Morgunblaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 2. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Stafræna
bíóbyltingin
Heiða Jóhannsdóttir bregður upp
framtíðarsýn í Af listum | 45
Heilsa og lífsstíll | Græni liturinn skarar framúr Gillian
McKeith grimmari en nokkru sinni Íþróttir | Lið Chelsea
er óstöðvandi Kjöri íþróttamanns ársins lýst í dag
Moskvu, París. AP, AFP. | Rússneska
orkufyrirtækið Gazprom lofaði í
gær að auka gasflutninga til Evr-
ópu en það sakar Úkraínumenn um
að hafa stolið gasi, sem ætlað var
Evrópuríkjunum. Hefur þetta mál
vakið ýmsar gamlar spurningar
um Rússa og hvort unnt sé að
treysta þeim.
Um fimmtungurinn af því gasi,
sem notað er í Evrópu, kemur frá
Rússlandi um Úkraínu, en í gær
vantaði 20 til 40% upp á gas-
streymið í ýmsum löndum, til
dæmis í Póllandi, Þýskalandi,
Frakklandi, Ungverjalandi og víð-
ar. Gazprom krefst þess, að Úkra-
ínumenn greiði heimsmarkaðsverð
fyrir gasið, hátt í fimmfalt meira en
þeir greiða nú, og fylgdi því eftir á
sunnudag með því að minnka gas-
flutninginn um það, sem Úkraínu-
menn hafa notað. Virðast þeir hafa
brugðist við með því að seilast í
gasið, sem ætlað er Evrópu, þótt
þeir neiti því að vísu.
Alexander Medvedev, aðstoðar-
forstjóri Gazprom, sagði, að gas-
flutningurinn yrði aukinn til að
tryggja, að Evrópuríki fengju það,
sem um hefði verið samið, og lýsti
hann yfir vilja til að hefja aftur við-
ræður við Úkraínustjórn um gas-
verðið.
Áhyggjur og vaxandi
efasemdir um Rússa
Deila Úkraínumanna og Rússa
um gasverðið, sem margir telja, að
sé einnig af pólitískum toga, hefur
vakið áhyggjur í Evrópu og hafa
orkuráðherrar Evrópusambands-
ins boðað til sérstaks fundar um
hana á morgun. Þar við bætast
áhyggjur af köldum vetri auk þess
sem öll röskun hefur miklar efna-
hagslegar afleiðingar í för með sér.
Sem dæmi má nefna, að í gær skar
ungverska orkufyrirtækið Mol
gasflutninga til Serbíu, Svartfjalla-
lands og Bosníu niður um helming
en það er einna stærst í gassölu í
þessum löndum.
Þótt ríki í Vestur-Evrópu noti
aðeins rússneskt gas að tiltölulega
litlum hluta þá má heita, að næst-
um allt gas í Austur-Evrópu komi
frá Rússlandi. Með þá stöðu í huga
spyrja margir sig hvort unnt sé að
treysta Rússum og um það eru
vaxandi efasemdir. Í gær minntu
ummæli sumra fréttaskýrenda og
neytenda um það einna mest á orð-
færið á kaldastríðsárunum.
Reuters
Hjónin Dmytríj og Natalja Bendyk í þorpinu Osestsjyna skammt frá Kíev verða líklega að vera dugleg við að
höggva í eldinn á næstunni en segja má að neyðarástand blasi við í Úkraínu eftir að Rússar ákváðu að fimm-
falda gasverðið. Úkraínumenn neita að hafa stolið gasi en segjast munu gera það kólni mikið í veðri.
Lofa nægu gasi
Eðlileg verðhækkun | 16
EKKERT lát virðist ætla að verða á
fjárfestingum íslenskra fyrirtækja
og athafnamanna í Danmörku en
Sigurjón Sighvatsson hefur nú keypt
75% hlutabréfa í norræna kvik-
myndadreifingarfyrirtækinu Scan-
box Entertainment Group A/S.
Kaupverðið fæst ekki uppgefið en fé-
lagið veltir um fjórum milljörðum og
hjá því starfa um 150 manns víðs
vegar í Skandinavíu.
Í október keypti Sigurjón danska
fasteignafélagið VG Investment fyr-
ir hátt í níu milljarða íslenskra króna
og samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins má búast við að greint verði
frá frekari fasteignakaupum Sigur-
jóns í Danmörku eftir nokkrar vikur.
Scanbox var
upphaflega stofn-
að í Danmörku
árið 1980 en er nú
með starfsemi á
öllum Norður-
löndunum, utan
Íslands, og í
London. Góður
vöxtur hefur ver-
ið í starfsemi fé-
lagsins á undan-
förnum árum en einkum hefur verið
lögð áhersla á dreifingu sjálfstæðra
alþjóðlegra kvikmynda, kvikmynda
frá Norðurlöndunum og sérfram-
leiddra kvikmynda fyrir dvd-mark-
aðinn, sem stöðugt fer stækkandi.
Scanbox er eitt af stærstu sjálf-
stæðum dreifingarfélögum á Norð-
urlöndunum og það er með töluvert
mikla hlutdeild á dönskum markaði,
m.a. um 30% af heimaframleiðslu
þar, að sögn Sigurjóns. Hann segist
hafa verið töluvert á Norðurlöndun-
um og fylgst með Scanbox um hríð.
