. Menn vildu losa vitsmunina undan
meðvitaðri stjórn, draga fram fjársjóð dulvit-
undarinnar af draumum, hálfdraumum og
vökudraumum, svo myndirnar gætu fyr-
irstöðulaust flotið uppá yfirborðið. Það vakti
ekki síst fyrir súrrealistum að aflétta hverskyns
bönnum og bannhelgi á sviði kynlífs. Já, menn
voru jafnvel fúsir til að gera sér í hugarlund efni
úr fjarlægri framtíð sem enn væri bara draum-
ur.
„Súrrealisminn byggir á trúnni á þann æðri
veruleik hjá vissum hugmyndatengslum sem
hingaðtil hefur verið vanræktur, á almætti
draumsins, á óeigingjarnt svigrúm hugsunar-
innar,“ sagði Breton.
Burt með skynsemina, burt með allar fag-
urfræðilegar og siðgæðislegar efasemdir.
Takmarkið var skaprór samruni, end-
ursköpun hins „algjöra veruleika“ þarsem þátt-
um einsog draumsamfellum, tilviljunum og því
sem undursamlegt er í hvunndagslífinu væri
slegið saman. Kjörorð súrrealista, sem þeir
tóku úr Söngvum Maldorors eftir Lautréamont,
segir heilmikið: „Fagurt einsog óvæntur sam-
fundur saumavélar og regnhlífar á skurð-
arborði.“ Slíkar samtengingar og árekstrar
skapa nýja veruleikakennd, ef maður svo að
segja bíður eftir sjálfum sér, sínum eigin við-
brögðum. Sumsé er um gera að vera kyrrlátur
og bíða með „frjálslega fljótandi athygli“, svo
vitnað sé í fræg orð Freuds.
Skáld og eiturlyf
Í ljóðlistinni leiddi allt þetta til einskonar end-
urlausnar tungunnar sem hún hefur aldrei fylli-
lega jafnað sig á. Skáldin lögðu stund á kerf-
isbundnar tilraunir á sjálfum sér, sem í sumum
tilvikum fólu í sér eiturlyfjanotkun. Jafnvel var
stundum notast við eitur gleraugnaslöngunnar í
afarsmáum skömmtum. Mjög umtalaðar eru til-
raunir með meskalín (eitur sem vekur svipaðar
ofskynjanir og LSD) sem Henri Michaux gerði
á sjötta áratug aldarinnar í viðleitni sinni við að
víkka reynsluheiminn og höndla veruleik sem
lýtur ekki lögmálum skynseminnar.
Eiturlyfjanotkun var engin nýlunda. Seið-
menn í Síberíu hafa frá örófi alda komið sér í
leiðslu með því að neyta berserkjasveppa. Með
eða án eiturlyfja vörpuðu súrrealísku skáldin af
sér fjötrum rökfestunnar og virkjuðu eðlislæga
möguleika leiksins til að varpa nýju og óvæntu
ljósi á mótsagnakennda návist hlutanna. Og það
gat gerst með draumsögum, í dásvefni, með
hjálp hópskriftar og ekki síst með ósjálfráðri
skrift. Það er einsog súrrealistarnir vilji segja:
Við skulum skynja og lifa, en ekki látlaust vera
að greina og útskýra.
Ósjálfráð skrift merkir reyndar ekki að mað-
ur setjist niður og beri pennann að pappírnum
til að sjá hvað komi í ljós. Samkvæmt Breton
verður þrennt að gerast samtímis. Nefnilega
skilningur sálfræðinnar á lausn undan sálræn-
um bælingum, líkindareikningur stærðfræð-
innar um handahófskenndan samslátt orða, og
véfréttarhlutverk skáldsins eða miðilsins, svo
vísað sé til spíritismans. Ósjálfráð skrift er
sumsé annað og meira en tækni við dulvituð
skrif, og síst af öllu er hún samkvæmisleikur –
jafnvel þó gaman geti verið að dunda við leik-
inn.
Freud greindi Breton frá því að hann hefði
orðið þess áskynja, að ósjálfráð skrift hefði vak-
ið jafnmikla almenna athygli og skráning
drauma. Og um súrrealismann má í stórum
dráttum segja, að hann sé fremur lífsskoðun en
fagurfræði. Í rauninni var það ekki ljóðið eða
listin sem súrrealistar vildu umskapa, heldur
manneskjan.
