Morgunblaðið - 03.01.2006, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 03.01.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 21 MINNSTAÐUR AUSTURLAND Seyðisfjörður | Bæjarstjórn Seyð- isfjarðar hefur samþykkt að öll börn með lögheimili í sveitarfé- laginu eigi frá eins árs aldri til og með fimm ára rétt á fjögurra tíma dvöl á leikskóla bæjarins án endur- gjalds, á starfstíma skólans. Frek- ari dvöl og fæðiskostnaður greiðist skv. gjaldskrá. „Þetta er búið að gerjast í nokkurn tíma, allt frá hug- mynd til framkvæmdar í gegnum félög og ráð,“ segir Snorri Em- ilsson, ferða- og menningarfulltrúi Seyðisfjarðar. „Fyrsta skrefið í átt að gjaldfrjálsum leikskóla var tekið fyrir um ári síðan, þegar leikskól- inn var gerður gjaldfrjáls í fjóra tíma fyrir fimm ára börnin, eða elsta árganginn. Þetta er annað skrefið og það er von margra að þau verði fleiri.“ Þess má og geta að sveitarstjórn Austurbyggðar hefur samþykkt að veittur verði gjaldfrjáls leikskóli fyrir elsta árgang leikskólabarna í Austurbyggð frá kl. 8–12 nú frá áramótum. Á meðfylgjandi mynd er Sig- urður O. Sigurðsson leiðbeinandi í leikskólanum á Seyðisfirði ásamt (f.v.) Óla J. Gunnþórssyni, Ara B. Símonarsyni, Gunnari Einarssyni, Jóni V. Péturssyni og Kapítólu R. Stefánsdóttur. Ljósmynd/Snorri Emilsson Öll leikskólabörn á Seyðisfirði fá fjóra tíma endurgjaldslaust Óðinssyni nema sem gefur kost á sér í 4. til 6. sæti. Pétri Fannari Gísla- syni nema sem gefur kost á sér í 6. sætið og Aðalsteini I. Jónssyni bónda sem tilgreinir ekkert sérstakt sæti en mun taka þar sæti á listanum sem hann raðast. Formaður fulltrúaráðs sjálfstæð- isfélaganna á Fljótsdalshéraði er Hrafnkell A. Jónsson. Egilsstaðir | Sjálfstæðisflokkurinn á Fljótsdalshéraði verður með próf- kjör vegna sveitarstjórnarkosning- anna 27. maí nk. Prófkjörið fer fram 4. og 5. febrúar. Framboðsfrestur rann út 16. desember. Framboð bár- ust frá 9 einstaklingum: Soffíu Lárusdóttur, forstöðu- manni Svæðisskrifstofu fatlaðra á Austurlandi og forseta bæjarstjórn- ar, sem gefur kost á sér í 1. sætið. Guðmundi Sveinssyni Kröyer, verk- fræðingi og bæjarfulltrúa, Þráni Lárussyni, skólameistara á Hall- ormsstað og formanni Sjálfstæðis- félags Fljótsdalshéraðs, og Þórhalli Harðarsyni, rekstrarstjóra Heilsu- gæslustöðvarinnar á Egilsstöðum, sem gefa kost á sér í 2. til 3. sæti. Fjólu Margréti Hrafnkelsdóttur fjármálastjóra og formanni ungra sjálfstæðismanna á Fljótsdalshéraði í 3. sæti, Guðmundi Ólafssyni, fram- kvæmdastjóra Barra, sem gefur kost á sér í 3. til 4. sæti. Degi Skírni Prófkjör sjálfstæðismanna á Héraði í febrúar Neskaupstaður | Jóna Guðlaug Vig- fúsdóttir blakkona var valin íþrótta- maður Þróttar árið 2005. Jóna Guð- laug, sem er 16 ára gömul, vann meðal annars það afrek á árinu að vera fyrsti Íslendingurinn sem nær því takmarki að verða atvinnumaður í blaki, en hún skrifaði undir at- vinnumannasamning við blaklið í Frakklandi í sumar. Jóna hlaut öll greidd atkvæði hjá hópnum sem vel- ur íþróttamann Þróttar. Jóna Guðlaug íþróttamaður Þróttar 2005 Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Blakkonan knáa Jóna Guðlaug. Bensínsamkeppni Bensínorkan ráðgerir að opna nýja eldsneytissölu á Egilsstöðum á næstu vikum og mun hún standa við Þjóðveg 1 við Egilsstaði. Fyrir eru á Egilsstöðum bensínstöðvar Skeljungs og Esso og í Fellabæ handan Fljóts er Olís með stöð. Bensínorkan leitar víðar fanga á Austurlandi og hefur sótt um lóð í Neskaupstað, við Strandgötu 15. Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkti umsóknina nýverið með fyrirvara um grenndarkynningu. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.