„Sonur minn flutti til Danmerkur
fyrir einu og hálfu ári og þá fór ég að
eyða miklu meiri tíma þar og fór að
skoða nánar markaðinn í heild sinni.
Þessi lönd eru af þægilegri stærð og
við þekkjum siði og menninguna
þar.“
Sonur Sigurjóns, Þórir Snær, er
kvikmyndaframleiðandi í Danmörku
og hefur m.a. framleitt Næsland og
Voksne mennesker og hann og fyr-
irtæki hans, Zik Zak, verður með-
framleiðandi að næstu kvikmynd
Lars von Trier.
Kaupir meirihluta í Scanbox
Sigurjón
Sighvatsson
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
Scanbox hefur | 14
AÐ minnsta kosti fimm biðu bana er
þak skautahallar í Bad Reichenhall
í bæversku Ölpunum hrundi í gær
undan miklum snjóþunga. Í gær-
kvöldi var enn verið að leita 20
manna í rústunum en þá var búið að
bjarga úr þeim nærri 25 manns,
mismikið meiddum. Talsmaður
Rauða krossins í Bæjaralandi sagði,
að algert neyðarástand væri á slys-
stað og aðstæður erfiðar vegna
mikillar snjókomu.
Reuters
Hrundi undan snjóþunga
London. AFP. | Frestur til að
vitja lottóvinnings upp á
rúman milljarð íslenskra
króna rann út í Bretlandi í
gær án þess að nokkur gæfi
sig fram. Um er að ræða
hæsta ósótta vinninginn í
breska lottóinu frá upphafi.
Vinningsmiðinn var seldur
í Doncaster 6. júlí síðastlið-
inn en 180 dagar mega líða
áður en honum er framvísað.
Rann fresturinn út klukkan
hálffimm í gærdag og bendir
því flest til, að miðinn hafi
glatast. Í gær var vinnings-
hafinn búinn að tapa 13 millj.
kr. í einum saman vöxtum af
upphæðinni.
Talsmaður breska lottós-
ins sagði í gær, að vinnings-
féð yrði sett í sérstakan sjóð
hjá fyrirtækinu en hann er
notaður til að styrkja ýmis
góð málefni.
Enginn
vitjaði
vinningsins
Á ÁRINU 2005 fórust 1.059 manns
í 35 flugslysum þar sem við sögu
komu áætlunarflugvélar með
meira en einum hreyfli og sem
tóku ekki færri en 14 farþega. Á
árinu voru farþegar með vélunum
hins vegar meira en tveir milljarð-
ar.
Fjöldi látinna á síðasta ári var
raunar helmingi meiri en 2004 en
þó heldur minni en meðaltalið síð-
asta áratug en það er 1.095.
Þessar tölur eru komnar frá
flugöryggisstofnuninni Aviation
Safety Network og yfirfarnar af
dönsku flugmálastofnuninni að því
er sagði á fréttavef Berlingske Tid-
ende. Þær þýða í stuttu máli, að
farþegaflugið, áætlunarflugið, er
ótrúlega öruggur ferðamáti.
Ótrúlega
öruggt
að fljúga
FARGJÖLD hjá Strætó bs. hækkuðu 1.
janúar sl. um að meðaltali rúmlega 10%
en ákvörðun um hækkun var tekin í
stjórn fyrirtækisins 16. desember sl.
Gjaldskráin hækkaði síðast í febrúar
2003 og þar áður í júlí 2001.
Með nýju gjaldskránni hækkar venju-
legt fargjald úr 220 krónum í 250 krónur
og fargjald fyrir börn hækkar úr 60
krónum í 75 krónur. Græna kortið, sem
gildir í mánuð, hækkar úr 4.500 krónum í
5.000 krónur og Rauða kortið, sem gildir
í þrjá mánuði, hækkar úr 10.500 í 11.500
krónur.
Fargjöld öryrkja og aldraðra hafa ver-
ið samræmd og er einstakt fargjald nú 75
krónur en ungmenni á aldrinum 12–18
ára greiða 115 krónur.
Ætlað að mæta
verðlagshækkun
Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri
Strætó, segir að hækkuninni sé ætlað að
mæta 11% verðlagshækkun frá því í febr-
úar 2003, þegar gjaldskráin hækkaði síð-
ast. Þá sé einnig verið að samræma verð
og láta það standa á þægilegum tölum.
Reynt hafi verið að láta þá sem mest
nota strætisvagna koma best út úr hækk-
ununum og því hafi tímabilakortin eins
og rauða og græna kortið hækkað hvað
minnst. „Þegar við vegum saman alla
flokka hækkar meðalfargjald okkar ekki
umfram verðlagsbreytinguna frá því í
febrúar 2003,“ segir Ásgeir.
Áætlað er að gjaldskrárbreytingarnar
skili Strætó bs. um 80–90 milljóna króna
tekjuaukningu á ári, en tekjur af far-
gjöldum hafa verið um 800 milljónir
króna á ári.
Strætó bs.
hækkar far-
gjöld um 10%
Heilsa og lífsstíll og Íþróttir