Næstum einsog djass
Sjálfvirkni (automatism) – hugtak sem á við
bæði um bókmenntir og myndlist – er „fyr-
irmæli hugans án eftirlits skynseminnar“, sagði
Breton. Hún er virk viðleitni við að leysa upp
andstæður hins meðvitaða og ómeðvitaða, at-
hafnar og draums. Það mikilvæga er samt, að
ekki er fyrir hendi neitt áþreifanlegt innihald
sem ganga má útfrá. Næstum einsog í djass-
inum, sem margir telja
reyndar vera tónlistarlega
versjón af súrrealisma.
Kenndirnar, myndirnar öðl-
ast form eftir því sem þeim
skýtur upp í hugann. Tón-
listarmaðurinn veit ekki, já,
maður hefur á tilfinningunni
að hann fái ekki að vita,
hvernig næsti tónn eða
næsta hending hljómar.
Í þessu samhengi er samt
við hæfi að taka fram, að
með sárafáum undantekningum voru fyrstu
súrrealistarnir ýmist fjandsamlegir tónlist eða í
öllu falli áhugalausir um hana. Súrrealíska tón-
smiði er torvelt að benda á. Breton og félagar
hans vildu losna undan þreyttri hrynjandi og
forpokuðum lögum sem áttu upptök sín á ríku-
legu veisluborði symbólismans. Enga afganga
af því borði, takk! Í staðinn grafarþögn og enga
setustofuléttúð! Þeim stóð jafnvel hjartanlega á
sama um annan eins nýskapara og Erik Satie.
Samt átti Breton síðar eftir að tala um „dul-
arfullan vind djassins“ vegna þess að til lengdar
var ekki viðlit að halda djassi og súrrealisma að-
skildum.
Að fanga regnbogann
Samt er það í myndlistinni sem við sjáum hvað
greinilegast, að súrrealískir listamenn vildu
ekki halda áfram að standa í réttstöðu á æf-
ingasvæði eigin meðvitundar. Á regnboginn
virkilega að hvíla á traustum endastöplum? Nei,
þá var skárra að reyna að flækja regnboganum
um fætur sér og finna fyrir honum. Burt með
glamur og rifrildi og endalausar röksemda-
færslur lærdómsmanna! Hugsunin á sér engar
upprunalegar röksemdir, hversu mjög sem við
reynum að eigna henni þær, sögðu súrrealistar.
Við verðum að stunda frjáls hugrenningatengsl!
Joán Miró byggir tækni sína á sálrænni sjálf-
virkni. Úr dýpstu lögum dulvitundarinnar sæk-
ir hann fullkomlega sjálfkrafa tákn og lífræn
form, jafnvel töfraform sem innbyrðis geta
stöðugt skipst á sjálfsímyndum. Persónurnar
breytast fyrir augunum á okkur: „Ég byrja að
mála,“ sagði hann, „og meðan ég mála byrjar
myndin að hafa sig í frammi eða gefa sjálfa sig í
skyn undir pensli mínum. Formið verður tákn
fyrir konu eða fugl meðan ég er að vinna.“
Um René Magritte gegnir öðru máli. Mál-
verk hans virðast vera yfirmáta raunsæ, en
þráttfyrir að hitt og þetta sýnist vera full-
komlega eðlilegt, má hvarvetna finna mótsagnir
og fáránleik. Vonlaust er að reyna að „útskýra“
þau. Hinsvegar má vel túlka þau. Titlar á mál-
verkunum eru oft furðulegir, en sambandið
milli málverks og titils er nálega alltaf tvírætt.
Málverkið „Le viol“ (Nauðgunin) sýndir kven-
mannsbúk með blygðunarbarma á reðurlíkum
hálsi. Hætt er við að við fyrsta tillit þyki það
klúrt, en þegar Magritte nefnir það „Nauðgun“
fer maður að velta málinu fyrir sér. Titillinn
virðist ekki eiga sér neinar forsendur, en samt
er einsog skapist dulræð merking sem kannski
er ekki fyrir hendi. Ég held að ákveðnar gátur
verði að vera óráðnar; að öðrum kosti skiljum
við þær ekki.
Salvador Dali málar líka óraunveruleikann af
vandvirku raunsæi. Málverk hans „Varanleiki
minnisins“, með bráðnandi klukkum og af-
skræmdu andliti fyrir miðju, sem kynni að vera
sjálfsmynd – um það er ekki gott að segja – ork-
ar einkennilega sterkt á mann. Tíminn stendur
kyrr, klukkurnar hafa endanlega stöðvast alveg
einsog í tímalausum og dulvituðum heimi
Freuds. Tíminn er svo grafkyrr að klukkurnar
bráðna og andráin verður móðir aldanna.
