Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.2006, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.2006, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 15 Í HAFNARBORG stendur nú yfir samsýning fimm listakvenna undir titlinum Mega vott. Þar eru á ferð- inni Anna Eyjólfsdóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir, Rúrí, Þórdís Alda Sig- urðardóttir og bandaríska listakonan Jessica Stockholder. Sýningin er viðamikil og óhætt að segja að það framtak íslensku listakvennanna að bjóða Jessicu Stocholder að sýna með sér geri viðburðinn af einum þeim stærsta á íslenskum myndlist- arvettvangi þetta árið. Í tengslum við sýninguna er að koma út viðamikil bók með yfirlitstextum um verk myndlistarmannanna eftir Hörpu Þórsdóttur listfræðing ásamt textum eftir Jón Proppé gagnrýnanda og Sigríði Þorgeirsdóttur heimspeking. Einnig verða í bókinni myndir frá gjörningi Rúríar sem hún framdi ný- verið í og við Drekkingarhyl á Þing- völlum. Titill sýningarinnar Mega vott gefur til kynna að listamönn- unum liggi mikið á hjarta um leið og hann gefur tilefni til kaldhæðnislegra orðaleikja. Sýningin felur enda í sér sambland af krafti og magnleysi, bit- urð og vongleði, uppbyggingu og eyðileggingu. Hún samþættir hug- tökin heimili og heima við heiminn allan. Hugmyndin um heimsþorpið er þó augljóslega enn einhver útópía og sumir listamennirnir bregðast við hinu ógerlega með því að nota efnivið úr sínu nánasta umhverfi í táknræn verk sem tala máli heildarinnar. Anna Eyjólfsdóttir er með stóra innsetningu sem nær frá anddyri safnsins og inn allan ganginn gegn- um bygginguna. Innsetningin sam- anstendur af þremur verkum sem eiga í innri samræðu. Veggverki sem samanstendur af kampavínsglösum í röðum, þriðjaheimstengd innsetning með matarílátum og bambus á mold- arstráðu gólfi undir stiga. Að lokum risastór steypumót sem mynda af- markað rými eru síðan við dyrnar sem snúa út að Strandgötu svo hægt er að ganga í gegnum verkið, en inni í því hanga upplýstir litríkir glervasar á hvolfi. Áhorfandinn fær tilfinningu fyrir neikvæðri afstöðu á þann fram- kvæmdastórhug sem virðist ætlaður útvöldum. Kjólföt sem hanga á herðatré fyrir utan bygginguna og kallast á við kampavínsglasaverkið virðist í hróplegu ósamræmi við verkið undir stiganum og virðist eiga að undirstrika þá misskiptingu sem á sér ekki bara stað í samfélaginu heima, heldur úti í heimi, heima. Meðan verkin eru sjónrænt sterk og áhugaverð og gagnrýni sem þessi nauðsynleg, hversu oft sem hún er endurtekin, þá má ímynda sér að hinn almenni áhorfandi fyllist van- máttarkennd gagnvart málefninu og hreinlega fallist hendur. Það er ein- mitt sú tilfinning sem verkið virðist fjalla um í sársaukafullri spurn um hvernig hægt sé að yfirstíga. Sársaukinn spilar einnig stórt hlutverk í pólitískum verkum Rúríar þar sem hún stillir saman myndum af afleiðingum þjóðarmorðs í fyrrum Júgóslavíu og því „morði“ sem á sér stað á hálendi Íslands þar sem ár og fossar eru henni sérstaklega hug- leikin. Þótt skilaboðin séu tæpitungu- laus finnst mörgum kannski full- sterkt til orða tekið að stilla upp sem hliðstæðum legsteinum hinna myrtu í Bosníu-Hersegóvínu og táknrænum legsteinum fósturlandsins Freyju. Andóf Rúríar felst þó ekki síst í því að horfast í augu við eyðileggingu, að taka tíma fyrir sorgarferli og þess að minnast, en ekki virðist vanþörf á því í hraða samtímans. Myndband Rúrí- ar er frá ferð hennar í Bosníu- Hersegóvínu árið 1998 og sýnir átak- anlega eyðileggingu umhverfisins sem gefur til kynna hrikalegt manns- fall. Mjög dramatísk tónlist fylgir verkinu sem er á mörkum þess að umbreyta hinum sorglegu mynd- skeiðum í eins konar blæti og hluta af fagurfræðilegri neyslu. Það sama á við en