Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ALDRAÐIR Kínverjar dansa forn-
an þjóðdans fyrir utan versl-
unarmiðstöð í Peking. Óttast hefur
verið að þessi listgrein líði undir
lok í Kína. Slíkir þjóðdansar hafa
verið dansaðir við ýmis hátíðleg
tækifæri, til að mynda í brúðkaups-
veislum, og nú einnig við opnun
verslunarmiðstöðva.
AP
Öldungar sýna þjóðdans
RÚSSNESKA gasfyrirtækið Gaz-
prom, sem á nýársdag skrúfaði fyrir
gas til Úkraínu, sakaði í gær úkra-
ínsk stjórnvöld um að taka til sín gas
að verðmæti upp á 25 milljónir
Bandaríkjadala sem ætlað væri við-
skiptavinum í Evrópu. Sagði Alex-
ander Medvedev, varastjórnarfor-
maður Gazprom sem er í
meirihlutaeigu rússneska ríkisins, að
bara á sunnudag hefðu Úkraínumenn
tekið til sín 100 milljón rúmmetra af
gasi.
„Ef þessi þjófnaður heldur áfram
og í svo miklum mæli mun verðmæti
þýfisins nema umtalsverðum fjár-
hæðum,“ sagði Medvedev.
Viktor Jústsjenkó, forseti Úkra-
ínu, harðneitaði því hins vegar að
Úkraínumenn tækju til sín gas sem
ætlað væri Evrópu. En hann gaf í
skyn að Úkraína tæki toll af gasflutn-
ingum til að standa straum af þeim
kostnaði sem félli til vegna flutninga
á gasinu um landið.
Forsætisráðherra Úkraínu, Júríj
Jekhanúrov, hefur áður sagt að
Úkraína eigi rétt á 15% af því gasi
sem enn fer um gasleiðslur í Úkraínu
og er ætlað evrópskum markaði.
Gasdeila Rússa og Úkraínumanna
er nú í afar hörðum hnút eftir að
Gazprom skrúfaði fyrir gasið til
Úkraínu vegna ágreinings um verð.
Hafa Evrópumenn miklar áhyggjur
af þróuninni, enda kemur um fjórð-
ungur þess gass sem notað er í álf-
unni um gasleiðslur er liggja um
Úkraínu og því fyrirsjáanlegt að gas-
deilan muni hafa áhrif þar. Forsvars-
menn Gazprom segjast hins vegar
ekki hafa átt annan kost í stöðunni,
einungis hafi verið ætlunin að láta
Úkraínu greiða svipað verð og tíðk-
aðist í Evrópu. Þarlend stjórnvöld
hafi hins vegar sýnt óbilgirni og harð-
neitað slíkum óskum.
Margir telja þó að aðgerðir Gaz-
prom séu liður í þeirri fyrirætlan
rússneskra ráðamanna að refsa
úkraínskum stjórnvöldum sem horft
hafa til vesturs eftir að Viktor Jústsj-
enkó var kjörinn forseti landsins fyr-
ir rúmu ári. Væri þetta raunar ekki í
fyrsta skipti sem Gazprom er notað
með þessum hætti, Rússar hafa áður
beitt þau ríki hörðu sem þeir álíta á
sínu áhrifasvæði en sem ögrað hafa
stjórnvöldum í Moskvu.
Þannig var skrúfað fyrir gas til
Hvíta-Rússlands í febrúar 2004 eftir
að Alexander Lúkasjenkó, hinn um-
deildi og óútreiknanlegi forseti
landsins, hafði reitt rússneska ráða-
menn til reiði einum of oft.
Ríki á áhrifasvæði Rússa
hafa fengið góða samninga
Gazprom er stærsti gasframleið-
andi veraldar, framleiddi um 20% alls
gass í heiminum árið 2004. Og Úkra-
ína hefur verið háð gasinu sem berst
um leiðslur Gazprom til landsins, um
30% alls gass sem notað er í Úkraínu
hafa komið frá Gazprom.
Úkraínumenn framleiða sjálfir að-
eins um 22% þess gass sem þeir
þurfa, mest kemur hins vegar frá
Túrkmenistan, eða um 40%. En
Gazprom á hins vegar allar gas-
leiðslur í Túrkmenistan, Úkraínu-
menn eru af þeim sökum í enn
þrengri stöðu en ella.
Staðreyndin er á hinn bóginn sú að
Úkraínumenn hafa notið góðra kjara
hjá Gazprom, þeir hafa aðeins þurft
að greiða 50 dollara fyrir hverja 1.000
rúmmetra af gasi. Kröfur Rússa gera
ráð fyrir að gasverðið fari í 230 doll-
ara á 1.000 rúmmetra en færa má rök
fyrir því að þar sé um eðlilegt verð að
ræða því að meðaltalsverð sem Evr-
ópusambandsríkin borga er 240 doll-
arar á 1.000 rúmmetrana.
