Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 43

Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 43 DAGBÓK Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Hvar er lækurinn og vinir umhverfisins? ÞAÐ eru heldur nöturlegar fréttir sem berast úr höfuðborginni nú rétt fyrir áramót. R-listinn er búinn að týna læknum sem rennur í Tjörnina, læknum sem er undirstaða fjöl- breytts fuglalífs í hjarta borg- arinnar. Þar sem ég veit að Ísland hefur að geyma einvalalið umhverfissinna sem ávallt er reiðubúið að leggja land undir fót og gæta hagsmuna gæsa og annarra náttúrufyrirbrigða sem lifa fjarri höfuðborginni þá ótt- ast ég eigi. Ég trúi ekki öðru en að þetta einvalalið rói, vaði eða gangi á ís út í Tjarnahólmann allt eftir tíð- arfari og reisi þar nokkra íslenska fána, öndum, gæsum og öðru því náttúrulífi sem þar þrífst til stuðn- ings. Einnig vil ég trúa því að þeir sem báru hag tjarnarinnar sem mest fyrir brjósti þegar ráðhúsið var byggt gangi nú í endurnýjun lífdaga og hjálpi til við að finna lækinn sem týndur er. Nú þarf ekki að fara langt til að standa vörð um náttúruna. Stöndum vörð um Vatnsmýrina og þar með fjölskrúðugt dýralíf á Tjörninni í borg allra landsmanna, Reykjavík. Kveðja, Jón Sigurðsson, Blönduósi. Skemmdarverk í kirkjugörðum ÉG vil koma á framfæri ljótri sögu um skemmdarverk í kirkjugarði. Um jólin var unnið skemmdarverk á leiði lítils barns í Hafnarfjarðar- kirkjugarði. Þar var tekin af leiðinu stór, þung englastytta af leiði barna- barns míns. Það eru allir miður sín vegna þessa, ekki síst foreldrar barnsins, þetta er mikið tilfinninga- mál í fjölskyldunni. Hvernig dettur fólki í hug að gera svona og hvað er að hjá fólki sem gerir svona? Ég vil vekja fólk til umhugsunar um að gera svona ekki og hvet ég þá sem þetta gerðu að koma styttunni aftur á sinn stað. Þetta skemmdi ansi mik- ið jólin hjá foreldrum barnsins. Sorgmædd amma. Bíllyklar fundust við Klukkuberg BÍLLYKLAR, merktir RENAULT, ásamt tveimur áföstum húslyklum, fundust á jóladag á bílaplani fyrir ut- an Klukkuberg 11– 41 í Hafnarfirði. Upplýsingar í síma 824 0440. Bíllyklar týndust í Kópavogi BÍLLYKLAR týndust 30. desember á leiðinni frá Félagsheimili eldri borgara í Hamraborg að Kópavogs- kirkju. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 554 0618. Kvenmannsveski í óskilum KVENMANNSVESKI fannst í Kirkjugarðinum í Fossvogi á að- fangadag. Upplýsingar í síma 585 2700. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12og 13–15 | velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/RAX Félagsstarf Aflagrandi 40 | Verslunarferð á morgun 4. jan. í Hagkaup, Skeifunni. Farið frá Aflagranda kl. 10. Árskógar 4 | Kl. 8.30–15 baðþjón- usta. kl. 13 opin handavinnustofa. Kl. 9.30 opin smíðastofa. Kl. 11 leikfimi. Kl. 9.45 boccia. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi, sund, vefnaður, línudans, boccia. Dalbraut 18–20 | Starfsfólk Dal- brautar 18–20 óskar landsmönnum öllum gleðilegs árs og friðar. Því mið- ur er viðgerðum í húsnæði fé- lagsmiðstöðvarinnar á Dalbraut 18– 20 ekki lokið. Greint verður frá því strax og opnað verður aftur formlega. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif- stofan í Gullsmára 9 er opin í dag kl. 10–11.30. Félagsstarf Gerðubergs | Gleðilegt ár til allra þátttakenda, samstarfsaðila og velunnara um land allt. Í dag opið kl. 9–16.30, m.a farið í áramóta- guðsþjónustu í Háteigskirkju. Lagt af stað frá Gerðubergi kl. 13.15 (kl. 12.45 kórfélagar), allir velkomnir. Skráning á staðnum og í síma 575 7720. Mynd- listarsýning Sólveigar Eggerz opin til kl. 17. Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9 aðstoð við böðun. Kl. 13 spila- mennska. Kaffiveitingar kl. 15. Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa- vinna, kaffi, spjall, dagblöðin. Hár- greiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 11 leikfimi. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 12.15 ferð í Bónus. Kl. 13 myndlist. Kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58 | Bútasaumur hjá Sigrúnu kl. 9–13. Boccia kl. 9.30– 10.30. Bankaþjónusta kl. 9.45. Helgi- stund hjá séra Ólafi Jóhannssyni kl. 13.30. Böðun fyrir hádegi. Fótaað- gerðir 588 2320. Hársnyrting 517 3005. Hæðargarður 31 | Fastir liðir hefjast strax eftir áramótin. Kynningarfundur á dagskránni föstudag 6. janúar kl. 14. Skráning á ný og spennandi nám- skeið. Laugardag kl. 10 árdegis eru Göngu-Hrólfar og Hana-nú göngu- gestir „Út í bláinn“. Líttu við, það eru allir alltaf velkomnir í Hæðargarðinn. Síminn er 568 3132. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30 handa- vinna. Kl. 10.15–11.45 enska. Kl. 11.45– 12.45 hádegisverður. Kl. 13–16 postu- línsmálun. Kl. 13–16 bútasaumur. Kl. 13–16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45 kaffi- veitingar. Kirkjustarf Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón- usta kl. 18.30. Háteigskirkja | Messa kl. 14. Þátttak- endur í starfi eldri borgara í Reykja- víkurprófastsdæmum fjölmenna, fagna jólum og eiga sameiginlega stund í safnaðarheimilinu á eftir yfir kaffi og skemmtilegheitum. Prestur er sr. Tómas Sveinsson. Gerðubergskór- inn syngur, organisti er Douglas A. Brotchie. Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Hveragerðiskirkja | Foreldramorgnar þriðjudagsmorgna kl. 10–11.30 í Safn- aðarheimili Hveragerðiskirkju. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam- eiginleg bænavika dagana 2.–7. jan. verður sem hér segir: 2. jan. Hefst kl. 20 uppi á Vatnsendahæð. 3. jan. Veg- urinn kl. 20. 4. jan. Reykjavíkurkirkja. Ömmukaffi kl. 20. 5. jan. Hjálpræð- isherinn kl. 20. 6. jan. Safnaðarheimili Grensáss. Winjard kl. 20. 7. jan. Fíla- delfía kl. 20. STOFNUN Vigdísar Finnboga- dóttur í erlendum tungumálum hef- ur gefið út þrjú rit eftir fræðimenn stofnunarinnar um rannsóknir þeirra á spænskri tungu og bókmenntum frá Rómönsku- Ameríku. Fyrst er að geta bókar dr. Violu Miglio, lektors í spænsku, Mar- kedness and Faithfulness in Vowel Systems. Bókin kom út í ritröðinni „Outstand- ing Dissertations in Linguistics, flokki fræðirita sem gefin er út af hjá hinu virta útgáfufyrirtæki Rout- ledge í New York, og byggist á doktorsritgerð hennar við Háskól- ann í Maryland í Bandaríkjunum. Rómönsk mál og hljóðkerfisfræði þeirra eru aðalefni bókarinnar, svo og samanburður milli sérhljóða- kerfa og málbreytinga. Viola Miglio notar nýja kenningu í hljóðkerf- isfræði innan málkunnáttumálvís- inda, hina svokölluðu bestunarkenn- ingu, í rannsókn sinni. Samkvæmt henni eru hljóðkerfisfræðilegar myndir í samkeppni hver við aðra og sú sem brýtur færri hömlur verð- ur ofan á. Með hjálp þessarar kenn- ingar útskýrir Viola hvernig bera megi saman breytileg sérhljóðakerfi rómanskra mála (m.a. ítölsku, portúgölsku og spænsku). Hún beit- ir einnig aðferðinni við greiningu nútímatungumála og 16. aldar ensku til að setja fram kenningar um hvernig breyting sú sem kallast „Great Vowel Shift“ gæti hafa átt sér stað. Þessi breyting orsakar, til dæmis, að orð sem náskyld eru ís- lensku orðunum mús eða tími eru borin fram með tvíhljóð í ensku: [maus] „mouse“ og [tajm] „time“. Höfundurinn útskýrir ítarlega ýmsar málbreytingar og hve mik- ilvægu hlutverki rómanskar mál- lýskur gegna í málvísindalegum rannsóknum. Í tveimur köflum bók- arinnar gerir Viola grein fyrir rann- sóknum sínum á framandi mál- lýskum frá