á mun jákvæðari hátt í fal- legum skúlptúr hennar þar sem brot- in glerplata með áprentaðri fossam- ynd verður að fagurfræðilegri ádeilu sem skapar sterkar og margræðar tengingar við önnur verk hennar, sérstaklega hinn eftirminnilega gjörning í Hallgrímskirkju á síðasta ári. Ragnhildur Stefánsdóttir teflir fram nýrri sýn í fígúratífum skúlp- túrum sínum. Hér er ekki, sam- kvæmt texta Hörpu, verið að skoða líffræðilega hluta líkamans heldur „áru“ hans eða sjálfið með póstmód- ernískum áherslum á „upplausn“ lík- amans. Mannsmyndir Ragnheiðar sýna í raun „tóma“ mannveru sem formast af hálfgagnsæjum fatnaði sínum steyptum í plast. „Sjálfið“ tak- markast ekki við þetta „ég“. Það er sífelld verðandi, samansafn úr mörg- um lögum liðinnar reynslu og ókom- inna fyrirætlana, skrifar Sigríður um verkin en hún og Harpa ná að varpa góðu ljósi á heimspekilega og menn- ingarfræðilega grunnþætti í verkum Ragnheiðar. Hinn líffæralausi líkami sem þarna birtist virðist þó ekki síð- ur staðfesta en að hefja sig upp yfir tvískiptingu anda og efnis. Skikkju- fellingar klæðanna hafa trúarlegt yf- irbragð og verurnar með álút höfuð og upprétta arma í boðandi stell- ingum virðast tjá sameiginlega and- lega hryggð handanveru mannsins eða því „sjálfi“ sem er sameiginlegt mönnum. Innsetning Þórdísar Öldu Sigurð- ardóttur er fersk hrein og ilmandi en ekki að kostnaðarlausu. Þvottaskúlp- túrinn er í samræðu við fossaverk Rúríar, svo ekki sé talað um gjörn- inginn í Drekkingarhyl. Hvíta línið hefur trúarlegt yfirbragð um leið og fjallstór hrúga af ófrágengnum þvotti vitnar um ofgnóttarvandamál sam- tímans. Veggskúlptúrar með sorter- uðum og listilega samanbrotnum sokkum eða munnþurrkum vitnar um sköpunarþrá mannsins mitt í hversdagslegri óreiðunni. Þvottaefn- ispakkarnir minna okkur þó á að gjald hreinleikans er menguð úthöf sem aflaga lífverur sjávar. Söngland- inn sem heyra má koma úr þvotta- hrúgunni er einkennandi fyrir þá íveru sem Simone de Beauvoir sagði að konur þyrftu að losna undan til að höndla tilveruna handan hennar, þ.e. á opinberum vettvangi. Íveran sjálf er þó orðin eftirsótt í heimspekikenn- ingum á borð við Deleuzes sem hafn- ar tvenndarhyggju yfirstigningar og boðar „hreina“ íveru eða íveru sem vísar aðeins í sjálfa sig. Að einhverju leyti má segja að Jes- sica Stockholder sé á svipuðum nót- um í list sinni. Í texta Sigríðar hefur hún eftir listakonunni að hún hafi ekki fundið sig í togstreitu lausn- arhugmynda sem klofna á milli skýjaborgahugsjóna og hugmyndum pragmatískra lausna, annað sé of loftborið en hitt of andlaust og veðji því í list sinni á sköpunarkraft og út- sjónarsemi. Stockholder hefur unnið verk sín með eftirtektarverðu aðferð- arfræðilegu frelsi í fjölda ára og haft ómæld áhrif á aðra listamenn og list- heiminn í heild sinni. Skúlptúrar hennar eru í senn frjáls málverk, yf- irhlaðnir leikhúsbúningar, stúdíur í innanhússarkitektúr þar sem fer fram hliðrun hefðbundinna tákn- mynda. Stockholder endurnýtir hluti og endurvinnur hugmyndir. Hún vinnur af alvöru og býður upp á nýtt andlegt og efnislegt sjónarhorn. Þótt verkin séu sjónræn veisla þá er það gildi aðferðarinnar sem ekki síst veg- ur hæst í þeirri viðleitni listarinnar að virkja ímyndunarafl og sköp- unarkraft til að riðla hefðbundnum hugmyndum til að finna nýja fleti og ný mynstur í lífinu sjálfu jafnt sem listinni. Á sýningunni Mega vott er tekist á við pólitískan og hugmyndafræðileg- an veruleika eyðileggingar og upp- byggingar með aðferðum persónu- legrar sjálfsskoðunar. Í henni felst lítill en lífvænn sproti þeirrar já- kvæðu hugsunar eða vonar um að þrátt fyrir allt hefur einstaklingurinn vægi í heimsmyndinni og raunveru- legan möguleika á að taka þátt og hafa áhrif á heildina með lífi sínu og starfi. Augljóst er að sýning sem þessi kostar mikla peninga sem að- standendur hennar hafa sjálfir þurft að útvega. Stuðningur hinna ýmsu fyrirtækja við verkefnið er frábær en útfærsla þakklætis við stuðning eins og hann birtist á kaffistofunni í Hafn- arborg finnst mér orka tvímælis með tilliti til umfjöllunarefnis eða boð- skapar sýningarinnar. Heima í heimi MYNDLIST Morgunblaðið/Sverrir Þvottaskúlptúr „Innsetning Þórdísar Öldu Sigurðardóttir er fersk, hrein og ilmandi en ekki að kostnaðarlausu.