Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 6

Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eldaskálinn | Brautarholti 3 | 105 Reykjavík sími: 562 1420 | eldaskalinn@eldaskalinn.is | www.invita.com Þrettándabrennan á eldhúsflatskjánum Gerum okkur glaðan dag og meðan birgðir endast gefum við 20" Toshiba LCD flatskjái með Invita eldhúsinnréttingum. Á www.invita.com sérðu enn fleiri innréttingalausnir. 20 ára ábyrgð. Þetta er Invita 20" LCD flatskjársjónvarp 25 ára afmælistilboð HELGI Berg Friðþjófsson hefur síð- ustu 14 ár keppt í fjallahjólreiðaí- þróttinni af miklu kappi. Und- anfarin ár hefur hann keppt í Danmörku og náð einstökum ár- angri en hann hefur hampað Dan- merkurmeistaratitlinum í fjalla- hjólabruni tvisvar. Í samtali við Morgunblaðið segir Helgi að hann hafi ekki ætlað sér að keppa í fjalla- hjólreiðum í Danmörku en hafi fljót- lega snúist hugur. „Ég fluttist til Danmerkur fyrir nokkrum árum þegar kærasta mín hóf nám í Álaborg. Ég ætlaði mér ekkert að fara að keppa en áður en langt um leið var ég búinn að kynn- ast fólki með sama áhugamál og eitt leiddi af öðru. Fyrr en varði var ég farinn að æfa af fullum krafti, bæði fjallabrun og BMX, og keppti í fjallabruni á svokölluðu „hardtail“- hjóli árið 2004, en það eru hjól sem eru einungis með fjöðrun að framan. Ég lauk fyrstu keppni í mótaröðinni í þriðja sæti en vann allar keppnir eftir það og varð þar af leiðandi Danmerkurmeistari. Einnig náði ég ágætum árangri í öðrum keppnum, komst á verðlaunapall í þremur, en þá í BMX-flokki. Árið 2005 færði ég mig yfir í „full suspension“-flokkinn, en þar er keppt á hjólum með fjöðr- un á báðum dekkjum, auk þess að keppa í BMX-flokknum. Ég þurfti að hætta þátttöku í BMX-mótaröðinni eftir að ég slasaði mig við æfingar í Noregi en náði öðru sæti í Sjálands- meistarakeppninni í þeim flokki. Hins vegar missti ég lítið úr fjalla- brunsmótaröðinni og varð Dan- merkurmeistari í þeirri grein. Einn- ig tók ég þátt í alþjóðlegu móti í Þýskalandi síðasta tímabil og náði þar öðru sæti.“ Tæknilegri brautir Nú er Danmörk ekki þekkt fyrir háar hæðir og brattar brekkur, hvernig eru aðstæður til fjallahjóla- iðkunar í Danmörku? „Ég stunda æfingar á tilbúnum brautum hérna í norðurhluta Kaup- mannahafnar og í Óðinsvéum. Þess- ar tilbúnu brautir eru um margt ólíkar brautunum sem eru á Íslandi, þær eru styttri en um leið mun tæknilegri hvað varðar beygjur og annað slíkt. Það reynir til dæmis meira á þolið á brautunum heima á Íslandi þar sem þær eru lengri.“ Að sögn Helga eru hjólin sem hann notast við mjög frábrugðin þeim sem hinn almenni hjólreiða- maður á að venjast. Þau séu mun sterkari og kemur það meðal annars fram í þyngdinni, en þau geta verið allt upp í 20 kíló. En mesti munurinn sé sennilega munurinn á verði. Nýtt hjól getur kostað allt frá 300.000 krónum upp í 600.000 krónur auk allra ferðalaganna og annars kostn- aðar sem fylgir. Helgi hefur því ver- ið að leita sér að styrktaraðila og gengur leitin vel: „Ég hef verið í viðræðum við nokkra aðila og hafa þær viðræður gengið vel. Ég vonast til að ná sam- ingum við styrktaraðila áður en næsta keppnistímabil hefst í apríl en það hefur mikla þýðingu fyrir mig að hafa góða styrktaraðila. Einnig hef ég verið að ræða við íslenska að- ila um styrktarsamninga en það á eftir að koma betur í ljós. Auk fjár- hagslega ávinningsins hjálpar kost- unarsamningur við að koma mér á framfæri innan íþróttarinnar en ég stefni á að komast á alþjóðleg mót, svo sem Evrópumeistaramótið, heimsmeistaramótið og Red Bull Rampage-mótið. Þátttaka á stærri mótum getur aukið tekjumöguleika mína og er draumurinn að sjálf- sögðu að geta starfað við þetta í framtíðinni,“ segir Helgi að lokum. Íslendingur Danmerkur- meistari í fjallabruni Morgunblaðið/Ómar Helgi Berg Friðþjófsson stefnir á atvinnumennsku í fjallahjólreiðum. Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is FRIÐRIK Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, staðfestir að komið hafi óskir frá Alcan á Íslandi og Cent- ury Aluminium um að kaupa orku fyr- ir álver á Suðvesturhorninu. Orkan frá Norðlingaölduveitu, fáist niður- staða í skipulagsmálið, yrði seld til þeirra. Friðrik segir að í raun sé þó erfitt að segja til um hverjir muni hugsanlega kaupa rafmagnið frá Norðlingaölduveitu enda sé á þessari stundu óvíst hvenær framkvæmdir geti hafist. Alcan hefur í hyggju að stækka ál- verið í Straumsvík og Century Alum- inium hefur kannað möguleika á að reisa nýtt álver í Helguvík. Norðlingaölduveita er ekki virkjun heldur vatnsmiðlun sem myndi veita auknu vatni til virkjana Landsvirkj- unar á Tungnaársvæðinu. Neðar í Þjórsá, við Núp og Urriðafoss, hefur Landvirkjun þegar fengið leyfi til að reisa virkjanir sem munu gefa um það bil þrefalt meiri raforku en yrði til með Norðlingaölduveitu en Friðrik segir að þær yrðu ekki eins arðsamar. „Það hafa komið fram óskir tveggja stóriðjufyrirtækja um að kaupa orku fyrir álver á Suðvesturlandi. Leiði viðræður við þessi fyrirtæki til orku- kaupasamnings, verður orkan frá Norðlingaöldu notuð til að mæta þeim þörfum, það er að segja ef niðurstaða verður komin í skipulagsmálið í tæka tíð. Hagkvæmni og arðsemi veitunnar felst í því að ekki þarf að virkja sér- staklega til að nýta orkuna frá veitunni. Meira vatn rennur í gegnum Vatns- fellsvirkjun, Sig- öldu, Hrauneyja- foss og fyrir- hugaða Búðar- hálsvirkjun, með þeim afleiðingum að uppsett afl þeirra nýtist betur. Orkugeta Norð- lingaölduveitu er um 600 gígavatts- stundir á ári sem er svipað og Búð- arhálsvirkjun í Tungnaá gefur,“ segir Friðrik. Friðrik segir að á sínum tíma hafi staðið til að raforka frá Norðlinga- ölduveitu yrði seld álverinu á Grund- artanga en þar sem málið hafi tafist í kerfinu hafi álverið keypt orkuna frá Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja. Landsvirkjun hefur leyfi til að reisa virkjanir í neðri hluta Þjórsár, við Núp og við Urriðafoss. Friðrik segir að verið sé að hanna virkjanirnar og að Landsvirkjun geti hafist handa við þær með stuttum fyrirvara. Það verði þó ekki gert fyrr en samningar um orkukaup liggi fyrir. „Þær virkjanir eru ágætar en þær eru ekki eins arð- samar og Norðlingaaldan,“ segir hann. Á vef Landsvirkjunar kemur fram að orkuvinnslugeta virkjunarinnar við Núp er áætluð um 1030 GWst á ári og orkuvinnslugeta virkjunarinnar við Urriðafoss um 920 GWst á ári. Ekki eins arð- samar og Norð- lingaölduveita Orkan frá veitunni hugsanlega til ál- vers í Straumsvík eða Helguvík Friðrik Sophusson Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÍSLANDSNEFND Falun Gong fagnar áliti umboðsmanns Al- þingis frá 5. desember síðast- liðnum þar sem segir að ís- lenska ríkisstjórnin hafi með ólögmætum hætti neitað Falun Gong-iðkendum um að koma til landsins meðan opinber heim- sókn forseta Kína stóð yfir í júní 2002. Nefndin harmar að gripið hafi verið til aðgerða gagnvart iðkendum Falun Gong og vonast hún til þess að rík- isstjórnin muni nýta tækifærið til þess að bæta ástandið með því að bæta einstaklingum tjón sem þeir urðu fyrir vegna bannsins og afhenda nefndinni nafnalistann sem var notaður til þess að meina iðkendunum að koma til landsins. Nefndin hyggst eyða listanum. Í yfirlýsingu frá Íslands- nefndinni segir að meðan á op- inberri heimsókn forseta Kína á Íslandi stóð hafi iðkendur hvað- anæva úr heiminum nýtt eigin frítíma og fé til þess að ferðast til Íslands til að kalla eftir rétt- læti fyrir framan þáverandi for- seta Kína, Jiang Zemin. Fram kemur að hann hafi átt upptökin að því að ríkisstjórn Kína hóf ofsóknir á hendur Falun Gong- iðkendum. Ekki í þágu þeirra sjálfra „Viðleitni iðkendanna var ekki í þágu þeirra sjálfra heldur til þess að bjarga öðrum frá pynt- ingum og dauða, og til þess að deila þeim góðu lífsreglum um sannleika, samúð og umburðar- lyndi með Íslendingum sem svo sannarlega tóku vel á móti iðk- endunum og studdu velflestir rétt þeirra til ákallsins,“ segir í yfirlýsingunni. Þá segir að nefndin hafi áhyggjur af nafnalistanum sem beri nöfn friðsamra og löghlýð- inna Falun Gong-iðkenda. Litið er á listann sem brot á friðhelgi einkalífs og árás á mannorð ein- staklinganna og á Falun Gong almennt. Fagna áliti umboðsmanns og vænta bóta BÁLFÖRUM hefur fjölgað mikið hér á landi á síðustu árum. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, segir að á síðasta ári hafi þær verið um 17% á landinu öllu, en hlutfallið í Reykjavík væri um 25%. Annars staðar á Norð- urlöndum eru bálfarir mun algeng- ari. Í Danmörku og Svíþjóð er hlut- fallið á landsvísu yfir 70% og í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi er hlutfallið yfir 95%. Á vef Kirkju- garða Reykjavíkurprófastsdæma getur fólk fyllt út beiðni um bálför. Hlutfall bálfara um 17%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.