Mantova-svæðinu á Norður-Ítalíu og fjallar um kata- lónskar, portúgalskar og aðrar mál- lýskur ólíkra rómanskra tungumála. Viola hefur haldið fyrirlestra um rannsóknarefni sitt víða um heim að undanförnu. Síbreytileg sjálfsmynd kvenna Bók dr. Hólmfríðar Garð- arsdóttur, lektors í spænsku, ber titilinn La reformulación de la identidad genérica en la narrativa de mujeres argentinas [Endur- skoðun sjálfsmyndar kynjanna í rit- verkum argentínskra kvenna]. Bók- in kom út í Buenos Aires fyrir skömmu í ritröðinni „Nueva Crítica Hispanoamericana“ hjá útgáfufyr- irtækinu Corregidor sem sérhæfir sig í útgáfu fræðirita á spænsku um argentínsk þjóðfélags- og menning- armál auk bókmennta. Aðalefniviður bókarinnar er sí- breytileg sjálfsmynd kvenna og átök við staðlaðar hugmyndir um sam- félagslegt hlutverk þeirra. Í rann- sóknum sínum hefur Hólmfríður sérstaklega beint sjónum að skáld- sögum eftir konur í Argentínu, sem gefnar voru út á árunum 1980–2000. Rök eru færð fyrir því að í þeim hefði mátt sjá fyrir uppþotin í árslok 2001 þegar hundruð þúsund manna, undir forystu argentínskra kvenna, gerðu borgaralega uppreisn gegn stjórnvöldum. Hólmfríður sýnir fram á að aukna samkennd og sam- stöðu kvenna megi rekja til aukins sjálfstyrks og jákvæðrar sjálfs- ímyndar og að þessir þættir séu for- sendur þess að konurnar ákváðu að grípa til sinna ráða. Þrátt fyrir vís- bendingar um yfirvofandi uppreisn kom það yfirvöldum í opna skjöldu þegar konur fylltu götur og torg Buenos Airesborgar með skaftpotta að vopni og ærðu óeirðalögregluna með yfirþyrmandi hávaða. Hólmfríður hefur að undanförnu haldið fyrirlestra um rannsóknir sínar víða um heim m.a. á Norð- urlöndunum, Spáni, Bretlandi, Bandaríkjunum og í Argentínu. Í kjölfar útkomu fræðiritsins hefur Hólmfríði verið boðin aðild að Vís- indaakademíu Argentínu [Sociedad Científica Argentína]. Málvitund í króníkum fyrri alda Þriðja bókin, La conciencia lingü- ística. Nuevas aportaciones de impresiones de viajeros, kom út í Barcelona snemma árs 2005. Hér er á ferðinni safn greina um nið- urstöður fræðimanna sem hafa rannsakað hvernig málvitund birtist í ferðabókum og króníkum fyrri alda. Flestir fræðimannanna tengj- ast Háskólanum í Barcelona með einum eða öðrum hætti. Ritstjórar bókarinnar eru dr. Emma Martinell Gifre, prófessor við Háskólann í Barcelona og formaður Málvísinda- félags Spánar (La Sociedad Esp- añola de Lingüística), og dr. Erla Erlendsdóttir, spænskukennari við Háskóla Íslands. Í bókinni er meðal annars grein eftir dr. Erlu Erlendsdóttur um málvitund í Grænlendingasögu og Eiríkssögu rauða. Hún fjallar um hvort fram komi upplýsingar um það hvernig persónur bókanna, til dæmis indíánar í Ameríku og nor- rænir menn, sem töluðu ólík tungu- mál höfðu samskipti hver við aðra, til dæmis með látbragði og handa- pati. Hólmfríður Garðarsdóttir Fræðibækur um spænska tungu BELGÍSKA Kongó eftir Braga Ólafsson gekk fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu tvö leikár í röð. Vegna fjölda áskorana hefur nú verið ákveðið að taka verkið aft- ur upp núna eftir áramótin. Fyrsta sýning verður 7. janúar. Eggert Þorleifsson hlaut Grímu- verðlaunin fyrir bestan leik í að- alhlutverki karla vorið 2004 fyrir túlkun sína á hinni fjörgömlu Rósalind. Auk Eggerts leika í sýning- unni: Ilmur Kristjánsdóttir, Ellert A. Ingimundarson og Davíð Guð- brandsson. Sýningin tekur 1 klst. og 20 mínútur í flutningi án hlés. Morgunblaðið/ÞÖK Eggert Þorleifsson í hlutverki Rósalindar. Belgíska Kongó langlíft Frá og með mánudeginum 2. jan. lokar Soldis tímabundið við Vitastíg Búðin opnar aftur í Blómavali Skútuvogi laugardaginn 21. jan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.