“ Þóra Þórisdóttir Hafnarborg Hafnarfirði Sýningin stendur til 2. október Opið alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11–17 og til kl. 21 á fimmtudögum. Mega vott Morgunblaðið/Ásdís Ágúst Guðmundsson Leist svo vel á Adams æbler að hann fékk kunningja sinn til að kaupa eintak fyrir sig í Kaupmannahöfn. Hann segir grunnhugmyndina að myndinni nýstárlega. Gláparinn Í vor var ég rúmfastur um tíma og fékk aðláni dönsku myndina Adams æbler til að stytta mér stundir. Mér leist svo vel á hana að ég fékk kunningja minn til að kaupa eintak fyrir mig í Kaupmannahöfn. Grunnhugmyndin er nýstárleg. Sveitaprestur tekur að sér ribbalda úr stórborginni og reyn- ir að gera úr þeim nýja og betri menn. Með- ulin eru ekki endilega kristin trú heldur sið- ferðisstyrkur klerksins og kjarkur og óbifandi trú hans á hið góða í manninum. Í upphafi myndarinnar tekur hann á móti enn einum borgarribbaldanum, nýnasista sem hefur hlot- ið dóm fyrir ofbeldi og er gert að vinna í þágu samfélagsins. Hann fær það verkefni hjá prestinum að baka eplaköku úr eplum sem vaxa á tré við prestssetrið. Spurningin er hvort hann eigi nokkurn tíma eftir að baka kökuna, en áður en svarið fæst koma ýmis óvænt uppbrot á sögunni. Eitthvert minn- isstæðasta atriði myndarinnar tengist sykr- uðum söng eftir diskó-drengina í Bee Gees. Karakterarnir eru firnaskýrir, einkum prest- urinn í höndum Mads Mikkelsen og smá- krimminn sem Ulrich Thomsen leikur. Leik- stjóri og höfundur handrits er Anders Thomas Jensen. Hann hefur lengi verið afkastamikill höfundur, enda er hann skrifaður fyrir hand- riti við aðra hverja gæðamynd frá Danmörku. Epli Adams var framlag Dana til Óskarsverð- launanna í ár. Ágúst Guðmundsson, leikstjóri Hlustarinn Ég hef verið að hlusta í vikunni á stór-djasssöngvarann Kurt Elling með undirleik Lawrence Hobgood-kvartettsins og ef til vill ekki skrítið þar sem þessir snillingar verða á dagskrá Jazzhátíðar Reykjavíkur í Austurbæ á laugardaginn kemur. Kurt Elling var nýlega valinn besti karld- jasssöngvarinn af djasstímaritinu Down Beat og mun það ekki vera í fyrsta sinn. Diskurinn Man in the Air er með 12 lögum og eru flest þeirra ballöður. Kurt fer einkar vel með ballöðuformið þótt mín hrifning á honum sé einkum í hraðari verkum, einkum þar sem hann bregður fyrir sig „skattsöng“ en þar standa honum fáir jafnfætis. Kurt hefur fetað í fótspor söngvarans Jon Hend- rix sem var hér á ferðinni fyrir nokkrum árum. Hann tekur gjarnan fyrir melódíur og sóló þekktra tónskálda og einleikara, t.d. tekur hann á þessum diski lögin Resolution eftir Coltrane, Time to say Goodbye eftir Joe Zawinul, A Secret eftir Herbie Han- cock og Minuano eftir Pat Meheny. Við þessar melódíur og einleikskafla semur Kurt svo texta sem hann flytur af einskærri innlifun og snilld. Titillag þessa disks, Man in the Air, er tónsmíð þeirra Kurt Ellings og píanistans Lawrence Hobgoods og báðir fara á kostum í þessu frumsamda verki. Friðrik Theódórsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Jazzhátíðar Reykjavíkur. Morgunblaðið/Eyþór Friðrik Theodórsson Hefur verið að hlusta í vikunni á stórjazzsönvarann Kurt Elling.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.