Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 11

Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 11 FRÉTTIR Útsalan hefst á morgun kl. 10.00 Laugavegi 51, sími 552 2201 40% afsláttur Síðumúla 13 108 Reykjavík Sími 568 2870 Opið frá 10:00–18:00 ÚTSALA – ÚTSALA Dæmi um verð: Áður: Nú: 50-80% afsláttur Ótrúlega lágt verð Rúllukragapeysa 6.000 1.900 Marglit peysa 7.200 1.900 Jakkapeysa 6.200 2.900 Flís-jakkapeysa 5.300 1.900 Dömuskyrta 4.900 1.900 Ullarblazer 6.600 1.900 Gallajakki 5.300 1.900 Úlpa m. hettu og skinni 5.800 2.900 Mokkajakki 10.800 3.900 Pelsjakki 7.900 3.900 Kjóll m. perlum 7.300 1.900 Gallapils 4.800 1.900 Teinóttar buxur 3.600 1.800 Kvartbuxur 4.700 1.900 Gallabuxur 5.400 2.700 Silfur sandalar 5.400 1.900 Einnig fatnaður á kr. 500 og kr. 990 og margt margt fleira Egilsstaðir | Fyrir skemmstu kynnti Þróunarfélag Austurlands skýrsl- una Auðlindin hreindýr á Austur- landi. Hún er unnin undir stjórn Þróunarfélagsins af vinnuhópi sem félagið setti á fót síðla árs 2004 og hafði þann tilgang að móta hug- myndir um betri nýtingu hreindýra í þágu ímyndar Austurlands, menn- ingar og atvinnulífs. Kemur þar m.a. fram að eðlilegt sé að stjórnun hreindýraveiða sé að mestu í hönd- um Austfirðinga, auka þurfi fag- mennsku við verkun á hreindýra- kjöti og að auka þurfi rannsóknir á hreindýrum. Efni skýrslunnar skiptist í sögu- legt ágrip um hreindýr á Íslandi, stöðumat og tillögur, stoðgreinar sem tengjast hreindýrum og skipu- lag og framtíð hreindýramála á Austurlandi. Við gerð skýrslunnar var unnið út frá eftirfarandi grunn- þáttum og hugmyndum: Veiðum hreindýra, leiðsögn, kjötvinnslu, hreindýragarði, handverki, þekking- arsetri hreindýra, og ferðamálum. Í meginsjónarmiðum vinnuhóps- ins varðandi framangreinda þætti kemur meðal annars fram að eðlilegt sé að stjórnun hreindýraveiða sé að stærstum hluta í höndum Austfirð- inga og stjórnsýsla vegna dýranna skapi störf í landshlutanum. Leið- sögumannsstarfið á að vera eftirsótt og fjöldi starfsleyfa takmarkaður til þess að treysta starfsgrundvöll veiðileiðsögumanna og tryggja gæði þeirrar þjónustu sem veiðimenn þurfa að kaupa. Auka þarf fag- mennsku við verkun á hreindýra- kjöti og auka arðsemi veiðanna í heimabyggð með því að gera mönn- um kleift að bjóða upp á þá þjónustu sem veiðimenn þurfa á að halda. Auka þarf framboð á hreindýra- afurðum með framleiðslu á t.d. hreindýrasalami, hreindýrapaté og reyktum hreindýratungum. Jafn- framt þurfa veitingahús á Austur- landi að hafa á boðstólum marg- víslega rétti úr hreindýrakjöti. Nýting á hráefnum fyrir þennan málaflokk þarf að vera eins góð og kostur er og veiðimenn þurfa að fá greitt fyrir þau. Byggja þarf upp vandaða framleiðslu sem byggist á þeim hráefnum sem fyrir hendi eru og koma á fót sölumiðstöð fyrir hreindýravörur. Nýta þarf hrein- dýrin betur sem sérkenni fyrir Aust- urland. Lykilatriði er að koma upp hreindýrasetri þar sem ferðamenn geta aflað sér upplýsinga um hrein- dýr, keypt minjagripi, skráð sig í skoðunarferðir og horft á myndbönd um dýrin og málefni tengd þeim. Auka þarf rannsóknir á hreindýrum, vakta stofninn betur og veita til þess meira fjármagn en nú er gert. Menning tengd hreindýrum er hluti af sögu þjóðarinnar og hana verður að varðveita og miðla til ferðamanna og komandi kynslóða. Í skýrslunni er gerð tillaga að vistunaraðilum fyrir hvern fram- angreindra málaflokka og jafnframt sett fram tillaga um skipun fimm manna framkvæmdaráðs til þess að fylgja eftir framkvæmdaáætlun sem í skýrslunni er. Þá er gert ráð fyrir að vinnuhópurinn sem skýrsluna vann komi saman tvisvar á ári og fylgi málefnum skýrslunnar eftir. Skýrsluna, sem er 49 síður með við- aukum, er hægt að fá endurgjalds- laust hjá Þróunarfélagi Austurlands. Skýrsluna má einnig nálgast á vef- svæði Þróunarfélags Austurlands, www.austur.is. Ný skýrsla Þróunarfélags Austur- lands um hreindýranytjar Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir Stjórn hreindýra- veiða verði hjá Austfirðingum Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.