En séu hin efnahagslegu rök
hækkunar augljós og eðlileg þá virð-
ast hinir pólitísku þættir einnig blasa
við í ljósi þess hversu yfirstjórn
Gazprom er tengd Vladímír Pútín
Rússlandsforseta tryggðaböndum.
Er haft eftir ónafngreindum fulltrúa
Gazprom í rússneskri útgáfu News-
week að það hafi ekki verið ákvörðun
fyrirtækisins að hækka gasverð til
Úkraínu svona hratt og svona mikið,
sú ákvörðun hafi verið tekin annars
staðar; þ.e. af valdhöfum í Kreml.
Og ljóst er að stjórnin í Úkraínu
velkist ekki í neinum vafa um að nú sé
verið að refsa henni fyrir að horfa til
vesturs. Benda Úkraínumenn á að
önnur ríki sem tilheyra áhrifasvæði
Rússlands og ekki hafa verið með
uppsteyt, fá gasið áfram á lágu verði,
t.a.m. Hvít-Rússar sem lært hafa
sína lexíu og halda sig á mottunni.
Selur Gazprom Hvít-Rússum gasið
fyrir 20% af verðinu sem fyrirtækið
vill að Úkraínumenn greiði, nýlegur
samningur gerir ráð fyrir að þeir
borgi 47 dollara fyrir 1.000 rúmmetr-
ana. Og Armenar og Georgíumenn
greiða um 110 dollara.
Úkraínsk stjórnvöld hafa lýst sig
viljug til að greiða hærra verð fyrir
gasið en vilja að heildarhækkunin
komi til framkvæmda á nokkrum ár-
um. Svo mikil hækkun í einu lagi geti
sligað ríkiskassann. Munu þeir hafa
hafnað tilboði sem barst frá Moskvu
skömmu áður en samningsfrestur
rann út og fól í sér að þeir fengju
þriggja mánaða aðlögunartíma; þ.e.
byrjuðu ekki að borga uppsett verð
fyrr en að þremur mánuðum liðnum.
Græðir Jústsjenkó
á deilunni?
Rússneskir fréttaskýrendur segja
reyndina þá að það séu úkraínskir
ráðamenn sem hafi ákveðið að efna til
þessa stríðs. Þannig segir Sergei
Markov, pólitískur ráðgjafi sem
tengsl hefur við Moskvu-stjórn, að
Viktor Jústsjenkó, forseti Úkraínu,
hafi talið að það myndi styrkja stöðu
hans í aðdraganda þingkosninga í
mars að fara í hart með þetta mál.
„Þessi deila er afar heppileg fyrir
Jústsjenkó því að færu þingkosning-
ar fram við eðlilegar aðstæður þá
myndi hann tapa þeim,“ sagði Mar-
kov. „Kosningastjórar hans bjuggu
til stefnu sem byggist á því að hafna
samningum, neita að sættast á mála-
miðlun þannig að Gazprom yrði
nauðbeygt til að skrúfa fyrir gasið
sem síðan hefði í för með sér and-
rússneska móðursýki [í Úkraínu],“
sagði hann ennfremur.
Nokkur Evrópuríki sögðu í gær-
morgun, að gas til þeirra, sem kemur
frá Rússlandi um Úkraínu, hefði
dregist saman um 40% í kjölfar að-
gerða Gazprom á nýársdag. Víktor
Kremenjúk, annar rússneskur
fréttaskýrandi, sagði þó litla hættu á
að þetta kæmi niður á Úkraínu.
„Evrópa mun hafa samúð með vesa-
lings Úkraínumönnunum. Í Austur-
Evrópu, í Eystrasaltsríkjunum og í
Póllandi hefur alltaf verið rík andúð
gegn Rússlandi,“ sagði hann.
!"#"$%&'(&&
!
"
#$%%&'(
%)*+,-'
.&/'&
0-'/& 1 22%&'(
*.0-')2*&'
31-.4
)2*&'
562.&%&'(
! "#
$
%&'
(
&) *%+
, % - ./$
&'
012
%
3$ 4$5
6
*
78
&
9:
&
7;
&
'))'& &("$%&&#*
*
<
>
%
7?+
8?+
9;+
Eðlileg verðhækkun eða
pólitísk refsiaðgerð?
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
New York. AFP. | Verktaki á vegum
bandaríska varnarmálaráðuneytis-
ins hefur greitt nokkrum trúarleið-
togum úr röðum súnní-araba fé fyrir
ráðgjöf varðandi áróður, að sögn
dagblaðsins The New York Times.
Flestir uppreisnarmennirnir sem
berjast gegn Bandaríkjamönnum og
her stjórnarinnar í Bagdad eru úr
röðum súnní-araba.
