Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2006, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2006, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006 5 aðrar útskornar úr tré, beini, eða höggnar í stein en sumar eru greiptar í málma eða saumaðar á klæði. Flestar þessara mynda eru frá því fyrir siðaskipti en ein er þó talsvert síðar tilkomin; Maríu- mynd, útskorin og máluð af séra Hjalta Þorsteinssyni í Vatnsfirði sem málaði nokkur þekkt portrett. Sér á parti á þessari sýningu er elsta íslenzka höggmyndin, svo sem talið er. Það er steindrangur frá Síðumúla í Borgarfirði og hefur Maríumynd verið mótuð í hann, líklega með frumstæðum verkfær- um. Hún er ein þeirra sem sýnir Maríu syrgja son sinn. Nútíma-Maríumyndir í íslenzkum kirkjum Það hefur haldizt í hendur að ís- lenzkir listamenn á síðustu öld höfðu að jafnaði lítinn áhuga á kirkjulist, svo og hitt að þrátt fyrir margar kirkjubyggingar á öldinni gáfust listamönnum ótrúlega fá tækifæri til að láta ljós sitt skína og stundum virtist sem svo að steindir gluggar væri það eina sem fengur væri í. Það fylgdist ennfremur að og skerpti á þessu að sumir arkitekt- ar að minnsta kosti, virðast hafa verið mótfallnir hinni hefð- bundnu kirkjulist; hvort sem það væru Maríumyndir eða önnur trúarleg mótíf. En fyrst og fremst var þetta spurning um að ganga gegn ríkjandi tízku og ekki hafa allir kjark til þess. Einn af fáum íslenzkum arki- tektum sem naut þess að ganga gegn hefðinni var Jón heitinn Har- aldsson. Hann teiknaði nýja kirkju í Stykkishólmi, sem alla tíð síðan hefur verið bæjarprýði; enda byggð á stað þar sem hún nýtur sín til fullnustu. Maríumyndir Kristínar og Leifs Jón Haraldsson gerði ráð fyrir alt- aristöflu í Stykkishólmskirkju og var Kristín Gunnlaugsdóttir mynd- listarkona fengin til verksins. Hún var og er landskunn sem úrvals listamaður og hefur lært íkona- málverk á Ítalíu. Síðar hefur hún náð með góðum árangri í að heim- færa þann stíl upp á önnur nútíma- legri viðfangsefni. Kristín kaus að mála Maríu- mynd í Stykkishólmskirkju, en hæð kirkjunnar og innra útlit bauð upp á þann valkost að myndin gæti orðið stór, og það er hún, 2,36 x 2,02m. Á myndinni sjáum við Mar- íu með barnið; „hún kemur líkt og svífandi utan úr geimnum og færir söfnuðinum barnið,“ segir Kristín, en neitar því, sem stundum hefur verið sagt, að þetta sé sjálfsmynd málarans. „Fyrst og fremst á myndin að sýna íslenzka konu,“ segir Kristín. Ég hygg að ekki sé á neinn hall- að þegar ég segi að Leifur Breið- fjörð sé okkar allra fremsti kirkju- listamaður í ljósi þess sem eftir hann liggur, bæði hér og erlendis. En Maríumyndir hafa ekki verið drjúgur hluti af lífsverki hans og aðspurður um þetta kvaðst Leifur aðeins eiga Maríumyndir í tveimur íslenzkum kirkjum. Annars vegar er fremur hefðbundin mynd af Maríu með barnið í Prestbakka- kirkju á Síðu og hins vegar Maríu- mynd í Flateyrarkirkju. Sú mynd er stílfærð á þann hátt að liljan, sem er tákn Maríu, er uppistaða verksins. Baltasar er einn fárra íslenzkra myndlistarmnanna sem fengizt hefur við trúarleg viðfangsefni. Hann er höfundur hinnar stóru altaristöflu í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði og þar málaði hann meðal annars fæðingaratburðinn