Klukkurnar taka á sig lífræn form og eru nán-
ast í rotnunarástandi, úrþví þær laða til sín
skordýr. Dali gekk lengra en margir aðrir súr-
realistar þegar hann hyllti varanlega ringulreið
og brjálsemi. Samt sagði hann að það eina sem
skildi hann frá brjálæðingi væri að hann væri
ekki brjálaður!
Smátt og smátt urðu síendurteknar auglýs-
ingabrellur Dalis þreytandi: málverk hans
orkuðu bæði fjálgleg og uppskrúfuð. Breton
bannfærði hann fyrir að vera í senn kaldrifjaður
og gegnsýrður af gróðahyggju.
Í upphafi var dada
André Breton var merkilegri prósahöfundur en
ljóðskáld. Það var fyrst og fremst gagnrýnin, en
ekki ljóðagerðin, sem skapaði honum áhrifa-
vald.
Framað þessu hefur ekki verið minnst á
dadaismann, en sú hreyfing kom fram í Zurich
1916 og var beinn undanfari súrrealismans.
Flestir þeirra rithöfunda og myndlistarmanna,
sem nokkrum árum seinna söfnuðust kringum
Breton í París, komu úr hópi dadaista (bullorðið
„dada“ hafði verið valið af handahófi, kannski
með vísun í barnamál).
Formælandi dadaismans, rúmensk-franska
ljóðskáldið Tristan Tzara (1896–1963), lagði
ríka áherslu á stjórnleysis- og níhilistaeðli
hreyfingarinnar. Hann afneitaði meiraðsegja
gildi lista yfirleitt. Þessvegna lagði dadaisminn
áherslu á and-list. Undir lokin afneituðu dada-
istar líka sjálfum sér. „Sannur“ dadaisti er and-
vígur dadaismanum.
Vissulega var súrrealisminn andborg-
aralegur svo um munaði, en bjó samt ekki yfir
sjálfvöktum stjórnleysisanda dadaismans. Ef
menn vildu valda breytingum, umturna hefðum
listsköpunar, urðu þeir að áliti dadaista að beita
eyðingaröflunum. Viðhorf þeirra var eitthvað á
þá leið, að með mynd eyðileggingar í bakgrunni
öðlaðist sálin nýtt fjaðurmagn.
Breton snerist öndverður gegn þessum
áleitnu eyðingarhneigðum. Þráttfyrir allt hvíldi
afstaða hans til myndlistar og bókmennta frem-
ur á jákvæðri tjáningu. Þessvegna sleit hann
sambandinu við Tristan Tzara árið 1922. Það
gerðist þráttfyrir að í augum Tristans var ljóð-
listin í enn ríkara mæli en fyrir Breton sálræn
starfsemi, sköpunarathöfn sem lesandanum var
boðið að taka þátt í. Vísast þoldi Breton ekki
samkeppnina: það kann ekki góðri lukku að
stýra, að tveir hanar tylli sér á sama fjóshaug.
Bannfærðir áhangendur
Í hreyfingunni varð mikið um umbrot, meðþví
Breton var fágætlega þrjóskur, einráður og
kreddufastur gaur. Einn af öðrum voru gamlir
áhangendur útilokaðir vegna fagurfræðilegrar
eða pólitískrar trúvillu. Þegar öll kurl koma til
grafar var það eiginlega bara hann sjálfur sem
hann lét ógert að bannfæra. Flestir súrreal-
istanna höfðu gengið marxisma á hönd – sjálfur
var Breton félagi í kommúnistaflokknum fram-
til 1933. En þegar beygja átti skáldskap og
myndlist undir pólitík og kenningar um sósíal-
realisma, sló Breton rösklega afturundan sér.
Þegar sólin kemur upp eru draugar vanir að
draga sig til baka inní dulvituð fylgsni sín. Með
samhljómandi bergmál af fjarlægum sviðum
hefur súrrealisminn kennt okkur að hræðast
ekki draugagang eigin ímyndana, heldur miklu
fremur kannast óttalaust við þær, þó sálrænt
jafnvægi kunni að verða fyrir einhverju raski.
Hugmyndin sem að baki liggur er sú, að við
fáum endurtengt okkur sjálf við hefðina.
Kannski má segja að súrrealisminn vilji ljá því
sem óþekkt er andlit og finna upp það sem þeg-
ar er fyrir hendi. Því hvernig á annars að skýra
þá staðreynd, að oftlega finnum við fyrir
heimþrá til hins óþekkta?
Ofar daglegum veruleika
Varir Mae West: sófi súrrealistans Salvador Dali.
André Breton:
Upphafsmaður
súrrealismans.
Eftir Sigurð A.
Magnússon
Höfundur er rithöfundur.