Sama verkatakafyrirtækið, Lin-
coln Group, hefur greitt íröskum
blöðum peninga fyrir að birta fréttir
sem bandarískir hermenn höfðu
skrifað og áttu að bæta álit erlenda
herliðsins meðal almennings.
Að sögn heimildarmanns The New
York Times fékk verktakafyrirtækið
þau fyrirmæli frá varnarmálaráðu-
neytinu snemma á nýliðnu ári að
„finna trúarleiðtoga sem gætu að-
stoðað við að búa til efni sem gæti
fengið súnníta í Anbar-héraði, þar
sem mikið er um ofbeldi, til að taka
þátt í kosningum og hafna uppreisn-
armönnum“.
Fyrirtækið hefur síðan haft í sinni
þjónustu þrjá eða fjóra súnníta-
klerka sem hafa gert skýrslur fyrir
bandaríska herforingja. „En í skjöl-
um og frásögnum liðsmanna Lincoln
er sagt að tengsl fyrirtækisins við
trúarleiðtoga og tugi annarra
frammámanna í Írak hafi einnig það
markmið að gera því [Lincoln] kleift
að hafa áhrif á samfélagshópa í Írak
fyrir skjólstæðinga sína, þar á meðal
Bandaríkjaher,“ segir í frétt blaðs-
ins.
Sagt er að frá maí til september
hafi verið veittir alls 144.000 dollarar
til verkefnisins. En ekki er ljóst hve
mikið af því fé fór í greiðslur til
súnnítaklerkanna og reyndar ekki
hægt að sanna að þeim hafi verið
greitt fyrir vikið. Ekki var heldur
gefið upp hvaða menn var um að
ræða.
Súnnítaklerkum
greitt fyrir ráðgjöf?
MÚGUR og margmenni fagnaði
Kizza Besigye, leiðtoga stjórn-
arandstöðunnar í Úganda, er hann
kom út úr byggingu hæstaréttar í
höfuðborginni Kampala í gær en
dómstólinn úrskurðaði að Besigye
skyldi látinn laus gegn trygginga-
gjaldi. Var það niðurstaða dóm-
stólsins að tilskipun herdómstóls
um að Besigye skyldi handtekinn
hefði verið ólögleg.
Besigye hefur verið í haldi frá
því hann sneri aftur til Úganda úr
útlegð í nóvember sl. Er hann
ákærður fyrir landráð, nauðgun,
brot á lögum um meðferð skot-
vopna og tengsl við hryðjuverk.
Lögreglan beitti táragasi gegn
fylgjendum Besigyes sem safnast
höfðu saman fyrir framan hæsta-
rétt í Kampala en ekki var vitað um
nein meiðsl á fólki. Besigye hyggst
bjóða sig fram gegn Yoweri Muse-
veni, forseta Úganda til nítján ára, í
kosningum sem fara fram í næsta
mánuði. Besigye, sem var áður
einkalæknir Musevenis, sagðist
ánægður með úrskurð hæstaréttar
en að málinu væri alls ekki lokið
þar sem stjórn Musevenis væri
áfram staðráðin í að brjóta á rétt-
indum hans og fylgismanna hans.
AP
Táragasi beitt gegn
fylgjendum Besigyes
Beirút. AP. | Nefnd Sameinuðu þjóð-
anna sem rannsakar morðið á líb-
anska stjórnmálamanninum Rafik
Hariri vill fá að ræða við forseta Sýr-
lands, Bashar Assad, og einnig utan-
ríkisráðherrann, Farouk al-Sharaa.
Sýrlendingar eru grunaðir um að
hafa átt þátt í morðinu.
„Nefndin mun einnig reyna að fá
viðtal við Abdul-Halim Khaddam
[fyrrverandi varaforseta Sýrlands]
eins og fljótt og auðið er,“ sagði tals-
kona nefndarinnar, Nasra Hassan.
Umræddur Khaddam, sem nú býr í
Frakklandi, sagði í sjónvarpsviðtali
á föstudag að Assad forseti hefði á
fundi með Hariri, nokkrum mánuð-
um fyrir morðið í febrúar sl., hótað
honum öllu illu. Hariri hafði snúist
gegn Sýrlendingum sem um þetta
leyti réðu lögum og lofum í Líbanon.
Sýrlenskir embættismenn og rík-
isfjölmiðlar hafa farið hamförum
gegn Khaddad vegna ummæla hans
og krafist þess að honum yrði refsað
fyrir landráð. Aðrir heimildarmenn
höfðu áður sagt frá hótunum Assads
en það hefur ekki verið staðfest af
jafn háttsettum manni fyrr. Tals-
kona rannsóknarnefndarinar sagði
að ummæli Khaddads staðfestu enn
frekar upplýsingar sem nefndin
hefði fengið frá öðrum heimildar-
mönnum.
Vilja ræða við Assad