i Betlehem og vitaskuld er María þar á sínum stað. En hann kvaðst ekki hafa málað hana annars stað- ar í kirkjur. Nýjasta Maríumyndin Síðasta viðbótin við þessa grein kirkjulistar er Maríumynd í nýrri Úthlíðarkirkju, 2 x 2m eins og fram hefur komið í fréttum á árinu. Sjálfur hef ég hannað útlit kirkjunnar og tók því fagnandi að fá einnig að mála altaristöfluna. Þar sem fram til siðaskipta hafði verið Maríukirkja í Úthlíð var strax ákveðið að ég málaði Maríu- mynd. Enda þótt myndlist hafi verið einskonar aukabúgrein með blaða- mennsku í 50 ár þá hafði ég ekki fremur en flestir aðrir myndlistar- menn hér neina æfingu fyrir verk- efni af þessu tagi. Ég tel það ekki skipta máli en sé ætlunin að mála fígúratíft verk hlýtur að skipta verulegu máli að hafa æfingu í þess konar myndlist. Ég tel að vel sjóaður málari geti málað Maríumynd á altaristöflu án þess að leggjast í sérstakar rann- sóknir. En þó að ég geti alls ekki kallað það neinar rannsóknir, þá las ég margt sem að gagni gat komið og á því er það byggt sem hér er skráð um þetta efni. Enn- fremur ráðfærði ég mig við séra Gunnar Kristjánsson, á Reynivöll- um í Kjós, sem er doktor í kirkju- list og manna bezt að sér í þeim fræðum. Minnugur þess að Ásgrímur Jónsson hafi sett Krist á svið í landslagi Hreppanna á altaristöflu í Stóranúpskirkju, kom mér strax til hugar að setja Maríu inn í um- hverfi Úthlíðar með útsýni inn til fjalla. Séra Gunnar mælti með því. Fyrst málaði ég fimm smærri frumútgáfur; valdi svo eina þeirra og málaði með olíulitum á dúk í fulla stærð. Ég var staðráðinn í að mála Maríu sem venjulega, íslenzka konu og móður, en myndin er ekki að neinu leyti háð sérstökum tíma. Hún er hvorki dæmigerð bónda- kona né eitthvað annað og af klæðnaði Maríu verður heldur ekk- ert ráðið. Hann er látinn ganga í samband við volduga sveipi, sem gætu verið möttullinn hennar Mar- íu, svo vitnað sé til Maríukvæðis eftir Einar Ólaf Sveinson. Hluti af búningi hennar er kjóll eða pils og á það hef ég málað viðarteinunga með blöðum sem eru að nokkru leyti tilvitnun í gamla íslenzka kirkjulist. Þá á ég við þann grip sem nefndur hefur verið Álfkonu- Í Stykkishólmi Á síðari huta 20. aldar var byggð ný og vegleg kirkja i Stykkishólmi og í hana málaði Kristín Gunnlaugsdóttir listmálari stóra og veglega altaristöflu. Það er Maríumynd og Kristín lætur Maríu koma svífandi norður yfir fjöllin með barnið. Sveinn Björnssson Krýsuvíkur-Madonna. Hér málar Sveinn Maríu inní umhverfi Kleifarvatns, þar sem stór fiskur virðist vera að spjalla við ókennileg veru framan á sérstæðum fiskibáti. Myndin er máluð með olíulitum á striga, óársett. Ljósmyndir/Gísli Sigurðsson Altaristafla í nýrri Úthlíðarkirkju, eftir Gísla Sigurðs- son. Þarna er María með barnið sett inní umhverfi Út- hlíðar með útsýni inn til fjalla, en möttullinn hennar Maríu virðist ganga í samband við sveipi á baksviðinu. Nær eru kýrin, máldagi kirkjunnar frá árinu 1331 og Maríuvers sem skrifað er á stein. Sú elzta á Íslandi Maríumynd, skorin í fjöl, var í fyrstu dómkirkju landsins á Hólum í Hjaltdal, skömmu efti 1100. Nú er hún varðveitt á Þjóðminjasafni. Stíll- inn er býzanskur en enginn veit um höfundinn..

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.